Alþýðublaðið - 29.09.1955, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 29.09.1955, Qupperneq 7
Fimmtudagur 29. sept. 1955 Alþýðublaði ð 7 Yegamál (Frh. af 4. síðu.) herrann: „í lögum um Austur- veg, sem afgreidd voru frá al- ] þingi 15. apríl 1946, eru engin ákvæði um það, hvenær héfja skuli verkið, en hins vegar sagt, að framkvæmdir skuli (miðast við, að verkinu verði lokið á 7 árum ef viss skilyrði, sem þar eru nánar til tekin, séu fyrir hendi.“ Þann 27. október s.m. sendi Gunnar Thoroddsen al- þingismaður svargrein til ráð- herra. Kafli úr þeirri grein hljóðar á þessa leið: ,,Hér hefur ráðherrann óvart sleppt einu orði, sem ekki er þýðingarlaust. Lögin segja nefnilega „á næstu 7 árum“! : Framkvæmdir áttu því að hefjast 1946 og nú ætti að vera lokið 3/7 hlutum verks ins.“ Þetta skeði 1948. Síðan eru liðin 6 ár og væri því þörf fyrir þessa ágætu menn að líta í og lesa upp sín eigin lög, láta þau síðan koma til framkvæmda, eftir því sem þau reynast rétt vera. Á síðasta alþingi í desem- ber 1954 voru samþykkt fjár- lög, svo sem venja er til. I þeirri fjárlagasamþykkt var ekkert fé veitt til austurvegar, er vinna skyldi árið 1955. Þá er þeirri fjárlagasamþykkt var að ljúka, fluttu hinir hæstvirtu heiðurs- menn þeir Sigurður O. Olafs- son, Jörundur Brynjóifsson, Jón Kjartansson, Helgi Jónas- son, Gunnar Thoroddsen og Jó- hann Hafstein þingsályktunar- tiilögu um að hefja fram- kvæmdir Austurvegar. Þó.áhug inn á því augnabliki væri mik- ill, létu þeir ekki hefja fram- kvæmdir um hávetur með eng- an pening í höndunum. Á síð- asta alþingi í febrúar 1955 fluttu hinir sömu sómamenn sömu þingsályktunartillöguna frá desember 1954 um veginn. Hvað svona vinnubrögð þýði í vegamálum vita engir aðrir en alþingsmenn. Ég vil vona að á- hugi þeirra alþingismanna um lagningu austurvegar haldist fram á næsta fjárlagaþing og þeir hafi þá hug til að flytja hana í fjárveitinganefnd. Ég vil benda þessum alþingismönn um og öðrum á, að óþarft er með öllu að láta okkur heyra frá sér annað um austurveg en aðeins eitt: Takið hann inn á fjárlög og veitið til hans þrjár milljónir króna, 3 000 000 krón ur. Þá getum við Árnesingar lagt veginn alla leið af Svína- hraunsvegi yfir á Ölfusveg. Þar með væri hægt að framlcvæma vegalögin frá 1946 og ljúka því verki, sem beðið hefur um ára tugi. Vegstæðið um svonefnda Þrengslaleið hefur verið ákveð ið sem leið liggur af Svína- hraunsvegi norðan Draugahiíð- ar, Bláholts og Lambafells, yfir Þrengslin um Eldborgarhraun, austur til Þóroddsstaða á Ölfus veg. Mest af þessari leið er um 200—252 m. hæð yfir sjó og því oftast mun snjóléttari heldur en á Hellisheiði, sem er 122 m. hærri, eða 374 m. há. 1 blaðar greinum, sem birtar hafa verið á síðast liðnum vetri, er mikill ágreiningur milli manna um, hvort leggja skuli nýjan veg yf ir Hellisheiði, sem nefnd er öðru nafni: bein og skemmsta leið, eða um Þrengslaleið, sem sögð er í blaðagreinunum 7 km. lengri og af sumum miklu meir. Þar sem lýst hefur verið odd- krókum og Z-beygjum á veg- linunni, svo sem frá Lögbergi til Skíðaskála, frá Skíðaskála suður að Vindheimum í Ölfusi. Frá Vindheimum norður til •Hveragerðis svo sem leið ligg- ur til Selfoss. ferðaritvélar, verð kr. 12/5 Garðar Gfslason h.f. Reykjavík Sparnaður (Frh. af 5. síðu.) því, sem gert hafði verið ráð fyrir. Þegar fullri atvinnu er náð, eru því að sjálfsögðu tak- mörk sett, hversu mikið er hægt að lengja vinnutíma til þess að samræmi náist eftir þeirri leið. Þegar hún lokast, opnast vegur verðbólgunnar, og vilji menn ekki breyta fyr- ]irætlunum sínum um fjárfest- 1 inguna og sparnaðinn, þegar sú braut kemur í augsýn, ganga menn út á hana ef til vill blind- andi og halda eftir henni, þang að til fjárfestingin og sparnað- urinn reynist vera orðin jöfn, þegar við er litið. Á hinn bóg- inn kemur svo viðskiptakreppa og vaxandi atvinnuleysi til skjalanna, ef fyrirhugað er að draga úr fjárfestingu, án þess að sparnaður sé minnkaður að sama skapi. Rétt er að vekja athygli á því, að þessi alkunnu og óvin- sælu þjóðfélagsfyrirbæri, verð- bólga og viðskiptakreppa, sigla ekki eingöngu í kjölfar þess, er framleiðendur auka fyrirætl anir sínar um fjárfestingu eða draga úr þeim. Hliðstætt mundi gerast, ef borgararnir vilja breyta ráðstöfun tekna sinna, t. d. auka sparnað sinn eða draga úr honm, án þess að um tilsvar- andi fyrirætlanir sé að ræða í fjárfestingarmálum. Aukinn sparnaður er því ekki alltaf til góðs. Hann getur leitt til við- skiptakreppu, ef ekki er hugur í framleiðendum til aukinnar fjárfestingar. Minnkun sparnað ar er jafneðlileg á tímum lítill- ar bjartsýni og minnkandi fjár- festingar og aukning sparnaðar er bráðnauðsynleg á uppgangs- tímum og samfara vilja til vax- andi fjárfestingar. TVÖ NÖFN Á EINU FYRIRBÆRI Af því, sem að framan hefur verið sagt, sést, að í raun og veru eru fjárfesting og sparnað ur tvö nöfn hin sama: um er að ræða sama fyrirbærið, en það aðeins skoðað frá ólíkri hlið. Það, sem sagt var um bú bónd- ans að framan, á að þessu leyti við í sama mæli um nútíma þjóðfélag. Fjárfesting er sú upp hæð, sem ráðstaíað hefur verið til eignaaukningar í þjóðfélag- inu, en sparnaðurinn táknar eignarféttipn að þessari fjár- munaaukningu. Ger menn sér ljóst, að það kémur fram í sparn aðinum, hverjir eignast eigna- aukninguna í þjóðfélaginu, verður þýðing þess enn augljós- ari, með hverjum hætti sam- ræmi kemst á milli ólíkra fyrir- ætlana um fjárfestingu og sparnað. Flestir munu vera sammála um, að æskilegt sé, að allir vinnufærir menn hafi ávallt at- vinnu, að framleiðslutæld séu nýtt hæfilega, verðlag sé stöð- ugt og að í sífellu sé aukið nokk uð við eignir þjóðarheildarinn- ar, ekki sízt við framleiðslutæki hennar, þannig að skilyrði til batnandi lífskjara séu að því leyti fyrir hendi. Með þjóðum, sem eru enn fátækar að fram- : leiðslutækjum eins og íslend- ] ingar, er nauðsyn þess að auka eign þeirra sérstaklega brýn. Ef við af þessurn sökum leitumst við að auka fjárfestingu ár frá ári, er það, hvort eða að hversu miklu leyti það tekst, ekki í fyrsta lagi komið undir því, að fyrir fram hafi átt sér stað eða samtímis eigi sér stað tilsvar- andi sparnaður, heldur hinu, j hvort veitt eru bankalán til fjár festingarinnar( og er hér eins og áður gengið fram hjá hagnýt ingu erlends lánsfjár, sem auð- vitað mundi auka skilyrði til fjárfestingar án verðbólgu). Af þeirri fjárfestingu, sem í fram- j kvæmd kemst, leiðir svo, eins og áður var lýst, þann raunveru lega sparnað, sem svarar til f jár festingarinnar. Eðlilegt væri nú, að einhver spyrði: En hvaða máli skipta þá fyrirætlanirnar um sparnaðinn, fyrst allt sam- ræmist svona af sjálfu sér, er tíminn líður? Að hvaða sök kemur það, þótt t. d. fyrirætl- anir um sparnað séu miklu i minni en um fjárfestingu? Negraofsóknir Framhald af 4. síðu. samt sem áður fyrir dómstól- ana, voru vitnin beitt slíkum hótunumr — sér í lagi, ef þau voru negrar, — að þau þorðu ekki að gefa neinar upplýsing- ar. En einnig hvað þetta snertir hefur nokkuð áunnizt. Þeir, sem taldir voru sekir, hafa verið handteknir og viðkom- andi dómari hefur að minnsta kosti látið líta svo út, sem hann gerði allt, er í hans valdi stcð, til að fullnægja öllu réttlæti. Hið athyglisverðasta í fyrr- nefndu máli, er ef til vill það, ' að nú létu hvorki hvítir menn né negrar bugast af hótunum. heldur báru vitni gegn hinum hvítu sakborningum. Frændi jhins myrta sendi konu sína til (Norðurríkjanna, svo að henni yrði ekkert mein gert, og 1 enda þótt hún skrifaði honum hvað eftir annað, og bæði | hann að bera ekki vitni í mál- inu, fór hann sínu fram. Hins vegar gerir hann ráð fyrir því að hann verði að flýja til Norð urríkjanna áður en langt um (líður, þar eð honum muni ekki verða vært á býli sínu, þar sem hann hefur búið alla ævi. Vonandi er, að hugrekki við kornenda og píslavætti negra- ! drengsins reynist ekki árang- j urslaust, enda þótt nokkuð hafi | unnizt á að undanförnu, hefur ; talsvert borið á því síðustu árin að sækja vildi aftur í sama horf, — jafnvel þeir, sem ötul- ast höfðu barizt fyrir réttind- um og réttlæti negrunum til handa, voru teknir að þreytast í baráttunni. Suðurríkjamenn voru teknir að undirbúa varn- | arráðstafanir, sögðu menn, og ' því myndi bezt að láta rétt- lætiskröfurnar liggja í þagnar- gildi um hríð til að firra vand- ræðum. Margir, þeirra á meðal Alstair Cooke, hafa haldið því fram, að rétta leiðin væri að reyna að vinna að aukinni menntun meðal negranna, en láta virka baráttu niður falla. Þessir „hægfara umbóta- (menn“ hafa nú hrokkið upp ] við vondan draum vegna harm j leiksins í Mississippi. Vonandi er, að þeir breyti nú um stefnu og hefji á ný harða baráttu fyrir því, að ákvæði stjórnar- skrárinnar verði virt í Suður- ríkjunum eins og New York og Kaliforniu. Þetta mál er ekki einkamál þeirra 1 Mississippi. Það varðar alla þjóðina. Huðleiðingar (Frh. af 5. síðu.) megi koma góðum málum í framkvæmd, þar sem hún er á lista Alþýðuflokksins. Sá flokk ur hefur ekki aðeins sýnt það, að hann er baráttuflokkur al- þýðunnar, heldur og að hann lætur, og hefur jafnan látið, sig sjálfsögð réttindamál okkar kvenna miklu skipta, um leið og hann hefur jafnan veitt kon um tækifær til að njóta hæfi- leika sinna á sviði þjóðmálanna. Nægir að minna á Laufeyju Valdimarsdóttur og fleiri kon- ur úr alþýðustétt, sem undir merkjum Alþýðuflokksins háðu sína þrotlausu baráttu fyrir rétt lætis- og réttindamálum okkar kver.na allt til dauðadags. Og j Kvenfélag Alþýðuflokksins í Kópavogi á einmitt þakkir skilið fvrir það, að það hefur dugnað og atorku til að taka virkan þátt í þessum bæjar- ; stjórnarkosningum; það ætti að 1 vera okkur konum öllum, hvar i í flokki sem við stöndum, hvatn ing-til þess að fylkja liði til bar áttu fvrir sigri þessarar konu, !— sá sigur verður okkur kon- 1 um líka sigur. í Konur í Kópavogi! Fylkið ■ liði fyrir sigri A-listans. Alþýðu ; flokkurinn einn sýndi okkur þá sjálfsögðu tillitssemi á fyrr- j nefndum fundi, að f á konur til jað ræða þar sjónarmið okkar og hugðarmál. Báðar sýndu þær j okkur fram á hvers við meg- i um vænta, ef við erum nógu þroskaðar til að styðja okkar , eigin málstað. Engum hinna flokkanna leizt það ómaksins vert, að fela konum að skýra sín sjónarmið. Þannig hefur það ailtaf verið og mun alltaf jverða, ,að þessir flokkar sýna okkur lítilsvirðingu og málstað ! okkar. Við byggjum kröfur okk jar á frelsi, jafnrétti og þekk- ingu. Þess vegna styðjum við j Alþýðuflokkinn og Kvenfélag ■ Alþýðuflokksins við bæjar- stjórnarkosningarnar, sem i fram eiga að fara á sunnudag- I inn kemur, þann 2. október, og ,komum frú Ólöfu Bjarnadóttur í bæjarstjórn. Það á að vera I okkur konum metnaðarmál og 1 kappsmál, að kona taki þátt í uppbyggingu bæjarfélagsins fyrir okkar hönd. Leggjumst all ar á eitt! Komum okkar full- trúa í bæjarstjórn og látum ekkert verða til að aftra okkur frá því, eða sundra kröftum okkar. ÚTBREIÐIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ! fr********* **«•*'** Mi$ar eru seldir: Skrifstofu Alþýðuflokksins, Afgreiðslu Alþýðublaðsins AlþýðubrauHgeröinni Laugavegi 61 Verzlun Valdimargs Long, Rafnarfirdi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.