Tíminn - 03.02.1965, Side 16

Tíminn - 03.02.1965, Side 16
bm greiða sjómem atkræði Hvað verður um forn- ritaútgáfu Neison's? BÓ-Reykjavík, þriðjudag. Bókaforlagið Thomas Nelson and Sons Ltd. í London og New York hefur nú verið selt, en þar með er allt á huldu um fram- hald bókaflokksins „Nelson's Ice- landic Texts“, sem þetta forlag hefur gefið út undir ritstjórn prófessors Sigurðar Nordal og G. Turville-Petre. Þrjú bindi íslenzkra fornsagna eru þegar komin út í þessum flokki, með enskum og forníslenzk- um texta hlið við hlið sitt á hvorri síðu. f bókaþætti tímaritsins The American-Scandinavian Review, Framsóknarvist í Súlnasalnum Markús Björn Framsóknarfélögin í Reykjavík halda spilakvöld í Súlnasal Hótel Sögu, fimmtudaginn, 4. febrúar n.k. Spiluð verður Framsóknar- vist og glæsileg verðlaun veitt. Marbús Stefáns. stjómar vistinni Bjöm Pálsson, bóndi og alþingis- maður á Löngumýri flytur stutta ræðu. Dansað til kl. 1 eftir mið- nætti. Boðsmiðar eru afhentir í skrifstofu flokksins að Tjarnar- götu 26. Sími 15564 og 16066. — Stjórnir Framsóknarfélaganna. desemberhefti 1964, birtist ritdóm ar um Heiðreks sögu og Jóms- víkinga sögu, sem út komu í þess- um bókaflokki 1960 og 1962. Und- irritaður er Hedin Bronner, starfs maður bandaríska sendiráðsins í Kaupmannahöfn. Hann lýkur lofs- orði á þennan bókaflokk og seg- ir meðal annars: „Now the general editors of „Nelson's Ice- F'ramih. á bls. 14. KJ-Reykjavík, þriðjudag. Sáttafundur hélt áfram í sjó- manndeilunni í gærkveldi eftir að talin höfðu verið atkvæði útvegs- manna og sjómanna um sáttatil- lögu þá, er sáttasemjaramir lögðu fyrir deiluaðila. Lauk fundinum undir morgun með því að undir- ritað var samkomulag, með fyrir- vtara um að félagsmenn deiluaðila samþykktu samninginn. Myndin hér að ofan var tekin á fundi hjá Sjómannafélagi Reykja- víkur, sem haldinn var síðdegis í dag í Iðnó, en þar var rætt um samkomulag það, sem samninga- Sjómannafélagið í spilið Aðils-Kaupmannahöfn, þriðjudag. Fréttaritari Tímans og séra Jón- as Gíslason voru staddir um borð í Gullfossi í dag klukkan 12 á há- degi, þegar hásetamir þrír af Jarlinum komu þangað til þess að fá sér að borða. Annar vél- stjóri, sem hefur nú verið látinn laus, stendur vakt um borð í dag. Hásetamir þrír eru Jóhann Örn Matthíasson frá Siglufirði og Við- ar Halldórsson og Sigurður Ketils- son frá Reykjavík. Séra Jónas Gíslason, sem er þekktur hér fyrir hjálpsemi sína og fómfýsi hlustaði á sögu háset- anna og varð mjög undrandi, og fór þegar með þá á Kristeligt Dagblad, þar sem Rytgaard rit- stjóri, sem er fréttaritari Morgun- blaðsins, skrifaði frásögn þeirra niður. Hann hlýddi með athygli á frásögn hásetanna, sem stað- festir allt, sem staðið hefur í Tím- anum. Því næst ók ég hásetunum aftur um borð í Gullfoss, en trún- aðarmaður Sjómannafélags Reykja víkur um borð, Pétur Thoraren- sen, hafði þá hringt í Sjómanna- félagið til að fá það til að leita eftir samþykki Gunnars Halldórs- sonar fyrir því að hásetarnir Rauimaginn kominn tií Húsavíkur.... ÞJ—Húsavík, þriðjudag. Rauðmaginn kemur jafnan snemma til okkar Húsvíkinga, og nú er farið að bera svolítið á hon- um hérna. Hann veiðist rétt utan við kaupstaðinn, og þótt lítið sé um hann ennþá, líður varla á löngu unz hann fer að veiðast hér að gagni. Gæftir hafa annars verið fremur stopular hér, og þegar gefið hefur á sjó, hefur afli verið tregur. 7 þilfarsbátar, 15—20 tonn, stunda veiðar héðan, og svo- nokkrar trillur. Vegir hér um héraðið em orðnir mjög sæmilegir, fært er austur á Raufarhöfn og suður um. mættu þegar halda heim. Hásetarn ir bíða nú um sexleytið eftir svari að heiman. Þeir munu snæða kvöldverð um borð í Gullfossi og Pétur Thorarensen hefur sagt mér, að hann muni beita sér fyrir því að hásetamir fái einhverja peninga til nauðsynja, ef þeir fá ekki þegar í stað svar upp á það að þeir megi halda heim. Það skal tekið fram, að fréttin í Morgun- blaðinu á sunnudaginn um það, að fleiri hefðu verið handteknir, er á einhverjum misskilningi byggð, því aðeins einn háseti hef- ur verið settur í gæzluvarðhald. Ekkert áfengismagn hefur fund- izt í skipinu, umfram það, sem sagt var frá í Tímanum, enda engin frekari leit farið fram. Fundu fjórar kindur eftir allar hörkurnar MB-Reykjavík, þriðjudag. Á laugardaginn fóru tveir bænd ur úr Fljótshlíðinni, Ámi Jóns- son í Hlíðarendakoti og Sæmund- ur Úlfarpson á Heylæk, í eftirleit inn á afrétt þeirra Fljótshlíðinga. Fundu þeir fjórar kindur inni á miðjum afrétti og voru þær ár Holtunum, en fé þaðan er sjald- fundið á þessum slóðum. Féð var eðlilega illa á sig komið, enda verið þarna í algerri hagleysu unz hlákan kom um daginn. Sæmundur Úlfarsson sagði blað inu í dag frá ferð þeirra félaga og fer frásögn hans hér á eftir: Við lögðum af stað snemma á laugardagsmorguninn óg ætluðum að koma heim aftur um kvöldið. Við bjuggumst ekki írekar við fé á þessum slóðum, þótt nokkuð vantaði af fé héðan úr sveitinni, en tókum þetta upp hjá sjálfum okkur á föstudagskvöldið, þegar Iveðurútlit og spá voru góð. Við I fómm gangandi, þar eð ekki er ! unnt að koma þarna við hestum eins og færið er núna, en gang- færi var hins vegar prýðilegt. Eing og ég sagði áðan ætluðum ......og loðnan tii Hornafjarðar AA—Höfn, þriðjudag. Héðan stunda nú fimm bátar línuvejðar og hafa aflað sæmilega, frá 7—10 lestir í róðri og mest 12 lestir. Sjómenn hafa orðið nokk uð varir við loðnu í fiskinum og er það óvenjulega snemma. 2 bát- ar héðan eru á síldveiðum, eru það Ólafur Tryggvason og svo Jón Ejríksson, sem er nýr bátur hér, hét áður Ljósafell. Það er um 90 lesta bátur. Þrír bátar héðan hafa beðið átekta, ætluðu á troll, ef Framhald á 14 síðu. SILDIN EJ—Reykjavík, þriðjudag. Sæmileg síldveiði var í nótt í Meðallandsbugtinni, og fór mestur hluti síldarinnar í vinnslu. Nokkr ir bátar sigldu með síldina til hafna á Reykjanesskaganum, og sum komu hingað til Reykjavíkur. Blaðinu er kunnugt um afla 15 skipa, sem fengu samtals um 10 þúsund tunnur. Skipin eru þessi: Jón Finnsson 600, Halldór Jónsson 650, ísleifur IV 1300, Huginn II 1200, Gullberg 700, Kristbjörg 500, Margrét 600, Hafrún 400, Reynir 500, Svein- björn Jakobsson 300, Engey 600, Bjarmi II 1300, Margrét 500, Ófeig ur II 500 og Snæfugl 400. TÍU SÝNINGAR Á VIKU MB—Reykjavík, þriðjudag. Óvenjumikið er nú um að vera í Þjóðleikhúsinu. Þar eru nú fimm leikrjt í gangi, og í þessari viku verða alls tíu sýningar á sviði Þjóðleikhússins sjálfs og á Litla sviðjnu í Lindarbæ. Munu aldrei fyrr í sögu Þjóðleikhússins hafa verið svo margar sýningar á einni viku. Alltaf er uppselt á sýnjng- amar á Litla sviðinu, en þar eru sýnd leikritin Nöldur og Sköll- ótta söngkonan. Mjög mkil aðsókn er einnig að Hver er hræddur við Virginíu Woolf? og einnig er ágæt aðsókn að Stöðvið heiminn, en á þeim leik hafa verið mjög margar sýningar undanfarið. Sardasfurst- innan er nú sýnd einu sinni í viku. Fimmta leikritið er svo Kardi- mommubærjnn, sem enn sem fyrr nýtur mikilla vinsælda meðal ungu áhorfendanna. nefndirnar höfðu undirritað. Höfðu verið gerðar breytingar á ákvæðunum um skiptasprósent- una, frá því sem var í sáttatillög- unni og sjómennirnir felldu. Skiptaprósentan er nú sem hér segir í samningnum, sem undir- ritaður var með fyrirvara og sjó- menn eru að greiða atkvæði um: Þegar veitt er með línu skal hún vera a) á 12—20 rúml. bátum 40% þegar 7 menn eru á. B) 34% á 20 —30 rúml. bátum þegar 8 menn Framh a ois 14. við upphaflega að koma heim um kvöldið, en það gátum við ekki, fyrst við fundum féð og myrkur var skollið á, er við komum í sælu húsið á Einhyrningsflötum, og tunglslaust var. Framh. á bls. 14. Danir ætla nú að nýta grænlenzka laxinn Aðils—Kaupmannahöfn, þriðjudag. Vegna þess að þorskveiðin hefur brugðizt við Grænland tvö síðustu árin eru Danir nú farnir að ræða um, hvað til bragðs skuli taka, svo einhver atvinna verði í landi í sambandi við sjávarafla. Eftir því sem Berlingske Aftenavis skýrir frá í gær eru nú á prjónunum ráða- gerðir um að hefja nýtingu grænlenzka laxins í stórum stíl. Þessi þróun í þorskveiðun um er svo uggvænleg, að ekki er talið ráðlegt að draga það lengur að leggja fjármagn í aðrar veiðar við Grænland. Á mánudaginn sótti Grænlandsmálaráðu- neytið því um leyfi til að mega leggja fimm milljónir danskra króna í verksmiðju í Frederikshaab, þar sem frystur verði lax, og ýmsar aðrar fisktegundir verkaðar, svo sem steinbítur, karfi, heilagfiski og rækjur. Frederikshaab er sunnar- lega á vesturströnd Græn- lands. Hádegisklöbburinn kemr saman í dag á sama tíma og venjulega. í Tjarnargötu 26. Skrifstofustjóri Útvegsbanka ísl. Á fundi bankaráðs Útvegsbanka íslands í gær var Gunnar Davúðs- son aðalgjaldkeri ráðinn skrifstofu stjóri bankans í stað Henriks Thor arensen, sem fengið hefur lausn frá starfi vegna veikinda, Gunnar Davíðsson hefur starfað í Útvegs bankanum undanfarin 23 ár og verið aðalgjaldkeri bankans s.l. 9 ár.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.