Alþýðublaðið - 28.03.1956, Page 5
SliS-vikutlagur 28. marz 1953
AíþýgiiBIaSlg
EINS og frá var skýrt í Al-
þýðublaðinu í gær boðaði
stjórn Loftleiða blaðamenn á
íund sinn í fyrradag og skýroi
þeim frá máli því, sem um var
rætt hér í blaðinu í gær. Á
fundi þessum með fréttamönn-
ttm bar margt á góma, auk þess,
sem frá er greint í fréttatil-
kynningu félagsstjórnarinnar.
Þykir Alþýðublaðinu nú rétt, í
bessu tilefni, að rifja upp hið
lielzta í þessu sambandi, svo að
Jesendum þess gefizt kostur á!
að átta sig á öllum málsatvik- I
um. -
Svo sem alkunna er hafa
Loftleiðir haldið uppi flugi und
anfarin ár milli meginlanda Ev-
i'ópu og Ameríku, og notað til
bess flugvélar ’ af Skymaster
gerð. Enda þótt flugvélar þess-
ar séu hinar traustustu, þá geta
þær hvorki farið jafn hátt né
ihratt og nýjustu gerðir farþega
flugvéla. Fyrir því hafa Loft-
Jeiðir fengið leyfi viðkomandi
stjórnarvalda til þess að ákveða
lægri fluggjöld á leiðinni milli
Islands og Bandaríkjanna en
þau flugfélög, sem nota nýrri
gerðir flugvéla. Hins vegar verð
ur félagið að fara að samþykkt-
am flugsamsteypunnar IATA á
flugleiðunum milli íslands og
meginlands Norður-Evrópu.
HÓFLEG FARGJÖLD
LOFTLEIÐA
Stóru flugfélögin halda, nær
undantekningarlaust, uppi áætl
uinarferðum milli meginlanda
Evrópu og Ameríku, án við-
komu á íslandi. Fargjöld milli
Islands og meginlands Evrópu
skipta þau því engu máli, að
því er varðar farþegaflutning-
ana vestur um haf. Loftleiðir
fljúga hins vegar um ísland, og
fargjöldin frá meginlandi Ev-
rópu til Norður-Ameríku eru
samtala fluggjaldanna til ís-
lands og frá íslandi vestur um
haf. Hækkun á annarri hvorri
leiðinni til eða frá íslandi
myndi verða til þess að minnka
foilið, sem nú er milli fargjalda
Loftleiða og IATA félaganna og
torvelda Loftleiðum að keppa
við LATA félögin með þeim fiug
vélakosti. sem félagið hefur nú
yfir að ráða.
Það var upplýst á blaða-
mannafundinum, að flugvélar
af þeirri gerð, sem samkeppnis-
fær er talin við IATA, myndi
kosta a. m. k. 25 milljónir ís-
lenzkra króna, auk varahluta.
Af því er auðsætt, að kaup
margra flugvéla af þeirri gerð
myndu þjóðinni örðug, enda
þótt hún sameinaðist öll um
þau. Vegna þess eigum við
naumast annarra kosta völ en
að feta okkur áfram, hægt en
örugglega, unz reynsla og fjár-
magn er fyrir hendi til stærri
átaka. Hin hóflegu fargjöld
Loftleiða hafa, öðru fremur,
orðið til þess að gera okkur ís-
lendinga hlutgenga í samkeppn
inni á alþjóða flugleiðunum og
eru þess vegna mikilvæg, þjóð-
hagslega séð. Loftleiðir hafa
einnig haldið því fram, að með
þessum lágu fargjöldum sé ver-
ið að ná til fjölda fólks, sem
ella myndi ekki ferðast með
flugvélum, og er engin ástæða
til að efast um að það sé rétt.
Þá má heldur ekki gleyma því,
að vegna starfsemi Loftleiða
hafa íslendingar komizt í þjóð-
braut hins nýia tíma, en af öll-
um þessum ástæðum er það, eða
ætti að vera, sameiginlegt metn
aðar- og hagsmunamál íslend-
ínga allra, að Loftleiðir gætu
fengið að halda hinum lágu far-
gjöldum sínum, svo að félagið
yrði samkeppnisfært um far-
þegaflutninga milli meginland-
anna tveggja. Breyting fargjald
anna frá því sem nú er til þeirr
ar hækkunar, sern fyjrirhuguð
er, verður síðar rædd, að því er
varðar okkur íslendinga.
FLLGSAMSTEYPAN IATA
Áður en lengra er haldið þyk-
ir rétt að gera nokkra grein
fyrir samsteypu þeirri, sem
auðkennd er með bókstöfunum
IATA, og kemur hér við sögu.
Flest hinna stærri flugfélaga
hafa myndað með sér samtök,
sem hafa m. a. samræmt far-
gjöld sín á helztu flugleiðum
heims. í þeim eru m. a. skand-
inaviska flugsamsteypan. SAS
og fvrir nokkru mun Flugfélag
íslands hafa gengið i bandalag
þetta, sem nefnt er IATA. Út á
við berjast samtölún gegn öll-
um flugfélögum, sem eru utan
þeirra, einkum ef þau hafa
lægri taxta. en innbyrðis heyja
þau grimmilega baráttu. Þar
sem fluggjöldin eru fastákveðin
er samkeppnin háð með því að
auka sífellt hraða flugvélanna
og þau þægindi, sem farþegun-
um eru boðin. Sá meðlimur
IATA, sem einkum hefur geng-
ið fram fyrir skjöldu í barátt-
unni við Loítleiðir er skand-
inaviska flugsamsteypan SAS,
og liggja til þess þau rök, að
Loftleiðir halda uppi áætlunar-
ferðum til og frá Norðurlönd-
um, SAS hefur krafizt þess að
Loftleiðir tækju sömu gjöld og
SAS milli Skandinavíu og
Bandaríkjanna, enda þótt Loft-
leiðir fari allt aðrar slóðir og
noti hægfleygari flugvélar en
SAS. Þá mun það einnig hafa
verið SAS, sem átti aðalþáttinn
í að sagt var upp loftferðasamn-
ingunum milli íslands og Sví-
þjóðar, en með því hófst deila
sú, sem alkunn er og illræmd
orðin hér á landi og raunar víð-
ar.
ÞINGHALD í MIAMI
Síðastliðið haust héldu IATA
félögin ráðstefnu mikal í Miami
í Bandaríkjunum.
Nokkru eftir að ráðstefnunni
lauk tóku að birtast greinar í
erlendum dagblöðum, þar sem
staðhæft var, að fargjaldamál
Loftleiða hefði verið þar ofar-
lega á dagskrá. Þess var getið
til að SAS hefði átt frumkvæði
að ráðstöfunum, sem þingið
gerði til þess að reyna að stöðva
framsókn Loftleiða. Þótti það
eðlilegt, þar sem SAS hafði
krafizt þess að Loftleiðir
breyttu fargjöldum sínum.
Töldu þeir, sem bezt þóttust
vita, að SAS hefði eigi fengið
framgengt aðalkröfu sinni, en
hins vegar hefði það áunnizt, að
samþykkt hefði verið að revna
að koma fram hækkunum á far
gjöldum Loftleiða milli megin-
lands Evrópu og íslands.
Hinn 9. nóvember sl. birtist
hér í blaðinu grein, þar sem
sagt var frá þessum fréttaburði
hinna erlendu blaða. Segir þar
m. a. svo: 1
..Það hefur verið staðhæft í
erlendu blaði, . . . að á fundi
flugsamsteypunnar IATA, sem
haldinn var nýlega í Miami í
Bandaríkjunum, hafi fulltrúar
skandinaviska flugfélagsins
SAS lagt það til að IATA léti
afskiptalaus hin lágu fargjöld
Loftleiða á flugleiðinni milli ís
lands og Bandaríkjanna, en
samþvkkti hins vegar að hækka
öll fargjöld á flugleiðunum
milli íslands og meginlands Ev-
rópu. Var þetta bersýnilega gert
í þeim tilgangi að samanlögð
fluggjöld Loftleiða á allri flug-
leiðinni milli Norður-Evrópu og
Bandaríkjanna yrðu jafnhá flug
gjöldum SA.S, og átti þannig að
kippa fótunum undan starfsemi
Loftleiða. . . .
En hvað er annars að segja
um sjálfstæði okkar til þess að
rnega sjálfir ákvarða fargjöld
með íslenzkum farartkkjum?
Getur einhver einokunarsam-
steypa úti í heimi ákveðið það ^
með einum pennadrætti að ein-
angra ísland með því að gera
þeim, sem þangað ætla eða það- (
an. að greiða óhæfilega há far-
gjöld?“ 1
Greininni lauk með ósk um,
að fulltrúar Flugfélags íslands,
sem sóttu ráðstefnu þessa. gerðu
grein fyrir hinu sanna í þesu
máli.
ÞINGFRÉTTIR
FRAMKVÆMDASTJÓRANS
Það stóð ekki á svörum. Fram
kvæmdastjóri Flugfélags ís-
lands sendj Alþýðublaðinu
greinargerð, sem birtist í blað-
inu tveim dögum síðar undir
yfirskriftinni: Ekki rætt um far
gjöld milli íslands og Evhópu á
þingi IATA. Framkvæmdastjór
inn segir m. a. svo í greininni
um tillögu þá, sem talið var að
borin hefði verið upp um far-
gjaldahækkun:
„Út af þessu vil ég taka það
fram, að hvorki SAS né nokk-
urt annað félag bar fram tillögu
um þetta efni á umræddri ráð-
5tefnu.“
j Til nánari skýringar segir
hann:
„Eitt af því, sem IATA gerir
einu sinni á ári, er að ákveða
fargjöld, sem gilda eiga á öllum
millilandaleiðum félagsmanna
til eins árs í senn. Að sjálfsögðu
eru allar ákvarðanir um far-
gjöld og reglúr téknar af full-
trúum félaganna sjálfra og hef-
ur hvert félag neitunarvald
varðandi þau fargjöld, sem
gilda fyrir þess leiðir.“
Hér virtist ekki framar þurfa
vitna við. Samkvæmt þessu
hafðí enginn haft neitt illt í
hyggju, og þó að svo hefði ver-
ið þá mvndi málstað íslands
hafa verið borgið. þar sem Flug
félag íslands hafði rétt til þess
að standa vörð um hann. Það
hafði, að sögn framkvæmda-
stjórans, neitunarvald um allar
hækkanir „varðandi þau far-
gjöld, sem gilda fyrir þess leið-
ir“.
Forráðamenn Loftleiða
skýrðu frá því á blaðamanna-
fundinum í fyrradag, að þeir
hefðu, eins og raunar ritstjórn
Alþýðublaðsins, talið þetta mál
úr sögunni, eftir að birzt hafði
yfirlýsing framkvæmdastjóra
Flugfélags íslands. Þeim kom
því mjög á óvart að sjá, nokkr-
um vikum síðar, fundargerðirn-
ar frá Miami, verðskrár, sem
samþykktar höfðu verið þar. í
þeim gat það að líta, svart á
hvítu, að ráðstefnan í Miami
hafði samþykkt, að hækka veru
lega öll fargjöld milli íslands og
meginlands Norður-Evrópu, en
það voru ein fargjöldin innan
Evrópu, sem ákveðið hafði ver-
ið að hækka, og þótti þá ljóst
hvert vopnunum væri stefnt.
BARIZT Á HEIMA-
VÍGSTÖÐVUM
Er hér var komið málum rif j-
aðist upp yfirlýsing sú, sem
framkvæmdastjóri Flugfélags
íslands hafði birt hér í blaðinu
11. nóv. s.l., en er hún var lesin
niður í kjölinn kom í ljós, að
með henni hafði ekki verið bein
línis þrætt fyrir það, að tillaga
hefði verið borin. fram í Miami
um fargjaldahækkun. Hins veg'
ar hafði hann staðhæft, að sú.
jtillaga hefði ekki verið frá SAS
;og fullyrt, að samþykkt hennar
’ myndi ekki verða til þess að far
gjöld Loftleiða yrðu jafnhá flug
gjöldum SAS.. Var þá auðsætt,
að með yfirlýsingunni var leil ■
ið tvæim skjöldum, og forðast ao
koma að hinum eiginlega kjarna
málsins: hækkun fargjalda á
þessari flugleið.
! Komi engin andmæli fram
gegn hinni nýju gjaldskrá af
hálfu viðkomáhdi stjórnarvalda
gengur hún í gildi 1. dag aprílr
mánaðar. Loftleiðir spurðust
því fyrir um það hjá flugmála-
ráðherra, strax eftir að félag-
inu barst hin nýja verðskra
IATA, hvort lronum hefoi
borizt nokkur beiðni frá Flug-
félagi íslands um fargjalda-
hækkun, en hann kvað þao
ekki vera. Hins vegar kom ;i.
ljós við eftirgrennslan, að bæna
skrá um fargjaldahækkun la
hjá verðlagsstjóra, og seint i
febrúarmánuði sl. ritaði stjórn
Flugfélags íslands flugmála-
stjóra bréf, þár sem óskað var
samþykkis á fargjaldahækkun-
inni.
i 2. þ. m. boðar flugmálaráð-
herra svo forráðamenn Loft-
leiða og Flugfélags íslands a
sinn fund og er þar rætt um
fargjaldamálin. Loftleiðir vilja.
ekki hækka, en Flugfélagið tel-
ur brýna nauðsyn bera til hækh:
unar. Flugmálaráðherra bíður
átekta, og er enn ekki vitað ao
hann hafi mótmælt IATA saro-
þykktunum. 16. þ. m. ritar
stjórn Loftleiða bréf til flug-
málaráðherra, þar sem hún mót-
mælir hækkununum og býðst
til þess að kaupa eða leigja milli
(Frh. á 7. síðu.)
Frímerhiaþáf tur
Páskablómin ódýrust í Blómabúðinni Laugavegí 63,
Vítatorgi og á horni Eiríksgötu og Barónsstígs..
Páskaliljur, túlipanar o. fl.
Erúm búin að fá allskonar blómafræ, matjurtafræ,
blómaáburð og blómsturpotta.
Ath. Blóm verða aðeins seld á miðvikudaginn og
Iaugardaginn á Vitatorgi og horni Eiríksgötu og Bsr-
ónsstígs.
Torgsalan.
í FYRRI þáttum held ég að
við höfum rætt að einhverju
leyti um flest nauðsynleg hjálp-
artæki hvers sainara, nema ef
vera skyldi stækkunargler og
hvar hann eigi að afla sér les-
efnis gagnvart faginu.
Stækkunargler.
Það er hægt að fá margs
konar stærðir og* gerðir af
I stækkunarglerum, allt frá
.venjulegum lesglerum, sem
stækka tvöfalt upp í stór gler
með innbyggðu rafljósi, sem
stækka 12—16 sinnum.
( Fyrir byrjendur, sem ekki
eru að safna alveg sérstaldega
dýrum og verðmætum merkj-
um, er nóg að hafa venjulegt
lesgler, sem þeir geta séð í
hvort takka vantar á frímerkið
eða það hefur verið skemmt
! að. utanaðkomandi völdum.
1 Fyrir hina, sem eru farnir aö
safna dýrari merkjum og að
ekki sé talað um þá, sem
safna litarafbrigðum og af-
brigðilega prentuðum merkj-
um, er nauðsynlegt að hafa
| gler sem stækka um 16—20
sinnum, jafnvel enn meira. —
Stækkunargler þessi fáið þið
inna helzt hjá gleraugnaverzl-
unum, en þó er til dæmis ein
verzlun hér í bænum, sem er
hvort tveggja í senn, gler-
augna og frímerkjaverzlun,
sem fer vel saman, en það er
K. Bruun á Laugavegi 2.
Tímarit um frímerki.
Því miður eigum við ekki
völ á neinu íslenzku tímariti
um frímerki og einasta dag-
.blaðið, sem nokkuð gerir fyrir
'frímerkjasafnara til að leysa
þennan vanda, er Alþýðublað'-
ið, með þessum þætti. Þó hefur
t. d. Æskan stundum frí-
merkjaþátt og þyrfti svo aö
vera um öll hin barnablöðin.
Það sem við getum gert, er að
bíða þar til okkur vex fiskur
um hrygg og við getum orðið
lesið annað hvort dönsku eða
ensku. Þá eru til prýðileg'
tímarit á dönsku, eins og t. d.
Frimærkesamleren, Nordisk
Filmtelisk Tidskrift, Frimærke
[FrónerkjÁ k lúbbut
S Gt
B ‘
M :
-i
Nyt og Populær Filateli. Eru
þetta allt ágæt tímarit, og til
mikils gagns fyrir hvern safn-
^ ara. Hið fyrstnefnda, Fri-
! mærkesamleren, er þó að mínu
áliti bezt, enda er það tíma-
rit, sem gefið er út af stórr.i
I samsteypu frímerkjaklúbba
jum gjörvalla Danmörku. Hin
,eru flest gefin út af frímerkja-
] verzlunum og meira í auglýs-
ingaskyni sum en beinu
fræðsluskyni.
í Englandi er gefinn út urm-
ull af tímaritmn um frímerki,
Eitt af hinum betri er án vafa
„The Stamp _,Iagaizne“ og þar
að auki er oftast hægt að fa
það í bókaverzlun Snæbjarna;
Framhald á 7. síðu.