Alþýðublaðið - 17.07.1956, Page 1
Frá Samein'ðuðu
i Deilurnar um Skál- (
^ lioltshátíðina, ^
\
XXXVII. árf. Þriðjudagur 17. júlí 1956 159. tbl.
þjóðunum,
sjá 4. síðu.
Alykfun flokkssfjórnarinn-
ar um iilraunirnar tii
sfjórnarmyndunar
FLOKKSSTJÓRNARFUNDI Alþýðuflokksins lauk á
laugardag með samþykkt um stjórnmálaviðhorfið og
stjórnarmyndunartilraunirnar. Tóku til máls í umræðun-
um um þessi mál Guðmundur í. Guðmundsson, Magnús
Ástmarsson, Jón Sigurðsson, Áki Jakobsson, Haraldur
Guðmundsson, Steindór Steindórsson, Stefán Jóh. Stef-
ánsson, Jón H. Guðmundsson, Jón Axel Pétursson, Jón
P. Emils, Bragi Sigurjónsson, Magnús Bjarnason, Vigfús
Jónsson, Hálfdan Sveinsson og Gylfi Þ. Gíslason. Ályktun
fundarins, sem gerð var að umræðunum loknum, er svo-
hljóðandi:
„Með hliðsjón af niðurstöðu alþingiskosning-
anna 24. júní s.I. þar sem Alþýðuflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn unnu þrjú þingsæti samtals, en
fengu þó ekki hreinan meirihluta, fellst flokksstjórn-
arfundur Alþýðuflokksins haldinn 14. júlí 1956 á á-
lyktun miðstjórnar flokksins um þá tilraun til stjórn-
armyndunar, sem nú er hafin á grundvelli stefnuyf-
irlýsingar Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins.
Felur flokksstjórnin þingflokki og miðstjórn að halda
áfram viðræðum um stjórnarmyndun og að þeim við-
ræðum loknum að meta og taka ákvörðun um, hvort
til stjórnarsamstarfs skuli ganga.
Flokksstjórnin ályktar, að í stefnuyfiriýsingu rík-
isstjórnar, sem Alþýðuflokkurinn á aðild að, verði
f>ð byggja á kosningastefnuskrá Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins £ innanlandsmálum og að í ut-
anríkismálum megi ekki víkja frá áframhaldandi sam
starfi við Norður-Atlantshafsbandalagið og þjóðir
þess og framkvæmd ályktunar alþingis frá 28. marz um
varnarmálin. Ennfremur leggur flokksstjórnin á-
herzlu á, að flokkurinn taki að sér sem aðalmál at-
vinnumál og annað hvort félags- eða menntamál og
utanríkismál, ef til stjórnarmyndunar kemur.“
Ályktunin var borin undir atkvæði í tvennu iagi og
var fyrri hluti hennar samþykktur með 35 atkvæðum gegn
8, en tveir sátu hiá. Síðari hluti ályktunarinnar var hins
vegar samþykktur samhljóða. Var ályktunin síðan borin
upp til atkvæða í heild og samþykkt með 37 atkv. gegn 8.
Þeir, sem ekki greiddu atkvæði með ályktuninni í
heild, gerðu svohljóðandi grein fyrir atkvæði sínu:
„Er andvígur fyrri hluta tillögunnar, eins og
fram kom við atkvæðagreiðslu um hana, cn þar
sem meiri hluti hefur samþykkt að halda áfram við-
ræðum um myndun þriggja flokka ríkisstjórnar, tel
ég mikils vert, að flokksstjórn standi saman um skil-
yrði fyrir þátttöku í slíkri ríkisstjórn án mótatkvæða.
Greiði ég því ekkLatkvæði.“
Formaður flokksins, Haraldur Guðmundsson. sleit
fundinum með stuttri ræðu. Bar fundurinn vitni um eiri-
hug og samheldni og fóru umræður mjög vel og prúð-
mannlega fram. ....
Ouðlaug vakfi mikla afhygli á
j, íslemka skautbúningnum
200 fréttamenn, Ijósmyndarar, s|ón-
yarps og kvikmyndatökumenn biðti á
fíugvelli L. Beaeh er stúikurnar komu
MIKILL fjöldi fréttamanna, ljósmyndara, sjónvarps- og
kvikmyndatökumanna beið á flugvellinum í Long Beaeh, er feg
urðardísirnar komu þangað. Mun láta nærri, að þeir hafi verið
200 talsins. Var ferðalagið til Kaliforníu stúlkunum mjög erf-
itt. Er þess getið, að liðið hafi yfir eina stúlkuna á leiðiðnni,
Miss Pensylvaníu.
Nýtt bréf barst frá Njáli
Símonarsyni, leiðsögumanni
Guðlaugar, í gær. Er bréfið dag
sett 12. júlí, daginn sem komið
■var til Long Beach.
Njáli verður tíðrætt um það,
hve „prógrammið sé erfitt“.
Segir Njáll, að stúlkurnar hafi
verið „keyrðar áfram með svo
ströngu prógrammi, að þær hafi
varla haft tíma til þess að anda,
hvað þá meira“ (Frh. á 2. síðu.
Mokafli á austursvæðinu í aær
Nær 10 þús. tunnur saltaðar á Raufarhöln,
Björn Jónsson fékk 1600 tunnur í kasti.
' Fregn til Alþýðublaðsins. Raufnrhöfn í gær.
MIKILL afli hefur borizt hér á land sl. sólarhring. Hafa
verið saltaðar hér 10 000 tunnur á þeim tíma og er aþð mesta
söltun liér á svo skömmum tíma í fiölmörg ár. Geysimikil síid
virðist vera lit af Sléttu og hafa bátarnir fyllt sig þar á injög
skömmum tírna.
Milli 20 og 30 bátar hafa land | síldin því yfirleitt farið í dag
í bræðslu.
4 ára drengur varð
fyrir bíl og dé.
BANASLYS varð í Reykja-
vík á laugardaginn, um kl. 4,30.
Fjögra ára drengur, Sverrir
Gíslason, Úthlíð 11, varð fyrir
bifreið og slasaðist svo mikið,
að hann lézt á Landakotsspítala
daginn eftir. Slysið vildi til á
Háteigsvegi móts við Vatns-
geyminn og mun drengurinn
hafa verið að leikjum þar, en
ekki er fullljóst orðið, hvernig
slysið bar að höndum.
Flóð í Japan
TOKIO, mánudag, NTB-AFP.
Stór svæði í Japan og Kóreu
liggja nú undir vatni vegna
rigninga síðustu tvo sólar-
hringa, er mest líktust skýfalli.
Til þessa hafa 7 manns farizt í
Japan, 4.600 hús hafa farið að
öllu eða einhverju leyti í kaf og
30 hús hafa gjöreyðilagzt af
vatnsaganum.
að hér s.l. sólarhring. Hafa allir
verið með góðan afla. Björn
Jónsson fékk 1600 tunnur í sinu
kasti og átti mjög erfitt með að
innbyrða allan aflann. Fjölmarg
ir bátar voru með 1000 tunnur
og þar yfir.
FÓLKIÐ ÖRMAGNA.
Saltað var hér stanzlaust í
öllum söltunarstöðvum allan
sólarhringinn og var fólkið orð
ið örmagna, er söltuninni lauk.
Var saltað hér frameftir degi.
Var þá ekki lengur unnt að taka
í við meiru í söltun, og hefur
SÖLTUN YFIR 30 ÞÚS.
Heildarsöltunin hér nemur
nú yfir 30 þúsundum tunna en
bræðslan mun nema um 50 þús.
málum.
Frétzt hefur í dag um ágæta
veiði. Iiafa fjölmargir bátar
farið með síldina annað, þar eð
ekki hefur verið unnt að taka
við meiri síld í söltun hér. Hafa
bátar landað allt frá Eyjafirði
til Siglufjarðar. T.d. var Gull-
faxi að fara í annað sinn með
um 1000 tunnur til Neskaupstað
ar. Lítil veiði mun hafa verið á
vestursvæðinu í dag.
Álykiun flokksstjórnar:
Alþýðuflokkurínn fordæmir hinar
hrotlal. aðfarir kommúnista 1 Poznan
Lýsir yfir fyllstu samúð með kjarabar-*
áttu verkalýðsins í Poznan í Péllandi
og skorar á ASÍ að mótmæla. ofbeldinu.
FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR Alþýðuflokksins gerði álykt-
un í tilefni af hinum hrottalegu aðförum hinna kommúnist-
ísku stjórnarvalda í Poznan í Póllandi gegn verkalýðnum þar
í borg. Segir í þeirri ályktun, að Alþýðuflokkurinn mótmæli
harðlega þessum aðförum kommúnista og skorað er á stjórn
ASÍ að mótmæla þeim einnig.
Ályktunin fer hér á eftir:
„Alþýðuflokkurinn lýsir
fyllstu samúð með kjarabar-
áttu verkalýðsins í pólsku iðn-
aðarborginni Poznan og for-
dæmir þá hrottalegu einræðis-
aðferð, sem beitt var af kom-
múnistískum stjórnarvöldum,
er létu mæta óvopnaðri kröfu-
göngu verkafólksins með skrið
drekaárás og hrfðskotabyss-
um.
ÁSKORUN Á ASÍ.
Skorar flokkurinn á stjórn
Alþýðusambands íslands að
lýsa yfir samúð íslenzkra
■ ■
! 20.000 krónur áj
■ ■
16 dögum. \
■ ■
; - BLAÐINU er kunnugt um ;
; einn bát á síld fyrir Norður-•
j landi, sem á um 16 dögum I
: hefur aflað svo vel, að háseta:
• hlutur er kominn upp í ná- ■
j lega 20.000 krónur.
■ «
^■■■■■■■■■■■a ■■■■■■ «■■■■*■■■■■■-■■■■«
verkalýðssamtaka með frelsis-
og kjarabaráttu kúgaðra stétt-
arsystkina í Póllandi og mót-
mæla miskunnarlausum öf-
beldisaðgerðum atvinnurek-
endavaldsins, sem þar er í
höndum hinna kommúnistísku
stjórnarvalda.“
OTTAVIA, mánudag. Stjórn
Kanada er reiðubúin til að taka
þátt í allsherjarsamkomulagi
vesturlanda varðandi vopna-
sendingu til ísrael, ef af því
verður, segir kanadíska frétta-
stofan í dag. Enn er ekki full-
ráðið, hvort af slíku samkomu-
lagi verður, en fari svo, verður
það tilkynnt opinberlega fyrir
lok mánaðarins.
Slíkt allsherjarsamkomulag
mundi sennilega ná til fleiri
ríkja, en ekki er vitað hver rík-
in verða, sem aðilar gerast að
Argentínsk flugvél
ferst
BUENOS AIRES, mánudag.
Argentínsk Dakóta-flugvél fórst
síðarihluta dags í dag nálægt
Rio Cuarto í Cordoba-héraði og
fórust 14 farþegar og öll áhöfn-
in, f jórir að tölu. Flugvélin var
á leið frá Buenos Aires til Tu~
cuman, 960 kílómetra leið.
Björgunarsveitir hafa fundið
flakið og náð líkunum. Talið er,
að eingöngu Argentínumenn
hafi verið um borð.
samkomulaginu, ef af ver.ður.
Bandaríkin, Stóra-Bretland
og ítalía eru ríkin, sem vopna-
sendingar til ísraels snartir
mest. En skeyti kanadísku
fréttastofunnar segir, að önnur
ríki kunni einnig að verða með.
'Kanadíski forsætisráðherr-
ann, Louis St. Laurent, hefur
áður lýst því yfir, að Kanada
hugsi sér ekki að senda vopn íil
ísraels eitt saman, til þess: að
vega upp á móti vopnasending-
um kommúnistaríkjanna til
(Frh. a 2. síðu.) .
Samkomulag um slöðvun
vopnasendinga lil Israelsi