Alþýðublaðið - 02.12.1955, Blaðsíða 3
Föstudagiir 2. desember 11)55.
3
AlþýðubEaðiS
ilUlilli
ANNES A IIORNINU
VETTVANGUR DAGSINS
Jólin og jólamyndirnar í búðagluggunum — Meiri
fiölbreytni — Innheimta útsvara og skatta — O-
trúlegt dæmi um framkomu fyrirtækis.
INGIMUNDUR SKRIFAR: —
„Jólin fara í hönd. Fastan er
byrjuð, og dagurinn nálgast, er
oss berst boðskapur um, að oss
sé boðin hjálp í nauðum vorum
og frið megi finna hjá honum,
sem kom á hina fyrstu jólanótt.
í SAMBANDI VIÐ jólin datt
mér í hug að skrifa þér og minn
ast á útstillingar kaupmanna á
jólunum. Margir kaupmenn
setja í glugga sína myndir af
jólasveinum, sem koma með
fulla poka sína af girnilegum
gjöfum. Oít eru þessar myndir
smekklegar og skemmtilegar. En
nú vildi ég biðja þig að koma
þeirri tillögu og hvatningu á
framfaeri, að kaupmennirnir
stilltu nú einhverju út, sem minn
ir enn betur á hið eiginlega til-
efni jólahaldsins og gæti orðið
okkur vegfarendum hvatning
um að leggja okkur það á hjarta,
sem hátíðin á að snúast um. Það
mætti t.d. með litlum tilkostn-
aði gera myndir eða líkan af
„hirðunum á Betlehemsvöllum“,
„barninu í jötunni“, Jesú og
börnunum“, syngjandi börnum í
kirkju eða einhverju slíku.
ÞÁ . KÆMI SANNARI jóla- '
blær á búðirnar — og það eru
ekki sízt þær, sem setja hinn sér
staka hátíðablæ á bæinn allan
þessa daga. Þetta yrði líka *
■skemmtileg tilbreyting frá hin-
um venjulegu jólasveinum, sem
hafa í rauninni svo lítinn boð-
skap að flytja. Ég er viss um, að
foreldrar yrðu þakklátir fyrir
að börnin sæju í gluggunum eitt-
; hvað meira en skeggjaða karla.
Vilja kauþmenn athuga þetta?“
G. S. SKRIFAR: „Þegar ég
las pistil þinn síðastliðinn laug-
ardag, um tillögu Gylfa Þ. Gísla
sonar á þingi, um innheimtu op-
inberra gjalda, gat ég ekki stillt
mig um að gera það, sem mig
hefur lengi langað til, að skrifa
þér nokkrar línur um þetta stór-
mál hinna vinnandi stétta.
ÞÚ BENDIR réttilega á, að á
Norðurlöndum er farið að hafa
þann hátt á, að draga af greidd-
um vinnulaunum ákveðna pró-
scnttölu allt árið til greiðslu op-
inberra gjalda. Þessi hundraðs-
hluti er ákveðinn af nokkurs
konar niðurjöfnunarnefnd, ef nú
þessi frádregni hundraðshluti
revnist við ársuppgjör hafa ver-
ið of hátt áætlaður er viðkom-
andi endurgreitt eða upphæðin
látin renna til greiðslu gjalda
næsta árs. Þetta fyrirkomulag
held ég að flestir séu sammála
um, að sé stórum heppilegra en
sú aðferð, sem nú er viðhöfð,
sem er stórgölluð á margan hátt.
ÉG IIELD, að aðstæður séu
ekki svo ólíkar hér og t.d. í Sví-
þjóð, að hægt sé að bera slíku
við, til þess að drepa þetta rétt-
lætismál í fæðingunni og ég vil
levfa mér að segja það alveg
ákveðið, að það sem hægt er að
framkvæma á hinum Norður-
löndunum, er líka hægt að gera
hér.
wmiMZznnÉzni
U VíÐ ABNAKHÓL
ÉG VIL NEFNA nokkur dæmi
um það, sem ég tel galla á nú-
verandi innheimtukerfi. Ef mað
ur hefur fulla vinnu eitt árið og
sæmilegar tekjur, við segjum t.
d. 50 þús., næsta ár er kannski
lítið um atvinnu og maðurinn
hefur ef til vill ekki vinnu nema
hálft árið, verður hann að greiða
af þeim tekjum, sem aðeins
hrökkva fyrir brýnustu lífsnauð
synjum, skatta af þeim 50 Þús.
sem tekjur hans námu árið áður.
Ef nú staðgreiðslufyrirkomulag-
ið hefði verið, þá hefði hann
greitt hvort árið, segjum 20% af
tekjum sínum í gjöld, en nú
verður hann að greiða af sínum
hálfu tekjum síðara árið 40%.
Sama gildir, þegar um veikindi
er að að ræða. Sjálfur hefi ég
orðið fyrir því áð vera sjúkur
meira en hálft ár og loks þegar
ég gat farið að starfa aftur, fóru
svo að segja öll laun mín það
sem eftir var ársins til þess að
greiða skatta næsta árs á und-
an. Allir hljóta að sjá, hvað þetta
fyrirkomulag er í þessu tilfelli
óheppilegt.
ÞÁ ER ÖNNUR HLIÐ, sem
ekki er síður óheppileg, hinn
gengdarlausi frádráttur á laun-
um síðari hluta árs og fram yfir
nýár. Hjá einu stærsta fyrirtæki
hér í bæ hefur undanfarna þrjá
mánuði verið dregið svo gengd
arlaust af launum starfsmanna,
svo að segja í hverri viku, að
ekki hefur verið hægt að telja
greidd vinnulaun í krónum, að-
eins í aurum, þegar bornar hafa
verið fram kvartanir yfir slík-
um aðförum, hefur svarið verið
það, að skattayfirvöldin hefðu
lagt svo fyrir og ekki tjái að
deila við þann dómara.
EN ÞRÁTT FYRIR alla þessa
aðgangshörku skáttayfirvald-
anna gerist það, að í því góða
blaði Lögbirting, kemur heljar
mikil auglýsing um, að þetta
ágæta fyrirtæki verði boðið upp
innan ákveðins tíma, vegna van-
greiddra skatta starfsfólks síns.
Venjulega eru þrjár slíkar aug-
lýsingar birtar áður en til upp-
boðs kemur, nema skuldin hafi
verið greidd á tímabilinu. Enn
er dregið af launum af fullum
krafti, aðeins þessi eina auglýs-
ing er birt, skuldin hlýtur að
vera greidd. En nú vill svo til,
að einn starfsmaður þarf, vegna
sjúkrahússlegu konu sinnar að
fá hinn lögboðna fæðingarstyrk
hjá Tryggingarstofnun ríkisins,
en slíkt er aðeins hægt gegn því,
að sýna kvittun frá skattstofunni 1
um að ákveðinn hluti skatta sé
greiddur. En þegar þessi starfs-
maður ætlaði að fá þetta ágæta
plagg, var það ekki hægt að svo
stöddu, af þeirri einföldu ástæðu
að umrætt fyrirtæki var ekki
búið að borga grænan eyri af
opinberum gjöldum starfsfólks
ís.
ÞETTA SÝNIR, svo að ekki
verður um villst, að fyrirtæki
víla ekki fyrir sér, að taka síð-
ustu krónuna af launum starfs-
fólks í þeim tilgangi einum að
nota féð í eigin þágu og virðist
meira að segja hafa til þess sam
þykki skattayfirvaldanna, sam-
anber auglýsinguna í Lögbirt-
ingi, sem hætti að birtast, þrátt
fyrir að ekkert hefði verið greitt.
AÐ SÍÐUSTU vil ég leyfa mér
í nafni okkar, hinna vinnandi
stétta, að skora á löggjafann, að
taka þetta mál til gaumgæfilegr
ar athugunar, og taka, ef nokkur
möguleiki er á, frændur okkar
á hinum Norðurlöndunum til
fyrirmyndar, öllum til hags-
bóta.“
Hannes á horninu.
íeppa
Verð kr. 32.00
Toledo
Fischersundi.
lést
■
Old Spicei
■
vörur I
m
■
Rakspritt ■
Sápa í túpum og ■
krukkum ■
Talkúm Z
. m
Svitacrem -
■
■
Einkaumboð :
m
Péfur Pétursson ;
Hafnarstræti 7 ■
Laugavegi 38. :
B
19.
nsson
»ssa!í
n
(fatdqruisalá
KROSSGATA NR. 939.
13
H
IG
19
15
I%
n
'n
Lárétt: 1 hljóðfæri, 5 hiti, 8
röð, 9 eldsneyti, 10 birta, 13
, greinir, 15 skjóla, 16 bakhluti,
. 18 stygg.
I Lóðrétt: 1 svíðingur, 2 inn-
yfli, 3 ætt, 4 vesæl, 6 hanga, 7
leikfangið, 11 hitunartæki, 12
mannsnafn, 14 andlitshluti, 17
lagarmál.
Lausn á krossgötu nr. 938.
Lárétt: 1 lagleg, 5 essi, 8 gort,
9 an, 10 rýrt, 13 ól, 15 sárt, 16
traf, 18 tugga.
Lóðrétt: 1 lágfóta, 2 Amor,
j3 ger, 4 esa, 6 strá, 7 innti, 11
ýsa, 12 treg, 14 ort, 17 fg.
Maðurinn minn,
BENEBIKT JÓHANNESSON,
á Elliheimilinu Grund að morgni 1. desember.
Ingunn Björnsdóttir.
Mest umtalaða bók ársins
Bonjour trhiesm
eftir
FRANCÖISE SAGAN,
18 ára franska stúlku, kemur í
bókaverzlanir næstu daga.
Þessi sérstæða franska skáldsaga
hlaut Grand Prix des Critiques
bókmenntaverðlaunin.
Bókin hefur nú verið gefin út
í flestum Evrópulöndum og í
Bandaríkjunum og selzt í meira
en milljón eintökum.
Takið eftir útgáfudegi
þessarar bókar.
Hún verður senn á
allra vörum.
BÓKAFORLAG OÐÐS
BJÖRNSSONAR
Sjómannafélag
Reykjavíkur.
F u n d u r
verður haldinn í Sjómannafélagi Reykjavíkur sunnu-
daginn 4. des. í Alþýðuhúsinu við Hverfisg. kl. 1,30 e.h.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Sagt frá samningum.
3. Önnur mál.
Félagsmenn sýni skírteini við innganginn.
Stjórnm.
Hafnarfjörður .
Hafnarfjöröur
30 ára afmæ
verkakvennafélagsins Framtíðin í Hafnarfirði verður
haldin í Alþýðuhúsinu laugardaginn 3. des. n.k. kl. 8
stundvíslega.
|
Dagskrá: Sameiginleg kaffidrykkja
Ræða: Ólafur Þ. Kristjánsson skólastjóri
Leiksystur skemmta
Hjálmar Gíslason, gamanvísur
Fjöldasöngur — Dans.
Ath. Félagskonur geta pantað aðgöngumiða fyrir sig og ^
gesti sína í síma 9594 og 9364.
Nefndin.