Tíminn - 28.03.1965, Blaðsíða 16
' “ Á myndmni hér til hliðar siá*
' nm við Pagel skipstjóra í kátum
ga* ; kvennafansi í matstofu yfirmanna
• '•ís j
á verksmiðjutogaranum Walter
Dchmel. Á neðri myndinni eru
svo ein hjónanna um borð. Þau
heita Buhring og kváðust harð-
ánægð með vistina um borð, er
við litum inn til þeirra, enda var
heimilislegt í herberginu þeirra,
meira að segja lítill páfagaukur
flögraði þar um.
73. tbl. — Sunnudagur 28. marz 1965 — 49. árg.
Fimm hjón og f jór-
ar í hugleiðingum
URSMURÐA ÞEIR
RUB YCEÐ VEIKAN?
JHM-Reykjavík, laugardag.
Á mánudaginn kemur, 29. marz,
verður úr því skorið í Dall-
as, Texas, hvort hinn margum-
j deildi Jack Ruby sé geð
veikur maður éða heill á geðs-
munum. Eins og flestir vita þá
var það Jack Ruby, sem myrti
| Lee Harvey Oswald, sem talið
| er fullvíst, að hafi myrt John
F. Kennedy 22- nóvember 1963.
Jack Ruby hefur þegar verið
dæmdur til dauða fyrir morðið á
Oswald. Verjendur Rubys hafa
samt von um að hægt verði áð
bjarga honum úr rafmagnsstóln-
um, ef hægt sé að sanha að hann
sé geðveill maður.
í réttarhöldunum, sem hefjast
á mánudaginn, verður deilt um
geðsmuni Rubys, eins og þeir eru
Jack Ruby
STORIÐJA
Á ÍSLANDI
Framsóknarfélag Reykjavíkur
heldur almennan félagsfund mið-
vikudaginn 31. marz kl. 20:30 í
Framsóknarhúsinu við Fríkirkju-
veg. Framsögumenn: Helgi Bergs
alþ.m. og Gísli Guðmundsson, al.
þm.
í dag, en ekki eins og þeir voru
daginn sem hann skaut Oswald.
Kviðdómurinn sem dæmdi hann
til dauða var sammála um það
að Ruby hafi vel vitað hvað hann
gerði þegar hann framdi glæpinn.
Dómstólar í Texas hafa marg
oft lýst því yfir að sakboming-
urinn „geti verið geðveikur eða
ekki með fullum vitsmunum, og
samt verið heill á geðsmunum frá
lagalegu sjónarmiði." Þetta atriði
gerir málið öllu erfiðara fyrir
Framhald á 14. siðu
AÐALFUNDUR B.l.
Aðalfundur Blaðamannafélags-
ins verður haldinn í ítalska saln-
um Klúbbnum kl 2 í dag. Aðal-
fundarstðrf og lagabreytingar.
Stjómin.
SAUÐÁRKRÓKUR
Framsóknarfélag Sauðárkróks
heldur fund föstudaginn 2. apríl,
kl. 8.30 í Bifröst. Fundarefni: 1.
Flokksmál í Skagafirði, framsögu-
maður Magnús H. Gíslason. 2.
Skipulagsmál Sauðárkróks fram-
sögumaður Stefán Guðmundsson.
Stjómin.
MB—Reykjavik, laugardag.
Um þessar mundir er hér í
Reykjavík austnr-þýzkur verk-
smiðjutogari, er nefnist Walter
Dehmel. Blaðamenn Tímans
brugðu sér um borð fyrir nokkru
og hittu skipstjórann og nokkra
meðlimi áhafnarinnar að máli, en
meðal áhafnarinnar eru níu konur
og eru fimm þeirra giftar mönn-
um um borð, en f jórar eru ,,laus-
ar og liffugar”.
Walter Dehmel er 3000 brúttó-
lesta skip og aðeins hálfs annars
árs gamalt. Á þessum tíma hefur
skipið farið í aðeins 6 veiðiferðir,
og þessi er hin sjöunda. Ferðir
skipsins eru langar, þar eð allur
afli er gemýttur um borð, og
ekki haldið heim, fyrr en aflazt
hefur nokkum veginn í skipið
við venjulegar kringumstæður.
Skipið stundar veiðar við
Grænland á vetrum ,en á sumrin
og •vorin við Labrador og þangað
er ferðinni heitið nú. Auk þess
hefur svo skipið verið við Afríku.
Pagel skipstjóri hefur oft kom-
ið hingað til lands áður, og er
hann kom hingað fjrst, munu sum
ir íslenzkir blaðamenn hafa verið
fyrirfram vissir um, að skip haps
væri nokkurs konar fljótandi
þrælabúðir ,vegna þjóðemis þess,
og hafa skrif þeirra vafalaust far-
ið eitthvað í taugar hans. Það skal
þó tekið strax fram til þess að forð
ast allan misskilning, að skipstjór-
inn tók okkur ákaflega vel, en
bæði hann og skipsmenn hans fóru
þess á leit við okkur, að við reynd-
um að segja rétt frá því, sem
obkur væri sagt frá, og þvi, sem
við sæjum, og skal það reynt
eftir beztu getu.
Skipstjórinn sagði okkur, að
hver veiðiferð tæki þetta frá 60
til 65 daga, en lengsta ferð skips-
ins til þessa hefur tekið 78 daga.
Milli ferða stanzar skipið um viku
í heimahöfn, og þá fær öll áhöfnin
frí og sérstök vakt er sett um borð
í skipið. Allur afli er gemýttur um
borð, engu er fleygt. Pagel skip-
stjóri sagði okkur, að venjuleg
afköst frystiverksmiðju skipsins
væru 25 tonn af flökum, ef veiði
kasta nokkru meiru, ef mikið ligg
ur við.
Alls eru nú um borð í skipinu
80 manns, en full áhöfn er 92.
Pagel kvað ekki of auðvelt að fá
mannskap á skipið til svo langra
veiðiferða og eru tekjur manna
þó góðar. Það er heldur ekki heigl-
um hent að dveljast svona lengi á
sjónum í einu, til dæmis yrðu kon-
ur þær, sem ynnu á skipinu, að
undirgangast mjög ítarlega lækn-
isskoðun áður en þær væra tald-
ar tækar á skipið, og sú skoðun
væri endurtekin fyrir hverja ferð.
Hann kvað mikið framboð af stúlk-
um til ferðanna, en hins vegar
væru þær hlutfallslega fáar, sem
stæðust allar þær ströngu kröfur,
sem gerðar væru. Þó ber þess að
geta, að um borð í skipinu, eins
og öllum hinum stóra verksmiðju-
togurum er spítali og læknir og
er þar hægt að gera ýmsar minni
háttar aðgerðir, og læknirinn um
borð, sem er ungur maður, sagði
okkur, að hann hefði tekið botn-
langa úr manni á skurðstofu skips-
ins. Hann kvaðst hafa fengið til
meðferðar marga sjúklinga úr öðr
um skipum og af ýmsum þjóðern-
um, um þjóðemi og stjórnmála-
skoðanir er aldrei spurt á sjónum,
þegar neyðin kallar að. Einnig
hefði hann farið um borð í önnur
skip, þegar ekki hefur þótt fært
að flytja sjúklinginn á milli og
einnig leiðbeint mönnum á öðr-
um skipum gegnum talstöð. Það
er það erfiðasta, sagði hann, því
Framhald á 14. síðu
GÍSLI
l«li 11**1»
HELGl
HEILOARAFUNN '64 VARÐ190 ÞUS.
TONNUM MEIRIEN ARIÐ A UNDAN
MB-Reykjavík, laugardag.
Heildarfiskafli landsmanna síff.
astliðið ár varð 971.514 lestir og
er það um 190 þúsund lestum
meira en árið 1963. Mestur er mun
urinn á síldveiðunum, enda er
síldaraflinn meira en helmingur
þessa magns, og veiddust á síð-
astliðnu ári um 157 þúsund lestum
meira af sfld og loðnu en árið áð-
ur. Aukning á bátafiski varð
rúmlega 50 þúsund lestir, en hins
vegar minnkaði togaraaflinn um
15 þúsund lestir.
Upplýsingai þessar er að finna
i nýrri skýrslu, sem blaðinu hefur
borizt um fiskafla íslendinga á
síðastliðnu ári.
Heildarsíldaraflinn yfir árið
varð röskar 544 þúsund lestir árið
1964, en árið áður varð aflamagn
ið um 395 þúsund lestir. Hins veg
ar gefa þessar tölur hvergi nærri
rétta mynd af verðmætisaukningu,
vegna þess hve miklu meira magn
fór hlutfallslega í bræðslu árið
1964 en árið 1963. Árið 1964
fóra tæpar 470 þúsund lestir i
bræðslu, en árið áður tæpar 276
þúsund lestir. í söltun fóra hins
vegar árið 1964 um 57 þúsund og
300 lestir, en árið 1963 rúmar
76.400 lestir. í frystingu fóra 26.
553 lestir árið 1964, en 37.911 lest
ir árið áður. Engin síld fór í
ísun áriff 1964, en um 5.800 lestir
árið áður í niðursuðu fóru 2.7
lestir árið 1964, en 2.96 árið áður.
Af öðrum fisktegundum veiddist i 280.703 lestir á móti 240.068 lest
svo vitanlega langmest af þorski. um árið áður. Aflinn skiptist þann
Heildarþorskaflinn árið 1964 varð I Framhald á 14. síðu
Miðstjórnarfundurinn
TK-Reykjavík, laugardag.
Aðalfundi miðstjórnar Framsókn
arflokksins var haldið áfram í
dag. Nefndarstörf hófust kl. 9 í
morgun og sátu nefndir að störf
um til hádegis. Kl. 2 var svo fram
haldið almennum umræðum og
hafin afgreiðsla mála. Stóðu um-
ræður með mikla fjö) til kvölds
I f>i íiwuáiið vexuiít svo fuod-
ur settur að nýju kl. 10 fyrir há-
degi. Verða þá umræður um
nefndarálit og afgreiðsla mála.
Að því loknu fara fram kosning
ar í trúnaðarstöður, kosin verður
stjórn og varastjórn flokksins,
framkvæmdastjóm og blaðstjóm
Tímans. í lok fundarins á morgun
flytur varaformaður flokksins á-
varp en formaður slítur fundin-
um
I 1 I
f