Alþýðublaðið - 28.01.1956, Side 1
XXXVII. árg.
Laugardagur 28. janúar 19aö.
23. tbl.
mánaða
Lög um það samþykkt samhljóða
Afstaða stjórnarandstöðmmar til þessa
feiur ekki í sér afsfööu tll væntan-
legra „bjargráða."
RÍKISSTJÓRNIN bar fram á aukafundi í deildum alþingis
í gærkvöldi frumvarp il laga um bráðabirgðastöðvun á tollaí'-
greiðslu í landinu til mánaðamóta. Var frumvarpið samþykkt
samhljóað, en stjórnarandstöðuflokkarnir kváðust samþykkja
það, þar eð þeir vildu ekki efja málið, en tóku hins vegar fram,
að sú afstaða snerti ekki afstöðu þeirra til væntanlegra frum-
varpa stjórnarinnar um hækkanir á tollum og aðflutningsgjöld-
um, sem stjórnin leggur væntanlega fram í dag.
Lög þessi munu vera sett til j sem kunna að bíða tollaf-
þess að koma í veg fyrir, að greiðslu, en gilda hins vegar
hægt sé að hamstra vörum, ! ekki lengur en þangað til lögin
Skákeinvígið:
6. skákin í bið, en mikiar
vinningshorfur hjá Friðrik
1 um ráðstafanir til aðstoðar
sjávarútveginum öðlast gildi,
sem væntanlega verður þá um
| mánaðamót. Fara hin nýju lög
hér á eftir:
1. gr.
Dagnna 28.—31. janúar 1956,
að báðum dögum meðtöldum,
skulu tollstofnanir ekki taka
við skjölum til tollafgreiðslu á
aðfluttum vörum.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
GREINARGERÐ
Þar sem gert er ráð fyrir, að
næstu daga vefði sett lög um
ýmsar hækkanir á aðflutnings-
• gjöldum, þykir með tilvísun til
i 19. gr. laga nr. 90 frá 1954, um
tollskrá o. f 1., rétt að setja á-
kvæði umbráðabirgðastöðvun á
tollafgreiðslu, og er frumvarp
þetta þess vegna borið fram.
Veðrið í dag
SA stormur; rigning.
FRA HLAUPINU I MÚLAKVÍSL
Myndirnar hér að ofan tók Björn Pálsson flugmaður, er hann
flaug yfir Kötlu og nálæg svæði til þess að athuga hvaðan
hlaupið í Múlakvísl á dögunum stafaði. Sjást greinilega merki
þess, að vatn hefur hlaupið úr tveim lónum í HuldufiöUum.
Á efri myndinni sést greinilega hvar vatnsborðið hefur verið
(dökka línan) og svo hvar vatnið hefur brotizt fram (dökka
skellan neðarlega á miðri mynd). Á neðri myndinni sést mihna
lónið, sem hljóp úr. Sést einnig greinilega á henni hvar vatns
borðið hefur verið, svo og tvö göt í botninnn (ofarlega á miðri
mynd og neðarlega til vinstri), þar sem vatnið hefur borizt út.
SJÖTTA SKÁKIN í einvígi Bents Larsens og Friðriks
Ólafssonar var tefld í gærkvöldi í Sjómannaskólanum og fór
liún í bið eftir 43 leiki og ei-u taldar miklar horfur á, að Frið-
rik vipni.
Fer skákin hér á eftir: 16. Hcl—c2 Bc8—d7
Hvítt: Svart: 17. Kgl—fl b7—b6
Friðrik. Larsen. 18. Rf3—d2 IIb8—c8
1. c2—c4 Rg8—f6 19. Rd2—b3 c6—C5
2. Rbl—c3 d7—d5 20. Rb3—d2 Hc8—c7
3. c4Xd5 RÍ6Xd5 21. Ba3—cl a7—a6
4. g2—g3 g7—g6 22. a2—a3 b6—b5
5. Bfl—g2 Rd5Xc3 23. Hbl—b3 h7—h6
6. b2Xc3 Bf8—g7 24. h2—h4 He8—b8
7. Hal—bl c7—c6 25. Rd2—f3 Hc7—c8
8. Rgl—f3 0—0 26. Bcl—f4 Hb8—b6
9. 0—0 Rb8—d7 27. c4Xb5 a6Xb5
10. Ddl—c2 Dd8—a5 28. Bf4—e5 b5—b4
11. c3—c4 Rd7—c5 29. a3Xb4 Hb6Xb4
12. d2—d3 Da5—a4 30. Hb3Xb4 c5Xb4
13. Dc2Xa4 Rc5Xa4 31. Hc5Xc8t Bd7Xc8
14. Bcl—a3 Hf8—e8 32. Be5xg7 Kg8xg7
15. Hfl—cl Ha8—h8 (Frh. á 2. síðu.)
Vetrar-Oly mpíuieikarnir:
Finninn Hakulinen hlaut íyrsíu
gullverðlaunin fyrir 30 km. göngu
Þýrk stúlka vann stórsvig kvenna, auk
þess er þrem ísknattleikjum lokið.
FINNINN HAKULINEN vann fyrstu gullverðlaunin á sjö-
undu vetrar-oljunpíuleikunum, sem hófust í gær í Cortina á
Ítalíu. Vann Hakulinen 30 kílómetra gönguna á 1 klst. 44,06 mín.
Önnur gullverðlaunin vann Ossi Reichert frá Þýzkalandi, en hún
varð fyrst í stórsvigi kvenna á hinni svokölluðu Tefani braut.
Tími Reicherts 1:56,5. And-
rea Mead Lawrence frá Banda-
ríkjunum, sem varð ólympíu-
meistari síðast, varð fjórða á-
samt annarri.
ÍSKNATTLEIKUR
Á fimmtudag sigruðu Kan-
adamenn, sem voru ólympíu-
meistarar, Þjóðverja með 4:0,
og ítalir og Austurríkismenn
gerðu jafntefli. í gær sigruðu
Tékkar Bandaríkjamenn 4:3.
Kom úrslitamarkið ekki fyrr en
tvær mínútur voru eftir af leik.
3. umræða um fjárlögin í gær:
Minnihlutinn bar fram tillöaur u
Mundu minnka hallann á fjárlcgunum,
sem er 45.5 milljónir, áður en „bjarg-
ráðin" koma til skjalanna.
FJÁRLÖGIN komu til þriðju umræðu á alþingi í gær. Lagði
framsögumaður meirihlutans fram áli meirihlutan fram álit
meirihlutans og gerði grein fyrir því, að eins og stæði væri
45,5 milljón króna halli á fjárlögunum. Hanniball Valdimars-
son hafði framsögu fyrir minnililutann, sem bar fram breytinga-
tillögur um samtals 33 milljóna hækkun á tekjuliðum fjárlaga-
frumvarpsins.
.Framsögumaður meirihlutans
sagði í ræðu sinni, að nú kæmi
til kasta þingsins, að finna
nýja tekjustofna til að fylla upp
í þann halla, sem væri á fjár-
lögunum, eins og þau stæðu.
EKKERT UM „BJARGRÁÐIN“
Ekkert tillit er til þess tekið
1 fjárlagafrumvarpinu að afla
tekna til aðstoðar við sjávarút-
veginn, en talið er, að þurfa
muni 1.10—150 milljónir til
þess, þannig að í raun og veru
þarf ríkisstjórnin að útvega allt
upp í 200 milljónir til þess að
standa undir halla á fjárlögum
og stuðningi við sjávarútveg-
inn.
3 MILLJ. HÆKKUN
Minnihluti fjárveitinganefnd
ar flutti breytingatillögur við
fjáriögin, er samtals mundu
hækka tekjuhliðina um 33 millj
ónir króna. Hafa þeir orðið að
lækka upphæðirnar í breytinga
tillögunum vegna þingskapa,
sem banna, að tillögur, sem
felldar hafa verið, séu fluttar ó-
breyttar á ný.
Gat Hannibal þess í ræðu
sinni m. a., að það hefði komið
í ijós samkvæmt upplýsingum
frá ríkisbókhaldinu í gær, að
tekjuliðir þeir, sem um væri að
ræða, hefðu þegar í desember
1955 verið orðnir hærri en gert
er ráð fyrir í breytingatillögun-
um. Kvað hann tölurnar frá rík
isbókhaldinu sýna, að hinar upp
runalegu breytingatiliögur
minnihiutans til hækkunar á
tekjuliðum fjárlagafrumvarps-
ins hefðu staðizt og hefðu raun
ar verið heldur lægri en bessir
liðir voru orðnir í desember s.l.
Væri því engin ástæða til þess
að hækka álögur á almenning
til þess að brúa 45,5 milljóna
bil, því að a. m. k. væri hægt
að fá 33 millj. með samþykkt
núverandi breytingartiliagna,
og með samþykkt upprunalegu
tillagnanna hefðu fengizt um
60 millj.
Ekkert fiskvsrð enn
SÁTTAFUNDUR í fiskverðs
deilunni hófst kl. 9 í gærkveldi,
en ekkcrt hafði gerzt þai* mark
vert, er blaðið fór í prentun.
Mörg félög hafa þegar boðað
vinnustöðvun frá 3. febrúar,
hafi samningar ekki tekizt þá.
--------9---------
Bruno Walter Isr
BÆJARSTJÓRNIN i Salz-
hurg í Austurríki hefur sæmt
hinn þekkta liljómsveitarstjóra
Bruno Walter hiuni gullnu
Mozarts-orðu fyrir störf hans
við stjórn tónlistarhátíðarinn-
ar þar í borg. Veitingin var
gerð kvöldið fyrir 200 ára af-
mæli Mozarts.