Alþýðublaðið - 05.11.1955, Blaðsíða 2
s
AlbýgufoSatnS
Laugardagur 5. nóvember 1033
við miðbæin-n. Arkitektar eða verkfræðing
ar sitja fyrir.
Upplýsingar eftir kl. 7 á kvöldin í síma
5773.
S. A.
S. A. X.
Pansleikur
í kvöld kl, 9 í Iðnó.
Aðgöngumiðasala frá kl. 5. — Sími 31S1.
SASS
SA»
Reykjavíkur
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu á morg'un, sunnudag-
6. nóvember klukkan 2 síðdegis.
Umræðuefni:
Friðsamleg nýting kjarnorkunnar.
Frummælendur eru eðlisfræðingarnir Magnús Magnús-
son M. A. og Þorbjörn Sigurbjörnsson, mag. scient_,
framkvæmdastjóri rannsóknarráðs ríkisins.
Til skýringar efninu verða notaðar kvikmyndir og
skuggamyndir.
Að lokinni framsögu er fundarmönnum heimilt að
leggja spurningar fyrir frummælendur varðandi fund-
arefnið.
Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Stjórnin.
Lisidansskóli
\
1
INNRITUN fer fram sem hér segir, en kennsla getúr
ekki hafist fyrr en síðar og verður þá auglýst.
ÞRIÐJUÐAG 8. NÓV. KL. 4 síðdegis fyrir nemend-
ur sem voru síðastliðið ár í A, B og C flokkum, aila,
sem þátt tóku í sýningum á Dimmalimm og ennfremur
alla, sem hafa verið í Listdansskóla Þjóðleikhússins
þrjá vetur eða lengur og ætla að vera í skólanum í vetur.
MIDVIKUDAG 9. NÓV. KL. 4 síðdegis fyrir alla
aora nemendur, sem hafa verið í Listdansskóla Þióð-
leikhússins og ætla að vera í skólanum í vetur.
FIMMTUDAG 10. NÓV. KL. 4 síðdegis fyrir nýja
nemendur, sem óska að taka þátt í kennslu í vetur, og
hafi þeir með sér leikfimiskó.
Börnin hafi með sér stundatöflur sínar, þannig að
þau viti á hvaða tíma þau geta verið í skólanum, þar
sem reynt verður að skipa í flokka um leið og innritun
fer fram
Innritun fer EKKI fram á öðrum tíma en að ofan
greinir og EKKI í SÍMA.
Inngangur um AUSTURDYR upp í æfingasal Þjóð-
leikhússins.
Lágmarksaldur er 7 ÁRA. — Kennslugjald er kr.
100,00 á mánuði og greiðist fyrirfram.
Kennarar verða LÍSA og ERIK. BIDSTED bailet-
meistari. Kennslan stendur væntanlega yfir til apríl-loka.
'Leikhúsið getur ekki skuldbundið sig til að taka
alla þá nemendur, sem kunna að gefa sig fram.
Þ J Ó Ð L E I K H Ú S I Ð .
Laxness
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
i
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
• V
s
s
s
s
(Frh. af 1. Mðu.)
ingju með verðskuldaðan
frama.
Ég tel fara vel á því, að sam-
tök listamanna og alþýðu fagni
þér, er þú stígur á land. En það
gera fleiri —- það gerir þjóðin
öll: verkamaðurinn við vinnu
sína, sjómaðurinn á hafinu,
bóndinn að búi aínu, iðnaðar-
maðurinn við iðju sína — allar
stéttir þjóðarinnar. íslenzka
þjóðin dáir þig, gerir til þín
miklar kröfur, væntir mikils af
þér sem manns á bezta aldri.'1
Að lokum bað hann skáldið
lengi lifa og viðstadda að hrópa
ferfalt húrra fyrir því. Þegar
forsetinn hafði lokið máli sínu
mælti Laxness nokkur orð og
þakkaði fyrir sýndan sóma og
sagðist enn einu sinni vilja fara
með ofurlitla tilvitnun, sem
hann hefði farið með áður, um
skáldið, sem flytur ástmey
sinni ljóð. „Þakka þú mér eigi
fyrir þessi ljóð. Það varst þú,
sem gafst mér þau öll saman.“
Síðan þakkaði hann þjóð sinni,
íslenzkri alþýðu, fyrir tryggð
við sig.
FÆÐINGARBÆR SKÁLDS-
INS FLAGGAÐI EKKI
Þrátt fyrir það að Laxness
hafi með afreki sínu aukið hróð
ur landsins um allar jarðir
meira en nokkur annar íslend-
ingur, var ekki flaggað fyrir
honum í fæðingarbæ hans á
þessum merkisdegi.
SAMTÍNINGUR
DOLLY, fræg hryssa í Englandi,
er dauð. Allt var gert til að
bjarga henni, en það kvað ekki
hafa tekizt. Hryssa þessi varð
fræg fyrir þær sakir, að gerð-
ur var á henni augnauppskurð-
ur. Hann lánaðist, og fyrir því
var henni ekki lógað þá. Eitt
blaðanna í London birti frá-
sögn um þetta, og vakti hún
geysiathygli. Bárust hryssunni
kveðjur og heillaóskir frá börn
um víðs vegar að. Hún var
kerruhestur hjá skransala
nokkrum.
* * *
ÓVENJULEGT SLYS vildi til á
knattspyrnukappleik á Jót-
landi fyrir skemmstu. Einn
leikmanna spyrnti knettinum
út af vellinum og lenti hann í
röðum áhorfenda. Lenti haun
þar í stúlku af svo miklu afli,
að hún hándleggsbrotnaði. En
ekki 'nóg með það: Stúlkan,
sem fyrir slysinu varð, var unn.
usta leikmannsins, sem spyrnti
knettinum út af, en hann heit-
ir Tony Lundgaard. Skal það
þó tekið fram, að slysið olli
ekki heitrofum.
YNGSTA BARNIÐ á heimilinu
var í kyrrð og spekt að risla
sér með gullin sín og heyrðist
tauta fyrir munni sér: Þó að
pabbi vilji og guð vilji og ég
vilji, þá fáum við samt ekki
pönnukökur, ef mamma vill
það ekki.
Útvarpið
BARNASAGAN — 9.
'JénHmi:
Samtalið datt niður milli hjónanna. GMi fór út í
fjarhúsin eins og vant var, þegar hann var búinn a'ö
borða.
Helgi malaði um daginn og kvað hátt viö kvörnina.
Hann sótti hestana um kvöldið, svo gegndi hann fjós-
verkum, og enginn nefndi rokkinn.
En Helgi gat ekki gleymt samtali hjónanna. Hann
vakti langt fram á nótt, og var að hugsa um rokkinn
og Stein á Tóftum.
Það var ljótt að Steinn var ekki nær, hann sem
þurfti svo dæmalaust oft að gera við eitt og annað fyr-
ir Hlíðar-hjónin.
,,Ó, ég vildi að Tóftir væru hérna frammi á
stekknum, þá skyldi ég ekki vera hissa á að hlaupa
þangað, þó skafbylur væri. Nei, ég vildi heldur að ég
væri orðinn stór og eins góður smiður og hann Steinn,
þá skyldi ég gera við ailt, sem brotnar hér, þá skyldi
ég smíða allt sem Gísli þyrfti að láta smíða. Það er
annars ómögulegt að hann Gísli fari að senda mig yf-
ir hálsinn núna, það gæti orðið til þess að ég yrði
úti. Ef ég ætti pabba! Já, ef ég ætti föður, þá væri
ég ekki sendur svona út í byljina.
Ur öHum áttum
12.50 Óskalög sjúklinga (Ingi-
björg Þorbergs).
16.30 Veðurfregnir. Skákþáttur
(Guðmundur Arnlaugsson).
17 Tónleikar (plötur).
18 Útvarpssaga barnanna: „Frá
steinaldarmönnum í Garpa-
gerði“ eftir Loft Guðmunds-
son, III (höfundur les).
18.30 Tómstundaþáttur barna
og unglinga (Jón Pálsson).
18.55 Tónleikar (þlötur).
20.30 Einsöngur: Tveir danskir
söngvarar, Ove Barfod og
Börge Lövenfalk, syngja.
20.50 Leikrit: „Frakkinn", göm-
ul saga eftir Nikolaj Gogol;
l Max- Gundermann bjó til út-
varþsflutnings. Leikstjórif ojg:
- þýðandi: Lárus-Þálssonv ■ •
22.10 Danslög (plötur).
í DAG er laugardagurinn 5.
nóvember 1955.
FLXJGFERÐIR
Loftleiðir.
Saga, millilandaflugvél Loft-
leiða, var væntanleg til Reykja-
víkur kl. 7 í morgun frá New
York. Flugvélin fer áleiðis til
Bergen, Stavanger og Luxem-
burgar kl. 8. Einnig er væntan-
leg til Reykjavíkur Edda kl.
18.30 í dag frá Hamborg, Kaup-
mannahöfn og Osló. Flugvélin
fer áleiðis til New York kl. 20.
Flugrfélag íslands.
Millilandaflug: Millilandaflug
vélin Sólfaxi fór til Glasgow og
Kaupmannabafnar í morgun.
Flugvélin er væntanleg aftur til
Reykjavíkur kl. 19.30 á morgun
Innanlandsflug: í dag er ráðgert
að fljúga til Akureyrar, Bíldu-
dals, Biönduóss, Egilsstaða, ísa-
fjarðar, Patreksfjarðar, Sauðár-
króks, Vestmannaeyja og Þórs-
hafnar. Á morgun er ráðgert að
fljúga til Akureyrar og Vest-
mannaeyja.
SKIPAFRÉTTIR
Ríkisskip.
Hekla fer frá Reykjavík á
morgun austur um land í hring-
ferð. Esja verður væntanlega á
Akureyri í dag á austurleið.
Herðubreið er í Reykjavík.
Skjaldbreið er á Breiðafirði.
Þyrill var í Keflavík í gær-
kveldi. Skaftfellingur fór frá
Reykjavík síðdegis í gær til
Vestmannaeyja.
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Seyðisfirði í
gærmorgun til Norðfjarðar, Eski
fjarðar, Reyðarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar. Dettifoss fór frá
Akureyri 3/11, kom til Reykja-
víkur í gær. Fjallfoss fór frá
Reykjavík 2/11 til Rotterdam,
Ilamborgar, Antwerpen, Hull og
Reykjavíkur. Goðafoss fór frá
ísafirði i gærkveldi til Siglu-
fjarðar, - Súgandafjarðar, Vest-
mannaeyja, Keflavikur, Akra-
ness og Reykjavíkur. Gullfoss
kom til Reykjavíkur í gærmorg
un frá Leith. Lagarfoss kom til
Antwerpen í gær, fer þaðan til
Rotterdam og Reykjavíkur.
Reykjafoss fór frá Reykjavík í
gærkveldi til Hamborgar og það
an til Reykjavíkur. Selfoss fór
frá Leith 31/10 til Reykjavíkur.
Tröllafoss kom til Reykjavíkur
29/10 frá New York. Tungufoss
fór frá Genúa 3/11 til Barce-
lona og Palamos. Drangajökull
kom til Reykjavíkur í gærmorg
un frá Antwerpen.
MESSUR A MOKGUN
Dómkirkjan: Fermingarguðs-
þjónusta Háteigssóknar kl. 11.
Séra Jón Þorvarðsson. Síðdeg-
ismessa kl. 5. Séra Jón Auðuns.
Hallgrímsprestakall: MesSa
kl. 11 f. h. Séra Stepha.n Neill
biskup prédikar. Séra Sigurjón
Þ. Árnason þjónar fyrir altari,
Messa kl. 2 e. h. Séra Jakoto
Jónsson.
Háteigssókn: Ferming kl. 11
f. h. í Dómkirkjuni. Séra Jón
Þorvarðsson.
Bústaðaprestakall: Messa í
Háagerðisskóla kl. 2. Séra Gunn
ar Árnason.
Laugarneskirkja: Messa kl. 11
f. h. (ath. breyttan messutíma).
Séra Garðar Svavarsson.
Elliheimilið: Guðsþjónusta kl.
10 f. h. Séra Jón Auðuns dóm-
prófastur.
Fríkirkjan: Messa ld. 5. Séra
Þorsteinn Björnsson.
Hafnarfjarðarkirkja: Messa
kl. 2. Séra Garðar Þorsteinsson,
FUNDIR
Verkakvennafélagið Fram-
sókn heldur fund á mánudags-
kvöldið kl. 9 í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu. Eggert Þorsteins-
son alþm. flytur ræðu um launa
mál kvenna í Bandaríkjunum.
Birger Oldsson
frá Svíþjóð talar í. Fríkirkj-
unni í kvöld og annað kvöld kl.
8.30. Fíladelfíukórinn sýngur
und ristjðrn Áfna Arinbjarnár-
sonar.
(Frh. á 7. síðu.)