Alþýðublaðið - 29.09.1955, Qupperneq 8
Viðtal við Mermann Pilnik stórmeistara
Fimmtudagur 29. sept. 1955
Hefur feflt í 30 ár eg er nú einr
ðf bezlu skákmönnum heims
ARGENTISKI stórmeistarinn Hermann Pilnik kom til
Reykjavíkur í fyrrakvöld. Teflir hann i kvöld fjöltefli í Skáta-
heimilinu en 2. október hefst Haustmót Taflfélags Reykjavík
ur með þátttöku hans og 9 beztu skákmanna íslendinga fyrir
utan Friðrik Olafsson, sem er veikur.
Guðmundur S. Guðmundsson
formaður Taflfélags Reykjavík
ur bauð blaðamönnum í gær að
ræða við Pilnik,
Blaðamenn spurðu Pilník
'hvernig hann skýrði það að
Argentína ætti í dag svo mörg
um skákmeisturum á að skipa.
Hann kvað að auðskýrt:
Síðustu olympíuleikarnir í
skák fyrir stríð, leikarnir
1939 fóru fram í Argentínu.
Voru þar þá saman komnir all
ir beztu skámenn heims. En
meðan mótið stóð sem hæst
braust heimsstyrjöldin út og
fáir áttu afturkvæmt heim.
Allir Þjóðverjar urðu eftir og
fjöldi annarra þekktra skák-
manna, þ. á. m. Svíinn Stahl-
berg sem dvaldist í Argentínu
frá 1938—1948, Pólverjinn
Naidorf, Austurríkismaðurinn
Elise Kases og Þjóðverjinn
r Ludvig Engels. AIls munu
hafa orðið eftir í Argentínu 50
þekktir erlendir skákmenn'og
„ég var einn í hópnum“, seg-
ir Pilnik.
Það er eðlilegt að allir þess
ir skáksnillingar hafi lyft
skáklistinni upp í Argentínu.
Eitt mótið tók við af öðru og
hinir Evrópsku skákmeistarar
sem ekki áttu afturkvæmt til
heimkynna sinna urðu flestir
hverjir atvinnumenn í skák og
þannig fór fyrir Hermann
Pilnik.
TVISVAR SKÁKMEISTARI
ARGENTÍNU
Pilnik komst fljóstlega í
fremstu röð skákmanna í Arg
entínu og árið 1941 varð hann
skákmeistari lansins. 1954
hlaut hann þann titil aftur en
síðan hefur t i aldnast verið
með á meistaramótum Argen-
tínu, enda oftast erlendis á al-
þjóðlegum smákmótum.
VANN SMYSLOV OG
PETROVITS
Pilnik hefur síðan unnið
marga sigra en persónulega tel
ur hann frammistöðu sína hafa
verið einna bezta í Budapest
1952 er hann tók þátt í stór-
meistaramóti með þátttöku 5
beztu skákmanna Rússa. Voru
það þeir Boyvinnik, Smyslov,
Keress, Geller og Petrovirs.
Vann Pilnik bæði Smyslov og
Petrovits og var að vonum á-
nægður með það. Varð Pilnik
7. á mátinu og skaut Petrovits
aftur fyrir sig.
FER í KANDITAKEPPNINA.
Pilnik tók eins og kunnugt er
þátt í svæðakeppninni í Gauta
borg og varð 6.—9. í röðinni.
Tekur hann því þátt í kanditata
keppninni sem fram fer í marz
n.k. en sigurvegari hennar hey
ir einvígi við heimsmeistarann
Botvinnik. Geta má þess, að
Botvinnik hefur óskað eftir því,
j að fá að vera með í kanditamót
| inu en ekki er víst að hann fái
það.
EKKERT FRÉTT AF FJÖL-
SKYLDU SINNI.
Blaðamenn spurðu Pilnik
hvernig honum litist á, að
hverfa aftur til Argentínu eftir
(Frh. á 6. síðu.)
Myndin er af erlendri sjálfsafgreinðsluverzlun. Eins og glögglega sést á myndinni geta við-
skiptavinirnir gengið rakleitt að vörunum og afgreitt sig sjálfir. Það er ekkert borð sera
stíar þeim frá afgreiðslufólki verzlunarinnar. En við útgöngudyrnar er borð þar sem greiðsla
fer fram. Er augljóst hversu hentugra það er fyrir viðskiptavinina að geta sjálfir valið vör-
urnar í stað þess að þurfa að benda afgreiðslumönnunum á þær. ,
Hermann Pilnik
Slaríseml Bridgefélags
Hafnarfjarðar haíin
TÍUNDI aðalfundur Bridge-
félags Hafnarfjarðar var hald-
inn þriðjudaginn 27. september
í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði.
Á fundinum ríkti eining um öll
félagsmál. Starfsemi félagsins
verður með svipuðu sniði og
undanfarið. Spilakvöld verða á
hverjum þriðjudegi kl. 8 e. h.
í Alþýðuhúsinu. Hið fyrsta verð
ur n.k. þriðjudag. Á fundinum
var kosin ný stjórn og skipa
hana Vagn Jóhannsson for-
maður og meðstjórnendur
María Ólafsdóttir, Guðmundur
Atlason, Pétur Auðuns og
Sveinn L. Bergmann.
4 sjáifsafgreiðslu-malvöru*1
verzlanir opnaðar hér í haissf
í Reykjavík, Hafnarfirði, Akureyri
og Selfossi
FJORAR sjálfsafgreinðslu-matvöruverzlanir verða opna'ffi
ar hér á landi síðar í haust, og eru þær á vcgum Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga og þriggja kaupfélaga, á Akureyri, Seí
fossi og Hafnarfirði. Þar sem þetta verða fyrstu, fullkomma
sjálfsafgreiðsluvcrzlanir í landinu og fleiri munu á eftir koma,
þykir vanta gott nýyrði í íslenzkt mál fyrir slíka gerð verzl-
ana. Hefur SIS því ákveðið að efna til samkeppni um slíkt ný-
yrði og veita 5.000 krónur fyrir beztu tillöguna.
Víðkunn dönsk lisfakona heldur
sýningu hér á nokkrum verka sinna
Kirstin Kjær sem kunn er fyrir
andíitsmyndir
DÖNSK LISTAKONA, Kristin Kjær, kom hingað með
Gullfoss um síðastliðna helgi. Ungfrú Kjær er víðkunn fvrir
andlitsmyndir sínar, hefur farið víða um hei mog efnt til sýn-
inga á verkum sínum í mörgum stórborgum. Hún er kona gædd
miklum skaphita að sögn, og gengur undir nafninu „hálfsyst
ir Heklu“ meðal kunningja sinna.
Blaðamenn áttu tal við lista-
konuna að Hótel Borg í gær.
Dvelzt hún hér á vegum prests
hjónanna að Holti undir Eyja-
fjöllum. Er í ráði að hún haldi
sýningu á nokkrum verkum
sínum hér innan skamms. Því
miður er það safn ekki jafn fjöl
breytt og efni Staifda til, því að
mikið af verkum hennar var
skemmt og eyðilagt í vetur leið.
HLUTI SAFNSINS
SKEMMDUR.
Þannig stóð á, að listakonan
dvaldist um hríð norður á Finn
mörk í fyrravetur, og leigði
íbúð sína í Kaupmannahöfn á
meðan. Einhvernveginn komst
geðveikur maður inn í íbúðina,
og eyðilagði verulegan hiuta
myndasafnsins, sem listakonan
átti þar geymt. „Veslings mað-
urinn hlýtur að hafa verið al-
varlega geðbilaður“, segir lista
konan, þegar hún sýnir blaða-
mönnum nokkrar myndir, sem
orðið hafa fyrir barðinu á „list-
hneigð“ gestsins.
LANGDVÖLUM ERLENDIS
Kirstin Kjær hefur dvalizt
langdvölum á Majorka, norður
á Finnmörk og víðsvegar í
Bandaríkjunum. Hún kveðst
yfirleitt forðast frægar lista-
borgir, kærir sig ekkert um að
verða fyrir áhrifum frá Picassó
eða öðrum dáðum snillingum
meira en góðu hófi gegnir, þó
hún meti þó mikils að öðru
leyti. Þess utan sneiðir hún hjá
Spáni, því að hún hefur litlar
mætur á Francó, — en Karl
Ein^rsson Dunganon, sem út-
varpshlustendur hér fengu að
kynnast ekki alls fyrir löngu,
telur hún einhvern göfugasta
og gáfaðasta mann, sem hún
hefur kynnst.
Spilakvöld
SIGRÍÐUR HANNES-
DÓTTIR heldur spilakvöld
í Breiðfirðingabúð (uppi) kl.
8 í kvöld. Allt Alþýðuflokks
fólkk velkomið nieðan hús-
rúm leyfir.
Sjálfsafgreiðsluformið hefur
að vísu verið notað í ýmsum
greinum sérverzlana hér á
landi um nokkuð árabil, og eru
til dæmis flestar bókaverzlan
ir og sumar smávöruverzlanir
byggðar að nokkru leyti á þess
ari skipan. En með mattvöru-
verzlunum þessum verður hin
nýja skipan reynd í fyrsta sinn
í sinni réttu mynd: fólk rnun
geta gengið að öllum vörum
verzlananna og valið sjálft það,
sem því þóknast, en vörunum
verður pakkað inn og þær
greiddar við eitt eða fleiri af
greiðsluborð við útgöngudyr.
: AUSTURSTRÆTI 10.
| Verzlanirnar, sem opnaðar
verða í haust eru í Austur-
stræti 10 í Reykjavík, aðal
j verzlun Kaupfélags Hafnfirð-
inga við Strandgötu, matvöru-
verzlun í aðalbyggingu Kaupfé
lags Árnesinga á Selfossi og ný
verzlun Kaupfélags Eyfirðinga
að Brekkugötu 2 á Akureyri.
ERLENDIR SÉRFRÆÐINGAR
Kaupfélögin og SÍS hafa und
irbúið þessar nýju verzlanir
vandlega og fengið hingað íil
lands færustu sérfræðinga á
svið sjálfsafgreiðsluverzlana í
Danmörku og Svíþjóð, auk þesa
sem forstöðumenn allra hinna
nýju verzlana hafa dvalizt er
lendis og kynnt sér rekstur
slíkra verzlana. 1
Tillögur um nýyrði fyírir
sjálfsafgreiðsluverzlanir ber a-5
senda til Fræðsludeildar SÍS
fvrir 1. nóvember næstkom-
andi.
13. ár fjórðungsþingsins
í STJÓRN Fjórðungsþings
Austfirðinga eru nú þessir
menn:
Gunnlaugur Jónsson, gjald-
keri, Seyðisfirði, og er hann for
seti þlngsins, Bjarni Þórðarson,
bæjarstjóri, Nesi, Kristján
Benediktsson, bóndi, Einholti,
Lúðvík Ingvarsson, sýslumað-
ur, Eskifirði og Þorsteinn Sig-
fússon, bóndi, Sanbrekku. ’í
Yfirstandandi ár er 13. stavfs
ár fjórðungsþingsins.
Gróður ekki minni en venju-
lega á afrétti Gnúpverja
í GÆR átti blaðið tal við
Jóhann Kolbeinsson á Hamars
heiði í Gnúpverjahreppi, cn
hann hefur um langt árabil ver
ið „fjallkóngur“ Gnúpverja.
Kvað Jóhann gróður ekki
vera minni en venjulega og af
réttinn ekki mikið bitinn. Enn
er gróður ekki mikið farinn að
falla. Inn undir jökli var þá lít
ill gróður nema í blautum ver-
um. Mjög þurrt er inni við jök
ul. Eins og Skeiða- og Flóa-
1 menn fundu Gnúpverjar dauða
1 gæsarunga í hrúgum og marga,
sem voru að dragast upp.
8 ÞÚS FJÁR.
Hreppamenn fengu ágætt
' veður allan tímann á fjalli.
Gizkaði Jóhann á, að þeir hafi
komið fram með um 8 þús. fjár
Yfirleitt virðist féð af afréttun
um rýrt þótt ekki sé það tiltak
anlegt.