Tíminn - 31.03.1965, Side 8

Tíminn - 31.03.1965, Side 8
. rrtaagBfMi-ÍT'. MI»*IKUDAGUR 31. mar/. 1965 8 TÍMINN Búfjúrræktaráhugi mik- ill i S. - Þingeyjarsýslu MINNING Björg Sigurðardóttir frá Hánefssföðum Rætt við Teit Björnsson, bónda á Brún. Meðal fulltrúa á nýloknu Búnaðarþingi var Teitur Björnsson, bóndi á Brún í Reykiadal I Suður-Þingeyjar- sýslu. Teitur er sonur Björns Sigtryggssonar hins kunna bónda og félagsmálamanns í Þingeyjarsýslu fyrir nokkrum áratugum. — Eg hitti Tcit að máli áður en hann hélt heim af Búnaðarþingi og spurði hann frétta úr héraði. Talið berst að tíð og árferði. — Árferðið er gott frá náttúrunnar liendi, segir Teit- ur. S. 1. vetur var sem kunn- ugt er snjóléttur og góður. Jörð greri og spratt miög snemma og spretta og nýting heyja varð góð. Þó varð háar tekjan lítil. í haust var væn- leiki sauðfjár góður, eða tölu vert betrí en síðustu ár, og nú eftir að verðhlutfall hefur verið breytt nokkuð sauðfjáraf urðum í hag, eru bændur í upp sveitum Þingeyjarsýslu að minnsta kosti bjartsýnni á sauðfjárrækt og mun hafa verið sett meira á af líflömb um í haust en venjulega. — Þín sveit ReykjadÞalir heldur í horfi um fólksfjölda? — Já, svo má segja. Fólk er þar heldur fleira nú en fyrir 4—5 árum. Að vísu hafa fáeinar jarðir farið í eyði, en þær eru afskekktar, og á seinustu missirum hafa B jarðir ekkí farið í eyði. Mý- vatnssveit heldur alltaf vel í borfi, og raunar Bárðardalur líka, þótt fremur muni fækka þar. Ein jörð fór þar í eyði í haust, en hún er í miðjum dal og skilyrði þar sæmileg svo að vonandi byggist hún fljótlega aftur. — Heiðin fram af Reykjadal er nú að mestu farin í eyði, er það ekki? — Jú. Þar er þó Stafn í góðri byggð og margbýlt, enda hefur þar verið myndarlega að unnið. Laugasel er enn í byggð, en hætt við að það fari í eyðí, þegar núverandi búendur þrýt ur. Þarna á heiðinni voru áður mörg býli, enda er landið þar vel gróið og fagurt og hið bezta sauðland. —Hefur ræktun veríð mikii s. 1. ár, — Já, hún var meiri en ár- in áður. Menn rækta líka orð ið töluvert af sérstökum fóður jurtum, t. d. fóðurkáli, sem mjög vel gefst að beita á haust in, ekki sízt til þess að auka þyngd sláturdilka. —Hvað var ræktunín mikil hjá ykkur s. 1. ár. — Á mælingasvæði okkar varð hún 322 hektarar og er það um þriðjungi meira en árið 1963, en þá voru mældir 209 ha. Framræslan er og all- mikii árlega, enda verður svo að vera. — Er súgþurrkun á flestum bæjum? Teitur Björnsson — Já, langflestum núorðið. Þó eru fáeinir bæir eftir. Á þeirri heyverkunaraðferð bygg ist orðið allt öryggi heyskap arins. — Vex mjólkurframleiðslan í sýslunni? — Já, hún vex alltaf heldur, einkum í lágsveitunum. Heíta mátti að við næðum grund- vallarverði fyrir mjólkina s. 1. ár í mjólkursamlaginu á Húsa vík. Birgðir hafa þó stundum veríð heldur miklar — Hvað er að segja um sauð fjárkynbætur í Þingeyjarsýslu núna? Er fjárræktaráhuginn iafnmikill og áður? — Hann er að minnsta kosti alltaf mikill. Eins og kunnugt er fóru fram fjárskipti í Þing- eyjarsýslu vegna mæðiveikinn ar á sínum tíma, og sums stað ar oftar en einu sinni, svo að gamli þingeyski fjárstofn- inn leið að miklu leyti undir lok eða blandaðist að minnsta kosti mjög. Við höfum veríð að reyna að bæta úr þessu með því að fá sæði úr hrútum úr Norður-Þingeyjarsýslu, en þar hafa fjárskipti ekki farið fram. Þetta hefur tekizt nokkuð vel. — En nautgriparæktin? —- Það er líka töluverð víð- leitni til kynbóta. Við sóttum jafnvel kyngóða nauíkálfa aust ur á Homafjörð Kúastofninn fer batnandi og meðalnythæð vex. Á sumrin fáum við sæði frá sæðingarstöð Eyfirðinga við Akureyri, og er það hagkvæmt bæði til þess að geta notað þau úrvalsnaut. sem þar eru, og eins tii þess að spara nautn hald hiá okkur En á vetrum getum við ekki treyst á þetta og verðum því að hai'a naui heima i sveitum. — Þið hafið fóðurbirgðafélög og allstranga forðagæzlu? — Já, svo hefur lengi verið. Hins vegar er forðagæzlan allt af vandamál. Menn beita enn talsvert sauðfénu, og nú er meira treyst á það, að nægar fóðurbætisbirgðir séu til í hér aðinu að vetrinum til þess að að mæta harðindum, heldur en að ætlast til, að bændur séu grónir í fyrningum. — Hve margt fólk er í Reyk dælahreppi? — Það losar víst 400 manns og hefur heldur farið fjölg- andi. Reykdælahreppur er með al fjölmennustu sveitahreppa landsins. Það er álit mitt, að hreppar þar sem búskaparskil yrði eru góð og aðstaða til félagslífs og samgangna einnig, eigi ekki á hættu fólksflótta, nái þeir ákveðnum fólksfjölda og hafí sæmilega fjölbreytni í félagslífi og atvinnuháttum Þannig er ástatt í Reykdæla- hreppi. Auðvitað er oítkur afar mikilvægt að hafa siíka menn ingarmiðstöð í miðri sveit, sem Laugaskóli er. Þar er byggðarkjarni, sem nærir á ýmsan hátt alla sveitina. Þar höfum við byggt vélaverkstæð ið Smára, sem er stórt og vob búið og hefur ágætum: möntt'' um á að' skiaa Þan/fá «renit>?> viðhald landbúnaðarvéla og bifreiða. Þar er einnig trésmíða verkstæði. og nú hefur K.Þ. reist þar verzlunarbúð Þarna er risin atvinnumiðstöð. I nánd við Laugaskóla höfum við reist bamaskóla sveitarinn ar og njótum aðstöðu til leik- fimí- og sundkennslu fyrir börnin í Laugaskóla — Eru nýjar byggingarfram kvæmdir ákveðnar á Laugum í sumar? — Já, þar verður enn að byggja við, enda er skólinn meira en fullsetinn Margir unglingar verða að hverfa þar frá á hverju hausti. Eínnig á að byggja nýja heimavist og skólastjóraíbúð við barnaskól- ann. Nýlega er iokið endur- byggingu gamab félagsheimilis á Breiðumýri, og mun það duga sveítinni nokkurt árabil. — Hvað er að segja um ve'sa málin? Vegur til Húsavíkur var áður víða lágur og snjóasæll, ' en fyrir nokkrum árum var j hafizt handa um endurbyggingu , hans með stórvirlrun: tækjum. og er nú búið ao endurbyggja i alllangar; kafla hans og eru þeir háir svo að þeir vevja sig vel fyrir -njóuni Hins vegar eru enn ógerðir sDottar all- víða milli hinna ný.iu vega- kafla og setur þar níður snjó Þess vegna notast nýja vega- gerðin ekkí sem skyldi enn á vetrurn i snjóatíð Mikil þörf er að r ijúka þessari vegagerð sem allra fyrst Hins vegar horl'ir nú beldiir þunglesa um það. því að undanfarin ár hef ur talsvert verið unnið t'yrii lánsfé úl á væntanleg tram- íög ríkisins. og verður nú að nota þau tii þes að greiða þær skuldir sagði Teitur að lokum Hinn 25. þ. m. lézt á Borgar- sjúkrahúsinu Björg Sigurðardóttir frá Hánefsstöðum í Seyðisfirði, |æplega hálf níræð að aldri. Björg var fædd á Hánefsstöðum 4. júlí 1870. Foreldrar hennar voru Sigurður bóndi þar, Stefáns son frá Stakkahlíð í Loðmundar- firði og kona hans, Sigríður Vii- hjálmsdóttir, Vilhjálmssonar frá Brekku í Mjóafirði — Stefán í Stakkahlíð var sonur Skíða-Gunn- ars Þorsteinssonar og því bróðir Þorsteins alþingismanns Gunnars- sonar á Hreinstöðum, og föður- bróðir séra Sigurðar Gunnarsson ar á Desjamýri og síðar Hallorms stað. Móðir Sigurðar á Háneísstöðum, kona Stefáns í Stakkahlíð, var Þor björg dóttir Þórðar Pálssonar, bónda á Kjarna í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði. Var BjÖrg þannig kom in af kunnum. þróttmiklum ætt- stofnum Björg ólst upp i foreldraranni að öðru en því að á unglingsárun um var hún um tíma á Hallorms- stað hjá Elísabetu frænku sinni, dóttur séra Sigurðar. Haustið 1891, 31. októbér, gift ist Björg Vilhjálmi Árnasyni Vil- hjálmssonar frá Brekku í Mjóa- firði. Voru þau hjónin systkina- börn. Eftir giftinguna hófu þau búskap á Hánefsstöðum í sambýli . ýjð foreldra henhar, og bjuggu þar 'tvö sín fyrstu búskaparár. Þaðan fíuttu þau að Hofi í Mjóafirði ' og bjuggu þar þrjú árin næstu. Vorið 1896 fluttu þau að Hánefs stöðum aftur og bjuggu þar sam fellt fulla fjóra áratugi. Þegar þau létu af búskapnum settust þau að hjá Hjálmari syni sínum bæjar fógeta á Seyðisfirði. Vilhjálmur lézt 22. febrúar 1941 en Björg dvaldi eftir lát hans áfram hjá Hjálmari til æviloka Á Hánefsstöðum ráku þau Vil- hjálmur og Björg umfangsmikinn búskap, bæði til sjós og lands, einkum var sjósóknin umfangs- mikil og erilsöm. Heimilið var mjög fjölmennt ö vertíðum, 50 manns eða fleira þegar mest var sjósóknin (3 vélbátar og 2 róðr arbátar) en á öðrum tímum árs um 20 rnanns. Sjósókninni og bú- störfum utanhúss stjórnaði hús- bóndinn með áhuga og fjöri, en innanhúss stjórnaði húsfreyjan einnig með fjöri en jafnframt með iagni. rósamri fectu oa skörungs skap. Björg SigurðardóttL var meðal- kona á vöxt, glaðleg o.a fjörleg að ásýnd, röskleg i fasi. og kven íegu atgjörví búin ú hverja grein. Hún var greind kona og athugul i bezta lagi. ákveðin og einörð í skoðunum og létt til máls og við- ræðna. Hún íylgdist vel með öll- um atburðum sinnar samtíðar og var stálminnug á liðna tíð lengst af tii æviloka. Minning hennar mun lifa í þakklátum huga allra þeirra. sem henni kynntust. þótt horfin sé hún af sviðinu. Útför Bjargar verður gjöro á Seyðisfirði. Börn Bjargar og Vilhjálms eru: Sigurður, sýslunefndarmaður á Hánefsstöðum Árni f. v. erindreki a Seyðis- t'irði. búsettur Reykjavík. Hermann erindreki á Seyðisfirði. Þórliallur, skipstjóri (dáinn). (Ijálmar ráðuneytisstjóri. Sigríður, húsfreyja í Egilsstaða- þorpi. Sigríður skrifstofustúlka, Reykja vík. 30.3. 1965. Halldór Stefánsson. Björg á Hánefsstöðum er látin. Hún andaðist á Borgarsjúkrahús- inu aðfaranótt síðastliðins fimmtu dags á nítugasta og fimmta ald- ursári. Svo löng er leiðin að baki, viðburðarík vegferð í hópi margra samferðamanna. Það var kyrrð yfir síðasta áfang anum, ævikvöldinu. Síðasta fjórð- ung aldurs síns dvaldi Björg lengst af á heimili þeirra Hjálm- ars og Sigrúnar. Við, sem þar kom um á þessu árabili og áttum tal við gömlú konuna, fórum af henn ar fundi snortin þeirri rósemi hugans, góðvilja og glaðværu fasi, sem svo mjög mótuðu framkomu hennar.. En sú var tíðin, að ekki hent- aði fyrir hana Björgu á Hánefs- stöðum að halda kyrru fyrir. Ung giftist hún manni sínum, Vil- hjálmi Árnasyni. Þá var að renna upp tækniöld hin minni á landi hér Vilhjálmur greip tækifærin fagnandi. Eldmóður hans og hans líka olli því, að umsvif og fyrir- gangur athafnalífsins var litlu eða engu minni þá en nú, á hin- um meiri vélvæðingartímum. Heimilisfólk á Hánefsstöðum var margt á búskaparárum Bjarg- ai og Vilhjálms. Margt var að- komumanna. Bjargræði var sótt jafnt til lands og sjávar. Um mesta annatímann var erillinn með ólíkindum. Við þessar aðstæður reyndi vissulega á hæíileika og þol hús- í'reyju. Hér þurfti marga munna að metta. Áríðandi var, að allir hefðu atlæti gott. Og það, sem ekki skipti minnstu: börnin þurftu síns með — öll sjö. Kunnugir vita, hvernig fór. Manndómur hinna mörgu afkom- enda talar sínu máli. Og mér eru í minni ummæli aldraðs bónda hér suður með sjó um langdvalir hans á Hánefsstöðum austur, og um húsfreyjuna sérstaklega. Bjart er yfir þeim minningum hans Fátt kemur fólki betur í stóru hlutverki langrar ævi en góð greind og heilbrigð viðhorf til samferðafólksins. Áhrif þeirra. Framhald á 14. síðn

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.