Alþýðublaðið - 29.09.1955, Qupperneq 6
6
Alþýðublaftið
Fimmtudagur 29. sept. 1955
Útvarpið
20.30 Erindi: Út á Stóra-Skæl-
** ing; seinni hluti (Jónas Árna-
son).
20.50 Einsöngur: Kathleen Ferr
ier syngur. (plötur).
21.10 Erindi: 75 ára framfara-
félag, eftir Halldór Pálsson
frá Nesi (Sig. Árngrímsson).
21.40 Tónleikar: Valsar eftir
Chopin (plötur).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Lífsgleði njóttu, saga eftir
Sigrid Boo; XIX.
22.25 Sinfóniskir tónleikar af
plötum.
23.05 Dagskrárlok.
Pilnik
(Frh. af h. síðu.)
byltinguna. Kvaðst hann vozia,
að komin yrði þá á ró og spekt
í landinu, en hins vegar hefur
hann ekkert frétt af fjölskyldu
sinni. Pilnik fer þó ekki beint
heim því að lokinni dvöl sinni
hér er förinni heitið til Júgó-
Slavíu á stórmeistaramót, sem
hefst þar 25. okt. Tekur
Botvinnik m. a. þátt í því móti.
HAUSTMÓTIÐ.
Haustmót Taflfélags Reykja
víkur hefst 20. okt. kl. 1,30 eins
og blaðið hefur áður skýrt frá.
Einnig hefur áður verið skýrt
frá hverjir taki þátt í móti
þessu að tveim undanteknum.
Eru það þeir Arinbjörn Guð-
ínundsson og Jón Einarsson.
Mótið fer frarn á Þórscafé og
verða tefldar 4 umferðir í viku.
Teflt verður alla daga nema
fimmtudag og laugardaga. Er
búizt við að mótið standi í 3,
"víkur. Að því loknu verður ein
vígi við Friðrik Ólafsson eins
og áðúr hefur verið skýrt frá.
Verða tefldar tvær skákir.
Kvað Pilnik sér það ánægju að
fá að tefia við hinn unga ís-
lenzka skákmeistara þar eð
hann hefði þégar unnið sér
nafn í heimi skáklistarinnar.
TEFLIR ÚTI Á LANDI
Auk þeirra móta er nefnd
hafa verið er ákveðið að Pilnik
tefli fjöltefli við 10 beztu skák
inennina. Einnig teflir hann
fjöltefli í Hafnarfirði og víðar
úti á iandi. — Að lokum lét
Hermann Pilnik í ljós ánægju
með að vera kominn hingað til
lands og bað fyrir kveðjur til ís
lenzkra skákunnenda.
í
á telpur og drengi.
Grillonefni.
; Verð frá kr. 143,00.
ledo
Fischersundi.
AlþýfS'iblaðinp
Rosamond Marshail:
Á FLÓTTA
66. DAGUR
út að glugganum. Fangelsisgarðurinn og
strætið fyrir framan hann var krökkt af fólki.
Margir báru logandi kyndla. Hverjir voru hér
á ferð? Hvert var erindi þessa mannfjölda?
Eg þrýsti andlitinu út að rimlunum og rýndi
ákaft. Eg sá nú, hvers kyns var: Fremst voru
raðir af börnum. Hundruð! Mörg hundruð!
í skipulögðum röðum. Og þau sungu með.
Það sá ég núna.
Systir aríta! Systir Carita! Systir Carita.
Þau, sem .fremst fóru voru komin fast upp
að fangelsinu. Eg sá þau mæna upp í glugg-
ana, opnum munnum.
Systir Carita, systir Carita!
Varðmenn þustu út úr fangelsinu til þess
að reyna að hafa hemil á manhgrúanum. En
þeir megnuðu ekkert. Mannfjöldinn ýtti þeim
til baka. Hann ruddist fram eins og flóðbylgja.
Hingað og' þangað innan um mannfjöld-
ann sá ég gula hatta. Það var einkenni „Úlf-
anna“, hinna fornu áhangenda Ciacomo
munks!
Systir Carita! Systir Carita! æpti múgurinn
einum rómi.
Það var enginn vafi á því, að fólkið var að
gera uppreisn gegn einveldi sjö manna ráðs-
ins. Vopnaðir menn réðust óskipulega á fylk-
ingarnar, en voru þegar í stað ofurliði bornir.
Nokkrir menn með gula hatta höfðu þegar reist
upp stiga og byrjað að klifra upp fangelsis-
veggina.
Á hallarvegg andspænis mér sá ég mann,
sem ég þegar kannaðist við. Það var Gino, hinn
hugaði foringi „Úlfanna."
Þeir voru komnir til þess að frelsa systur
Caritu.
Eg skundaði til dyra og barði á þær með
krepptum hnefum. Varðmaður! Varðmaður,
kallaði ég eins hátt og ég gat. En mér var ekki
anzað. Skyndilega lægði háreystina úti fyrir.
Eg hljóp yfir að glugganum aftur til þess að
vita hverju það sætti.
Eg sá mann á hvítum hesti ryðja sér braut
gegnum mannfjöldann. Það var svo bjart yfir
mannþyrpingunni sem hádagur væri; kyndl-
arnir voru svo margir og bjartir. Eg þekkti
riddarann þegar. Það var Lorenzo erkihertogi
og enginn annar.
Koma hans hafði komið mannfjöldanum
mjög á óvart. Það átti ekki von á að hann
þyrði að láta sjá sig á þessum slóðum. Sú
ein ályktun varð þó af því dregin, að hann
hefði skipað sér undir merki fjöldans. Hapn,
Lorenzo erkihertogi, í uppreisnarfylkingu
,,Úifanna“! Hver skyldi hafa trúað því?
Honum var ákaft fagnað. Lýðurinn dáðist að
hugrekki hans. Einhver hrópaði: Lifi erkiher-
toginn! Og lýðurinn tók undir: Lifi erkiher-
toginn!
Riddarinn lyfti hattinum og stóð stilliléga
af hvíta hestinurn.
Augnabliki síðar opnuðust dyr fangaklefans.
Erkihertoginn gekk inn og blysberi á hæla
hans. Þú mátt fara, Aldino, sagði hann virðu-
lega og stillilega, eins og hans var vandi.
Hann snéri sér að mér og brosti hinu sér-
kennilega brosi Medisínanna; það minnti mig
á bróður hans, hinn látna fyrrverandi elsk-
huga minn, Giuliano. Bianca. í kvöld ljómar
stjarna þín mjög skært yfir hinni fögru borg
okkar. Hann þagnaði og við hlustuðúm á mann
fjöldann, sem nú var aftur tekinn að syngja
fagnaðar- og sigursöngva. Svo hóf hann máis
á ný. Einu sinni hef ég neitað alþýðu Florens
borgar að gefa henni líf manns nokkurs, sem
hún trúði að væri sér sendur af guðlegum
máttarvöldum. Eg sver við himininn, að það
skal ég ekki láta henda mig í annað sinn. Hún
vill þig írjálsa, jafn innilega og sjö manna
ráðið vill þig feiga. Þrætueplið er bók nokkur,
sem sumir kalla helga bók. Sjö manna ráðið
telur hana hins vegar koma frá hinum vonda.
Láttu mig varðveita hana, Bianca. Eg vil gera
kaup við þig. Öryggi og velferð munaðarleys-
ingjanna þinna skal tryggð, en hin heilaga
ritning á fólksins eigin tungu skal hér eftir
í minni vörzlu.
Hvaða tryggingu hef ég fyrir því, að bókin
verði ekki brennd á báli, Lorenzo erkiher-
togi?
Eg er vinur lista og vísinda; líka heilagra
trúarbragða.
Og þó léztu það viðgangast, að þúsundir ein-
taka af þessari sömu bók voru brennd á báli.
Hann hnyklaði brýrnar. Kæra frú. Stundum
eru jafnvel hendur keisara og konunga bundn-
ar. „Þekking er frelsi“ stendur einhvers stað-
ar. Til eru þeir, sem halda því fram, að of
mikið frelsi geti leitt á villigötur.
Eg hef heyrt þetta sagt á annan hátt, erki-
hertogi: „Þekktu sannleikann, og hann mun
gera yður frjálsan."
Hann horfði fast á mig, stórum, gáfulegum
og vingjarnlegum augum. Bianca, láttu mig
varðveita bókina. í minni vörzlu skal henni
vera óhætt, „þar til tíminn kemur“, eins og
í henni stendur.
Orð hans færðu mér frið, frið, sem ég hafði
aldrei fundið áður. Eg vissi að ég gat treyst
honum.
Eg mun fá þér öll auðæfi þín aftur. Þú getur
varið þeim í þágu munaðarleysingjanna þimia
að eigin vild. Og heilög ritning verður ekki
lengur bitbein fanta og fúlmenna.
Eg hneigði höfuð mitt til samþykkis. Han:i
leiddi mig út að glugganum.
Sjáðu, Bianca, hlustaðu!
Mannfjöldinn rak upp siguróp, þegar við
birtumst hlið við hlið í skærum bjarma kyndl
anna. Lengi vel yfirgnæfðu hyllingarópin fyr-
ir velferð erkihertogans, en smátt og smátt
fór að bera meira á: Lifi systir Caríta! Lifi
systir Caríta!
Sic transit gloria .... mælti erkihertoginn
lágri röddu. Bein mín munu eyðast í moldu.
Sjálfur mun ég öllum gleymast. En minningih
um þig mun að eilífu vara og aldrei yfir hana
fyrnast. Mér segir svo hugur um, að jarð-
neskar leifar þínar verði varðveittar í gullnu
skríni. Skráð í marmarann, .... ekki Bianca,
ekki hin Ijósa Bianca, né heldur hin fagra Bi-
anca, ekki Binanchissima, jafnvel ekki Syst-
ir Carita. Heldur mun þar standa: Ii e i 1 a g a
C a r i t a .
— Endir. —
(Dvalarheimili aidraðraí
sjómanna
i
Minningarspjöld fást hjá: $
Happdrætti D.A.S. Austur b
ctræti 1, síml 7757. )
Yeiðarfæraverzlunjn Verð w
andi, sími 3786. >
Sjómannafélag Reykjavík.)
ur, sími 1915. ^
Jónas Bergmann, Háteig*->
veg 52, sími 4784. )
Tóbaksbúðin Boston, Laugaf
veg 8, sími 3383. >
Bókaverzlunin Fróði, )
Leifsgata 4. )
Verzlunin Laugateigur, ^
Laugateig 24, sími 81666 )
Ólafur Jóbannsson, Soga«)
bietti 15, sími 3096. )
Nesbúðin, Nesveg 39. ^
Guðm. Andrésson gullsm^s
Laugav. 50 sími 3761. S
f HAFNARFIRÐI: ^
Bókaverzlun V. Long, s
limi 9288. >
S
s
j0ra*viðgerðlr.
s
s
s
s
)
Fljót og góð afgreiðsla. S
; GUÐLAUGUR GÍSLASON. S
Laugavegi 65 S
Sími 81218 (heima) r
Minningarspjöld \
Barnaspítalasjóðs HringsinsS
eru afgreidd I Hannyrða- S
verzl. Refill, Aðalstræti ’2S
(áður verzl. Aug. Svend-S
sen), í Verzluninni Victor, S
Laugavegi 33, Holts-Apð-1)
tekl, Langholtsvegi 84, )
Verzl. Álfabrekku við Suð-)
urlandsbraut, og Þorsteina-^
KtiA ClnorroKraiTt A1 •
• ■
S
S
s
s
s
s
búð, Shorrabraut 61.
Smurf brauS
og snlttur.
Nesiispakkar,
ódýrast og bezt. Vin-s
samlegast pantiS m*8 S
fyxirvara. )
MATBARINN 1 5 jff* ?
Lækjargötu I, \
Sími 80340. $
Hás og íbúðir \
af ýmsum stærðum
bænum, úthverfum bæj.$
arins og fyrir utan bæinn)
til sölu. — Höfum eiúnig)
til sölu jarðir, vélbát*, \
faifreiðir og verðbréf. S
Nýja fasteignasajan, ^
Bankastræti 7. s
Sími 1518 S
j*,.,.,.,.,..)
Slysavarnafélags íslanda ^
kaupa flestir. Fást hjá V
slfsavarnadeildura om ■
Reykavík í ^
Bamúföarkort
land allt. f Reykavík í
Hannyrðaverzluninni, {
Bankastræti 0, Verzl. Gunn f
þórunnar Halldórsd. og •
skrifstofu félagsins, Gróf- (
in 1. Afgreidd í síma 4897. j'
— Heitið á slysavarnafélag ■
18. Það bregst ekld. í,