Alþýðublaðið - 27.09.1955, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 27.09.1955, Blaðsíða 1
Eisenhower liggur sjúkur Hlaut hjartaáfall; stífla í kransæðakerfi EISENHOWER FORSETI Bandaríkjanna varð fyrir hjarta áfalli sl. laugardag og liggur nú á sjúkrahúsi. Þjáist forsetinn af stíflu í kransæðakerfi hjartans en ekki er hann talinn í neinni lífshættu. Eru batahorfur taldar góðar en þó búizt við að for- setinn verði frá störfum í eina svo mánuði. Eisenhower var staddur í Denver í Colorado, er hann varð veikur og var hann lagð- ur inn á sjúkrahús hersins þar. Var einkalæknir forsetans, dr. Snvder, með honum, er hann veiktist. Þegar á laugardags- kvöldið flaug Thomas W. Matt- ingly I hjartasérfræðingur við Walter Reed sjúkrahúsið íWash ington til Denver til þess að rannsaká forsetann. Síðan kom hin'n heimsfrægi hjartasérfræð ingur dr. Poul Dudley einnig til Denver. Hefur Dudley nú látið svo ummælt, að forsetinn sé úr allri hættu og batahorf- ur séu góðar. Nixon varaforseti hefur þeg- ar tekið við. störfum Eisenhow ers og var í gær búizt við úr- skurði dómsmálaráðuneytisins um það, hvaða mál heyrðu únd- ir Nixon. BEÐIÐ FYRIR EISEN- HOWER. Margir þjóðhöfðingjar hafa (Erh. á b. síðu.) XXXVL árgangur. Þriðjudagur 27. sept. 1955 201. tbl. Bœjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi: ramboðsiundurinn iofar m um úrslifin iynr nn Akurnesingar skora annað mark sett í bæjarkeppninni. Hörður Óskarsson bakvörður Reykja- víkur reyndi að bjarga en knötturinn hrökk í mark af fæti hans. Þó tókst að renna f lugvélinni á land og bjarga !; áhöfninni; miklar skemmdir BANDARÍSK SJÓFLUGVÉL var hætt komin í lendingu á Elliðaárvogi í gær. Komst leki að flugvélinni og var hún kom ^ in' að því að sökkva. En þó tókst að renna henni á land og bjarg ' aðist því öll áhöfnin. Flugvélin, sem var af Grum an Albatros gerð, var úr björg Unarsveit Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Var hún að æfa lendingu á Vognum er slysið varð um 6 leytið í gær. RIFNAÐI MIKIÐ. RENNT Á LAND. Er flugvélin var komin á móts við Keili var hún tekin að síga mikið og þótti því ráðleg- ast að renna henni hið skjótasta á land. Kom þarna kranabíll (Frh. á 6. síðu.) 1 \ Sfuðningsmenn A-lisfans! j STUÐNINGSMENN A-list- : ans í Kópavogi eru minntir ; á að kosningarskrifstofan er ; opin daglega, sími 6990. Eru J stuðningsmenn beðnir að ; hafa samband við skrifstof- ■ una og gefa henni allar þær : upplýsingar, er að gagni : mættu koma við kosningarn ; ar. Kommúnisfar fóru mikla hrakför á fundinum ALLIR FLOKKAR, sem standa að framboði til bæjar- > stjórnar í Kópavogi efndu til framboðsfundar í barnaskóla- húsi hreppsins síðastliðinn sunnudag. Var fundurinn fjölsótt- ur, eða alls munu hafa verið þar um 400 manns, og umræður fjörugar allt til kvölds. Fór fundurinn einkar vel fram og voru umræður hinar prúðmannlegustu, og munu margir Kópa- vogsbúar telja, að sá óvenjulegi atburður spái góðu um úrsiit kosninganna. Alþýðuflokkurinn og fram- bjóðendur hans áttu þarna sýni lega miklum vinsældum að fagna, en þeir deildu allhart á alla hina flokkana. Fóru komm únistar þarna hrakför mikla, enda var almennt talið, að aldrei hefði málflutningur þeirra verið aumari nú, eða snauðari að rökum. HÓTANIR ÍHALDSINS. Fulltrúar íhaldsins léku við lélegar undirtektir áheyrenda, gömlu plötuna, þar sem kjós- endum er ógnað með því, að þeim muni allar peningastofn anir lokaðar, og engin ráð bjóðast til að fá fé til fram- kvæmda, svo fremi, sem þeir kjósi ekki stærsta flokk lands ins, — Sjálfstæðisflokkinn. Framsóknarflokkurinn, sem að undanförnu hefur ekki lát- ið sér nægja að skreyta blað sitt „glansmyndum“ af Hann- esi Jónssyni á fermingaraldri, en hefur nú tékið að birta þar „seríumyndir“, sem þar eru taldar vera af afrekum Fram- sóknarflokksins í Kópavogi, og hafa áður verið birtar í Tmanuni, stóð sig illa á fund- inum, enda var málflutningur hans líkur og myndavalið, því að margar þeirra sýna fram- kvæmdir annarra flokka og einstaklinga, sem framsókn og Iiannes hafa jafnvel hvergi nálægt komið. En myndir þess ar voru átta talsins, og mest gumað þar af því, að fram- sóknarmenn væru nú að reisa 16 íbúðir í Kópavogi, — en hins vegar hefur gleymzt að geta þess, að um 400 íbúðir eru nú í byggingu í Kópavogi, á vegum verkamanna, og manna úr öllum flokkum, og verður því afrek Hannesar og framsóknar hlutfallslega held ur smátt, eða um 4 %, og eykzt heldur lítið, þótt ljósmyndað sé. VIÐURKENNING HANNESAR. Ýmislegt kom þó fram þarna á fundinum af afrekum Hann- esar og framsóknar, sem gleymst hefur að ljósmynda, — meðal annar það, að hann hef- ur, í skjóli embættis síns sem stjórnskipaður eftirlitsmaður með lóðaúthlutun í Kópavogi, séð bæði konu sinni og kunn- ingjum fyrir jarðnæði þar, og (Frh. á 6. síðu.) Akranes vann y Reykjavík 3:2 AKURNESINGAR UNNU Reykvíkinga í bæjarkeppninni s.l. sunnudag með 3:2. Gerðu Akurnesingar öll sín mörk í fyrri hálfleik og lyktaði honum 3:0 fyrir Akranes. í síðari liálf- leik skoruðu Reykvíkingar sín tvö mörk. Mjóikurskömmtun i vetur Mjólkurmagn töluvert minna en í fyrra og íalið víst að það minnki enn ALLAR LÍKUR ERU á að því, að skammta verði mjólk í Reykjavík í vetur. Um leið og venjulegir skömmtunarseðlar verða afhentir í Reykjavík verður útbýtt mjólkurskömmtun- arseðlum „með því að gert er ráð fyrir að ef til vill þurfi að skammta mjólk einhvern hluta vetrar“. Flugvélin lenti fram und an Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi. Rifnaði vélin mik ið í lendingunni en ekki er vit að hvort hún hefur rekizt á eitthvað. Mikill sjór komst þegar í vélina og var óttazt að liún kynni að sökkva. Flug- mennirnir sigldu henni þó þegar í áttina til lands. Kom bátur frá Áburðarverksmiðj- unni til 'aðstoðar og fylgdi henni til lands. MIKILL VIDBÚNADUR. Helikopter af Keflavíkurflug velli kom einnig á vettvang og önnui’ Albatros vél. Einnig voru sjúkrabifreiðir og slökkvi liðið til taks ef eitthvað kynni út af að bera. Vakti þessi við búnaður að sjálfsögðu mikla at hygli í Kleppsholti og Voga- liverfi. Mjólkurmagn það, sem berzt til bæjarins hefur verið mjög jafnt undanfarið. Einnig hefur nóg skyr fengizt og rjómi. Dag- leg mjólkursala er tæpl. 60 þús. lítrar. Töluvert minni mjólk berst til bæjarins nú en í fyrra. Talið er þó víst, að það eigi eftir að minnka töluvert, er kýrnar verða settar inn, nú um mán- aðamótin. Auk þess er heyið bæði lítið og lélegt og óvenju- lega mörgum kúm verður lógað í haust. Reynt verður í lengstu lög að komast hjá að taka upp I mjólkurskömmtun og verður fvrst dregið úr framleiðslu skyrs og rjóma. Þegar hefur mjólkurskömmtun verið ákveð in á einum stað utan Reykja- víkur, en búast má við að fleiri verði og að grípa til skömmt- unar. Víst er, að bæði verður mjólkin lítil í vetur og rýr að næringargildi. Akurnesingar gerðu fyrsta markið þegar á fyrstu mínútu. Annars var sá háKleikur frem- ur jafn, enda þótt markatalan gefi annað til kynna. í síðari hálfleik höfðu Reykvíkingar hins vegar algera yfirburði og fór leikurinn mest fram upp við mark Akurnesinga. Fengu Reykvíkingar mörg tækifæri til þess að skora, en aðeins tvö þeirra nýttust. — Fjölmenni var á vellinum. Dómari var Hannes Jónsson. Dr. Kristinn formaður NATO-ráðsins UTANRÍKISRÁÐHERRA ís- lands, dr. Kristinn Guðmunds- son, hefur verið kosinn formað ur Norður-Atlantsráðsins fyrir næsta ár. .

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.