Tíminn - 10.01.1965, Side 7

Tíminn - 10.01.1965, Side 7
7 SUNTCUDAGUR 10. jam'rar 1965 Áramótaboðskapur Þjóðin tekur að sjálfsögðu vel eftir því, sem forystumenn stjórnmálaflokkanna segja í ára mótahugleiðingum sínum, og þá ekki sízt, hvaða boðskap forsæt- isráðherra landsins flytur þjóð- inni í ríkisútvarpið. Því er ekki að neita, að ávarp hans í þetta sinn hefur orðið ýmsum ærið umhugsunarefni. Þjóðin hefur kvatt gott og mjög fjöfult ár, sem sýnt hefur, að hún býr í góðu landi, á hug og dug til þess að nytja það og hefur náð ýmsum merkum og mikilvæg- um áföngum í baráttunni fyrir því að treysta feelsi sitt og sjálfstæði. Menn vænta bjart- sýni og stórhugs eftir slíkt ár. Hins vegar var allt annar blær á áramótaboðskap forsæt- isráðherrans. Hann lýsti und- arlegum úrtölum og miklum erfiðleikum, sem því væru sam- fara að vera sjálfstæð menning- arþjóð á íslandi. Aðalinntak ræðu hans á gamlársdag var að tilfæra orð erlendra manna um það, að þeim fyndist ýmsum „nær óskiljanlegt, að þrátt fyr- ir smæðina erum við sjálfstæð þjóð og höfum ekki minni hug- myndir um ágæti okkar þjóðar og tilverurétt hennar heldur en þeir, sem margfalt fjölmennari þjóðum tilheyra, hafa um sín- ar.“ Síðan er ávarpið að megin- hluta tilraun til þess að renna stoðum með ýmsum rökum und ir þetta álit og sýna fram á, hve réttmætt það sé í raun og vcru, hve erfitt sé að halda við sjálfstæðu ríki á íslandi, hve dýrt sé að vera íslendingur. Hann telur upp ýmislegt, sem er hlutfallslega kostnaðarsam- ara hér vegna mannfæðar og strjálbýlis, og segir síðan: „Svo mætti lengi telja, en ég skal ekki halda þessari upp- talningu áfram að sinni. Ég hef ekki gert hana vegna þess, að ég telji eftir einn eyri af því, sem fer til þess að halda uppi þjóðfélagi okkar, heldur af hinu, að stundum virðast jafn- vel þeir, sem sízt skyldi gleyma því, hvað það kostar að vera sjálfstæð þjóð í strjálbýlu, norð lægu landi og halda uppi full- valda ríki.“ Það lætur einhvern veginn undarlega i eyrum að heyra forsætisráðherra landsins ræða fram og aftur um kostnað þess að vera sjálfstæð þjóð. Hverj- um þeim manni, sem er sjálf- stæði þjóðar hans sjálfur and- ardráttur lífsins, finnst einmitt, að það sé kostnaðarminnsta hlutskiptið. En það er eins og forsætisráðherra finnist það mestu máli skipta um þessi ára- mót, að menn muni vel, hvað það er dvrt að halda við sjálf- stæði á íslandi. En nær hefði verið að minna á það, að aðstæðurnar á íslandi, eru oin- mitt hinar styrkustu stoðir sjálf ^tæðis. PrfS skilvrði”. Mórgunblaðið hefur kvartað undan þvi, að Tíminn skuli hafa fundið að barlómstóni heim. sem auðheyrður var í ■ávarpi t'orsætisráðherra. Það hefur birt eftirfarandi kafla, sem það telur . sýna hið gagn- -'tæða: „Við höfum sjálfir valið okk- TÍMINN Bátaflotinn kemst ekkl á miðln, fiskverSið óákveðlð, oe samningar viS sjómannastéttina í strandi. Það er ömurleg mynd eftlr mesta uppgripaár í sögu landsins, hærra erlent verS og 24% meira verðmaeti útflutnings en í fyrra. Mbl. seglr líka réttilega: „Það er óskaplegt lánleysl'* aS framleiðsluatvlnnuvegirnlr skuli ýmlst berjast í bökkum eða vera reknir með tapl, þegar svo árar af náttúrunnar ’/öldum, og þjóðin brestur í engu dugnað til þess að afia. — Myndin er frá Reykjavíkurhöfn þessa daga. (Ljósmynd: Kári Jónasson). ur veglegra og kostnaðarsamara hlutskipti en nokkur annar svo fámennur hópur í veröldinni við jafn erfið skilyrði. Það verk efni er að láta sjálfstætt menn- ingarríki blómgast á þessu fá- menna, misviðrasama eylandii norður í höfum og haga svo meðferð mála, að hér megi all- ir komast til nokkurs þroska. Að sjálfsögðu hafa fyrirætl- anir okkar tekizt misvel, og margt stendur til bóta. En því skyldu menn vera með vol og víl, þegar við höfum áorkað því, sem enginn ókunnugur á íslandi mundi trúa, að svo fáir menn fengju framkvæmt við svo erfiðar aðstæður." En þessi kafli sannar einmitt það, sem Morgunbalaðið vill af- sanna. Á honum er sá úrtölu- blær, sem einkennt hefur löng- um tal þeirra manna, sem litla trú hafa á íslenzku sjálfstæði og framförum og vex það í aug- j um að vera sjálfstæð menning- arþjóð. Hér er talað um „erfið skilyrði . . . á þessu fámenna, misviðrasama eylandi norður í höfum“ og gengið út frá því, að íslendingar hafi kostnaðar- samara hlutskipti en nokkur annar svo fámennur hópur í veröldinni við jafn erfið skil- yrði.“ Menn kannast helzt við þenn- an gamla úrtölu- og barlóms- tón frá árunum fvrir aldamót- in, eða snemma á öldinni, sem leið. þegar áþján, fátækt og harðræði höfðu sogið úr mönn- um lífsþrótt og eitrað lífsbik- arinn vonbrigðum. Þá voru erf- iðleikarnir hér á hvers manns vörum, og mjög talað um !,ið kalda og harðbýla eyland norð- ur í höfum. En sú kynslóð, sem nú byggir landið. veit bet- ur. Hún veit. að tæknin hefur fært landið í þjóðbraut,. Hún veit,. að auðlindir þess eru mik!- ar og margar, og það getur boðið þegnum sínum iafngóð lífskjör og flest önnur þjóð- lönd. Hún veit, að skilvrðin hér eru ekki erfið til sjálfstæðis, lieldur miklu fremur hin ákjóS- anlegustu. Það er, engin sjálf- stæðistrygging að vera allfjöl- menn þjóð í þéttbýli á suðlæg- ara landi, og engin þjóð verður stór af höfðatölu sinni oinni. Sjálfstæðisstoðir íslendinga eru miklu sterkari en ílestra annarra þjóða. Þær eru gömul menningartunga. sterkt þjóð- erni, strjálbýli, sem eflt hefur frelsisanda, fornar og nýjar önd vegisbókmenntir, sérstaða lands ins sem evju langt frá öðrum löndum. nnðlindir litt notaðar í hveíum, fossum og gróðri og auðugust.n fiskimið f heimi. Slík ar aðstæður bjóða einmitt dug- mikilli þjóð hin ákjósanlegustu sjálfstæðisskilyrði, þjóð. sem er af sterkum og sjálfstæðum ætt- stofni. Ýmsar þessar ástæður draga einmitt. úr „kostnaði" við sjálfstæðið. Er sjálfstæðið álita- mál? Forsætisráðherra segir: „Við höfum sjálfir valið okkur veg- legra og kostnaðarsamara verk- efni en nokkur annar svo fá- mennur hópur í veröldinni." Þetta er líka fráleit álvktun. Við höfum ekki átt neitt val í þessum efnum. Örlögin skák- uðu okkur niður á íslandi, og íslenzka þjóðin hefur sfðan ætíð verið sjálfstæð, nema meðan hún • var knúin til annars í ófrelsi. Hjá henni hefur ekki verið og verður vonandi ekki um neitt ,,val“ að ræða um sjálfstæði eða ekki meðan hún hún nýtur frelsis og sjálfræðis, og undir öðrum kringumstæð- um talar enginn um val Það er undarlegt að heyra for«ætis- ráðherra sjálfstæðs ríkis haga svo orðum sem hann geri hálft i hvoru ráð fyrir því, að þjóð hans muni yfirvega það eða j hafi yfirvegað það, hvort hún í ætti af frjálsum vilja að kjósa annan hvorn kostinn, sjálfstæði eða undirgefni við aðra þjóð. Sjálfstæði íslendinga verður aldrei álitamál þjóðarinnar. Það er ekki þessi tónn, ekki þessi boðskapur um sjálfstæð- ismálin, sem frjáls og stórhuga þjóð væntir af forsætisráðherra sínum um áramót. Hún oskar j ekki eftir vangaveltum hans um ! „kostnaðinn“ við að vera sjálf- ; stæður eða hvort það muni i borga síg. I-Iún væntir heldur | ekki gamals tals um erfið skil- Jyrði, misviðrasamt evland, erf- | iðar aðstæður og fleira af því | tagi. Hún ætlast til, að forsæt- i isráðherrann líti á sjálfstæðið j sem sjálfsagðan og einboðinn I hlut og ræði framtíðarsýnirnar ! í ljósi þess. ! íhal dsmarkið. 1 En hver er ástæða þess, að : þessi svartsýnis- og úrtölutónn i er svo ríkur í tali forsætisráð- jherrans um sjálfstæðismálin, ! munu margir spyrja. Fæstir munu ætla, að því sé til að dreifa, að forystumenn Sjálf- stæðisflokksins hafi ekki sama' vilja og áðrir landsmenn til þess að þjóðin haldi sjálfstæði sínu með reisn. Annað kemur til. Hér birtist tregðuhreimur íhaldsstefnunnar, viðhorf manna, sem finna gerla, að hin gamla ihaldsstefna þeirra er ekki fær um að veita þau úr- ræði, sem sjálfstæði nútíma þjóðfélags kallar hæst á, en vilja helzt ekki þurfa að við- urkenna það. Þeir sjá, að gaml- ir íhaldsdraumar um einka- gróða og auðskiptingu á þágu fárra útvaldra samrýmast ekki siálfstæðistryggingu nútíma- l þjóðfélags. Þegar hinum úreltu | íhaldskenningum um lausn vandamálanna er beitt árum saman, leikur það þjóðfélagið mjög grátt. í stað þess að við- urkenna þá, að íhaldsstefnan hæfir ekki, vaknar hjá íhalds- mönunm efi um að unnt sé að halda við sjálfstæði, og þeir réttlæta gjarnan stjórnarafglöp með fjasi um það, hve dýrt sé að lialda sjálfstæði, hve erf- iðleikarnir á því séu miklir, Vonbrigðin vegna ófarnaðar íhaldsstefnunnar birtast í efa- semdum um sjálfstæðið. Ára- mótaávarpið, sem rætt hefur verið um, sýnir það fyrst og fremst, að við eigum mikinn íhaldsmann að forsætisráð- herra, mann, sem á bágt með að viðurkenna haldleysi stefnu sinnar. Það er ef til vill mann- legt. En þetta er ekki aðeins ís- lenzk saga. Hér er að gerast hið sama og í ýmsum öðrum löndum, þegar íhaldsstjórn ræð ur lengi ríkjum og teppir þjóð- lífið í haft afturfarar og sér- gróðaspillingar. Við þá öfug- þróun dvínar trú manna á frjálst sjálfstæði. Þetta er ef til vill skýrasta íhaldsmarkið á stjórnarfari. Skuggi óstjórnar- innar. Svartsýnið og sjálfstæðisefinn í áramótaávarpi forsætisráð- herra kemur yfir þjóðina eins og skuggi þeirrar þróunar, sem orðið hefur hin síðari ár. Þeg- ar mikið góðæri, geysilegur, aflafengur, góður erlendur markaður, aðrar gjáfir náttúr- unnar og afrakstur af dugnaði þjóðarinnar hefur ekki nýtzt betur en raun ber nú vitni, er varla nema um tvær skýringar að ræða. Önnur er sú, að stjórn- arstefnan hafi reynzt óhæf, hin að svona dýrt og erfitt sé að halda við sjálfstæðu þjóðfélagi á íslandi. Flestir landsmenn vita, að fyrrnefnda skýringin er hin rétta, en löngunin til þess að fela ástæðurnar í kufli síðari skýringarinnar bærir ónotalega á sér 1 áramótaávarpi forsætisráðherra. Hljóð játning. Það vekur og athygli, að ekki er reynt í ávarpi forsætis- ráðherra að halda því fram, „viðreisnin“ hafi tekizt. Allt ávarpið er sem hljóð játning um mistökin, sem reynt er að skýra með þessu tali um dýr- leika sjálfstæðisins í stað við- urkenningar á óhæfni stefn- unnar. Þessa dagana lýsir Morgun- blaðið því líka greinilega hvernig „viðreisnin" hefur tek- izt eða hitt þá heldur. Jafn- framt því ■ sem blaðið skýrir frá þeirri staðreynd, að afla- föng hafi orðið allt að fjórð- ungi meiri og verðmætari en nokkurt ár fyrr í sögu lands- ins, lýsir það afkomu fram- leiðsluatvinnuveganna á þessa lund: „Þegar þess er gætt, að við íslendingar eigum nú betri og fullkomnari framleiðslutæki en nokkru sinni fyrr, og að afköst þeirra eru meiri en áður þekk- ist, þá er það óskaplegt lán- leysi og öfugstreymi, að stór hluti framleiðslutækjanns s'/uij FramJiald á b^s. 13.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.