Tíminn - 05.01.1965, Side 13

Tíminn - 05.01.1965, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 5. janúar 1965 13 TÍMINN MADE IN U.S.A. „Camel stund er ánægju stund! Kveikið í einni Camel og njótið ánægjunnar af gæðatóbaki, mildu og hreinræktuðu tóbaksbragði. BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINN. Eigið Camel stnod »trax í dag! HERAÐSSKOLI Framhald af 8. síðu. aðilum, hvatt til athafna og heit- ið málinu fylgi og öllum stuðn- ingi sem þau mega. Fyrst og fremst verður ríkis- valdið að gera sitt, þá geta hrepps félög og fyrrnefnd félög, svo og einstaklingar, lagt nokkuð fram af mörkum, sem framlög og gjafir. Ef allir þessir aðilar tækju hönd- um saman, gæti hrollurinn horf- ið úr þeim hrollgjörnu og mundi þá málið vinnast auðveldlega með byggingu Héraðsskóla Eyfirðinga. MINNING Framhaid ai 9. síðu fyrst skyldi prentsmiðjan rara að græða, er búið væri að selja hana“. Ávaltl var hressandi að eiga orðræður við Ólaf. Þar gætti óþrjótandi bjartsýnis, velvildar og greiðvikni. Hann vildi alltaf gott gera og treysti öðrum til hins bezta. Honum sárnaði bví mjög, ef menn misnotuðu hjálp hans og stuðning. Hann var einn af þeim elskulegustu mönnum, sem ég hef kynnzt um ævina. Vorið 1932 lá Ólafur um tíma veikur. Meðan svo stóð, söfnuð ust fyrir hlaðar af bréfum til hans. Þegar hann tók að hress- ast, fór hann að glugga í bréf sín. Sagði hann mér síðar, að meðal þeirra bréfa, sem hann hefði tekið frá til að svara fljot- lega, hefði verið bréf frá ungum manni norðanlands. Hann hefði þar farið þess á leit, að hann veitti sér vinnu hjá Kveldúlfi, ef hann kæml bráðlega til Reykja- víkur, sem hann mjög fýsti. Hann sagði, að bréfritarinn hefði haft svo fallega rithönd, stíll bréfsins verið svo lipur og prúðmannlegur, að sig hefði langað til að geta orðið honuin að liði Nú mun svo komið, að sá hinn sami, er bréfið ritaði Ólafi vorið 1932, mun nú vera orðinn ein af sterkustu stoð- um Sjálfstæðisflokksins og fram- arlega á fjármálasviði flokksins. En vitanlega var þessi ungi mað- ur aðeins ein af þeim þúsund- um, sem Ólafur mun um dagana hafa rétt hjálparhönd og stutt með ráðum og dáð til efnalegs sjálfstæðis og bjartari lífsafkomu. Enn eins atviks minnist ég glögglega. Þegar ég hafði lok- ið skiptum á Acta, kom dálítil upphæð til skipta meðal hluthafa. Þegar ég 'ætlaði að greiða Ólafi Thors hlut þeirra bræðra, neitaði hann að taka við honum. Sagði hann mér, að ég ætti að hafa þeirra hlut fyrir starf mitt við skiptin. Sér nægði að vita, að mér hefði tekizt að gera full skil við alla, sem Acta skuldaði, er sala fór fram. Ég býst við, að þeir væru færri nú á síðustu tímum, sem slægju hendi við arði af fyr- irtæki, sem þeir hefðu verið hlut- hafar í. Sumir hafa talið, að hann væri harðsvíraður í viðskiptum. Þetta atvik sýndi hið gagnstæða. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú goldið mikið afhroð við fráfall fyrrverandi formanns flokksins. Þess mun ef til vill vera langt að bíða, að flokkurinn eignist aft- ur annan eins „Fjögramaka.“ Þessa mikilhæfa og margslungna stjórnmála- og drengskaparmanns mun lengi verða minnst á sögu- spjöldum þjóðarinnar. Ég votta ekkju hans og öðrum ástvinum hans innilega hlut- tekningu við hið sviplega fráfall. En bak við fortjald hérvistardag- anna mun bjarma fyrir degi ódauðleika lífsins. Jón Þórðarson. ÞRIÐJUDAGSGREININ Framhald ai o síðu fljóta sofandi að feigðarósi. Og þess vegna er nauðsynin enn meiri að hafa taumhald á eyðsl unni, að bráðnauðsynlegar fram kvæmdir kalia að á þessum sviðum og fjölmörgum fléirl. Það er augljóst, að aðkall andi viðfangsefni eru bæði fleiri og stærri en svo, að við getum hafizt handa um þau öll í einu. Þá er það hygginna manna háttur að leggja við- fangsefnin niður fyrir sér, meta þýðingu þeirra og fram kvæma það fyrst, sem mest liggur við að komist i fram- kvæmd. Þannig verður þjóðar heildin einnig að vinna. Það áætlun, ekki af því tagi sem gerð var fyrir kosningar i hitt eðfyrra og enginn hefur síðan litið á, heldur ítarlega og vand aða áætlun, sem tryggt yrði af ekibeitni að yrði fram- kvæmd og sem léti nauðsynleg ar framkvæmdir í þágu alþjóð ar sitja i fyrirrúmi fyrir verðl bólgufjárfestingu. Við eigum svo margt ógert og svo marga möguleika ónot- aða. Við verðum að strita með viti Og hver veit nema þjóin greiddi skatta sína með glað- ara geði, ef hún vissi að þeim yrði vel varið. Gleðilegt nýár. ÁVARP Framh. af bls. 3. ur staðinn að sér, bæði um húsa- kynni og annað. Rafnseyri liggur miðsveitis á Vestfjörðum og til- valinn funda- og samkoimustaður, bílvegir í allar áttir og náttúrufeg urð. Þar ilmar enn úr grasi, og Vestfirðir eiga þar sinn sögustað líkt og Sunnlendingar Skálholt og Norðlendingar Hóla. Eg hefi leyft mér að gera þetta að umtals efni, því allt sem snertir Jón Sig urðsson er með nokkrum hætti þjóðmál, eins og m. a. gullpenings útgáfan sýnir. Undir lokin vil ég geta þess, að iis* ittiowiégbbomnuc t, mép er kunugt.um, að i undirbún- ’íH^í!''érrsj6fíkto!l!húríí:til "býggingar lcirkju á Rafnseyri, og mun nánar gerð grein fyrir því innan tíðar. Það á ekki að verða nein stór- kirkja, heldur fögur og virðuleg kapella, samboðin staðnum. Á Rafnseyri stendur enn veggjarbrot úr baðstofu, en þar undir var rúm Þórdísar húsfreyju. Mætti e. t. v. fella það inn í kirkjuvegg og merkja nákvæmlega á gólfi fæð ingarstað Jóns Sigurðssonar. Ef ríkið leggði fram eina krónu á móti hverri gjafakrónu. eins og gert var um endurreist Bessastaða kirkju, þá væri því máii borgið. Viðgerð Bessastaðakirkju er nú lokið að öðru leyti en þvi, að eftir er að koma fyrir þungri, viða- mikilli eikarhurð á sterkum járn- um í ekkerisstíl, enda var kirkjan helguð sjófara-dýrlingnum Nikul- ási í kaþólskum sið. Hurðin er gjöf frá Noregi, og nú komin til landsins. Mér hefir nýlega borizt tíu þúsund króna gjöf til kirkjunn ar frá konu, sem ekki vill láta nafns síns getið. Ríkið er nú laust allra málaloka. Það er ómetanlegt að hafa slíka staðarkirkju, og minnir á þann vígða þátt, sem kristin kirkja hefir átt í allri sögu og menning þjóðarinnar. Sú velgengni er góð, sem vér nú njótum. En er hún einhlít til að gera menn hamingjusama? Er saddur maður ætíð sæll? Svo hefir ekki alltaf reynzt. Það er eitthvað til sem heitir sál, og hungrar og | þyrstir eftir því réttlæti, sem ekki j er tóm laun eða tryggingalöggjöf. i Vér viljum sjá eitthvað fram á j veginn og jafnvel gegnum dauðans dyr, sem blasa við öllum. Á þessu nýja ári hugsum vér til framtíð- arinnar. Ef vér höfum einhvern til gang og starf, sjáum vér að vísu nokkuð fram á veginn, hvemig eigi að stíga hin næstu fót- mál. En hungur mannlegrar sálar stendur dýpra, og stundum bregð ur fyrir skærum geisla, Ijósi, sem skín í myrkrunum, eins og frá Jólastjörnu, Páskum og Hvíta- sunnu. Þá birtu hefir kirkjan flutt mörgum á öllum öldum, og ekki sízt þeim sem eiga andstreymt. í rauninni er jólaguðspjallið leiðar stjama allra stjórn- og trúmála: friður og velþóknun. Gleðilegt nýtt ár! TILKYNNING Vér viljum hér með vekja athyglj heiðraðra viðskiptavina vorra á því að vörur sem liggja í vörugeymsluhúsum vorum, eru ekki tryggðar af oss gegn bruna, frostum eða cðrum skemmdum og liggja því á ábyrgð vörueigenda. H. f. Eimskipafélag íslands.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.