Tíminn - 28.03.1965, Blaðsíða 2

Tíminn - 28.03.1965, Blaðsíða 2
2 TIMINN SUNNUDAGUR 28. marz 1965 ÞÁTTUR KIRKJUNNAR Daglegt brauð Kristinn dómur og dagleg afkoma. og daglegt brauð hafa frá upphafi verið nátengd hug tök, fylgzt ag, ef svo mætti segja. Frumsöfnuður kristinna manna í Jerúsalem taldi það sína fyrstu skyldu að sjá öll- um fyrir fæðu, sem í söfnuð- inn gengu. Ríka fólkið seldi meira að segja fasteignir sín- ar svo að unnt yrði að fæða fátæklingana, sem þyrptust að. Og einsætt er að hinar fyrstu helgimáltiðir, sem nú kallast altarisgingur voru matarveizl- ur vinsælar mjög af hungruðu fólki. „Hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta. Þyrstur var ég og þér gáfuð mór að drekka. Nakinn var ég og þér klædd- uð mig,“ sagði Meistarinn sjálf ur að mundu verða hornstein- ar þess, sem hinzti dómurinn yrði byggður á. Og sjálfur nefndist hann ,,Brauð lífsins“ og minnti þannig á frumþátt þess, sem kærleiksþjónusta dag legs lífs skyldi stefna að. All- ir skyldu hafa nóg til daglegs lífsframfæris. Og miðbænin, hjartaslögin í Faðir vor, var þessi: „Gef oss í dag vort dag- legt brauð.“ Það er þvi mesti misskiln- ingur, sem sumir virðast halda fram,( að kristinn dómur og þá um leið kirkjan, eigi ekki að taka þátt í hinni daglegu lífsbaráttu eða láta sig einu gilda um efnalega afkomu og lífskjör fólksins. Samkvæmt innsta eðli sinu og kjamanum í kenningum Jesú, hlýtur hún alltaf að standa í fyllingar- brjósti í baráttu gegn hungri og harðrétti, og öllu ranglæti og kúgun, sem leiðir af sér fátækt og alla þá mannlegu niðurlægingu, sem af henni sprettur. „Gefið þeim að eta,“ er hið skýra boð Drottins gagn vart hinum bágstöddu til þeirra, sem betur mega. Og satt að segja hafa þau orð vart verið í meira gildi í veröldinni en einmitt nú, þar sem hungurvofan hefur sökum offjölgunar í mörgum löndum orðið áleitnari en nokkru sinni fyrri. Og einnig verða raddir og þjáningaóp hinna hungruðu háværari við auð- veldari samanburð við alls- nægtaþjóðir en völ hefur ver- ið nokkru sinni fyrr í sögu mannkyns. ' Og kvalaróp hungraða fólks- ins, sem er svo margt, að tal- ið er að tveir þriðju mann- kynsins berjist við hungurvof- una, þau eru raunverulega und irrót stríðsóttans í veröldinni. Við á Vesturlöndum erum far- in að heyra veinin og við vit- um líka, að grimmd hungraðs fólks getur verið mikil, þegar það krefst matar, þess vegna erum við hrædd við Kína og óttumst að Indland vakni til vitundar um hungur sitt, ótt- umst að hin „rauða hönd“ vaki, og eiri svo engu. En hin „rauða hönd“ kynslóða, sem nú þegar eru löngu dán- ar úr hungri bæði í Evrópu og Asíu. „Ég mun vitja feðra mis- gjörða á börnum í þriðja og fjórða lið“, segir ósveigjanleg rödd réttlætisins frá himni guð anna. Einasta undanfarið er að rétta hinum hungruðu nú þeg- ar bróðurhönd, koma fram eins og ungi maðurinn í sögunni um mettunarundrið, leggja fram það sem þú hefur, nest- ið þitt offramleiðslu þína, óhóf þitt, leggja fram krafta þína og tækni til að kenna hinum hungruðu að finna sitt daglega brauð og vinna það. Þeir hafa gengið sömu braut og við ís- lendingar á þorra og góu löngu liðinna vetra, meðan þjóðin sat „snauð og þyrst við gnótt- ir lífsins linda," án þess að hefjast handa, án þess að vita hvað til friðar heyrði. Fáir þættir í fagnaðarboð- skap friðarins eins og þarf að flytja hann i dag hafa látið mér blíðar og betur í eyrum en frásögn af íslendingi, sem sagt var frá í blöðunum um daginn. Hann hefur dvalið langtímis í Austurlöndum, til að kenna nútímaaðferðir við fiskveiðar með allri verktækni Vesturlanda og tekizt að finna fiskimið þar sem bókstaflega má moka fæðunni upp úr sjón- um þar sem enginn varð áður var. Ég sá bókstaflega fyrir mér kraftaverkin, sem sagt er frá í sögu Krists, bæði þegar hann mettar fjöldann i auðn- inni og sendir Pétur vin sinn út á djúpið, þar sem enginn hafði orðið var við fisk, þrátt fyrir dorgið alla nóttina. Og mér fannst þessi ungi íslend- ingur vera ungi maðurinn, sem lagði fram sitt nesti, „finnur brauð og tvo fiska,“ það er að segja sína framsýni og þekkingu. Hann varð líkt og fulltrúi á þeirri einu leið, sem er fær til að bjarga heimin- um frá því grimmdaræði, sem sú styrjöld hlýtur að verða, sem heimtar mat handa millj- ónum þeim, sem nú hungra í austri og suðri. „Gefum þeim að eta,“ hjálpum þeim að öðl- ast daglegt brauð undir for- ystu hans, sem var nefndur „brauð lífsins.“ Og ekki má heldur gleyma því að fiskmjmd var hans fyrsta tákn. Það var myndin, sem allir vissu í fyrstu söfnuðunum að var mýnd frels arans. Fátt í kristnum dómi ætti að verða okkur íslending- um hugstæðara, höfðum við ekki einu sinin fiskmynd í skjaldarmerki eða voru það Danir, sem heiðruðu okkur með því? Ég er vegurinn, sannleikur- inn og lífið,“ sagði Kristur i andlegri líkingu um sjálfan sig. Þetta eru spádómsorðin um hið eina, sem nú getur bjargað heiminum frá tortím- ingu í atomstríði. Leiðin er vegur kærleikans undir merkj- um sannleikans til lífsham- ingju og friðar. Ekki þannig að við lifum á einu saman brauði, og enn er bæn spekingsins í fullu gildi. „Gef mér hvorki fátækt né auðæfi.“ Heldur er brauð- ið hið daglega viðurværi frum- skilyrði menningarlífs og um leið hornsteinn gróandi þjóð- lífs með þverrandi tár, sem þroskast á guðsrikisbraut. Guðsríki er ekki heldur ein- göngu matur og drykkur, held- ur réttlæti friður og fögnuður, sem verður að vera bæði Alfa og Ómega upphaf og endir, orsök og afleiðing lífsins í Kristi, sem er í kenningum og krafti hið sanna lífsins brauð. Árelíus Níelsson. FERMINGAR FERMINGAR SKEYTI SUMAR STARFSINS Sumarstarf KFUM og K'FUK býSur yður falleg, lltprentuð fermingarskeyti, sem gefln eru út til eflingar sumarbúð- unum í Vaglaskógi og Vindás- hlíð. Mótttaka laugardag kl. .1—5: KFUM, Amtmannsstíg 2B. Sunnudag kl. 10—12 og 1—5: Mlðbær: KFUM, Amtmannsstíg 2B. Vesturbær: Bamaheimilið Drafnarborg (bak við Ránargötu 49). Melarnir: Melaslkólinn (inng. í kringluna). Hlíðarnar: Skóli ísaks Jónssonar, Ból- staðarhlíð 20 (inng. frá Stakkahlíð). Laugarneshverfl: KFUM, Kirkjuteigi 33. Langholtshverfi: KFUM við Holtaveg (niðri). Bústaða- og Grensáshverfl: Breiðagerðisskóli. Vatnaskógur Vindáshlíð Fermingarböm í Fríkirkjunni 28. 3. kl .2. Prestur: sr. Þorsteinn Bjömfc8tth.^:n!;í,!^ áo ,annnBj8noH Stúlkur: Edda Baldvinsdóttir, Hverfisg. 83 Fríða Svala Aradóttir, Safamýri 39 Guðrún Óladóttir, Fellsmúla 15 Gunnjóna Guðmundsdóttir, Háa- leitisbraut 34 Hulda Haraldsdóttir, Safamýri 17 Jóhanna Valgerður Ólafsdóttir, Flókagötu 19 Kristbjörg Hafdís Áslaugsdóttir, Ökrum, Seltjamarnesi Kristrún Pálsdóttir, Þórsgötu 20b Millý Svavarsdóttir, Skipasundi 62 Nanna Guðrún Zoega, Skólavörðu- stíg 2 Sigríður Hlöðversdóttir, Njarðar- götu 33 Sigrún Harðardóttir, Kjartansg. 2 Sólrún Ragnarsdóttir, Safamýri 17 Stella Hermannsdóttir, Hólmgarði 30 Svandís Erla Ingólfsdóttir, Álf- heimum 30 Særún Ragnarsdóttir, Álfheimum 23 Þórunn Brandsdóttir, Baldurs- götu 12 Piltar: Ámi Gunnarsson, Stigahlíð 28 Björa Guðmundsson, Brekkugerði 5 Einar Jóhann Stefánsson, Bræðra tungu 56 Helgi Elíasson, Eskihlíð 8 Ingvar Þór Bjamason, Álfheimum 54 Jóhannes Ari Jónsson, Laugaveg 83 Kristinn Skarphéðinsson, Meistara- völlum 23 Ólafur Davíð Stefán Torfason, Hlíð arveg 6, Kópavogi Páll Biering, Framnesvegi 27 Rúnar Friðgeirsson, Tunguveg 80 Sigurður Björnsson, Álftamýri 8 Símon Friðrik Símonarson, Ból- staðahlíð 34 Svavar Magnússon, Háaleitisbraut 34 Þorbjörn Númason, Höfðaborg 44 Þorvarður Pétur Jóhannesson, Álftamýri 30 Ferming í safnaðarheimili Lang- holtssafnaðar kl. 2 sunnudag 28. marz. Stúlkur: Guðrún Ágústa Jónsdóttir, Skeið- arvogi 69. Guðrún Sigurðardóttir, Goðheim- um 11. Margrét Halldórsdóttir, Fögru- brekku 15, Kópavogi Sigríður Einarsdóttir, Skeiðarvogi 143 Sigrún Ásta Kristinsdóttir, Sól- heimum 40 Soffía Sveinsdóttir, Sigluvogi 9 Þórama Valg. Pálsdóttir, Siglu- vogi 7 Piltar; Ármann Sigurðsson, Goðheimum 17 Halldór Gíslason, Efstasundi 74 Magnús Viðar Helgason, Gnoða- vogi 58 Sigurður Ólafsson, Álfheimum 60 Sigurþór Baldursson, Nökkva- vogi 7 Sigþór Haraldsson, Sigluvogi 13 Yngvinn Valdimar Gunnlaugsson, Gnoðarvogi 30 10.30. Prestur: síra Árelíus Níels- son. Stúlkur: Alima Guðmundsdóttir, Nökkva- vogi 30 Anna S. Sigurjónsdóttir, Lindar- götu 42 Guðrún F. Finnsdótdr, Bústaða- bletti 3 Guðrún Hjartardóttir, Ásgarði 73 Jóhanna Jóhannsdóttir, Grundar- götu 17 Kristín Harðardóttir, Álfheimum 26 Kristín Möller, Vesturbrún 24 Sigríður Guðlaugsdóttir, Austur- brún 33 Sveinbjörg Guðmarsdóttir, Lauga- vegi 72 Piltar: Amar Sverrisson, Gnoðarvogi 28 Axel G Ólafsson, Sogabletti 4 Ámi . Björnsson, Skipasundi 60 Ásgeir H. Ásgeirsson. Háaleitis- braut 43 Bjöm I. Ohristensen, Álftamýri 54 Einar Ingimarsson, Sólheimum 34 Kristinn St. Jóhannsson, Efsta- sundi 6 Ólafur Örn Jónsson, Sólheimum 35 Samúel Ingvason, Álfheimum 42 Sigurður R. Sigurðsson. Langholts vegi 24 Sigurður St. Pálsson, Sólheimum 30 Stúlkur: Berglind Ingibjörg Bendtsen, Sörlaskjóli 52 Edda Sigurðardóttir, Hagamel 33 Guðbjörg Guðbergsdóttir, Sörla- skjóli 56 Guðrún Geirsdóttir, Nesvegi 49 ■ Hlíf Þórarinsdóttir, Garðastræti 16 Hrefna Teitsdóttir, Bræðraborgar- stíg 8 Ingibjörg Eir Einarsdóttir. Sörla- skjóli 92 Jakobína Hjördís Gröndal, Fram- nesvegi 18 Klara Baldursdóttir, Ægissíðu 84 Oktavía Guðmundsdóttir, Lyng- haga 28 Ragnheiður Haraldsdóttir, Ægis- síðu 48 Ragnheiður Sara Hafsteinsdóttir, Mímisvegi 4 Þóru..n Pálína Þórisdóttir, Greni- mel 6 Drengir: Björn Pálmar Sveinsson, Tjarnar- stíg 3 Eyjólfur Hjaltason, Melabraut 44 Helgi Bachmann, Bjargi, Seltjarn arnesi Jóhann Sævar Óskarsson, Sólbergi Seltjarnarnesi. Jóhannes Jens Kjartansson, Laug- arteig 11 Jón Ilrafnkelsson, Tjarnarstíg 6b Kjartan Kjartansson, Lynghaga 24 Kristján Jóhannsson, Tómasar- haga 25 Framhald á 14. síðu Fermingarbörn Langholtssafn- Neskirkja. Ferming 28. marz aðar sunnudaginn 28. marz kl. I kl. 11. Séra Jón Thorarensen. FERMINGARSKEYTASÍMI RITSÍMANS I REYKJAVÍK ER 06

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.