Alþýðublaðið - 18.11.1955, Blaðsíða 1
Fundur utanríkis-
ráðhcrranna í Genf
er grein á 4. síðu.
Síðari grcin E.G.Þ.
(im verkalýðsmál í
Bandaríkjunufn
er á 5. síðu:
r
$
S
s
v.
s
s
s
s
s
s
s
XXXVI. árgangur
Föstudagur 18. nóv. 1955.
245. tbJ.
Aðalfundur LÍO hafinn.
r'
Uiveasmenn bera fram krö
sma:
AÐALFUNDUR Landssambands ísl. útvegsmanna hófst í
Tjarnarcafé hér í Reykjavík kl. 14 í gærdag. Fundurinn er
sóttur af yfir 70 fulltrúum útvegsmannafélaganna víðs vegar
um land. Sem gestur á fundinum mætti forsætis- og atvinnu-
málaráðherra, Ólafur Thors, og ávarpaði hann þinglfulítrúa.
FORSÆTISRÁÐ-
HERRA MISNOTAR
ÚTVARPIÐ
FAU tíðindi gerðust í Iol<
fréttatíma útvarpsins í gær-
kveldi, að tekið var að lesa
útdrátt úr áróðursræðu Ólafs
Thors, er hann hafði flutt á
aðalfundi LÍÚ. Var ræða
þessi frá upphafi til enda
beinn áróður fyrir stefnu rík
isstjórnarinnar og hatramm-
ar ádeilur á stjórnarandstöð
una. Hefui- ræðan því fremur
átt heima í þingsölum alþing
is en fréttatíma útvarpsins
og verður að áteija harðlega
þessa freklegu misnotkun
ráðherrans á útvarpinu.
i Formaður samtakanna, Sverr
| ir Júlíusson, setti fundinn. í
upphafi minntist hann útvegs-
manna og sjómanna, sem látizt
hafa á árinu. Risu þingfulltrú-
ar úr sætum í virðingarskyni
við hina látnu. I setningarræðu
sinni rakti formaður 'afkomu
útvegsins á síðastliðnu ári. Vék
hann að aflabrögðum o'g sölu
sjávarafurða og skiptum íslend
inga við aðrar þjóðir og sam-
keppni um markaðina.
ÓHEILLAÞRÓUN
í EFNAIIAGSMÁLUM
Þá minntist formaður á hina
gífurlegu samkeppni, sem nú
er um vinnuafl landsmanna og
hina óheillavænlegu þróun,
sem nú virðist vera að ná tök-
um á efnahagsmálum lands-
manna. Benti hann á hinn stöð
ugt hækkandi framleiðslukostn
(Frh. a 3. síðu.)
Forseti íslands og frú hans buðu í gær Nóbelsverðlaunaskáldinu Halldóri Kiljan Laxness og
frú hans til hádegisverðar að Bessastöðum. í upphafi samkvæmisins ávarpaði forseti Hall-
dór Kiljan Laxness nokkrum orðum, en skáldið flutti síðan þakkarorð. Meðal gesta voru
menntamálaráðherra Bjarni Benediktsson, sendiherra Svíþjóðar, hr. von Euler, og nokkrír
fulltrúar rithöfunda og listamanna.
Frumv. Alþýðuflokksins um sömu
laun karla og kvenna til umræðu
Réttlætismál að frv. nái fram að ganga
TVEIR AF ÞINGMÖNNUM Alþýðuflokksins, Hannibal
Valdimarsson og Eggert G. Þorsteinsson, hafa flutt frumvarp á
Alþingi, um að konum verði tryggt sama kaup og körlum fyrir
sama starf. Kom frumvarpið til 1. umræðu í neðri deild í gær
og flutti Hannibal Valdimarsson framsöguræðu fyrir málinu.
Rakti framsögumaður ýtar- ^___________________
lega þá þróun, sem átt hefði
sér stað í mannréttindabaráttu
Klakksvíkingar I
NOKKUR fiskiskip frá j
Klakksvík komu í gær til;
Þórshafnar. Var sendinefnd |
gerð út á fund ríkisumboðs-1
mannsins og krafa borin;
fram um það að Hrólfur |
kraki verði á brott frá I
Klakksvík hið skjótasta. ;
kvenna, og sagði m. a. að þeir,
sem á sínum tíma hefðu staðið
á móti þeim málum, vildu nú
sem minnst láta á því bera og
margir óskuðu sjálfsagt eftir
því að nöfn þeirra yrðu ekki
nefnd í sambandi við það mál.
Þannig myndi það og verða
í framtíðinni, því að í hugum
almennings væri launajafnrétt
ið jafn sjálfsagt og það, sem
þegar hefði áunnizt.
TILGANGUR
FRUMVARPSINS
Aðaltilgangur frumvarpsins
er að við öll störf og sýslanir á
vegum ríkis eða bæjarfélaga
og annarra vinnuveitenda skuli
konum greidd sömu laun og
. körlum fyrir sömu störf og
skulu öll sérákvæði í samning
um stéttarfélaga um lægri
ka upgj aldsákvæði kvenna falla
úr gildi við gildistöku laganna.
Frumvarpinu var að lokinni
framsögu vísað til 2. umræðu
og heilbrigðis- og félagsmála-
nefndar með 22 samhljóða at-
kvæðum.
Skorfur á ofnum er þegar orðinn tii-
(verzi unum
ns
Góifdúkar uppseldir sums staðar, en eitthvað til af Ieyfum
fyrir þeim, svo að ekki á að verða algjör skortur.
MENN hafa komið að máli
við blaðið að undanförnu og
tjáð því að skortur á bygg-
ingarefni væri farinn að gera
vart við sig. Hringdi blaðið
því í gær til byggingavöru-
verzlana hér í bænum og
spurðist fyrir um ástandið í
þessum málum.
SKORTUR Á OFNUM
Fékk blaðið þær upplýsing-
ar, að skortur væri einkum
fyrr en eftir nýár. Hefur blað
ið frétt, að búið sé að semja
um a. m. k. 300 tonn af ofn-
um frá Austur-Þýzkalandi,
en afhending mun dragast
svo sem fyrr segir fram yfir
nýár. Hingað til hafa ofnar
verið keyptir frá Frakklandi,
Belgíu og Vestur-Þýzka-
landi, en engin leyfi munu
hafa verið gefin út til inn-
flutnings á þcim þaðan að
undanförnu.
orðinn á ofnum og lítið væri EKKI SKORTUR A RORUM
orðið um gólfdúka, a. m. k. í
sumum verzlunum. Ofnar
mega nú heita þrotnir og er
þess varla að vænta, að þeir
komi í verzlanir hér afiur
Ekki mun vera hætta á að
skortur verði á rörum eða
steypust.yrktarjárni, enda er
það hvort tveggja flutt inn
frá Rússlandi.
Það íóksf með erfiðismunum að bjarga
næsta húsi. Neistaflugið barst út á Oddeyri.
MESTI BRUNI, sem orðið hefur á Akureyri síðan réít eftir
aldamót, varð í fyrrinótt, er húsið Aðalstræti 12, sem áður var
Hótel Akureyri, brann til kaldra kola ofan af um 19 manns,
sem bjuggu þar. Hús þetta var tveggja hæða timburhús á kjall-
ara og var það með portbyggðu risi. Var slökkviliðið kallað
þangað rétt fyrir kl. 1 um nóttina.
_________________________+ Eldurinn mun hafa komið
upp í suðvesturenda hússins og
breiddist örskjótt út. Var
neistaflug svo mikið af eldin-
um, að næsta hús fyrir norðan,
sem kallað er „Berlín“, var í
stórri hættu og hefði slökkvi-
liðinu vafalaust reynzt ókleift
að verja það, ef ekki hefði kom
ið til hinn ágæti nýi slÖkkvi-
bíll, sem það hefur nýlega feng
ið. Neistaflugið var slíkt, að
það barst allt norður á Oddeyri
og um tíma kviknaði svolítið í
efnagerðinni 3ána, sem stendur
a. m. k. 100 metra í burtu.
Hvasst var á suðvestan og
magnaði það mjög eldinn, í
gömlu og skraufþurru húsinu
auk þess sem veðrið bar neist-
ana þessa löngu leið, sem áður
getur.
9 MANNA FJÖLSKYLDA
í húsinu bjuggu alls um 19
manns. Á neðri hæð í norður-
enda bjó Þorkell Ottesen þrent
ari með konu og 7 börnum, en
annars staðar í húsinu bjuggu
um 10 manns, flest einhleypt
fólk. Bjargaðist ekkert af
þeirra eignum, en eitthvað náð
ist af eignum Ottesens. Sem
(Frh. á 2. síðu.)
Yfirleitt mun vera nokkurt
kapphlaup um bátagjaldeyris
vörur og fékk blaðið þær upp
lýsingar hjá einni bygginga-
vöruverzlun, J. Þorláksson &
Norðmann, að þrátt fyrir
hækkaðan bátagjaldeyri
mundu vörur þeirra ekki
hækka í verði.
Um gólfdúka er það að
segja, að samkvæmt upplýs-
ingum, sem blaðið hefur feng
ið, mun nokkuð vera a£ gólf-
dúka-leyfum í umferð, svo að
ekld á að þurfa að koma til
algjörs skorts á þeirri vöru í
bili. Þó mun vera fremur lít-
ið um dúka eins og er.