Alþýðublaðið - 13.02.1955, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 13.02.1955, Blaðsíða 3
Sunnudagur 13. febrúar 1955. alþyðubl^ a hef opnað á Borgarholtsbraut 21, Vindtngar ViðgerSir onsson lögg. rafvirkjameistari. HANNES Á HORNINU- Vettvangur dagsins Ekki gangandi í Skildinganesshólma — Stór-. fréttir nú, en ekki fyrrum •— Ríðandi út á Faxa- .. flóa — Rosknir menn á skauta. ÞAÐ ER EKKI HÆGT aS »anga þurrum fóíum út í Skild inganesshólma. Ég fór suður í Skerjafjörð til þess að athuga möguleika á því, en sá fljótt að það var ekki hægt, jafnvel skki fyrir þá, sem kunnu það 5 gamla daga að hlaupa milli jaka. Blöðin sögðu, að Skerja fjörður væri lagður, en þetta er hálfgert plat. Það er bara grautur á firðinum, jafnvel hægt að róa bát heim til for- setans. Það væri svo sem engin hætta á því, að hann tæki ekki vel á móti hrakningsgesti úr jshröngli fjarðarins ef ég man þann rétt. ' ÞAÐ ER STÓRFRÉTT orð- in ef fjörð leggur landa á cnilli, Það var engin frétt fyrr meir. — Það þykja nú mikil tíðindi, að ís er á Breiðafirði af ströndinni, alla leið út í Akureyjar, Rauðseyjar og all- ar þær eyjar. En það voru ekki neinar fréttir á unglingsárum Eyjólfs frá Dröngum eða Jóns Rauðseyings. Þá fóru menn næstum allan veturinn af ströndjnni út til eyjalandanna til pess að biðja þá um björg. Þá voru auðmennirnir þar, en siú er þar hvorki auðmaður sé öreigi, enginn, nema selurinn , og fuglinn. EINHVER SAGÐI MÉR það einu sinni, að í dentíð hefðu menn, einn frostavetur, farið ríðandi upp á Skipaskaga. Ég hef aldrei fengið staðfestingu á þessu og trúi því varla. Hins vegar væru það nokkur tíðindi eí flóann legði svo langt út, að hestamenn Reykjavíkur gætu farið flengríðandi á gæð íngum sínum með flórlærin, berjandi fótastokkinn, svo að það Iítur helzt út sem klárarn ir hafi vængi, og slagandi til beggja hliða — eftir rennMétt um sjávarís alla leið upp á Skaga. Haldið þið ekki að það væri gaman að horfa á eftir fylgingunni úr Örfirisey? EN SLÍK ÆVINTÝRI ger- ast ekki nú orðið, enda er ég hræddur um, að jafnvel ridd- ararnir, sem nú sjást á góð- viðrisdögum ríðandi inni í Blesugróf og í Smálöndum, skelfilega1 merkikertislegir og oft slagandi á klárunum, myndu heldur vilja sitja heima „kuldaveitunni“ sinni, sem sumir kalla svo, heldur en að hætta sér ríðandi út á Fax.aflóa. Og ég mundi ekki iá þeim það. ÉG HITTI ROSKINN MANN, mikinn fjömiann samt, og sagði við hann. „Af hverjium fjáranum farið þið sldri mennirnir ekkj á skauta? Tjörnin er íslögð viku eftir viku, en þar koma bara krakk ar. Ef þið eldri mennirnir fær- uð á skauta, munduð þið finna æsku ykkar aftur, sem þið er uð alltaf að leita að. Það mundi auka ykkur gleði og á nægju.“ „ÞETTA ER ALVEG SATT“, sagði hann. „Ég fer á skauta. Ég ætla að fá fleiri með mér, nokkra, sem fóru oft með mér á skauta fyrir 45 árum. Skauta íþróttin er dásamleg‘{, Éánn varð fjarrænn til augnanna. Hann sá sjálfan sig áreiðan. lega á hröðu skautahlaupi á tjörninni. Ég veit ekki hvort hann hefur látið verða af því snn. t ,! MARGRET GESTSDOTTIR , frá Káraneskoti í Kjós, andaðist að elli og hjúkrunarheimilimi Grund 10. þessa mánaðar. Ágúst Þorsteinsson. í DAG er sunnudagurinn 13. 1955. Næturvarzla: Laugavegs apó sími 1616. Apótek Austur og Holtsapótek opin til síðd., nema laugardaga til kl. 4 og Holtsapótek kl. 1—4 á sunnudögum. Helgidagslæknjr er Kjartan Guðmundsson, Úíhiíð 8, sími 5351. FLUGFERÐIK Loftlei'Öir. millilandaflugvél Loft var væntanleg til Rvík- ur kl. 7 í morgun frá New York. Áætlað var, að flugvélin færi kl. 8.30 til Oslóar, Gauta- borgar og Hamborgar. Hekla, millilandaflugvél Loítleiða, er væntanleg til Rtykjavíkur kl. 19 í dag frá Hamborg, Gauta- borg og Osló. Flugvélin fer til New York kl. 21. SKIPAFRÉTTIR Skipadeild SÍS. Hvassafell losar kol á Aust- fjarðahöfnum. Arnarfell er í Santos. Jökulfell lestar frosinn fisk á Breiðafjarðarhöfnum. Dísarfell er í Keflavík. Litla- fell er í olíuflutningum. Helga fell er í Reykjavík. Eimskip. Brúarfoss fór frá Rotttrdam 11/2 fll Hull og Reykjavíkur. Dettifoss er í Reykjavík. Fjall foss er í Reykjavík. Goðafoss fór frá New York 9/2- til Rvík ur. Gullfoss er í Reykjavík. Lagarfoss er í Reykjavík. Reykjafoss ery Reykjavík. Sel foss fer frá ísafirði í dag til Dalvíkur, Norðfjarðar, Eski- fjarðar, Fáskrúðsfjarðar, og þaðan til Hull, Rotterdam og Bremen. Tröllafoss tr í Reykja vík. Tungufoss er í Reykjavík. Katla er í Reykjavík. F U N O I R K'Venfélag Alþýðuílokksins í Hafnarfirði heldur skemmti- fund næsta máiiudagskvöld kl. 8.30 í Alþýðuhúsinu. Skemmti atriði: Spurningaþáttur og nýr gamanþáttur. Stjórnin. DAGSKRÁ ALÞINGIS Mánud. 14. febr. Neðri deild. Sandgræðsla og hefting sand- foks, frv. Ef leyft verður. Leigubifreiðar í kaupstöðum, frv. Frh, 2. umr. Brunatrygg- ingar utan Reykjavíkur, frv. 1. umr. Tollskrá o. fk, frv. Ef leyft verður. — * — Laugarneskú'kja: Biblíulest- ur annað kvöld (mánudag) kl. 8.30 í samkomusal kirkjunnar. Leiðrétting. Það var misritun hér í blað- inu í gær, að farið væri fram á 30 stundir í yfirvinnu á viku fyrir matreiðslumenn í, kröfum við yafirstandandi samninga' umleitanir við skipafélögin. Það átti auðvitað að vera. 30 stundir í yfirvinnu á mánuði Jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa GUÐJÓNS PÁLSSONAR fyrrv. verkstjóra, frá Bakkagerði fer fram frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 15- febrúar kl. 2Vz e. h. — Blóm og kranzar afbeðið. Þeir sem vilja minnast hins látna eru minntir á Hai}- grfmskirkju. — .Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. F. h. aðstandenda: Guðrún P. Guðjónsdóttir. Hafnarfjörður. '.Ek Kvenfélag Álþýðuflokksins í Hafnarfirði heldur skemmtifund nk. mánu- dagskvöld klukkan 8,30 í Alþýðuhúsinu. Meðal skemmtiatriða: .. | Spurningaþáttur og nýr gamanþáttur. Konur, fjölmennið á fundinn og takið með ykkur gesti. .' 77 Stjornin. OPTIMA FERÐARITVELÁR verð aðeins kr. 1.275.00, SKRIFSTOFUVÉLÁR 7 með 32 cm. vals kr. 3,140,00. f Hvortveggja traustar vélar og býggðar sam kvæmt ströngustu kröfum. i -v../ Garðar Gíslason ^ 77 Reykjavík. í Reykjavík heldur aðalfund sinn mánud. 14. þ. m. kþ 8,30 í Sjálfstæðishúsinu# Venjuleg aðalfundarstörf, s Skemmtiatriði: Frú Hallbjörg Bjarnadóttir skemmt. ir og frú Þóra Borg Jes upp með undirleik frk. Emilíu Borg. Dans. Félagskonur eru vinsamlega beðnar að sýna skírteini við innganginn. — Öllum konum velkomið að ganga í félagið. Stjórnin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.