Alþýðublaðið - 08.07.1956, Síða 1

Alþýðublaðið - 08.07.1956, Síða 1
XXXVII. árg. Sunnudagur 8. julí 1956 163. tbl. ':::: :::: Það er óblandin ánægja öllurn bændum að koma ilmandi ferskri töðu inn í hlöður. Það, sem af 'er þessu sumri hefur þurrkur verið ágætur víða um land og mikil góð hey eru víða komin inn. Mynd þessi er tekin austur í Skálholti rétt fyrir hátíðina um síðustu helgi, en túnið þar var al hirt í vikunni fyrir. Bóndinn, Björn Erlendsson, ekur dráttarvélinni og það virðist ekki vanta verkafólkið þar ef dæma má eftir tjöldanum, sem í hevvagninum situr. Slík ferðalög má víða siá þessa dagana. — Ljósm. U.S. Þó að vélarnar þióti víða um rennislétta velli og snúi mörgum rifgörðum við í einu, má þó enn siá slíka sión, sem á mynd- inni þessari. Og alltaf finnst manni eitthvað þjóðlegt við þessa sjón. — Ljósm. Stefán Nikulásson. Refir hafa sjaldan eða aldrei verið eins ágengir og í vor. Hef- ur dýrið unnið óvenjulega mik- ið tjón með því að leggjast á fé og bíta. Hundruð lambsskrokka hafa fundizt við þau greni, sem unnin hafa verið. Tjónið, sem dýrin valda, skiptir því tugþús- undum. Bændur sáu snemma að við svo búið mátti ekki standa. Þess vegna hafa menn 74,59 íHelsingfors í fyrradag HELSINGFORS. Alþjóðlegt íþróttamót var haldið á föstu- dag á olympíuvellinum hér. Helztu úrslit urðu þessi: 1500 na hlaup: Vuorisalo 3.49,0, Nje- minen 3.50,4, Tidwell, USA, 1.50.6. 3000 m hlaup: Huttunen 8.24.6. Tripale C,25,8, Hankia 8.28,4, Mimoun, Frakklandi, 8.30,0. 400 m: Pearman, USA, 47.6. Stangarstökk: Andström 4,40 m, Piironen og Sutinen 4,20. Kúluvarp: Visk, USA, 16,88 m, Ijaes 15.94, Koivisío 15,88. Langstökk: Valkana 7,24. 400 m grindahlaup: Wittenberg USA 52.8, Mildh 53,1,. Spjót- kast: Nikkinen 74,59 m., Sillan- paere 73,40. SLÁTTUR er nú hafinn um allt land. Bændur á Suður- landi eru almennt byrjaðir að slá tún sín fyrir nokkru, þeir liafa ekki getað staðist svo ágætan þurrk, sem verið hefur und anfarna daga. Reynsla síðasta sumars kenndi bænduni, að hver dagur getur verið dýrmætur til að ná inn grænni töðu. Spretta hefur þó yfirlc itt verið slæm vegna óvenju mikilla kulda langt fram eftir vori. Túnasláttur hefst óvenjulega snemma í sumar, þrátt fyrir kuldana í vor. Þar, sem snemma var borið á túnin, er k-omin góð slæja. Sunnanlands eru víða komin mikil hsy í hlöður, er það allt nýslegin, græn taða og algjörlega óhrakin. Blaðið hefur hringt á ýmsa staði og spurzt fyrir um hey- skapinn. Erlendur í Dalsmynni: Sláttur hófst fyrir nokkru, þó er ekki eins vel sprottið og oft áður um sama leyti. Er það vegna kuldanna í vor. Snjór var mikill í fjöllum og víða er snjór ennþá niður í hlíðar. Hekla er til dæmis alhvít enn- þá, og austurfjöllin eru hvít ó- venjulega langt niður. Vigfús á Eyrarabakka: Sláttur hófst hér sérstaklega snemma, miklu fyrr en vant er. Er það mikið vegna þess, að menn báru snemma á túnin og auk þess var tíð hagstæð fyrir grassprettu þrátt fyrir kulda, snemma í vor. Karl á Hrauni (í Ölfusi): Flestir bændur hafa nú hirt mikil b^r. Síðustu viku var hér afbragðsþurkur, en í gær og dag hafa komið skúrir ofan í og spillt mikið fyrir. í Borgarfirði eru bændur víða langt komnir að slá tún sín, á Vestfjörðum hafa þeir orðið heldur seinni til, sömuleið ist Austfirðingar, þeir eru sem sagt nýbyrjaðir að slá, en á Norðurlandi er sláttur lengra kominn, sérstaklega inn með fjörðum þrátt fyrir kuldana í vor. Siglufirði í gær. VEÐUR er nú leiðinlegt á miðunum o<j afli tregur. Lítil síld hefur borizt á land hér und anfarna daga, enda virðist síld- in hafa færzt mjög austur á bóg inn. Fara flestir bátarnir bví til Raufarhafnar. SS. ALÞÝÐUFLOKKURINN og Framsóknarflokkurinn hafa báðir talið sér skylt, eins og viðhorf eru nu á stjórn málasviðinu, að kanna möguleika á myndun stjcrnar án þátttöku Sjálfstæðisflokksins. Hafa báðir flokkarnir tal- jj ið rétt, að formaður Framsóknarflokksins, Hermann Jón : asson, hefði forgöngu um það m.ál og stendur athugun ; hans á því nú yfir. Báðir flokkarnir hafa kosio nefntlir * til að fjalla um málið, en þessar nefndir eiga engar við l ræður við aðra flokka. : Forsaga þessa máls er sú, að föstudaginn 29. júní áttu • fulltrúar fyrir þingmenn Alþýðuflokksins og Framsókn ■ arflokksins, þeir Haraldur Guðmundsson og Gylfi Þ. Z Gíslason fyrir Alþýðuflokkinn, en Hermann Jónasson og : Eysteinn Jónsson fyrir Framsóknarflokkinn, fund með ■ tveim fulltrúm Alþýðubandalagsins, Hannibal Valdimars • syni og Einari Olgeirssyni. : . Á þessum fundi spurðust fulltrúar umbótaflokkanna ■ fyrir um það, hvort Alþýðubandalagið mundi vilja veita ■ minnihlutastjórn Framsóknarflokksins og Alþýðuflokks- » ins hlutleysi til þess að framkvæma stefnuskrá þessara : flokka í nánu samstarfi við alþýðusamtökin og bænda- ■ samtökin. ; Svar þeirra Hannibals og Einars við þessari fyr » irspurn var algerlega neitandi. Eftir þennan fund : skrifaði Hannibal Valdimarsson fyrir hönd Alþýðu ; bandalagsins bréf til Alþýðuflokksins og Framsókn ■ arflokksins og óskaði þess, að þeir tilnefndu menn í • nefndir til viðræðu um stjórnarmyndun. Ómökulegt er að segja um niðurstöður af athugun- ; um Hermanns Jónassonar á myndun stjórnar án þátttöku j Sjálfstæðisflokksins. Vitað er, að nokkur hluti Alþýðu- j bandalagsins er fylgjandi samvinnu við Sjálfstæðisflokk ; inn, svo sem sást á afstöðu þeirra til kæru Sjálfstæðis- ; flokksins til landskjörstjórnar en ekkert liggur fyrir um j að sú afstaða sé breytt. Talið er einnig, að Sjálfstæðis- ;! menn séu áfjáðir í slíka samvinnu. S Frægasli fimleikafiokkur Svía kemurog sýnirhér í næsfu viku Tveir fimleikaflokkar væntanlegir NÆSTKOMANDI míðvikudag koma hingað til Beykjavík ur 2 sýningarflokkar frá Stokkhólmi, fimleikaflokkur frá Fim leikafélagi KFUM og Vinum sænska þjóðdansins (Svenska folk dansens Vanner). Hafa flokkarnir hér tvær sýningar, verður su fyrri á miðvikudagskvöld í íþróttahúsinu við Hálogalandi og hin síðari á föstudagskvöld í Tívolí. Hingað koma flokkarnir á vegum 5 aðila, Norræna félags- ins, fþróttabandalags Reykja- víkur, og fimleikafélaganna þriggja, Ármanns, Í.R. og K.R. Flokkarnir standa hér aðeins við í 4 daga, en þeir eru í sýn- ingarferð um Noreg og Færeyj- ar. VÍÐFÖRULL FLOKKUR. Fimleikaflokkur KFUM í Stokkhólmi er annar þekktasti fimleikaflokkur Svíþjóðar, og er líklega sá víðförlasti, en hann hefur sýnt í nær öllum íöndum Evrópu, og einnig í Bandaríkf,- unum. Fer flokkurinn að ja.fu- (Frh. á 2. síðu.) leitað og lagst á greni til að reyna að vinna á varginum. í Ölfusi hafa tveir menn lagt til atlögu við refinn, þeir Karl Þorláksson á Hrauni og Konráð Einarsson á Grímslæk. Þeir fé- lagar hafa fengizt við< tófuna öðru hverju frá því snemma í júní og hafa unnið 5 gréni. í þeim náðust 30 dýr, aðallega yrðlingar, en 8 fullorðin dýr lágu í valnum. Greni þessi fund ust öll á Hellisheiði. Við bessi 5 greni fundust um 60 rytjur af lömbum og efalaust eru einnig beinagrindur inni í grepjunum. Karl gerir ráð fyrir því að mörg greni séu óunnin ennþá, en báð reynist mjög eríitt að finna þaú, enda er refurinn slunginn og beitir hvers kyns. brögðum, ef (Frh. á 2. síðu.) ;

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.