Alþýðublaðið - 15.09.1955, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 15.09.1955, Blaðsíða 3
Fimmtuclagur 15. sept. 1955 ALÞÝÐUBLAÐIÐ i* Líkan af hinni fyrirhuguðu kirkju Óháða fríkirkjusafnaðarins. Turninn verður 15 m. hár. Teikningu gerði Gunnar Hansson. Fyrirhuguð kirkja verður í núfíma stíl með viðbyggðu félagsheimili Óháii frtkirk|iLas@fiiylÍyritiii reiSubúinn að hefja kirkjubyggingu, aðeins f járfestingarieyfi vantar. TEIKNING af fyrirhugaðri safnaðarkirkjxi Óháða fríkirkju safnaðarins er nú fullgerð og verður bygging kirkjunnar hafin hjá vatnsgeymunum sunnan við Sjómannaskólann strax og fjárfestingarleyfi er fengið. Söfnuðurinn á 200 þús. krónur hand foærar, 700 dagsverkum hefur verið lofað og öll Ieyfi eru í lagi fil að hefja byggingarframkvæmdir — en fjárfestingarleyfi vantar. Kirkjuna teiknaði ungur arki tekt, Gunnar Hansson, og verð- ur hún með nýtízku sniði eins og flestar kirkju, sem reistar ANNES A EOBNINDOÖ0ÖÖ00Ö^ Vettvangur dagsin$ i Leynilögreglumenn í sjálfri umferðinni — Bif- [ reiðastöðvarnar burt úr Miðbænum — Eru ó- f! þarfar þar, og um leið skaðlegar B. B. SIÍRIFAR: „Ég vil láta í Ijós ánægju mína yfir tillög- um, sem fram komu í pistli þín- um fyrir nokkru og f jölluðu um öngþveitið í umferðarmálunum. Sérstaklega vil ég láta í ljós á- nægju mína með tillöguna um að taka upp ökuleyfissviptingu fyrir slæm umferðarbrot. Það er staðreynd, að sektirnar hafa tiltölulega lítið að ségja. Hvað munar ríka menn um það að foorga nokkrar krónur í sekt? Slík áhætta kemur ekki vitund við þá. ÞAÐ ERU FYRST og fremst hinir „fínu selskabsmenn“, sem eru teknir fyrir ölvun við akst- ur. Þeir sitja boð, þiggja vín — og aka heim eins og ekkert hefði í skorizt. Og hvaða áhrif halda menn að nokkurra króna sekt hafi á unga mqnn, sem koma í bifreið sinni til dans- leika, drekka þar vín — og bjóða stúlkum að aka þeim heim að dansleik loknum? Ekki vitund. ÞAÐ ER ALVEG RÉTT, sem sagt er í pistli þínum, að það á að taka ökuleyfi af mönnum um tíma þegar við fyrsta brot fyrir ölvun við akstur — og fyrir að brjóta settar reglur eða sýna þjösnaskap í umferðinni. Við annað brot á að svipta hinn brotlega ökuleyfi í lengri tíma og við þriðja brot um enn lengri tíma. Ég læt löggjafanum eftir að ákveða tímana. • ÞL TALAR LM, að það sé ekki nóg að lögregluþjónar sitji í merktum lögreglubifreiðum á umferðarhornum og grípi söku- dólgana. það þarf að hafa borg- aralega menn í ómerktum bií- reiðum í sjálfri umferðinni og grípa níðingana. Það er orðið alveg eins nauðsynlegt fyrir okkur að hafa leynilögreglu- menn i þessu starfi eins og aðr- hafa verið vestan hafs og aust- an á síðustu árum. Kirkjan rúm ar um 230 manns í sæti, auk þess er viðbyggt félagsheimili, sem hægt er að bæta við með því að renna til færanlegu þili, sem verður milli þess og sjálfr- ar kirkjunnar. Auk þess verða í byggingunni skrifstofa, skrúð hús, snyrtiherbergi og fleira. Söngflokkur kirkjunnar og orgel eiga að vera inni í kór, hægra megin við altarið. Fé- lagslíf hefur jafnan verið mik- ið og margþætt innan safnað- arins og leggja forráðamenn hans mikla áherzlu á að hafa félagslífið í framtíðinni í bein- um tengslum við kirkjuna, und ir sama þaki. Kirkja með við- byggðu félagsheimili er nýjung hér á landi og má vænta hins bezta af þeirri nýjung, bæði fyrir kirkjuna og félagslífið. MIKIÐ STARF AÐSTAÐA. ERFIÐ Það er oft talað um það að nútímafólk vilji lítið á sig leggja vegna kirkju og kirkju- (Frh. á 6. síðu.) ar þjóðir með sjálfri hinni opin- beru lögreglu. ENN FREMUR vil ég segja þetta út af bifreiðastæðunum: Allar bifreiðastöðvar eiga að hverfa úr miðbænum. Bifreiða- símarnir hafa gert þær óþarfar. Hundruð bifreiða standa dag- langt á þessum stöðvum og þekja stór svæði í miðbænum. Þarna væri hægt að leggja einkabifreiðum og taka þær um leið af sjálfum umferðargötun- um. Miðstöðvar bifreiðanna geta alveg eins verið í úthverf- unum eins og í miðbænum. ÉG SKIL EKKERT í því, að á þetta skuli ekki hafa verið minnzt, því að mér finnst þetta liggja svo í augum uppi. Hér er alls ekki verið að þrengja kosti bifreiðastöðvanna, því að sann- leikurinn er sá, að í 90 tilfellum af hverjum 100 eru bifreiðar pantaðar gegnum síma. Það kemur sárasjaldan fyrir, að bif- reiðar eru teknar á sjálfum að- alstöðvunum, enda geta menn alveg eins komizt í síma í mið- bænum til þess að panta sér bif reið eins og annars staðar í bæn um — og um nætur geta bif- reiðar gjarna verið á ferð í stað þess að standa á stórum svæðum í sjólfum miðbænum. Menn hljóta að sjá, að ef þetta væri gert, þá myndi það verða til þess að rýma mjög til fyrir bif- reiðunum.“ ÞETTA ER IIÁRRÉTT, Ég skora á yfirvöldin í umferðar- málunum að taka þessar tillög- ur til athugunar. Bifreiðastöðv- arnar, allar nema Bæjarleiðir, hafa lagt undir sig stór svæði í ] miðbænum. Þetta er ekki aðeins óþarfi, heldur beinlínis skaðlegt j eins og nú er komið bifreiða- fjöldanum og þrengslunum í miðbænum. Hannes á horninu. s <*■ Ur ðllum Iflum. í DAG ev fimmtudagurinn 15 september 1955. FLUGfESÐIK Loftleiðir h.f. Edda er væntanleg frá. New York ld. 9.00, flugvélin fer. kl. 10.30 til Stavanger, Kaupmanna hafnar og Hamborgar. Einnig er væntanleg Saga úr aukaflugi nr. 5 í eftirmiðdag frá New York, Flugvélin fer eftir stutta viðdvöl til Stavanger. Þá er væntanleg Hekla frá Noregi kl. 17.45, flugvélin fer til New York kl. 19.30. SKIPAFRETTIfoí Eimskip. Brúarfoss fró frá Hull 12.9. til Reykjavíkur. Dettifoss fór frá Hamborg 13.9. til Hull og Rvík- ur. Fjallfoss fer frá Akureyri á morgun 15.9. til Reykjavikur. Goðafoss fór frá Reykjavík 12.9. til Vestfjarða, Austfjajrða, og þaðan til Hamborgar, Gdynia og Ventspils. Gullfoss fer frá Rvík kl. 22.00 í kvöld 14.9. Lagarfoss kom til Reykjavíkur í morgun 14.9. frá Hamborg. Reykjafoss kom til Hamborgar 14.9. frá Hamborg. Reykjafoss kom til Hamborgar 14.9. frá Rotterdam. Selfoss kom til Lysekil 12.9. fer þaðan til Gautaborgar, Flekke- fjord og Faxaflóahafna. Trölla- foss fór frá New York 8.9. til Reykjavíkur. Tungufoss fór frá Lysekil 12.9. til Stokkhólms og Hamborgar. Skipadeild SÍS. Hvassafell fór 9. þ.m. frá Hjalt eyri áleiðis til Finnlands. Arn- arfell fór 12 þ.m. frá Siglufirði áleiðis til Helsingfors og Ábo. Jökulfell er í New York. Dísar- ifeli fór 10. þ.m. frá Keflavík áleiði stil Hamborgar, Rotter- dam og Antwerpen. Litlafell er í Reykjavík. Helgafell er í Rvík. Seatramper er væntanlegur til Keflavíkur í dag. St. Walburg lestar kol í Stettin. Ríkisskip. Helda er væntanleg til Reykja víkur árdegis í dag frá Norður- löndum. Esja verður væntan- I lega á Akureyri i dag á austur- I leið. Herðubreið fer frá Reykja ! vík í dag austur um land til ! Vopnafjarðar. Skjaldbreið er í Breiðafirði. Þyrill er í Reykja- vík. Skaftfellingur fer frá Rvík á morgun til Vestmannaeyja. Maðurinn minn, iAGNÚS KJARTANSSON, málarameistari, andaðist að heimili sínu, Öldugötu 13, Hafn~ arfirði, þann 13. þessa mánaðar. Þorgerðúr Einarsdóttir. Bezta skemmtun ársins IS5S Aðgöngnmiðasalan heldur áfram í dag kl. 4 fyrir laugardag kl. 7 og 11,15 og sunnudag kl. 7 og 11,15. Tilkynning frá Bæjarsíma Reykjavtkur um símapantanir. Allir þeir, sem sótt hafa um síma hjá Bæjarsíma Reykjavíkur, og ekki fengið hann, þurfa vegna undirbún ings línukerfisins, að endurnýja símapantanir sínar. End- urnýjunin fer fram í Góðtemplarahúsinu (uppi) í Reykja vík, og hefst fimmtudaginn 15. september 1955, og lýkur föstudaginn 23 sama mánaðar. Opið verður hvern virkan dag, frá kl. 15.30 til 20.00 (einnig laugardaginn). Á sama stað verður einnig tekið á móti nýjum símapöntunum. Þær pantanir, sem ekki verða endurnýjaðar, skoðast sem niður fallnar. Athygli skal vakin á því að endurnýjun símapantana þýðir ekki það, að nú þegar sé hægt að afgreiða nýja síma, heldur mun afhending þeirra væntanlega hefjást seinni hluta næsta árs. Síðar á þessu ári mun verða auglýst eftir nafnabreyt ingum í sambandi við næstu útgáfu símaskrárinnar. Reykjavík, 15. sept. 1955. P E L S til sölu Krlstfnn Kristjánsson feldskeri Tjarnargötu 22. — Sími 5644.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.