Alþýðublaðið - 23.10.1956, Qupperneq 1
-1 *
Faðir Súez-
skurðarins.
Sjá 4. síðu.
Kvennaþáttur
á 5. síðu.
S.
s
V
s
s
s
s
s
s
s
s
V
izzm árg.
Þriðjudagur 23. október 1956
242. tbl.
Atökin í Póllandi:
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
1 s
s
s
s
' s
s
s
V
s
s
s
' s
■ s
s
s
s
s
s
um
Reykjavík, 560 úfi á landi
Aðeins IÍ00 þús. kr. óráðstafað á
þessu ári til lána í Reykjavík
HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRN hefur aðeins 6,1 millj.
króna til ráðstöfunar til áramóta, að því er Haraldur
Guðmundsson skýrði frá í umraeðum um fjárlögin á al-
þingi í gær. Af þessu fé fá Reykjavík 1100 þúsund krón-
ur, eða sem svarar 50 þúsund krónum til 22 manna. Um
sækjendur í Reykjavík eru hins vegar 1740, svo að 1718
fá væntanlega ekkert á þessu ári!
Haraldur skýrði frá þessu og ýmsu fleiru sem dæm
um um viðskilnað fyrrverandi ríkisstjórnar í umræðun-
um um fjárlög á alþingi í gær. Frá því veðlánakerfið var
sett í gang hafa verið veittar 80 milljónir í slík lán, þar
af 25 milljónir í Reykjavík. Þrátt fyrir þetta hafa 1740
i Reykjavík og 560 utan Reykjavíkur euga úrlausn feng
ið.
Höfuðástæðan til þess, hve lítið hefur verið veitt af
iánum undanfarið, er sú að nálega öllu fé, sem ætlað
var til íbúðarlána allt árið, hafði þegar verið úthlutað
fyrri liluta ársins.
Pólsk blöð leggja áherzlu á, að ekki sé
um neina stefnubreytingu að
ræða í utanríkismálum
Bretar munu líta vopnuð afskipti Rússa
rnjög alvarlegum augum
VARSJÁ, MOSKVA, BUDAPEST, LONÓDN, mánudag
(NTB-AFP). Við kosningu í stjórnmálanefnd pólska kommún-
istaflokksins (pólitburó) um helgina var Gomulka kjörinn aðal-
ritari flokksins, en Rokossowski marskálkur og aðrir yfirlýstir
Rússavinir féllu við kosninguna. opinberir aðilar í Moskva hafa
enn ekki látið í ljós skoðun sína á þessum atburðum. Tassfrétta-
stofan skýrði aðeins frá því í stuttri fregn í dag, að Gomulka
hefði verið kjörinn aðalritari og birti sömuleiðis nafnalistann,
en hafði ekkert að segja um fall Rokosowskis.
Aðalmálgagn pólska komm-
únistaflokksins, Tribuna Ludu,
segir í forustugrein í dag, að
samband og vinátta Póllands
og Sovétríkjanna, sem sé grund
völluð á fullkomnu jafnrétti, sé
enn aðalhornsteinn stefnu Pól-
verja. Jafnframt liggur blaðið
Eisenhower, forseta Bandaríkj-
anna, á hálsi fyrir ummæli
hans í sambandi við atburðina
Slórt álak þarf tii að bæla fyrir óstjórn
íhaldsins í efnahagsmálunum
UMRÆÐUR um fjárlagafrumvarpið fóru fram í þinginu í
gær. Var umræðunum útvarpað eins og venja er til. Einsteinn
Jónsson gerði í upphafi fundar grein fyrir fjárlagafrumvarp-
inu og ræddi ástandið í efnahagsmálunum eins og það er nú eft
ir margra ára óstjórn íhaldsins og þá erfiðleika sem umbóta-
flokkarnir eiga nú við að etja til að koma fjármálunum aftur
í eðlilegt horf. Síðan töluðu fulltrúar hinna flokkanna og Har
aldur Guðmundsson fyrir Alþýðuflokksinn.
Haraldur Guðmundsson, for-
maður Alþýðuflokksins, flutti
. skelegga ræðu og komst meðal
annars svo að orði:
Af tekjum ríkissjóðs er áætl-
að, að um % hluti, ca. 120
millj., sé lagður á eftir efnum
og ástæðum, þ. e. tekju- og
eignaskatturinn; tekjur af sölu
tóbaks og áfengis eru áætlaðar
nokkru hærri, eða um 130
millj. En langmestur hluti tekn
anna, milli 400 og 500 millj.,
eru tollar og gjöld, sem lagðir
eru á neyzluvörur almennings.
: Vegur þar þyngst söluskattur-
inn 135 millj. og verðtollurinn
203 millj.
713 millj. er geysihá upphæð
jafnvel þótt tillit sé tekið til
þess, hve krónan hefur smækk
að undanfarin ár. Þó fer fjarri
því, að öll kurl séu komin til
grafar, þegar lokið er lestri fjár
lagafrumvarpsins. Hvorki báta-
gj aldeyrisálagið né gjöldin til
framleiðslusjóðs eru þar með
talin. Gjöldin til framleiðslu-
sjóðs eru á þessu ári áætluð um
140 millj. kr., samkv. lögum
frá síðasta alþingi, og ætla má,
að bátagjaldeyrisálagið nálgist
sömu upphæð. Hvorutveggja
þessi gjöld eru í eðli sínu
neyzluskattar, eins og ‘ önnur
innflutningsgjöld, þótt fyrrver-
andi hæstv. ríkisstjórn hafi
talið heppilegra að halda þeim
utan fjárlaga með það fyrir
Haraldur Guðmundsson.
augum að freista að leyna al-
menning þessum álögum og
hversu þeim er varið. Er það
von mín, að hæstv. núverandi
ríkisstjórn hætti slíkum felu-
leik, og að svo verði gengið frá
fjárlögum að þessu sinni, að
þar komi fram, hvað á er lagt.
10 000 Á HVERT MANNS-
BARN
Sé þessum upphæðum bætt
við upphæð fjárlagafrumvarps
ins kemur í ljós, að álögin á
landsmenn eru ætlaðar nokk-
uð yfir 1000 millj. króna, nokk
uð yfir 1 milljarð á næsta ári.
ár þá að sjálfsögðu miðað við
gildandi tolla- og skattalög-
gjöf og önnur lagafyrirmæli,
sem áhrif hafa á fjárlögin. Láta
mun nærri að fólk á starfsaldi,
karlar og konur, 16—67 ára séu
um 100 þús. á öllu landinu.
Nema því þessar álögur um
10 þúsund kr. á hvert manns-
barna, 16—67 ára.
Engar skýrslur liggja fyrir
um þjóðartekjurnar á þessu
ári, en ýmsir ætla að 3000 millj.
sé ekki fjarri lagi. Ef svo er
lætur nærri, að þriðja hver
króna fari í skatta og álögur til
ríkissjóðs, auk skafta til sveita
og hreppsfélaga :— og að ó-
gleymdri álagningu milliliða á
tollana og aðra neyzlu skatta.
(Frh. á 3. síðu.)
í Póllandi og heldur því fram,
að ekki sé nein ástæða til að
draga Pólland inn í amerísku
kosningabaráttuna. ,,Við erum
meðmæltir aðstoð og auknum
efnhags- og menningartengsl-
um við önnur lönd, en án póli-
tískra skuldbindinga,“ segir
blaðið. Segir blaðið, að ekki sé
um neina stefnubreytingu að
ræða í utanríkismálum. „Ef
einhverjir halda, að demókrati-
séringin og hinar pólitísku og
efnahagslegu umbætur tákni
fráhvarf frá leiðinni til sósíal-
isma og minni tengsl við önnur
sósíalistísk lönd, vaða þeir í
villu,“ segir blaðið enn frem-
ur.
HERFLUTNINGAR LITNIR
ALVARLEGUM AUGUM
Áreiðanlegar heimildir í
London skýra frá því, að Bret-
ar muni líta mjög alvarlegum
augum á vopnuð afskipti Rússa
í Póllandi. Eru stjórnmála-
Framhald á 3. síðu.
Mþýðusambands-
þing hefsl 20. nóv.
MIÐSTJÓRN Alþýðusam-
bands Islands hefur ákveðið
að Alþýðusambandsþing hefj-
ist þriðjudaginn 20. nóvem-
ber næstkomandi. Þingið verð
ur eins og síðast haldið í Fé-
lagsheimili KR við Kapla-
skjólsveg í Reykjavík. Þingið
sitja að þessu sinni 310—320
fulltrúar frá 160 félögum, eða
þar um bil. í þessum félögum
eru nærri 25 þúsund félags-
menn. Auk innlendu fulltrú-
anna sitja þingið nokkrir
gestir frá Alþýðusamböndun-
um á Norðurlöndum.
Forsæiisráðherra
Belgíu í heðmsókn
í Moskva.
MOSKVA, mánudag (NTB).
Van Acker, forsætisráðherra
Belgíu, og Paul Henri Spaak
utanríkisráðherra komu til
Moskva í dag í opinbera heim-
sókn ásamt nokkrum fleirum
úr stjórn Belgíu, að því er út-
varpið í Moskva skýrði frá í
dag. Bulganin, Mikojan, Shepi-
lov og fleiri tókmá móti þeim
á flugvellinum. Mikill mann-
fjöldi hyllti belgíska forsætis-
ráðherrann, er hann ók í opn-
um bíl um göturnar ásamt Bul-
ganin.
.!
Serhardsen boðið
lilEnglands
OSLÓ, mánudag (NTB). —
Brezka ríkisstjórnin hefur boð-
ið Gerhardsen forsætisráðherra
og konu hans til opinberrar
heimsóknar dagana 28. okótber
til 3. nóvember. Munu þau fara
nokkuð um England í ferðinni.
50-60 þús. Ijósmyndir gefnar
Héraðsskjalasafni Isafjariar
Það er Ijósmyndaplötusafn M. Simsons,
og eru elztu myndirnar frá árinu 1889
Fregn til Alþýðublaðsins, ÍSAFIRÐI.
M. SIMSON, Ijósmyndari á ísafirði hefur nýverið fært
Héraðsskjalasafni Isafjarðar að gjöf allt ljósmyndaplötusafn
sitt, — en þar er um að ræða á milli 50 og 60 þúsund plötur,
allt mannamyndir.
Elztu plöturnar eru frá árinu
1889, eða frá þeim tíma er
Björn Pálsson ljósm. hóf starf i
sitt hér, en M. Simson keypti
ljósmyndastofu hans ásamt
plötusafni.
Myndaplöturnar eru allar
skrásettar eftir nöfnum og
númerum, en þó er talið nauð-
synlegt að yfirfara þær og end
urskrá.
Hér er um hina merkustu
gjöf að ræða og er plötusafn
þetta hinn mesti fengur fyrir
Héraðsskjalasafn ísafjarðar.
Með þessari ágætu gjöf hefur
Simson ljósmyndari enn einu
sinni sýnt ísafirði vinarþel sitt
og ræktarserni.
BS.
Veðrið í dag
Norðan eða norðvestan
stinningskaldi; léttskýjað.