Tíminn - 28.03.1965, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.03.1965, Blaðsíða 1
 «»mw 73. tbl. — Sunnudagur 28. marz 1965 — 49. árg. ' -,»>v Þetta er ein af níu stúlkum, sem starfa um borS í þýrka skurrog- aranum Walter Dehmel, sem verið hefur hér í höfninni aS undan. förnu. Hún virðist una hag sínum vel til sjós, enda er hún gift matsveininum. Af þeim nju stúlkum, sem eru í Dehmel, eru flmm giftar, svo að þetta er eiginlega mlkið hjónabandsskip. Sjá nánar á bls. 16 I blaðinu í dag. (Timamynd KJ) Ganga sameinaðir til samninganna EJ-Reykjavík, laugardag. Kjaramálaráðstefna Alþýðusam bandsins samþykkti í dag ályktun um kjaramál, þar sem talið er nauðsynlegt að sameiginleg nefnd allra verkalýðshreyfingar- innar annist samningaviðræð- BRESJNEVRYMKAR HAG RÚSSNESKUBÆNDANNA NTB-Moskvu, laugardag. Leonid Bresjnev, aðalritari sov- ELTIR SÍLDIN ÍSINN? JHM-Reykjavík, laugardag. Blaðið átti stutt samtal við Jakob Jakobsson, fiski- fræðing, um afleiðingar haf íssins á síldveiðina á sumri komanda. Jakob sagði að engar skýrslur væru til hér á landi um þessi efni, sem stafaði frá því að fiskveið rannsóknir hófust ekki hér á landi fyrr en eftir síðasta ísárið. Hann sagði að margir að- ilar biðu með eftirvæntingu eftir að sjá hvað breyt- ingar myndu verða á síld- veiðunum í sumar. Ekki vildi hann spá neitt um breytingarnar, en bætti við að búast mætti við breyting um á einn veg eða annan. Fréttamaður spurði Jakob hvenær rannsóknir á þessum málum byrjuðu. Hann sagði að þær byrjuðu strax vor, og ef um ein hverjar breytingar verður að ræða á síldveiðinni þá koma þær í ljós strax í júní. Jakob undirstrikaði að lok- um að það væri ekki nokk- . ur leið að ímynda sér eitt eða annað um afleiðingar þær sem ísinn eða hitastig- ið í hafinu komi til með að hafa á síldina. Þess má einnig geta í þessu sambandi, að gamlir sjómenn halda því margir hverjir fram, að hafís hafi fyrr á árum fylgt talsverð síld og hafi bátar oft stund- að sildveiðar innan um ís- inn og við ísröndina. Hvort sú kenning á eftir að rætast á komandi sumri get ur enginn sagt um fyrr en í fyllingu tímans. I ézka kommúnistaflokksins, lagði fram nokkrar róttækar breyting- I ar á landbúnaðarstefnu sovét- stjórnarinnar. Tillögur hans hafa í för með sér verulega aukningu á fjárfestingu ríkisins í landbún- aði og auka mjög ágóða þeirra bæn.d>a, sem fara fram úr áætl- un í sambandi við framlciðslu. Bresjnev hóf ræðu sína með harðri árás á Nikita Krústjof og landbúnaðarstefnu hans, og sagði, að afleiðing þeirrar stefnu væri, að á sjö ára tímabilinu 1959—65 hefði landbúnaðarframleiðslan samkv. áætluninni átt að aukast um 70%, en í rauninni aðeins aukizt um 10%. Bresjnev lagði fram tillögur um að breyta kerfi því, sem nú ríkir í sambandi við „kornkaup ríkis- ins“ þ.e. korn það, sem samyrkju búin eru neydd til þess að af- henda ríkinu á ári hverju. Lagði hann til, að kornkaupin yrðu minnkuð úr 65.5 millj. tonnum í 55.7 millj. tonn, og að þessi tala skyldi haldast óbreytt fram til 1971. Jafnframt lagði hann til, að verð á korni, rúg og öðrum korntegundum skyldi hækkað. Fá bændur því hærra verð fyrir vör- urnar, og jafnframt fá þeir bænd- ur, sem framleiða meira en áætl- að er, allt að því 50% hærra verð fyrir þessa umfram framleiðslu. Er þetta það lang mesta, sem bændum í- Sovétríkjunum hefur nokkru sinni verið lofað fyrir um- fram framleiðsluna. Bresjnev lagði til, að fjárfest- ing ríkisins í landbúnaði yrði næstu fimm árin 71 millj. rúblur (rúml. 2400 millj. ísl. kr.), og er það næstum jafn mikið og öll fjár Framhald á 14. síðu ur við ríkisstjórnina, og ákveði síðan, þegar séð verður hversu samningar takast við hana, hverj- ar kröfur skulu gerðar um hækk- un kaups að krónutölu. f ályktuninni segir, að teknar skuli upp viðræður við ríkistjórn ina um eftirfarandi: tryggja betur gildi þeirra kjara- samninga, sem gerðir verða við atvinnurekendur. Þá telur ráðstefnan óhjákvæmi- legt, að samningagrundvöllur við atvinnnurekendur verði byggður á sameiginlegum kröfum verka lýðsfélaganna um: 1. Lækkun útsvara og skatta af látekjum og miðlungstekjum þannig að þurftartekjur séu al- mennt útsvars- og skattfrjálsar, skattþrepum verði fjölgað og # skattar og útsvör innheimt jafn- óðum og tekjur falla til. Jafnframt verði skattar og útsvör á gróða- rekstur hækkaðir og ströngu skattaeftirliti framfylgt. 2. Aðgerðir til lækkunar hús- næðiskostnaðar, til að auðvelda fólki að eignast nýjar íbúðir á kostnaðarverði, svo sem aukning bygginga á félagslegum grund- velli, hækkun lána, lenging láns- tíma og vaxtalækkun og aðgerðir, sem hindrað gætu hið stórfellda brask, sem nú viðgengst með nýtt húsnæði. 3. Tafarlausar aðgerðir vegna atvinnuleysis, sem ríkt hefur að undanförnu í einstökum landshlut um. ' 4. Breytingar á lögum um orlof, sem tryggi verkafólki fjögurra vikna orlof og ennfremur breyt- ingar á framkvæmdaákvæðum or- lofslaganna sem tryggi raunveru- lega framkvæmd þeirra. 5. Hverjar þær aðgerðir aðrar, sem þjóna mættu þeim tilgangi að sporna við verðbólguþróun og 1. Almenna kauphækkun og sam ræmingu kauptaxta. Framhald á 15. síðu BÁTAR Á HRAKHOLUM KJ-Reykjavík, laugardag. Það verður ekki með sanni sagt að aðstaða smábátaeigenda í Reykjavíkurhöfn sé góð, og á það jafnt við hvort sem bátarnir eru á floti, eða á þurru. Á sumrin, þegar aðalútgerðar- tími smábátanna stendur yfir, er illmögulegt að fá pláss fyrir lít- inn bát í höfninni, svo mikil eru þrengslin þar. Það má segja að barizt sé um hverja bauju, og þó að menn hafi fengið bauju til umráða, er aðstaðan fyrir eigend- ur bátanna langt frá því að vera góð. Smábátar eins og þá sem hér um ræðir, þarf að taka upp á vetrum, og þá þarf að vera að- staða í landi til að dytta að þeim og mála. Ef slík aðstaða væri sköpuð við Reykjavíkurhöfn er öruggt mál að smábátaeigendur yrðu miklu fleiri, hér í Reykja- vík, og þeir myndu hugsa betur um báta sína. Með tilkomu hinnar miklu Sundahafnar, sem virðist vera á næstu grösum, rætist væntanlega úr öllum þessum vandamálum, og hafnaryfirvöldin geta þá gert eitt- hvað fyrir smábátaeigendur. NJÓSNARI, NAZISTI? NTB-London, Laugardag. Blaðið Daily Telegraph skrifar í dag, að fyrrverandi nazisti, sem nú gegni þýð- ingarmiklu embætti í stjóm ar'ráði Breta, hafi njósnað fyrir Sovétríkin í þrjú ár. Hafi manni þessum vegnað vel í stjórnarráðinu og sí- fellt fengið hærri og hærri stöðu. Blaðið segir, að stormur sá, sem nú sé í vændum í máli þessu, muni fyrst og fremst snúast um þá stað- reynd, að enginn athugaði lífsferil þessa manns nægi- lega vel til að komast að því, að auk þess að hafa verið nazisti, þá hafi hann einnig setið í brezku fang- elsi fyrir að falsa ávísanir. Það gerðist fyrir um 30 ár- um. Áður dvaldi hann í Þýzka landi og lenti þar í „vafa samri stjórnmálastarf- semi.“ Hann snéri til baka til Englands, var í flughern um í síðari heimsstyrjöld og fékk síðan stöðu í stjómar- ráðinu. Og aðstöðu sína þar hefur hann notað til njósna fyrir Sovétríkin, segir blað- ið. liHIISP® Smábátarnir liggja í einni kös umhirðulausir yzt úti á Örfirisey, eins og myndin ber greinilega með sér. (Tímamynd G.E.).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.