Tíminn - 20.01.1965, Qupperneq 14

Tíminn - 20.01.1965, Qupperneq 14
TÍMINN MIÐVnOJDAGUR 20. janúar 1965 ViðræSur de Caulle og Erhurds hufnur Reykjavík, þrlSjudag. í kvöld kom upp eldur í litlu timburhúsi viB Álftamýri 8, en hús þetta stendur á milli tveggja blokkhúsa. Ekki var búiS í húsinu, en gömul korna sem bjó þar áður notar húsið til að baka í því, en þaS er atvinna konunnar. Húslð fór illa í eldinum, en brann þó ekki til grunna. Ekki er hægt að segja tll um hvort borgi sig að gera við skemmdirnar. (Tímamynd KJ) ARMSTRONG Framhald af 1. síSu. á sama stað og tíma, og að morgni þriðjudagsins halda þau svo aftur til New York. Forsala aðgöngumiða hefst fimmtudaginn 21. janúar í bókabúðum Lárusar Blöndal á Skólavörðustíg og í Vestur veri. Er ekki úr vegi að hvetja fólk til að verða sér úti um aðgöngumiða í tíma, því lítill vafi er á að færri en vilja kom ast á hljómleikana, og útilokað er að um aukahljómleika geti orðið að ræða. Eins og áður segir er verð aðgöngumiða aðeins 325 krón ■ ur, og er hér þó tvímælalaust um að ræða einhverja dýrustu skemmtikrafta, sem nokkru sinni hafa komið hingað. Þeir sem leika með Arm- strong eru þessir: Billy Kyle, píanóleikari, hann hefur leikið með Armstrong í tíu ár og er löngu orðinn heimsfrægur listamaður. Awell Shaw. bassa leikari, ekki síður frægur en Kyle, lék áður m. a. með Teddy Wilson og Benny Good man. Báðir þessir menn léku með Armstrong í myndinni High Society, sem sýnd var hér fyrir nokkrum árum. Danny Barcelona, trommuleik ari, hefur leikið með Arm- strong síðan 1958, en hafði áð- ur sína eigin hljómsveit, Russel „Big Shief“ Moore, trombone leikari, hefur leikið með Arm strong undanfarið, en áður með mörgum þekktum hljómsveit- um, Eddie Shu, leikur á clari net, lék áður með Les Elgart, Lionel Hampton, Charlie 3arn et og Gene Krupa. Jewel Brown söngkona, hefur sungið með Armstrong undanfarið og er mjög fær söngkona. Þá er eftir að geta söng- skrárinnar. Enn eru ’ögin ekki fyllilega ákveðin fvrir "verja hljómleika um sig, en kunnugt er hvaða lög Louis og 'nljóm- sveit flytja hérlendis. leðal þeirra eru fiesta þau lög, sem hann hefm orðið trægui tyrir að syngja — eða eigum við að segja, sem hann hefur gert fræg — og skulu hér nefnd nokkur þeirra: Hello Dolly, \ So Long Dearie, High Societv. St. Louis Blues. Ain‘t Misbe- havin, Rockin‘ Chair Kiss To Build A Dream On, Mack The Knife, Saint Go Marching In, Don‘t Fence Me In, I Can‘t Give You Anything But i.ove; Twelfth Street Rag, Blueberry Hill, Shadrak og fleiri og fleiri. ISINN KYRR MB-Reykjavík, þriðjudag. Litlar breytingar hafa orðið á ísnum fyrir vestan. Hann virðist heldur hafa lónað frá og lítil hreyfing hefur veirið á honum í dag, enda veður stillt. Bátar á j Vestfjörðum hafa sumir hverjir ekki getað lagt eins djúpt og þeir eru vainir vegna ísreks, og vissaira er að fara með gát á siglingu vegna þess. f nótt og í dag, snjóaði talsvert hér suntnanlands, en þó munu vegir færir austur í Vík, en þung færð er á Mýrdalssandi. Búið er að ryðja Bröttubrekku oig er fært í Búðardal, fært er í Skagafjörð um Svínvetningahraut, og í dag var verið að ryðja Öxnadalinn og Öxnadalsheiði. JOHNSON FORSETI Framhald af 2. síðu. setanum tekur varaforsetinn við embætti. Forsetinn hefur sérstaklega boð ið þeim mönnum, sem hlotið hafa friðarverðlaun forsetans. Þar á meðal verður hinn kunni Frakki, Jean Monnet, sem stundum er kall aður „faðir Efnahagsbandalags- ins.“ Þá verða og viðstaddir opin- berir embættismenn, þingmenn, sendiherrar og önnur fyrirmenni. Ámokstursvél skemmist í eldi KJ—Reykjavík, þriðjudag. Um hálf-tvö í dag varð skamm- hlaup í rafgeymi stórrar ámokst- ursvélar frá Reykjavíkurhöfn, sem var inni í Blesugróf. Komst eldur í 300 lítra af benzíni í tank á þaki vélarinnar, og varð af mikill eldur. Ámokstursvélin skemmdist mikið, leiðslur allar brunnu, vírar ofhitnuðu, og fleiri skemmdir urðu á vélinni. Maður, sem var við vinnu í vélinni, slapp ómeiddur. OLÍULEYSI Framhald af 1. síðu. að leita til nágrannaþjóða okkar uim olíu til bráðabirgða, eðá á náðir varnarliðsins, sem hér geym ir alUaf töluverðar birgðir af olíu- Tímanum er kunnugt um, að olíufélögin hafa gert sitt ítrasta til að fá olíuna hingað í tæka tíð, en aðstaða þeirra til að tryggja öryggi í þessum efnum, virðist vera veik, eins og fyrrgreind dæmi sýnir. Á leiðinni hingað eru svo fleiri skip, en það sem nú landar hér og er þess að vænta að úr rætist í framtíðinni. Vinningar Vinningar i skyndihappdrætti Framsóknarflokksins féllu á þessi númer: 21471 Opel Rekord oifreið. 22585 Singersaumavél ,aG12 Singersaumavél, 4080 Singer saumavél. 21252 ‘Hngersauma vél, 11229 Levin rvstikista 25009 Levin frvstilcista 10001 Levin frystikista. 46500 evin frvstikista. 39501 Smith Corona (rafmagnsritvéD 2916) Smith Corona rafmagnsritvél '45? Smith Oorona rafmagnsritvM 20684 Smith Corona rafmagns ritvél. CHURCHILL Framhald af l. síðu. liðið var aukið í morgun, og Lord Moran og fjölsikylda Churchills fengu sérstaka lífverði. | Meðal þeirra, sem söfnuðust sam i an fyrir utan hús Churchills í dag, var Winston Kesigton, 27 ára gam- all Nígeríumaður. Hann sagðist hafa verið látinn heita í höfuðið á hinum aldna stjórnmálamanni. — Við Nígeríumenn virðum Churc hill mikils — hann var einn af bjargvættum oikkar á stríðsárunum — sagði hann við fréttamenn í dag. Beðið var fyrir Churchill í dag í Neðri deild brezka þingsins í skólum landsins og á öðmm mannamótum. Erkibiskupinn af York, Donald Coggan, sagði að hugsnair Breta snérust nú um merkasta Breta vorra tíma, manns sem lokið hefði lífsstarfi sínu og væri nú að kveðja þetta líf. — „Við þökkum Guði fyrir hina styrku stjórn Sir Winston? Chure hills á hættunnar stund og fyrir , andleg afi hans og viljakraft" — j sagði hann. Lord Avon, fyrrum Sir Anthony ; Eden, sem tók við af Churchill sem forsætisráðherra árið 1955, heimsótti Churchili í dag. Hann var aivariegur á svip, þegar hann I hvarf þaðan 24 mínútum sí®ar. NTB-París, 19. janúar. Forsætisráðheirra V.-Þýzkalands, Ludwig Erhard,. hóf í dag tveggja daga viðræ’ður sínar við de Gaulle, Frakklandsforseta. Fara viðræð- uirnar fram í Rambou'illet höllimni, sem er í fjögurra mílna fjarlægð frá París. Helztu umræðuefnin verða: Samband Þýzkalands og Frakklands, eining Evrópu og ým- is alþjóðleg vandamál. Við komu sína til Parísar í dag sagði Erhard, að viðræðurnar mundu verða víðtækar. Þær yrðu ekki einskorðaðar við samband Frakklands og Þýzkalands, heldur yrði líka rætt um Evrópu sem heild og friðinn í heiminum. Þær framfarir, sem þegar hefðu orðið innan evrópskrar samvinnu, sér- staklega í sambandi við kornverð- ið, mundu gefa viðræðunum góðan hljómgrunn. Erhard og de Gaulle munu hitt- ast mörgum sinnum þessa tvo daga, sem Erhard dvelst í Frakk- landi. Fyrsti fundurinn var síð- degis í dag ag fyrir utan þá tvo voru engir viðstaddir nema túlk- ar. Stóð fundurinn allt fram til kvöldverðar. I kvöld bauð de, Gaulle Erhard að sjá einkakvik- myndasýningu. Meðan þessu fór fram, ræddust utanríkisráðherrar landanna, Maurice Couve de Mur- ville og Gerhard Schroeder, við í tvo tíma í húsnæði franska utan- ríkisráðuneytisins í París. Við- ræður de Gaulle og Erhard eru þær fjórðu síðan fransk-þýzki samvinnusáttmálin var gerður ár- ið 1963 í janúar. Samkvæmt sátt- rrjálanum skulu æðstu menn þess- ara tveggja landa hittast tvisvar á ári, einu sinni í París og einu sinni í Bonn. Talið er líklegt, að sameining Þýzkalands verði eitt af þeim mál- efnum, er verður ofarlega á um- ræðulistanum. V.-Þjóðverjar vona, að hinn vestræni heimur samein- ist um ákveðna afstöðu í þessu máli, þannig að Frakkland, ? Bret- land og Bandaríkin standi með V.-Þýzkalandi í viðræðum, er orð- ið geta um þetta mál. Varnarmál Evrópu verða einnig ofarlega á listanum, einkum í sam- bandi við fyrirhugaðan kjarn- orkuflota NATO. Sjónarmið Frakk lands og V.-Þýzkalands í þessu máli eru mjög frábrugðin. Erhard mun án efa fara fram á, að de Gaulle geri sér grein fyrir af- stöðu Frakklands í sambandi við þetta. Erhard mun einnig biðja um ákveðið svar frá de Gaulle um tillögur V.-Þýzkalands í sambandi við stjórnmálalega einingu EBE- landanna. Sambandið á milli Frakklands og Þýzkalands hefur versnað síðan Erhard var síðast I París, ekki sízt vegna ósamkomu- lagsins um kjarnorkuflota NATO og um kornverðið innan EBE- landanna. Þó vænkaðist ástandið nokkuð, er samkomulag náðist um kornverðið. Erhard og de Gaulle munu hittast strax í fyrramálið, og búizt er við skýrslu um fundinn síðdegis á morgun, áður en Er- hard snýr aftur til Bonn. SVERTINGJAR TEKNIR Framhaid ai 2 síðu. tveim veitingahúsum, sem áður voru einungis ætluð hvítu fólki. Þessi bylting í hefðbundnum umgengnisvenjum hvítra og svartra á þessum slóðum fór frið- samlega fram og án alvarlegra átaka. Breytingar á aðgreiningarhátt- um hvítra og svartra í þessari 29.000 manna Suðurríkjaborg fóru að gera vart við sig síðastliðið sunnudagskvöld, þegar félag veit- ingamanna í Selma ákvað að veita blökkumönnum aðgang. Hin nýja borgarstjórn í Selma, sem setið hefur síðan í október, gerir það, sem henni er unnt, til þess að hvetja til umburðarlynd- is og hindra óeirðir eins og þær, sem urðu i júlí s.l. vegna sam- þvkktar mannréttindalaganne Martin Luther King hefur kært lögreglustjórann fyrir yfirvöldun- um. vegna framkomu hans við negrana 60. Segir King handtök- una vera eitt það rudda'egasta og ómannúðlegasta sem hann hafi séð og hann muni biðja ríkis- stjórnina i Washington að senda lögreglulið til Selma meðan á að- gerðum negranra i sambandi við mannréttindalögin stendur. LEITAÐ AÐ OLÍU Framhald aí Ois. ib króna á mánuði. Eigi að ganga I úr skugga um það, hvort olía 1 finnst í Norðursjó, kostar það ; að minnsta kosti 10—15 mánaða j rannsóknir, Hver borhola, sem grafin er á miklu dýpi kostar 20—30 milljónir norskra króna, og j ef einhvers staðar finnst gas eða olía, mun kosta í kringum 500 —710 milljónir norskra króna að virkja holuna. Olíufélag, eitt eða fleiri, sem hefur áhuga á olíu leit í norskum höfum, getur eytt að minnsta kosti 100—200 millj ónum norskum krónum í leitina. Þó að gas eða olía finnist ein- hvers staðar á þessum slóðum, er ekki víst, að hægt verði að nýta hráefnið. Er það undir magn- inu komið og eins því, hvort erfiðleikar á vinnslu þess verði mjög miklir. Því er eins víst, að milljónunum verði eytt til einskis, jafnvel þó einhver oHa eða gas finnist. Hinn alþjóðlegi sáttmáli, sem skiptir undirstöðu meginlandsins niður í strandríki miðað við mið jarðarhafslínuna, er nú genginn í gildi, og er England 22. aðilinn, sem gerzt hefur aðili að sáttmál- anum. í Noregi hefur nú verið sett á stofn nefnd í þeim tilgangi að gera áætlanir um hagnýtingu þeirra náttúruauðæva, er kunna að vera í undirstöðu meginlands ins. Er gert ráð fyrir, að nefndin skili áliti sínu í haust. Fram að þessu hafa engin olíufélög fengið leyfi til að leita að olíu á norsku yfirráðasvæði, en í athugun eru umsóknir um jarðfræðilegar rann sóknir. Evrópsk olíuframleiðsla er nokkur hluti af heimsframleiðsl- unni og fullnægir 6% af olíuþörf um Evrópu. Þær olíulindir, sem nú eru þekktar ættu að nægja næstu 36 árin, ef miðað er við ársnotkunina árið 1962. Miðað við aukningu eftirspurnar munu þessar olíulindir nægja í 17 ár í viðbót, en jarðfræðingar eru á þeirri skoðun, að það muni finn ast 12—14 sinnum meiri olía eða gas, en nú er fyrir hendi. Borað er eftir olíu á sama hátt, bæði til lands og sjávar. Notað ur er 40 metra hár bortum. í dag er mögulegt að bora á 300 metra dýpi af fljótandi fleka. Það hefur verið borað 4,000 metra nið ur á hafsbotn í 80 km. fjarlægð frá landi. Borunarfleki getur ver ið allt að 10.000 tonn á þyngd og 5.000 fermetrar á stærð með rúmi fyrir 50 menn, sém vinna á 12 tíma vöktum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.