Tíminn - 20.01.1965, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 20. janúar 1965
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson rtitstjórar: i-ornrmn
Þórarinsson (áb> Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og indriði
G Þorsteinsson ,i'ulltrúi ritstjórnar Tómas Karlsson Aug
lýsingastj. Steingrlmur Gislason Ritstj.skriístofur Eddu
búsinu. simar 18300—18305 Skrifstofur Bankast.rætj - Af
greiðslusimi 12323 Auglýsingasimi 19523 Aðrar sknistofur,
simi 18300 Askriftargjald kr 90.00 á mán innanlands - f
lausasölu kr 5.00 eint — Prentsmiðjan EDDA h.f
Er ábyrgðarlaust að
efla vísindm?
Mbl. hefur tekið sér fyrir hendur að birta viðtöl við
ýmsa vísindamenn og forystumenn rannsóknastofnana um
ráðstafanir, sem þurfi að gera til þess að efla vísindastörí
í landinu. Þetta er vissulega góðra gjalda vert, en þó ekki
það, sem mestu skiptir. Vitneskja sú, sem felst í flestum
þessum viðtölum, hefur verið kunn ríkisstjórn og öðrum
ráðamönnum, en það sem hefur skort, hefur verið vilji
þessara aðila til framkvæmda.
Og þrátt fyrir viðtölin er engu síður ástæða til að efast
um áhuga forráðamanna Mbl. en ríkisstjórnarinnar, því
að mikið af efni blaðsins að undanförnu hefur verið
fólgið í því að rógbera Framsóknarflokkinn fyrir að
flytia tillögur við fjárlögin um aukin framlög til vísinda
og rannsóknarmála. Mbl. hefur haldið því fram, að
þessar tillögur Framsóknarmanna, sem að sjálfsögðu
voru stráfelldar af stjórnarliðinu. bæru vott um sér-
stakt ábyrgðarleysi og hóflaus yfirboð.
Þær tillögur Framsóknarmanna, sem stiórnarliðið
felldi, og Mbl. hefur stimplað sérstaklega ábyrgðarlaus-
ar, eru m.a. þessar:
8 millj. kr. framlag til byggingar á Keldum fyr-
ir j arðvegsrannsóknir og aðrar hagnýtar rannsóknir í
þágu landbúnaðarins. Bygging þess hófst 1963, en eignir
Áburðarverksmiðju ríkisins, þegar hún var lögð niður,
voru látnar ganga til hennar, og auk þess voru veitt lán
til hennar- Hún er nú tæplega fokheld. Allt útlit er
fyrir ,að ekkert eigi að vinna við hana á þessu ári. Slíkur
er áhugi ríkisstjórnarinnar og Mbl. á þessu sviði vís-
indanna-
200 þús. kr. styrkur til hinnar nýstofnuðu Bygginga-
deildar við iðnaðardeild Háskólans. Styrk þessum skyldi
varið til sjálfstæðra rannsókna, er gætu leitt til ódýr-
ari byggingakostnaðar.
500 þús. kr- framlag til stofnunar sérstakrar upplýsinga
þjónustu fyrir atvinnuvegina í vísindalegum og tæknileg-
um efnum, en erlendir vísindamenn, sem hingað hafa
komið, hafa mjög mælt með slíkri upplýsingaþjónustu.
400 þús. kr. hækkun á framlagi til hagnýtra jarðfræði-
og iðnaðarrannsókna, 800 þús. kr. hækkun á framlagi
til Fiskideildar og 200 þús. kr. hækkun á framlagi til
Búnaðardeildar.
5 millj. kr. framlag til smíði fiskirannsóknaskips, en
mjög skortir nú hentugt skip til slíkra rannsókna-
600 þús. kr. hækkun til bókasafns Háskólans til kaupa
á sérfræði- og vísindaritum, en vöntun slíkra rita er til-
finnanleg á mörgum sviðum.
850 þús. kr. hækkun á framlagi til Háskólans til
styrktar sérstökum vísindarannsóknum.
850 þús. kr. hækkun á framlagi til Iðnaðarmálastofn-
unar íslands.
900 þús. kr. hækkun á framlagi til tækninýjunga
en þetta framlag er nú aðeins 100 þús. kr.
Þá voru felldar tillögur frá Framsóknarmönnum um
hækkun námsstyrkja, er ýttu undir, að ungir menn
öfluðu sér tæknilegrar og vísindalegrar menntunar.
Hinn raunverulegi áhugi stjórnarliðsins og Mbl. fyrir
auknum vísindum og rannsóknum sést bezt á því, að það
skyldi kalla framangreindar tillögur Framsóknarflokksins
ábyrgðarlausar og hóflaus yfirboð, þar sem reynslan
sýnir, að fáar fjárveitingar skila betri arði en þær, sem
fara til vísinda- og rannsóknarstarfsemi.
TÍMINN
ERLENT YFIRLIT
Örðug staða Breta í Malaysíu
Þeir geta vart haft mikinn her þar til langframa
DEILA sú sem nú stendur
yfir milli Indónesíu og Maiay-
síu, rekur rætur sínar til ó-
heppilegrar lausnar Breta á ný-
lendumáli austur þar. Af þeim
ástæðum hafa Bretar tekið að
sér að verja Malaysíu og hafa
þeir allfjölmennt lið þar til
varnar. Þetta kostar brezka rík
ið ærin útgjöld, án þess að fá
nokkuð í staðinn. Ósennilegt er
því, að Bretar haldi þetta lengi
út. Því má telja víst, að þeir
séu fyrr en síðar dæmdir til
að tapa. Málstaður þeirra er
líka hæpinn, þar sem þeir eru
raunverulega að viðhalda leif-
um af gömlum nýlenduyfirráð-
um. Þetta réttlætir hinsvegar
eklki sumar aðfarir Sukamos,
einræðisherra Indónesíu, eins
og t.d. þær að ætla að láta
índónesíu ganga úr Sameinuðu
þjóðunuim vegna þessa deilu-
máls
IEF LITIÐ er á landakort það,
sem notað er hér í barnaskúl-
um, sést að þjóðflokkur sá, sem
gengur undir nafninu Malayar,
byggir þrjú lönd í Suðaustur-
Asíu eða Indónesíu, Filippseyj-
ar og Malaysíu Þessi lönd mynd
uðu til forna ættfræðilega og
menningarlega heild og gera
það að miklu leyti enn þann
dag ú dag. Nokkur breyting
varð þó á þessu, þegar hvítir
menn koimu hér til sögunnar.
Spánverjar lögðu undir sig
Filippseyjar, Hollendingar
Indónesíu og Bretar Malakka-
skagann og nokkurn hluta eyj-
arinnar Borneo. Undir hinni út
lendu stjórn færðust Filipps-
eyingar nokkuð frá frænduim
sínum í Indónesíu og Malaysíu
Þeir hafa m.a. tekið kristna trú
en Múhameðstrú er aðaltrúin
í hinum löndunum tveimur.
Um skeið var útlit fyrir, að
þessi þrjú lönd gætu haft frið
samleg samskipti eftir að þau
höfðu losnað undan hinum
hvítu yfirráðum. Þetta hélzt
þangað til í ársbyrjun 1963, en
fram að þeim tíma hafði Malay
sía aðeins náð til Malakkaskag-
ans eða nýlendanna, sem Bret-
ar höfðu haft þar. Nú vildu
Bretar, að Malaysía næði einnig
til þeirra nýlendna, er þeir
höfðu á Borneo, en mestur
hluti hennar tillheyrir Indóne-
síu. Af landfræðilegum og forn
sögulegum ástæðum var á ýms-
SUKARNO
an hátt eðlilegra, að nýlendur
þessar sameinuðust Indónesíu,
ef þær hættu að vera sérstæð
heild. Það vildu Bretar hins-
vegar ekki, því að þá töldu
þeir áhrif sin búin á þessum
slóðuim. Hinsvegar er Malay-
sía veikt ríki, sem er mjög háð
Bretum enn sem komið er. Nið-
urstaðan varð sú, að Bretar
komu áformum sínum fram,
m.a. eftir að nefnd frá Samein-
uðu þjóðunuim hafði ferðast um
brezku nýlendurnar og talið
sig komast að raun uim, að í-
búarnir vildu sameinast Malay
síu, Sukarnos krafðist þess hins
vegar, að þjóðaratkvæða-
greiðsla væri látin fara fram,
en því höfnuðu Bretar. Nýlend
urnar voru svo formlega inn-
limaðar í Malaysíu í september
1963. Bretar höfðu hér auðsjáan
lega mikinn hraða á, en það
sýndi sig hér eins og oftar, að
ekki er sopið kálið, þótt í aus-
una sé komið.
FYRSTA verk Sukarnos var
að neita að viðurkenna Malay-
síu í því formi, sem hún hafði
eftir að nýlendurnar á Borneo
voru orðnar hluti hennar- Jafn-
framt hóf hann gegn Malaysíu
hverskonar taugastríð. Þessu
hefur haldið áfram síðan. Hann
hefur sent hópa af skæruliðum
inn í Malaysíu og oft hótað
beinni árás. Þar sem Indónesía
er tífallt fólksfleira ríki en
Malaysía, gæti hún ekki varizt
innrás, enda er ríkið auk þess
mjög sundurþykkt, þar sem
nær helmingur íbúanna eru g
Kínverjar. Bretar hafa því orð
ið að hafa þarna mikinn her-
afla, þar sem þeir hafa heitið
Malaysíu vernd. Líklegt er, að
Sukarno láti ekki koma til
innrásar á meðan, en haldi
uppi stöðugum skæruhemaði.
Það mun því reynast Bretuim
mjög dýrt að verja Malaysíu,
og ólíklegt, að þeir haldi því
lengi áfram. Aðstaða þeirra
þar getur í náinni framtíð orðið
enn örðugri en Bandaríkja-
manna í Suður-Vietnam.
FRÁ SJÓNARMIÐI hvítu
þjóðanna er þeSsi deila mjög
óheppileg. Það er að vísu ekki
gott að þurfa að láta undan
Sukarno, en þó er ef til vill
enn verra að láta deiluna halda
áfram. Hún færir Indónesíu
nær Kína og málstaður Malay-
síu nýtur takmarkaðrar samúð-
ar í Asíu og Afríku, þar sem
hún er grunuð um að vera
hreint brezkt leppríki meðan
hún á tilveru sína alveg undir
hernaðarlegri vernd Breta. Þró-
unin verður og óhjákvæmilega
sú, að fyrr en síðar verða Bret
ar tilneyddir að yfirgefa Malay
síu og bendir fátt til, að það
geti orðið þægilegra síðar
Margt bendir til, að Bandaríkin
vilji ógjarnan koma þeim til
hjálpar, enda munu þau telja
málstað Breta hæpinn. Þau
hafa líka meira en nóg á sinni
könnu í Suður-Vietnam.
SUKARNO hefur í þessari
deilu beitt furðuleguim vinnu-
brögðum, eins og oft áður.
Hann hefur annan daginn hót- 6
að stríði, hinn daginn boðið B
samninga. Hann hefur lýst yfir 9
því að Indónesía væri farin úr ii
Sameinuðu þjóðunum vegna S
þess, að Malaysía var kjörin í g
Öryggisráðið, en formlega úr- jf
sögn hefur hann ebki sent enn. i
Einn daginn hefur hann hallað i
sér að koimimúnistum, en hinn jf
daginn að anstæðinguim |j
þeirra. Annars er það ekki
nýtt, að hann vinni þannig. Með
þessum hiætti hefur honuim
tekizt að halda völdum og vin-
sældum og víst mun það vera
að í deilunni við Malaysíu hef-
ur hann þjóðina alla að baki
sér. Hún virðist telja það jafn
sjálfsagt, að brezku nýlendurn
ar á Borneo séu sameinaðar
Indónesíu, og íslendingar muni
telja sjálfsagt, að Vestfirðir
heyri undir íslenzka ríkið. Þess
vegna myndi þessari deilu síð-
ur en svo ljúka, þótt Sukarno
félli frá.
Sitthvað bendir nú til þess, að
reynt verði að miðla málum í
þessari deilu, og munu bæði
Pakistan og Japan hafa gefið
kost á því að hafa forgöngu
um málamiðlun. Hins vegar er
erfitt að sjá, hvernig hægt er
að leysa deiluna, án þess að
stjórn Malaysíu og Bretar verði
að láta undan síga.. Sukarno
mun ekki láta undan, enda er
ekkert sennilegra en að til-
slökun af hans hálfu myndi
leiða til falls hans og valda-
töku kommúnista í Indónesíu.
Þ. Þ.
Landakort, sem sýnir legu Malaysíu og Indónesíu.