Alþýðublaðið - 27.10.1955, Side 2
y.
Alþýðubradið
Fimmtudagur 27. okt. 1955
Danskennsla í einkalímusn
fyrir unglinga og börn (fleiri en eitt). Gift fólk og dömu
flokkar, ennfremur skólanemendur.
Látið börnin læra að dansa og hegða sér rétt.
Hefi 35 ára reynslu í danskennslu.
Kenni gömlu dansana, sem eru að verða í tízku á ný.
Ennfremur nýju dansana.
Hefi kynnt mér fljóta kennsluaðferð.
Sigurður Quðmundsson
Laugavegi 11. — Sími 5982.
4
-<»
Orðsending
Samkvæmt leyfi póststjórnarinnar verður fram-
vegis ekið frá Keflavík beint eftir Reykjanesbraut en
hætt að aka krókinn gegnum Ytri-Njarvík.
©.rðsenciif^ jffrá
Siémannaffélagi Rsyk|avfkur
uni uppsögn togarasamninga og umboð t:l
vin nustöð y unar
fer fram í skrifstofu félagsins 26. okt., miðvikudag,
27. okt., fimmtudag — og 28. okt., föstudag, frá
klukkan 9—6 daglega.
Stjórnin.
Hefi lama ull (enska), tvílit ulsterefni. Tek einnig saum.
Hefi frönsk, þýzk og amerísk tízkublöð. Sníði kápur úr
aðkomuefnum,
Amerískir og þýzkir mótelkjólar.
á börn á aldrinum 2ja—3ja ára.
Kjólarnir eru sérstaklega smekklegir.
SSgur'öur Guðmundsson
Laugavegi 11, (sama hæð og Kaldal).
Sími 5982. Sími 5982.
EMGLENDINGAR hafa gaman
af getraunum, og ekki færri en
6000 skrifstofumenn eru starf-
andi við getraunaseðlana, sem
! Ssoma frá áhugamönnum viku-
\ Eega. Meðal. þeirra er frú Ellen
j JPatrice, eem er mjög fundvís
á rétt færða seðla. Hinir finna
alveg rétt færðan seðil aðeins
- einu sinni í mánuði til jafnað-
ar, en hún hvorki meira né
■ minna en einu sinni í viku. Alls
i hefur hún fundið seðla, er gáfu
: rúmlega 10 milljarða íslenzkra
■ kr. í vinning, enda hefur hún
fengið nafnið „konan með gull-
; :fingurna“. Þó er það svo að
j hennar eigin sögn, að hún hef-
! 'ur sjálf ekki unnið svo mikið
% sem inniskó á hlutaveltu.
JMENNTAMALARÁÐUNEYTI
'i Egyptalands hefur bannað ó-
kvæntum karlmönnum að
kenna í skólum, þar sem stúlk-
ur eru einvörðungu til náms.
APACHE og Zuni indíánar í
Kaliforníu dönsuðu regndans
svo kröftuglega í september, að
geysileg úrhellisrigning kom,
er dansinn var að núlgast há-
mark, og danssýningin fór með
öllu út um þúfur, áður en henni
átti að vera lokið. Síðan rigndi
óaflátanlega í þrjá daga.
MAÐUR NOKKUR, sem látinn
var laus úr áströlsku fangelsi,
var tekinn fastur þremur dög-
um seinna, er hann var að gera
tilraun til að brjótast inn í fang
elsið. Verknað þennan skýrði
hann á þann hátt, að hann hafi
ætlað sér að hjálpa nokkrum
fyrrverandi samföngum sínum,
til að strjúka.
SKIPAUTGCRÐ
RIKISINS
Esja
vestur um land í hringferð hinn
1. nóv. Tekið á móti flutningi
til áætlunarhafna vestan Akur-
eyrar í dag og á morgun. Far-
seðlar seldir á mánudag'.
Skaftfellingur
Tekið á móti flutningi til
Vestmannaeyja daglega.
Hafnarfjörður
Barnavagn til sölu.
Upplýsingar á Mánastíg 2.
Fyrirspurnum ekki svarað
i síma.
Brezki ríkissiððurínn
(Frh. af 1. síðu.)
inn og verðbréfin voru sett í
trausta kassa og flutt yfir At-
lantshafið í orustuskipinu
„Revenge“ og síðan komið fyr
ir í mikilli neðanjarðarhvelf-
ingu í Kanada. Fyrsta send-
ingin var send með beitiskip-
inu „Emerald“, sem lagði úr
höfn frá Grannock í Vestur
Skotlandi. Voru kassarnir
sendir með sérstakri lest frá
London og var hafður sterk-
ur hervörður um lestina. Á
leiðinni til Kanada lenti skip-
ið í fárviðri og varð aðskila
við fylgdarskip sín. Sigldi
beitiskipið með 22 hnúta
hraða yfir hafið og var í stöð-
ugri hættu af kafbátum Þjóð
verja. „Emerald“ kom til Mont
real 21. júní og þar var hinn
verðmæti farmur iosaður.
inbinnið
Framhald af 1. síðu,
Iðnþingið felur stjórn Lands-
sambandsins að vinna að því að
flutt verði fræðsluerindi í út-
varpið um nýjungar á sviði iðn
aðarins einu sinni í mánuði,
vetrarmánuðina á ári hverju.
Jafnframt að stjórn Landssam-
bandsins semji við Ríkisútvarp
ið um, að þau fáist greidd þann
ig, að það sé Landssambandinu
kostnaðarlaust.
Úr stjórn Landssambands Iðn
aðarmanna áttu að ganga Guð
mundur Halldórsson og Vigfús
Sigurðsson, og voru þeir báðir
endurkjörnir.
í varastjórn voru kjörnir:
Guðm. H. Guðmundsson, Guð
jón Magnússon, Gunnar Björns
son, Gísli Ólafsson. Þóroddur
Hreinsson.
Samþykkt var að sæma
Kjartan Ólafsson, múrarameist
ara, heiðursmerki iðnaðar-
manna úr silfri.
Indriði Helgason þakkaði
stjórn Landssamband Iðnaðar-
manna, fyrir störfin á liðnu ári,
hvernig hún hefði gætt hags-
muna iðnaðarmanna og hvern-
ig hún hefði lagt málin fyrir
þingið. Þá þakkaði hann forseta
þingsins fyrir góða fundar-
stjórn en þingheimur tók urid
ir með ferföldu húrrahrópi.
Forseti Landssambands iðn-
aðarmanna flutti þingfulltrúum
þakkir fyrir störfin á þinginu
og óskaði þeim góðrar heimferð
ar.
Það var mjög fallegt í Hlíð. Hlíð var fremsti bærinn í
dalnum. Dalurinn hét Skriðudalur. Hann var grösugur.
Það var gaman að eiga þar heima á sumrin, en á veturna
þótti það leiðinlegra, því ekki sá sól langan tíma vetrar.
Hlíðarnar voru háar beggja rnegin dalsins,
Það var altítt, að bæirnir og útihúsin færu 4 kaf í snjó
á hverjum vetri.
En ein var bót með bóli, skíðafæri brást sjaldan. og nóg-
ar voru brekkurnar.
Unglingarnir skemmtu sér líka óspart á skíðum. Þeir fóru
upp á hábrúnir og renndu sér svo niður á jafnsléttu og langt
niður eftir á. Sumir þorðu ekki nema upp í miðjar hlíðar,
það voru þeir, sem ekki kunnu vel á sldðum.
Fullorðna fólkið varð að skemmta sér við daglegu störf-
in. Það var alltaf að vinna, alltaf önnum kafið.
Aðeins á -sjálfum jólunum skemmti það sér Yið spil,
þegar kveld var komið og búin voru fjósaverk og önnur úti-
störf.
Bóndinn í Hlíð hét Gísli. Hann þótti vinnuharður mjóg.
Aldrei gat hann séð neinn iðjulausan. Þegar piltarnir komu
inn á kveldin, urðu þeir undir eins að fara að tæja, kemba,
í DAG er fimmtudagurinn 27.
október 1955.
FLUGFERÐIR
Flugfélag' íslands h.f.
Millilandaflugvélin Sólfaxi
er væntanlegur til Reykjavíkur
kl. 18.15 í kvöld frá Hamborg,
Kaupmannahöfn og Osló.
Innanlandsflug: í dag er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Egilsstaða, Kópaskers,
og Vestmannaeyja. Á morgun er
ráðgert að fljúga til Akureyrar,
Fagurhólsmýrar, Hólmavíkur,
Hofnafjarðar, ísafjarðar, Kirkju
bæjarklausturs og Vestmanna-
eyja.
Loftleiðir h.f.
Saga millilandaflugvél Loft-
leiða er væntanleg kl. 07.00 frá
New York. Flugvélin fer áleið-
is til Gautaborgar, tlafnar og
Hamborgar kl. 08.00.
SKIPAU'ItETTIR
Eimskip.
Brúarfoss kom til Reykjavík-
ur 23.10 frá Hamborg. Dettifoss
fer frá Kotka 27.10 til Húsavík-
ur, Akureyrar og Reykjavíkur.
Fjallfoss fer frá Akureyri í dag
26.10. til Aðalvíkur, ísafjarðar
og Reykjavíkur. Goðafoss fór
frá Reyðarfirði 25.10. Væntan-
legur til Keflavíkur um mið-
nætti í nótt 26.10. Fer þaðan til
Akraness og Reykjavíkur. Gull
foss fer frá Kaupmannahöfn 29.
10. til Leith og Reykjavíkur.
Lagarfoss fer frá Reykjavík kl.
21 í kvöld 26.10 til Keflavíkur.
Reykjafoss fór frá Hull 24.10.
til Reykjavíkur. Selfoss fer frá
Rotterdam 26.10. til Reykjavík-
ur. Tröllafoss fór frá New York
18.10 til Reykjavíkur. Tungu-
foss fór frá Reyðarfirði 14.10
til Napoli, Genova, Barcelona
og Paiamos. Drangajökull fer
frá Antwerpen 29.10 til Reykja-
víkur,
Skipadeild S.Í.S.
Hvassaíell er væntanlegt til
Ábo í dag. Arnarfell er væntan
legt til New York á mánudag.
Jökulfell er í Álaborg. Dísarfell
fór í gær frá Rotterdam til Rvík
ur Litlafell er í olíuflutningum
á Faxaflóa. Helgafell er á Seyð-
isfirði.
HJÓNAEFNI
S.l. laugardag opinberuðu trú
lofun sína ungfrú Guðrún Sjöfn
Janusdóttir verzlunarmær, Sam
túni 32 og Kjartan Kjartansson
vélstjóri, Bragagötu 25.
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Hrafnhildur
Guðjónsdóttir, Gunnarssundi 6,
Hafnarfirði og Bedúel Bedúels-
son, Hverfisgötu 82, Reykjavík.
*
Sigurður Guðmundsson,
, hinn vinsæli og góðkunni dans-
j kennari er um þessar mundir áð
| hefja danskennslu sína, en hann
j hefur stundað danskennslu und
; anfarin 35 ár. Sigurður tekur
bæði börn og fullorðið fólk í
[ einkatírna og kennir bæði gömlu
og nýju dansana.
Ha ilgrímsmessan.
Hátíðamessa fer fram í kvöld
ld. 8.30 í Hallgrímskirkju til
minningar um séra Hallgrím
Pétursson. — Séra Sigurjón Þ„
Árnason predikar, séra Jakob
Jónsson þjónar fyrir altari og
Kristinn Hallsson syngur.
Frá Kvenfél. Ilaílgrímskirkju,
Þar sem ekki verður merkja-
sala á hinum lögskipaða merkja
söludegi kvenfélagsins þann 27.
október (vegna innanfélags
happdrættis) biðjum við þá, sem
hefðu keypt merki okkar að
láta ITallgrímskirkju njóta þess
við guðsþj ónustuna í kvöld kl,
8.30.
iíl
Útvarpið
20.30 Útvarpshljómsveitin; þó:
arinn Guðmundsson stjórna
Ballettmúsík úr „Faust“ ef
ir Gounod.
20.50 Biþlíulestur: Séra Bjar:
Jónsson les og skýrir Postul:
söguna; I. lestur.
21.15 Tónleikar: Sónatína í {
moll fyrir fiðlu og píanó o;
137 nr. 3 eftir Schuþert.
21.30 Útvarpssagan: „Á bökl
um Bolafljóts“; VI.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Sinfónískir tónleikar í
plötum.
22.50 Dagskrárlok.