Tíminn - 05.01.1965, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 5. janúar 1965
ÍSLENDINGUR í HÖFN
Framnald ai Lö síðu
Sigurður Benediktsson, sem er
59 ára, varð fyrir bíl á laugardags-
kvöldið. Leigubílstjóri, sem var
rétt hjá kom strax og hjálpaði Sig-
urði, en ökumaður bílsins, sem
Sigurður varð fyrir, ók á brott frá
slysstaðnum með miklum hraða.
Maðurinn var fluttur í Kommune-
hospitalet, þar sem hann liggur
nú með heilahristing og einnig fór
hann úr axlarliðnum.
Sigurður hefur unnið í 20 ár á
Pósthúsinu í Reykjavík, en ætlar
nú að helga sig málaralistinni, og
var nýkominn til Kaupmannahafn-
ar til þess að stunda þar nám.
ÓVENJULEGT FLUG
i
Framhaid aí Dis ib
inni með jarðýtu. Baujuluktir og
vasaljós voru sett á brautartak-
mörkin, því að klukkan var um
átta, þegar vélin kom. Eins var
kveikt bál við brautina, svo að
flugmaðurinn gæti áttað sig á vind
áttinni. Þá lýstu fimm bílar upp
brautina, til hægðarauka fyrir flug
manninn. Veður var ekki upp á
það bezta um þetta leyti, en samt
gekk allt vel, og konan komst und-
ir læknishendur hér í Reykjavík,
og var líðan hennar eftir atvikum,
þegar síðast fréttist.
HANNIBAL í MINNIHLUTA
Framöa! at 16 siðu
um í Alþýðubandalaginu og sam
starfsmenn þeirra eru aðeins band
ingjar þeirra eða „í þurrabúðar-
vist hjá Sósíalistafélagi Reykja-
víkur“ eins og aðalritstjóri Þjóð-
viljans hefur orðað það.
Hjáseta tveggja Alþýðubanda-
lagsmanna við bankaráðstoosning-
arnar vekur vonir um að enn eigi
þurrabúðarmenn eftir snefil af
sjálfsvirðingu, og vonandi líður
að því að þeir læsi sig hreinlega
út úr hlekkjunum í stað þess að
meiða sig við að hrista þá. Þeir
hafa lykilinn..
Stöðvast fiskiflotinn?
Framhald af 1. síðu.
vestan og norðan, en verkfallið á
Akureyri mun þó ekki ná til síld-
veiðisjómanna.
Yfirmenn á farskipaflotanum
sögðu allir upp samningum á gaml-
ársdag og hafa þeir því lausa samn
inga frá og með 1. febrúar n. k.
Nær þetta til allra yfirmanna á
farskipaflotanum, þ. e. til .kip-
stjóra, vélstjóra, stýrimanna, loft-
skeytamanna og bryta, eða samtals
um 350 manna, að því er blaðið
fékk upplýst hjá Farmanna- og
fiskimannasambandi íslands í dag.
Búast má við að viðræðufundir I
hefjist þegar líða tekur á mánuð-
inn, en yfirmenn á farskipaflotan-
um undirbúa þessa dagana kröfur
sínar. Munu þessir aðilar hafa
samflot í samningaviðræðunum
að einhverju leyti.
ÓLAFUR THORS
Framliald al Dis. ib
andi forsætisráðherra, með djúpri
sorg. ísland hefur hér misst einn
sinn mesta atkvæðamann og þjóð-
arpersónu. Nafn Ólafs Thors nýt-
ur virðingar í Danmörku og marg-
ir vina hans hér í landi munu fyll-
ast söknuði við fráfall hans. Eng-
inn gat honum betur fengið okk-
ur til að hlusta í Norðurlandaráði,
þegar magnþrungin rödd hans lét
til sín heyra. Ræða hans var flutt
af sannfæringu og ráðvendni. Þótt
stundum hafi hann tekið hart til
orða, gaf hreinskilið hugarþel hans
orðunum sjaldan brodd, heldur
hlýju og þunga. Ólafur Thors leit
á það sem eitt af stjórnmálatak-
mörkum sínum, að sambandsslitin
milli Danmerkur og íslands ættu
að finna sér samstæðu í nánu og
traustu samstarfi allra Norður-
landanna. Hugsun hans og gjörð
hafa borið ávöxt. Við á Norður-
löndum verðum að líta á það sem
sameiginlega ábyrgð okkar að
þessi samvinna haldi áfram að
TIIMINN
15
þróast og nái þeim þrótti, sem
Ólafur Thors sífellt stefndi að“
Eins og áður er sagt, fer útför-
in fram í Dómkirkjunni á morgun.
Séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup,
jarðsyngur. í kirkju verða tekin
frá sæti fyrir ættingja, ríkisstjóm
og alþingismenn, en að öðru leyti
verður kirkjan opin almenningi.
Athöfninni verður útvarpað, og
þeir, sem ekki komast inn í kirkj-
una, geta hlýtt á athöfnina í Sjálf
stæðish., sem verður opið öllum.
Stjórnarráðið verður lokað frá
hádegi á morgun vegna útfararinn-
ar, svo- og aðrar skrifstofur ríkis-
ins, eftir því sem við verður kom-
ið.
ENN SNJÓAR
Framhald af bls. 16
leyfði. Fróðárheiði og Kerling
arskarð eru lobuð, en einnig
stæði til að hjálpa stórum bíl
um þar á rnorgun, ef veður
leyfði. Fært er á stóruim bílum
norður í Skagafjörð ef Svín-
vetningabraut er farin, en veg
urinn í Blönduhlíðinni er alger
lega lokaður vegna flóða í Dals
á, og Héraðsvötnin eru einnig
farin að flæða yfir veginn.
Strandavegur er lökaður og
Skagastrandarvegur er lokaður
utan við Blönduós. Norður í
Eyjafirði mætti segja að allt
væri ófært þótt stórir bílar
væru að reyna að brjótast þar
áfraim með aðstoð.
Erlingur Davíðsson sagði
blaðinu að tveir stórir bílar
hefðu lagt af stað frá Atoiureyri
kluktoan eitt í dag áleiðis aust-
ur að Laugum með um 40
skólanemendur og fór trukkur
með snjóplóg fyrir þeim. Um
fimmleytið voru þeir ekki
bomnir nema að Hálsi í Fnj óstoa
árdal. í morgun lagði fjalla-
bíll Norðurleiðar, R-4719 af
stað frá Akureyri með tíu
farþega áleiðis í Varmahlíð, en
þaðan átti bíllinn svo_ að fara
aftur til Akureyrar. Ýta fór
fyrir bílnum, en klukikan 20
í kvöld voru þeir ekki komnir
lengra en í Giljareitina og þá
var ýtan orðin olíulítil og hjálp
arleiðangur lagður af stað frá
Blönduósi.
Almenn herkvaðning
Framhald af 16. siðu.
nesía árásir sínar á landið, gæti
orðið nauðsynlegt að leita aðstoð-
ar S. Þ. og einnig gæti orðið nauð
synlegt að hefja gagnárásir á Indo-
nesíu. Svo segir m. a. í ræðu for-
sætisráðherrans:
— Ákvörðun Indónesíu um að
segja sig úr S. Þ. fylgir í kjölfar
aðgerða af hálfu Indónesíu, sem
brotið hafa í bága við alheimsálit
ið, heimsfriðinn og lög S. Þ. Óháð-
um smáríkjum, eins og Malaysíu,
er ógnað af nágrannalöndum sín-
um í skjóli ágengrar og valdasjúkr
ar stjórnmálastefnu. Með hliðsjön
af þessari alvarlegu þróun hefur
ríkisstjórnin tekið eftirfarandi
ákvarðanir:
a) Ríkisstjórnin biður alla stuðn
ingsmenn sína að íhuga ástandið
í Malaýsíu og senda þangað liðs-
auka, ef nauðsyn krefur.
b) Ríkisstjórnin mun skýra S. Þ.
frá hótunum Indónesíu við Malay-
síu og hinum stöðugu árásum
Indónesa á landið og biðja S. Þ.
um aðstoð, ef ástandið versnar.
c) Landið sjálft mun styrkja
varnir sínar með því að koma
upp fleiri æfingastöðvum fyrir ný-
liða í hernum.
d) Loks mun landið undirbúa
gagnárásir og vera við öllu búið.
ef í nauðirnar rekur.
Bretland hefur þegar sent liðs-
styrk til Malaysíu. Fallhlífarher-
sveit hefur verið send til Singa-
pore og fótgönguliðasveit er á leið
til Hong Kong. Sex brezk herskip
eru nú á sveimi fyrir utan Singa-
pore og stærsta flugvélamóðurskip
Breta, Eaglé, er á léið til Malay-
síu.
Munið
Opíð alla daga
Síml — 20-600
OPIÐ I KVOLD
Kvöldverður framreiddur
frá ki i
B0RG
Borðapantanir i síma 11440.
OPIÐ A HVKRJl, KVÖLDL
T I L 5ÖIU:
íbúðir, tvíbvlíshús,
einbýlishús
I REYKJAVIK,
KOPAVOGI
OG NAGRENNI
ÍHÚSASSALftN
Sími <6637
löetræðiskritsfotan
iðnaðarbankahúsinu
IV. hæð-
I’ömas ArnasoD og
Vilhjálmui Arnasou
niM
Siml 11544
FlyHu þig yfrum,
elskan
(„Move over, Darling").
Bráðskemmtileg ný amerlsk
Cinema-Scope litmynd.
Doris Day,
James Garner.
Sýnd kL 5, 7 og 9.
Bráðskemtileg dönsk söng- og
gamanmynd
Sýnd kl. 6.50 og 9,
rr»
KáRAWddsBI
&
Síml 41985
Hetjur á háskastund
(Flight from Ashiya).
Stórfengleg og afar spennandi,
ný, amerlsk mynd 1 liturn og
Panavision.
Yul Brynner,
George Chakiris,
Richard Widmark.
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
Bönnuð börnum.
GAMLA BI0
Simi 11475
Jólamynd 1964.
Börn Grants skip-
stjóra
Bráðskemmtileg og viðburða-
rík ævintýramynd 1 litum, gerð
af Walt Disney eftir stoáldsögu
Jules Verne.
Aðalhlutverkin leika:
Hayley Mills
Maurice Chevalier.
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Simj 11384
Tónlistarmaðurinn
(The musicman)
Bráðskemmtileg ný amerísk k'
stór mynd í litum og scinema- ?
scope. g'
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, >g 9.
ÍUM
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
StöSvið heiminn
Sýning í kvöld kl. 20.
Mjallhvít
Sýning miðvibudag kl. 15.
Kröfuhafar
Sýning í Lindarbæ fimmtudag
kl. 20.
Aðgöngumiðasalan opin frá kl.
13.15 til 20. Sími 1-1200.
ÍLEIKFÍ
[REYKJAyÍKDg
Ævintýri á gönguför
Sýning í kvöld kl. 20.30.
Uppselt
Sýning miðvikudagskvöld kl.
20.30.
Uppselt.
Sýning föstudagskvöl'd kl. 20.30
Uppselt.
Næsta sýning laugardagskvöld.
Vanja frændi
Sýning fimmtudagskvöld kl.
20.80.
Saga úr dýragarðinum
Sýning laugardag kl. 17.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Sími 13191.
Sími 22140
Arabíu-Lawrence
Stórkostlegasta mynd sem tek-
in hefur verið 1 litum og Pana
vision. 70 m.m. — 6 rása segul-
tónn. Myndin hefur talotið 7
Oscars-verðlaun.
Aðalhlutverk:
Peter 0‘Toole,
Alec Guiness
Jack Hawkins
Sýnd kl. 4 og 8.
LAUGARAS
Simar 32075 og 38150
Ævintýri í Róm
Amerisk stórmynd 1 litum,
með slenzkum texta.
Sýnd kl. 5 og 9.
Miðasala frá kl. 4.
18936
Frídagar í Japan
Afar spennandi og bráðfyndin
ný, amerísk stórmynd i litum
og sinemascope,
Glenn Ford.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
íslenzkur texti.
Simi 50184
Höilin
Ný dönsk stórmynd í litum
eftir skáldsögu Ib Henrik
Cavlings. Sagan kom sem
framhaldsaga í danska viku
blaðinu „Hjemmet“
Malene Schawarts
Paul Reichnarts
Sýnd kl. 7 og 9.
íil
Siml 16444
Riddari drottning-
arinnar
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kL o og 9.
T ónabíó
Siml 11182
Islenzkur textj.
Dr. No.
Heimsfræg, ný ensk sakamála
mynd í litum, gerð eftir sögu
lan Flemings. Sagan hefur verí
ið framhaldsaga i Vikunni. ;
Sean Connery
°g
.... Ursula Andress.
Sýnd kl 5 og 9. Bönnuð rnnan
16 ára.