Alþýðublaðið - 02.12.1955, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 02.12.1955, Blaðsíða 8
pTeitir laxi og gcngusíJungi fækka alls '-rfaðar, þar sem nefaveiði heíur á mætt, LANDSSAMBAND íslenzkra stangveiðimanna hélt ný- Jega aðalfund sinn. Eru nú í sambandinu 16 stangveiðiféiög % íða á landinu og er sambandið orðið nviög fjölmennt. A fundi sambandsins voru gerðar ýmsar samþykktir og áskoranir. — )íarmaði fundurinn mjög hve ófullnægjandi lagafrumvarpið um lax- og silungs-veiði væri og benti m. a. á, að laxi og göngu- silungi fækkaði alls staðar þar, sem netaveiði væri viðhöfð. )>á var og átalin meðferð aiþingis 1943 á lagafrumvarpi »un útrýiningu villiminka. Fara hér á efiir nokkur atriði úr fundargerð aðaifund’ár sam bandsins: KLAKMÁLIÐ Stangveiðifélag Eeykjavík- ur hefur að undanförnu barizt fyrir því að ríki, Eeykjavíkur- bær og 'SVFR byggðu og rækju f-ameiginlega klak- og eldistöð í sambandi við þá stöð, er Raf- veita Revkjavíkurbæjar nú rek Ur við Elliðaárnar. Máiið hefur ekki náð fram að ganga á þeim grundvelli, sem um var rætt í upphafi. Landssambandið hefur bví fyrir nokkru ritað veiðimála- .stjóra bréf. þar sem farið er þess á leit, að ríkissjóður leggi fram kr. 100 000 á móti jafn- hárri upphæð frá stangveiði- félögum til eflingar klak- og eldistöð Rafveitunnar. Veiðimálastjóri tók vel í mál- ið og. mun hafa lagt til, að þessi fjárveiting kæmi í fjárlög, sem þó ekki varð að þessu sinni. En veiðimálastjóri mun hafa lagt málið fyrir fjárveitinganefnd alþingis. Svohljóðandi tillaga var sam þykkt á fundinum: „Aðalfundur LÍS haldinn að Hótel Borg sunnudaginn 23. október felur stjórn sambands ins að koma á framfæri áskor- un til fjárveitinganefndar al- þingis, sem nú situr að störfum, að veita fé á næsta fjárhagsári til styrktar klak- og eldistöðv- ar við Elliðaárnar eftir þeim tillögum, sem veiðimálastjóri hefur farið fram á.£i • LÖG UM LAX- OG SILUNGSVEIÐl Þá var rætt um frumvarp það um lax- og silungsveiði, er nú liggur fyrir alþingi, og lágu fyrir fundinum drög að breyt- ingurn ásamt greinargerð í sam bandi við frumvarpið. Var sam þvkkt að kjósa 5 manna nefnd til þess að yfirfara tillögurnar nánar, og síðan senda þær á- samt greinargerð alþingi til at- hugunar. Auk þess var samþykkt svo- hljóðandi álit: „Aðalfundur Landssambands ísl. stangveiðimanna, haldinn að Hótel Borg sunnudaginn 23. október 1955, harmar mjög hve frumvarp til lax- og silungs- veiðilaga, lagt fyrir alþingi í ársbyrjun, er miðað við stund- arhag fáeinna netamanna á framtíðarkostnað allra annarra veiðiréttareigenda, sem þó eru mörgum sinnum fleiri. Tak- markanir frumvarpsins á neta- veiði vega ekki einu sinni móti bættum veiðibúnaði. Er þó sann arlega meira átaks þörf, ef koma á í veg fyrir að netin eyði hlunnindum, því undan- farna áratugi hefur: I 1. Laxi og göngusilungi farið fækkandi alls staðar þar sem netaveiði hefur mætt á stofnin- um. 2. Meðalþyngd laxa farið verulega minnkandi. 3. Síðgengni laxa stöðugt að aukast á netasvæðunum. 4. Fiskiræktar hvergi notið við þar sem netaveiði er tíðkuð. Fundurinn lýsir vanþóknun sinni á þeirri afstöðu til stang- veiðimanna, sem fram kemur í frumvarpinu. Er leyfður stang- veiðitími stórlega styttur dag hvern og auk þess um hálfan mánuð að sumri. Þá er stang- veiði bönnuð á vissum svæð- um og hótað ótiltekinni fækk- un stanga í veiðivötnum. Getur þetta skert verulega tekjur veiðiréttareigenda með lækk- aðri leigu veiðivatna, en er auk þess ósanngjarnt gagnvart FinnlanévinaléSagiÍ minnisf þjcðháfíðardags Finnlands Heldur kvöldfagnað í Tjarnarkaffi í. næstu viku fyrir féiagsmenn og gesti. FINNLANDSVINAFÉLAGÍÐ SUOMÍ minnist þjóðhátíðar- dags Finna með kvöldfagnaði í Tjarnarkaffi 6. desembcr kl. Frændur ckkar, Suðureyingar, horða harðfisk og sláfisr Svipar til okkar um atvinnuhætti og trúa á huldufóík eins og við. SUÐUREYINGAR eru frændþjóð okkar íslendinga, þó að þcir hafi gleymzt hér á landi um langt skeið. Fjöldi manns kom hingað frá Suðureyjum á landnámsöld, ýmist ánauðugir eða af fúsum vilja, eins og frá segir í fornsögum, og eru íslendingar því að nokkru frá Suðureyingum komnir. í dag eru Suðurey- ingar um hundrað þúsund talsins og hafa varðveitt athyglis- verða alþýðumenningu, sem Islendingum mun þykja fróðlegt og skemmtilegt að kynnast. Þess er nú kostur að frumkvæði Her- manns Pálssonar lektors í Edinborg með bókinni „Söngvar frá Suðureyjum,“ sem samin hefur verið að tiímælum bókaút- gáfunnar Norðra. stangveiðimönnum og gersam- lega óþarft fiskistofninum til framdráttar, því að: 1. Laxi virðist fara fjölgandi alls staðar þar sem stangveiði einni er til að dreifa. 2. Það netasvæði, sem lengst hefur búið við stangaveiði eina í uppeldisám sínum, hefur þol- að álag netamanna mun betur en hin svæðin. 3. Margvísleg viðleitni til fiskiræktar hefur farið fram á vegum stangveiðimanna og verið kostuð af þeim. 4. Stangveiðileiga hefur yf- irleitt gefið landeigendum mun meiri og árvissari arð en neta- veiðin. Hafa félög stangveiði- manna og einstaklingar unnið furðu mikið starf til fiskræktar (Frh. á 7. síðu.1 ----------•----------- HÆSTIRÉTTUR FLUTTUR Á JÁRN- BRAUTARSTÖÐ VERKFALL flutningaverka- manna í Noregi veldur nú sí- auknum erfiðleikum. Fjöldi skipa hefur nú þegar stanzað, þar eð ekki fæst eldsneyti. Erf- itt er orðið um allar samgöngur og jafnvel enn verra með elds- neyti til upphitunar húsa. Er jafnvel svo komið, að hæstirétt ur Noregs hefur orðið að flvtja úr húsi sínu í sal á annarri járn brautarstöð borgarinnar. Veðrið í dag Allhvass suðvestan og sunnan. Skúrir. ENGLAND og Sovétríkin eiga nú í diplómatisku stríði vegna ummæla Krúséffs og Bulganins í Indlandi og hinna ákveðnu viðbragða Breta við ásökunum þeirra. Sendifulltrúi Rússa afhenti í fyrradag mót- mælaorðsendingu í brezka ut- anríkisráðuneytinu vegna notk unar orðsins „hræsnisfullur“ í opinberri umsögn, en hann fékk ekki að fara tómhentur heim aftur, því að utanríkis- ráðuneytið notaði tækifærið til að mótmæla því, að Krúséff hafði ásakað Englendinga um að hafa staðið á bak við innrás nazista í Rússland. Hermann Pálsson hefur allra manna bezta aðstöðu til að rita slíka bók sem þessa, þar eð hann talar gelísku, hina fornu tungu Suðureyinga, nútímamál þeirra og íslenzku og getur því skilið betur en aðrir norræna strengi í lífi og menningu eyja- skeggja. Afmælishátíð Eggerfs í kvöld. AFMÆLISHÁTÍÐ Eggerts Stefánssonar er í kvöld kl. 7 í Gamla Bíói. Þar verður góð skemmtun, Gísli Magnússon leikur á píanó, Guðmundur Jónsson og Vincenzo Demetz syngja, Andrés Björnsson les upp og afmælisbarnið talar. Aðgöngumiðar að hátíðinni fást hjá Lárusi Blöndal og Ey- mundsson. Ameríkumenn og Japanar, og þegar þeim hafði verið fleygt burtu eins og skarni, hófu þeir aðra heimsstyrjöldina með því að senda hersveitir Hitlers gegn Sovétrkjunum.“ SVIPAR TIL ÍSLANDS Suðureyjar eru um fimm hundruð talsins og liggja vest- ur og norðvestur af Skotlandi. Rúmlega húndrað þeirra eru bvggðar. Landslagi þar og at- vinnuháttum svipar til Islands, og á vörurn alþýðunnar í Suð- ureyjum lifa sögur og ljóð, er minna á norrænan arf. Þar borðar fólk harðfisk og slátur og segir sögur af samskiptum við huldufólk, enda mikið um álfabyggðir í eyjunum. Frá þessu öllu og fjölmörgu fleira segir Hermann Pálsson í bók sinni. Enn fremur birtir hann mjög athyglisverðar þýð- ingar á gömlum alþýðukvæð- um Suðureyinga. Bókin er prýdd fjölmörgum ágætum myndum. » ......... 42. sýning brúðuleik- hússins. ÍSLENZKA brúðuleikhúsið hefur 42. sýningu sína á sunnu daginn og er það síðasta sýn- ing þess á þeim viðfangsefn- uni, sem það hefur sýnt að und- anförnu. Aðsókn hefur jafnau verið mjög mikil. Upp úr miðjum janúarmán- uði hefjast sýningar á nýjum viðfangsefnum. Eru það tvö barnaleikrit eftir Loft Guð- mundsson, en efni þeirra og uppistaða er að miklu leyti sótt í íslenzkar þjóðsögur. Kvikmyndasýning ísl.-ameríska félagsins í Ijarnarbíói á morgun Þar verSur sýfsd stórmerk 'Onyisd um leiSangur til SuSur'heimskautsins- Misklíd Brefa og Rússa úf al „hræsnis" ásökunum eyksf Skipzt á mótmælaorðsendingunm. 9 síðdegis. Finnska tónskáldið J. Sibelíus verður níutíu áva gamall 8. desemher næstkomandi og verður dagskrá kvÖId- fagnaðarins aðallega helguð þessu stórbrotna tónskáldi. í kvöldfagnaðinum mun dr. Páll ísólfsson flytja erindi um Sibelíus. og Þorsteinn Hannes- son syngja nokkur lög eftir hann með undirleik Ragnars Björnssonar. Enn fremur syng- ur Karlakórinn Fóstbræður lög eftir Sibelíus undi stjórn Ragn- ars Björnssonar. Þá flvtur Bar- bro Skogberg finnsk ættjarðar- Ijóð. Sýnd verður ný kvikmynd í eðlilegum litum frá Vatna- jökli, sem Árni Kjartansson hef ur tekið og að lokum verður stiginn dans. Allir Finnar, sem dvelja í Reykjavík og nágrenni, verða á kvöldfagnaðinum. Félagsmenn Finnlandsvinafél. Suomi hafa ókeypis aðgang að fagnaðinum fyrir sig og gesti sína, sýni þeir félagsskírteini við inngang inn. Þeir aðrir, sem óska að gerast meðlimir, geta fengið af hent skírteini við innganginn. Skiptin á mótmælunum fóru mjög kurteislega fram, en hins vegar mun kurteisin ekki hafa hulið til fullnustu þá gremju, sem menn í London hafa fyllzt vegna hinna and-vestrænu um mæla Rússanna á ferð þeirra um Indland. Ummælin, semmót mælaorðsending Breta ræðir um, komu fram í :ræðu, er Krú- séff hélt 24. nóvember s.l., þar sem hann sagði, að stofnun hins sovézka ríkis hefði ekki verið vel tekið á Vesturlöndum. Ummæli Krúséffs voru þessi: „Fyrst komu Englendingar til Sovétríkjanna, síðan Frakkar, i A MORGUN, laugardaginn, hefjast aftur hinar vinsæiu kvikmyndir íslenzk-ameríska félagsins og verða sýndar þrjár kvikmyndir í Tjarnarbíói kl. 2,30 e. h. Meðal þeirra er stór- athyglisverð kviktnynd frá bandarískum leiðangri til Suðurheim- skautsins. Er kvikmynd þessi með íslenzku tali. Þá verður sýnd mjög fögur litkvikmynd frá höfuðborg Bandaríkjanna, Washington, og þar sýndir frægir staðir og stofnanir í borginni. Einnig er fréttakvikmynd, þar sem með- al annars sjást spennandi í- þróttir, og Eisenhower forseti heldur ræðu. Að lokum verður sýnd fögur litkvikmynd frá fiskveiðiborginni Glouchester á ! Atlantshafsströnd Bandaríkj - [ anna og er s.ú mvnd með ís- ; lenzku tali. I fyrra var aðsókn að kvik- myndasýningum félagsins svo mikil, að félagið ákvað að halda þeim áfram. Aðgangur að kvikmyndasýningunni er ókeypis.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.