Tíminn - 23.12.1964, Síða 7
BUttVlKUDAGTTR 23. desember 1964
ÞINGFRÉTTIR
TÍMINN
ÞINGFRETTIR
SÖLUSKATTSHÆKKUNIN
Er Einar Ágústsson hafði rætt
um hina miklu dýrtíðaraukningu
og hinar óhóflegu álögur í sumar
þvert ofan í fyrirheitin og lof-
gerðarskrifin í stjórnarblöðunum
um skattalækkanir og svikin á fyr-
irheitunum, sem gefin voru í
stjórnarmálgögnunum í sumar um
að álögurnar yrðu leiðréttar, svo
og rof júnísamkomulagsins vegna
söluskattshækkunar nú sagði hann
m.a.:
Ríkisstj. segist þurfa að hækka
söluskattinn, til þess að geta af-
greitt greiðsluhallalaus fjárlög.
Við framsóknarmenn höldum því
fram, að þessi staðhæfing sé röng.
Fyrir því færum við fram þessi
rök: Óeyddar eru verulegar fjár-
hæðir af greiðsluafgöngum fyrri
ára, sem sjálfsagt er að grípa til,
áður en nýir skattar verða lagðir
á. Reynslan undanfarið hefur sýnt,
að tekjur hafa farið fram úr áætl-
un svo hundruðum millj. skiptir
ár hvert og með hliðsjón af því
teljum við þær einnig of lágt áætl-
aðar nú. Sjálfsagt er að grípa til
þeirra sparnaðarúrræða, sem ríkis
stj. hefur mikið rætt um, en
hvergi sýnt í verki. Sukk og
óraðsía verður að hverfa, en ráð-
deild að koma í staðinn. Með til-
komu rannsóknardeildar í skatta-
málum standa vonir til þess, að
betri heimtur verði á ríkistekj-
unum en verið hefur . . . Auk
þess er hér sýnilega um fullkom-
inn handahófsútreikning að ræða
á því, hvað talið er vanta í ríkis-
sjóð. Þetta kemur fram á marg-
an hátt. T.d. er því slegið föstu
í aths. frv., að 68 millj. kr. vanti
til þess, að tekjur og gjöld stand-
ist á árið 1964 Uppgjör þessa
árs liggur þó ekki fyrir og þess
MED OLLU OÞORF
Kafli úr útvarpsræðu Einars Ágústssonar
vegna er ekkert hægt um þetta
að segja að svo stöddu og allar
fullyrðingar út í hött.
Þá tala síðustu viðbrögðin skýru
máli um þetta. Eins og kunnugt
er, greindi forsrh. á um það, við
viðsemjendur sína frá í vor, hvort
í samkomulaginu hefði falizt heim
in er kunngerð, leið aðeins ein
nótt og væri vissulega ástæða til
að óska þess, að hæstv. forsrh.
eyddi í það fleiri nóttum að rann-
saka, hvort ekki væri hægt að
slaka meira til. Mætti þá hæfilega
svo fara, að unnt yrði að fella
söluskattsaukann alveg niður. Ef
★★ Það er mál manna, að sjaldan eða aldrei hafi ríkisstjórn-
in verið í annarri eins varanrstöðu í útvarpsumræðum og í út-
varpsumræð'unum í fyrrakvöld, erida áttu þeir vondan málstað
að veria, hina þokkalegu jólagjöf, söluskattshækkunina, sem
hún sendi launþegum í staðinn fyrir efndir á vilyrðum um
lækkanir á skattaálagningunni frá í sumar. Ræður ræðumanna
Framsóknarmanna vöktu sérstaka athygli fyrir rökfestu, en
ræðumenn Framsóknarflokksins í umræðunum voru þeir Einar
Ágústsson, Jón Skaftason og Þórarinn Þórarinsson. Eru hér
á síðunin birtir stuttir kaflar úr ræðum þeirra Einars og Jóns.
sn
ild til nýrrar skattaálagningar til
að afla tekna á móti niðurgreiðsl
um þessa árs eða ekki. Þegar horf
ið var að því ráði að falla frá
umræddri tekjuöflun, var það gert
á þann hátt að lækka söluskattinn
um 14%. Ekki er nú minnzt á
það einu orði, að ríkissjóður geti
ekki misst þessar 62 millj., sem
þarna er slakað til um. Milli þess
að ágreiningurinn reis og lækkun-
svo gæti til tekizt, er óhætt að
fullyrða, að næturverk forsrh.
hefði ekki í annan tíma bor-
ið gifturíkari ávöxt.
Við Framsóknarmenn erum á
móti hækkun söluskattsins vegna
þess, að við teljum hana óþarfa,
eins og ég hef nú íýst. Fleira
kemur það einnig til. Söluskattur
er óheppilegur vegna þess, að
hann leggst jafnt á því sem næst
alla vöru og alla þjónustu, nauð-
synlegar sem óþarfa og hann kem-
ur þyngst niður á þeim, sem
minnsta getuna hafa. Söluskatt-
inn verða allir að greiða og í því
ríkara mæli, sem þeir hafa fyrir
þyngri heimilum að sjá. Auk þess
vita allir, að innheimta söluskatts
er hér stórlega ábótavant og skort
ir áreiðanlega mikið á, að hann
kiomi allur til skila. í ritstjórn-
argrein Fjármálatíðinda er um
þetta sagt, að mikið af söluskatts-
skyldri starfsemi sé þess eðlis, að
nákvæmt, opinbert eftirlit sé vand
kvæðum bundið, svo að freisting-
in til skattsvika er þar af leiðandi
veruleg. Enn fremur er á það
bent, að eftir að söluskattur hér
á landi hefur verið hækkaður í
5%%, sé full ástæða til að fara
varlega svo að ekki skapist á
þessu sviði sama vandamálið og
'nú er við að glíma varðandi hina
beinu tekjuskatta. Þessi aðvörun
er áreiðanlega ekki úr lausu lofti
gripin og munu íslenzk yfirvöld
hafa fengið að reyna þetta, eins
og aðrir, sérstaklega eftir hækkun
þá á söluskattinum, sem gerð var
í febrúar s.l. Þegar söluskattur á
nú að hækka í 7%%, er aug-
ljóst, að þær freistingar, sem hér
um ræðir, vaxa enn stórkostlega
og eru þær þó mörgum full erf-
iðar fyrir. Það er því íullkomið
ábyrgðarleysi að láta þ:' hækk-
un koma til framkvæmda, án
þess að stórherða eftirlit með
framtölum, en engin ákvæði í þá
átt er að finna í frv. og allar till.
um það hafa verið felldar.
Þá er enn fremur á það að líta,
að hér er til þess ætlazt, að sveit-
arfélögin fái ekkert af þessum
söluskatti i sinn hlut. Augljóst er
þá, að vegna hans verða þau fyr-
ir talsverðri útgjaldaaukningu.
Því er það engum vafa undirorp-
ið, að sveitarfélögin munu m.a.
af þessum sökum hækka útsvörin
enn þá, enda eru fréttir þegar
farnar að berast af því. Borgar-
stjórn Reykjavíkur afgreiddi fjár
hagsáætlun sína þann 17. þ.m. og
eru útsvörin á næsta ári áætluð
47 millj. kr hærri en í ár, þrátt
fyrir mjög mikla hækkun á öðr-
Framhald á 14. síðu
0DAVERDB0L6UNNIHLEYPT
AFSTADAÐNÝJU
En Jón Skaftason hafði m.a.
rætt um stöðvunarstefnu þá sem
upp var tekin með júnísamkomu
laginu og yfirlýsingar verkalýðs-
hreyfingarinnar um svik á því
samkomulagi með söluskattshækk-
un nú, sagði hann m.a.
En er hæstv. ríkisstj. neydd til
þess að hverfa frá stöðvunarstefn-
unni? Lítum á dæmið, eins og
það blasir nú við á grundvelli
þeirra upplýsinga, sem er að finna
í grg. frb. og ræðum hæstv. ráðh.
Til þess að halda óbreyttum nið-
urgreiðslum á næsta ári og greiða
3%kauphækkun hjá því opinbera
sem stafar af hækkun söluskatts-
ins, segir í grg., að afla þurfi 239
millj. kr. Væri söluskatturinn ekKi
hækkaður, yrði engin kauphækk
un hjá því opinbera, sem þýddi,
að fjárhæð þessi lækkaði um 42
millj. kr. Vandinn er þá sá að fá
197 millj. til aukinna niður-
greiðslna á næsta ári. Er slíkt
ómögulegt með hærri áætlun rik-
istekna ellegar sparnaði. Af ríkis-
reikningum 4 ára af valdatíma-
bili stjórnarinnar sést, að ríkis-
tekjurnar hafa samtals farið 690
millj. fram úr áætlun og þó hefur
því stöðugt verið haldið fram við
hverja fjárlagaafgreiðsluna, af tals
mönnum stjórnarinnai að henni
sé fjár vants. Hæstv. fjmrh. hefur
og upplýst i umr. að 220 milli i
af þessum umframtekuim séu enn :
þá handbærar. Enn fremur hefur j
samk. ráðh. upplýst. að álagðui
tekju- og eignarskattur 1964 fari'
Kafli úr útvarpsræðu Jóns Skaftasonar
Jón Skaftason
46 millj. fram úr fjárlagaáætlun.
Innflutningsáætlunin fyrir árið
1963, sem samið var í Efnahags-
stofunni, reyndist vera 28%of lág,
enda fóru ríkistekjur það árið um
17%fram úr tekjuáætlun fjárl. Ég
nefni þetta sem dæmi um ná-
kvæmnina við áætlun ríkistekna
á fjárl. En fleira kemur til um
möguleika á hærri tekjum en fjár-
lagafrv 1966 ráðgerir. .» næsta ari
sparast ríkissjóði útgjöld. sem bar
eru nú upp á 95,5 millj kr., þar
sem niður á að talla hagræðingar
styrkur frystihúsanna og uppbæt-
ur á fiskverðið. n tekjur rikts-
sjóðs vegna þessara útgjalda hala-
ast áfram Enn fremur mætti við
TÓMAS KARLSSON RITAR
koma nokkrum sparnaði i ríkis-
útgjöldum og vii ég tii upplýsinga
aðeins nefna, að ýmis kostnaður
vegna ráðuneytanna hefur vaxið
úr 820 þús. kr. árið 1958 í 10
millj. árið 1963, kostnaður vegna
ferðalaga á ráðstefnur úr 2.2 millj.
kr. í 6.3 millj. kr. og kostnaður
vegna gestamóttöku úr 630 þus.
í 1.8 miilj. Eru hér aðeins tá
dæmi nefnd, sem vel mætti spara
á, og bæði Jónas Haralz og Jó-
hannes Nordai hafa bent á sparn-
aðarleiðina sem færa leið til bess
að ná endum saman
Ég þykist með þessum orðum
hafa fært að því ste^k '•nk að rík
issjóður þurfi ekki þær vibótar-j
tekjur, sem frv. þetta ráðgerir, ril
þess að halda óbreyttum niður-
greiðslum á næsta ári. Þar til
liggja aðrar orsakir Gerum hins
vegar ráð fyrir því versta. að
þetta reynist rangt hjá mér >g
ríkissjóður verði að fá auknar
tekjur, þá hefði ég mjög alvarleg
ar athugaserndii fram að færa við
sjálfa tekjuöflunarleiðina, sem
ég tel að hleypi óhjákvæmilega
nýrri verðbóiguskriðu af stað
Fyrir því er löng reynsla,
að almennur söluskattur hef-
ur hækkað vöruverð og þjón-
ustu um margfalt hærri upphæð.
en sjálfum söluskattinum nemui
Ekkert verðlagseftirlit hefur get
að komið í veg fyrir þetta. Mér
er tjáð, að Reykjavíkurborg undir
búi nú hækkun rafmagns. hit,i
veitu og strætisvagnagjalda >s
meira en vafasamt sé, hvort hún
láti sér nægja þá hækkun. sem f
viðbótarsöluskattinum leiðir. úr
því að hún fær tækifæn til þess
að fara af stað Svipað munu aðnr
gera. Mér er því spurn Hefði ekki
verið betra að láta óhjákvæmilega
verðhækkun koma fram a faum
tilgreindum vörutegunduni. reyna
að halda varnarlínunni i verð-
bólgustríðinu og koma bannig í
veg fyrir. að allt færi af stað.
Eg óska sérstaklega eftir því, að
einhver hæstv. ráðh., sem á eftir
mér tala, svari þessari spurningu.
En fieira er athugavert við sölu-
skattinn, en að hann sé óskyn-
samlegur, eins og á stendur.
Ilann hefur hér reynzt óréttlat-
astur allra skatta og það er á ai-
manna vitorði, að hann kemst
illa til skila i ríkissjóðinn þann
ig hef eg tengið uppiyst, au söiu-
skatturinn skili sér verr í ár en i
fyrra, þrátt fyrir aukna veltu. í 1.
hefti fjármálatíðinaa þ.á. ritar sð
aðaiefnahagsráðunautur ríkisstjórn
arinnar grein. 'ar sem hann var-
ar við frekari hækkun söluskatts
ins, þar sem mikil hætta sé á
undanbrögðum frá söluskatts-
greiðslu, en skalturinn hækkar
nokkuð verulega. eins og hann
, segir orðrétt. þá var söluskattur-
I inn 514% en verður 71t/2%
eftir samþykkt bessa frv. Þá ma
! ekki gleyma varnaðarorðum
hæstv viðskmrh . Gylfa Þ. Gísla-
sonar, að vísu nær 10 ára göml-
um, sem hélt þá grátklökkva for
dæmingarræðu um söluskattinn.
kvað hann skatta ranglátastan jg
að skattsvik vært; hvergi íeiri «n
í sambandi við hann Getur það
verið, að hæstv ráðh hafi nu
skipt um skoðun iafn jkoðana
fastur og hann ei að eðlisfari
Hæstv ríkisstjó‘n virðist staðrað
in í að knýja mál þetta fram í
; krafti síns meirihluta Ég vil ■<
á síðustu stundu ítreka ban
vörunarorð, sem s.jó1 .>• au
Framhald á 14 síðu.