Alþýðublaðið - 02.02.1956, Síða 3
Fimmtudagur 2. febr. 1955
A I þ ý ð u b I a ð I S
Fyrsta kvöldskemmtun ársins.
Skákin
„Þorra-kabarettinn tilkynnir“
Skammdegis - Skemmfun
í Austurbæjarbíói sunnudaginn 5. febrúar kl. 11.15.
Þar koma frarn eftirtalin atriði:
„Doris Day Svíþjóöarrr Soiveig Winberg
ESCAYOLA
Dans og söngmærin spánska
beint frá Marcelona.
Vertíðin er hafin
Töframaðurinn Paul Arland.
Hláturinn lengi lifi
Það sér Hjálmar Gíslason um.
Svo ítalskar melódíur
Þær flytur Guðm. Baldvinsson söngvari.
Og fjörið styttir skammdegið
þegar þið heyrið Steinunni Bjarnadóttur^
Kanske dálítinn jazz
með kvartett Gunnars Sveinssonar.
Svo kynnir Haukur Morthens
Gleymum ekki hljómsveitinni
Baldur Kristjánsson sér áreiðanlega um að
svo fari ekki.
■ 1 tr •
Aðgöngumiðar seldir í Austurbæjarbíói á föstudag
frá kl. 2.
ANNES Á HORNINU
VETTVANGUR DAGSINS
Umræðurnar vöktu kvíða og hryggð — Ótrúlegar
æsingaræður — Furðuleg skriffinnska
ÉG HELD að flesta sæmilega
menn hafi sett hljóða við að
hlusta á útvarpsumræðurnar á
mánudagskvöld. Og ég hygg, að
margir hafi orðið hryggir. Ég
talaði Við mann um kvöldið, er
kvaðst aldrei hafa uggað eins
um framtíð þjóðarinnar og nú.
það væri hörmulegt til þess að
vita, að nú væri svartara um að
litast, þegar litið væri til fram-
tíðarinnar í Ijósi umræðnanna
heldur en var þegar þjóðin átti
í höggi við atvinnuleysi fyrr á
árum.
ÞAÐ HLÝTUPv að hafa vakið
athygli hlustenda af hve mikl-
um ofsa nokkrir ræðumannanna
eins og Brynjólfur og Bergur
töluðu. Hér átti ekki að vera
um æsingamál að ræða, og það
var ekki tilefni til að flytja of-
stækisfullar æsinga- og skamma
ræður. Málefnið er svo alvar-
legt, að þjóðinni finnst að um
það hljóti menn að ræða af al-
vöru og festu.
ÞAÐ ER engum blöðum um
það að fletta, að ríkisstjórnin
hefur algerlega brugðizt því
trausti, sem kjósendur svndu
flokkum hennar við síðustu
kosningar — og þá hefur Sjáli'-
stæðisflokkurinn, stærsti flokk-
urinn, fyrst og fremst brugðizt,
enda er engin festa í stjórn
hans og starfi, heldur spákaup-
mennska og tækifærisstefna,
sem sízt á við í stjórnarháttum
á viðsjálum tímum.
ÞEIR, SEM MINNAST síð-
ustu kosningabaráttu' og þeirra
málefna, sem þá voru efst á
baugi, þurfa ekki að fara í
neinar grafgötur með þetta. Þá
átti að gefa allt frjálst, afnema
verðlagseftirlit og þar fram eft-
ir götunum. Jafníramt átti að
stöðva dýrtíðarflóðið með öllu.
En það eitt hefur verið gert að
afnema verðlagseftirlitið og
gefa allt frjálst, en spákaup-
mennskan í stjórnarháttunum
heíur verið svo mikil, að aldrei
hefur dýrtíðin vaxið eins hrað-
fara og síðustu árin.
VEGFARANDI skrifar: „Ný-
lega hefur verið útbýtt launa-
miðum til alira þeirra, er ein-
hverja hafa haft í þjónustu
sinni s.l. ár. Eru þessir launa-
miðar mikið frábrugðnir þeirn,
er áður giltu. Má segja að of-
stjórn og skriffinnska aukist
hröðum skrefum, einkum hin
allra síðustu ár. Það nýja, sem
skattayfirvöldin vilja fá að vita
er: Gjafir (t. d. jólagjafir, af-
mælisgjafir, og sjálfsagt allar
gjafir), gefins fatnaður, bíla-
styrkur. Þá skal greina.í hvaða
stéttarfélagi vinnuþiggjandi er,
starfsgrein og svo loks tvískipt
árið vegna tekna og vinnutíma.
í fyrsta lagi laun og yinnu-
stundafjöldi frá 1/1—31/5 ’55
og í öðru lagi frá 1/6—31/12
1955.
ALLTT ER ÞETTA sjálfsagt
þárflegt, en áður en þett.a skeði,
munu þrjú svonefnd menning-
arríki hafa lceppzt um að verða
nr. 1 í skriífinnskunnL Það
voru USA, Rússland og ísland.
Nú mun ísland, undir ágætri í-
haldsstjórn, hafa slegið rnetið,
þ. e. mesta skriffinnskuland ver
aldarinnar. Væri nú ekki úr
vegi fyrir þessa kapphlaups-
menn í skrifíinnskunni, að setja
á stofn skrifíinnskusérfræðing,
svo met íslands ekki glatist! “
Framhald af 1. síðu.
24. Rd4-f3 Rc5-e6
25. Hdl-cl Re6-f4
26. De2-fl Bb7-c6
27. c2-c4 b4-c3
'28. HclXc3 Bc6-b5
29. Hc3Xc7 Hc8Xc7
30. Bel-g3 Bb5Xfl
31. Bg2Xfl h6Xg5
32. h4Xg5 Be7þc5
33. Rf3Xe5 Bc5Xgl
34. Bg3Xf4 Bgl-h2
35. Bf4X-h2 Hh8Xh2
36. Re5-f3 Hh2þhl
37. a2-a3 Rd7-c5
38. Kbl-a2 HhlXfl
39. Rd2Xfl Rc4Xe4
40. Rí'l-e3 Gefið. Hc7-c5
Móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
verður jarðsungin föstudaginn 3. febrúar frá Fríkirkjunni.
Athöfnin hefst með bæn að heimili hennar, Sörlaskjóli 15,.
kf. 1,15.
Fyrir hönd okkar, barna hennar og tengdabarna. ,
Jórunn Kristinsdóttir,
Bjarní Kristjánsson,
Bjargráðaírumvarp
(Frh. af 8. s;ðu.)
ir slcussar, scm Morgunblaðið
talar um?
„HANDJÁRNIN“ HÉl.DU.
Við atkvæðagreiðslur um
breytingatillögur og frumvarp- j
ið sjálft greiddu stjórnarsinn-!
ar allir sem einn maður at-
kvæði gegn breytingatillögun- í
Um og með frumvarpinu. -
„Handjárnin“ héldu!
*«•••*• ■ ■ ■ ■■•■■■»■■■»■.■■■»
■■■■■■■».
SKiPAUTCCRe
RIKISINS
r r
Hekla"
austur um land í hringferð
hinn 8. þ. m. Tekið á mót.i
flutningi til Fáskrúðsfjarðar,
Reyðai’fjarðar, Eskifjarðar,
Nor.ðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Þórshafnar, Raufarhafnar,
Kópaskers og Húsavíkur á
föstudag og árdegis á laugar-
dag. Farðseðlar seldir á mánu
dag.
Fer til Vestmannaeyja á morg-
un. — Vörumótaka daglega.
■ ■■■■■■■■ ■.■■■■«■•■■■■■■■■■■■•■■■■ ■■
FÉLAGSLÍF
Frá Guðspekifé-
laginu.
SEPTÍMU-FUNDUR á föslu-
daginn 3. febrúar kl. 8,30 í
Ingólfsstræti 22. Erindi: Eg-
yptaland og launhelgarnar.
Frú Guðrún Indriðadóttir
flytur. —- Kaffi. — Gestir
velkomnir.
Rayon pífugluggatjaldaefni, mislit.
Plastefni í gluggatjöld.
Fóðurbútar frá kr. 10,00 m.
Undirföt .og Náttkjólar.
Ýmsar vörur á bagstæðu verði.
n
LAUGAVEGI 18
Foreldrar!
í næstu viku mun
morgundeild taka lil starfa
í leikskólanum í BRÁKARBORG-
Upplýsingar í SKRIFSTOFU SUMARGJAFAK, sími 6479 — og í BR ÍKARBORG. sínxi 7748.
FORSTÖDUKOff AN.
Verzl. Kristín Sigurðardótfir
Laugavegi 20.
vantar unglinga til aS bera blaðið til áskrif-
enda í
Laugarneshverf 1,
Drápuhlíð
Lönguhlíð
Talið við áfgreisii'iia - Símí 4900