Alþýðublaðið - 29.11.1956, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 29.11.1956, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 29. nóvember 1956 274. tbl. XXXVII. árg. ð 25. bin ÚTFÖffS PÁLMA HANNESSONAR GERÐ í GÆR. ÚTFÖR Pálma Hannes- sonar rektors var gerð í gær. Fór fram minningarathöfn í há- tíðasal Menntaskólans, J»ar sem þeir fluttu ræður Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, og Kristinn Ármannsson, yfir- kennari, elzti kennari skólans, en sungið var „Integer vitae“ og Faðir andanna. Hjörtur Halldói-sson, söngkennari skól ans, lék sorgarlag. Síðan gengu kennarar, nem endur og gestir til Dómkirkj- unnar. Séra Jón Þorvarðarson jarðsöng. Mikill hátíðleika- bragur var á allri athöfninni, enda mikill harmur kveðinn að ástvinum, nemendum, sam- kennurum og öllum vinum þessa ágæta skólamanns. Hóf fyrir þingfulltrúa í kvöld FLOKKSÞING Alþýðuflokksins hélt áfram störfum í gær. Skiluðu nokkrar nefndir áliti. Stefnt er að því, að þiuginu ljúki í dag. Verður hóf fyrir þingfulltrúa í Iðnó í kvöld. Þingfundir hófust að nýju kl. 2 í gær. Skilaði þá blaða- nefnd áliti. Urðu miklar um- ræður um Alþýðublaðið leiðir til þess að efla það og stækka. RÆTT UM LÁGABREYTING- AR. Þá skilaði allsherjarnefnd á- liti en til hennar hafði verið vísað tillögum um allmargar breytingar á flokkslögunum. Samþykkt var að fresta endan legri afgreiðslu tillaganna um lagabreytingar og fela milli- þinganefnd að taka þær til at- hugunar milli flokksþinga. Þá skilaði fræðslu og mennta málanefnd áliti. Urðu allmiklar Olympíumefaregnið heldur á- fram á leikunum í Melbourne MikiII spenningur í flestum greinum. MELBOURNE, miðvikudag. (NTB-AFP). — Rússar, karlar og konur, náðu sér verulega á strik á Olympíuleikunum í dag. Kuts hlaut gullverðlaunin í 5000 m., þeir áttu þrjá fyrstu menn- ina í 30 km. göngu, laqunzem fékk gull í spjótkasti kvenna og rússneska liðið sigraði í nýtízku fimmtarþraut. Með þessu drógu Rússar verulega á Bandaríkjamenn í hinni óopinberu stigakeppni, sem menn fylgjast með af miklum áhuga. Banda- ríkjamenn létu þó ekki sitt eftir ligg.ja í dag, fengu þrjá fyrstu menn í 110 m. grindahlaupi, tvo fyrstu menn í kúluvarpi og urðu aðrir í nýtízku fimmtarþraut. Af Norðurlandaþjóðunum SPJÓTKAST KVENNA. umræður um álit nefndarinn- ar en afgreiðslu var frestað þar til í dag — Þingfundir halda áfram kl. 10 f. h. í dag. i Kosning í Sjó- mannafélagi s s j Reykjavíkur. ) STJÓRNARKOSNING ^ Sjómannafélaginu er hafin.ý i Fer kosning frarn daglega í( skrifstofu félagsins í Alþýðu h(úsinu frá kl. 3—6. Listi S ; stjórnarinnar er A-listi. r*^*^-*^“*>-*v*^,*^‘*x*^*> Veðrið í dag Allhvass eða hvass Suðaust- an, slydda og síðar rigning gekk Svíum bezt í dag. Þeir hlutu sín fyrstu gullverðlaun, er Lars Hall vann nýtizku fimmtarþraut, eins og hann gerði í Helsingfors 1952. Hinir tryggu áhorfendur, 100.000 að tölu, fengu í dag tækifæri til að hylla einn landa sinn sem' gullverðlauna- mann, en það var Shirley Strick land, sem vann 80 metra grinda hlaup kvenna á nýju heims- meti, 10,7 sek. 5000 M. HLAUP. Enska tríóið, Pirie, Ibbotson og Chataway hlupu með það fyrir augum að sigra Kuts. Hugðust þeir halda hóflegum hraða, en sigra á endahlaupum. Kuts sá þetta fyrir og hljóp með miklum hraða og með ó- teljandi smásprettum. Hljóp hann Bretana alveg af sér og hlaut önnur gullverðlaunin á nokkrum dögum, en hann var áður búinn að sigra í 10 km. hlaupinut Hann setti ólympíu- met, 13:39,6. Pirie varð sterk- ari en Ibbotson á endasprett- inum og fékk silfrið. Chata- way, sem lengi hélt í við hann, varð að slaka á eftir 3000 m. I spjótkasti kvenna var búizt við tvöföldum sigri Rússa, en Framhald á 2. síðu. NMO-þingmenn sýna afstöðu Islands vinsemd og skilning Þrír fulltrúar íslands á fundi þing- manna frá Atlantshafsrík]unum í París MIKIL VINSEMD í garð íslendinga og fullur vilji á að skilja sérstöðu okkar í ýmsum utanríkismálum kom fram í sambandi við fund þingmanna frá Atlantshafsbandalagsríkj- unum, sem haldinn var í París í síðustu viku. Skýrir Benedikt Gröndal alþingismaður svo frá, en hann var þar fulltrúi fyrir íslands hönd ásamt Ásgeiri Bjarnasyni og Jóhanni Hafstein alþingismönnum. Benedikt skýrði svo frá, að I_ á ísland hafi verið minnzt í al ™i;:|Í|ÍÍSSÉilli#iSllll*lI mennum umræðum um banda lagið, og hafi enskur þingmað ur beint þeirri áskorun til ís- lenzku fulltrúanna, að þeir gerðu grein fyrir afstöðu ís- lendinga. Flutti Behédikt því ræðu á fundinum og gcrði grein fyr- ir afstöðu íslands í stórum dráttum. Tók hann fram, að yfirgnæfandi meirihluti al- þingismanna væru fylgjandi §§! áframhaldandi þáttöku ís- lands í Nato, en gerði síðan grein fyrir þeirri sérstöðu, sem ísland hefði meðal banda lagsþjóðanna, þar sem það *> ' , . * væn ovopnað og oskaði ekki eftir erlendum hér á friðar- tímum, Benedikt kvað samn- inga nú standa yfir milli ís- lands og Bandaríkjanna, en sambúð þeirra landa væri góð og framkoma hersins á ís- landi góð, svo að ekki væri þar að finna ástæður til þess ágreinings, sem upp hefði komið. Loks gat Benedikt um erfiðleika Islendinga í markaðsmálum og sagði, að Benedikt Gröndal Atlantshafsríkin hefðu ekkert gert til að greiða úr þeim vanda, stundum þvert á móti, en Sovétríkin hefði hins veg ar keypt vaxandi magn fiskj- ar og væru ein stærsta við- skiptaþjóð Islendinga. Máli * íslendinga á þing- mannafundinuna var mjög vel Framhald á 2. síðu. FuIIveldíshátíð Þórarinn Björnsson I. desember. Þórarinn Björnsson skóla- meislari flyfur aöalræöuna Fjórir fræðimenn fjalla um fram- tfð ísiendinga. FULLVELDISDAGSINS, 1. desember, verður minnzt að vanda á laugardaginn kemur. Stúdentaráð háskólans hefur nú fyrir hönd háskólastúdenta ákveðið alla tilhögun hátíðahald- anna og mun Þórarinn Björnsson skólameistari á Akureyri flytja aðalræðuna af svölum Alþingishússins. Hátíð háskólastúdenta hefst sinni en síðast flutti Halldór með messu í kappéllu Háskól- Laxness aðalræðuna og var ans kl. 11 árdegis og þar préd- hann þá nýbúinn að fá Nóbels Engar áætlanir um flulning brezkra herja frá Súei Hluti framska hersins aftur á móti fluttur burt eftir komu júgósíavneska fiðsins. PORT SAID og NEW YORK, miðvikudag. (NTB-AFP). Dönsk liðssveit með 200 mönnum fór inn í Port Said í dag til þess að sameinast norsku liði, sem þar hefur verið um viku tíma. Samtímis var tilkynnt, að yfirmaður liðs sameinuðu þjóðanna, Burns hershöfðingi, væri kominn til Port Said, til þess að taka á móti júgóslavnesku herdeildinni, sem kom til borgarinnar seinna í dag. ikar séra Jón Auðuns. Aðalræða dagsins, hátíðai’æð an verður flutt af svölum Al- þingishússins ef veður leyfir og fara háskólastúdentar þá í hópföngu frá skóla sínum inn á Austurvöll. Þórarinn Björns son flytur ræðuna að þessu verðlaun. Þórarinn Björnsson skóla- meistara þarf ekki að kynna fyrir lesendum biaðsins, hann hefur verið skólameistari Menntaskólans á Akureyri í Framhald á 7. síðu Franski fulltrúinn í alls herjarþingsinu í New York sagði í dag, að Frakklandi mundi fiytja á brott hluta af liði sínu brott frá Port Said eftir að júgóslavneska liðið væri komið. Yfirmaður brezlca hersins í Egyptalandi sagði í dag á blaðamannafundi í Port Said, að ekki lægju fyrir neinar á- ætlanir um’, að brezkur her yrði fluttur á brott þaðan. Danska liðssveitin verður sett niðúr, þar sem norsku og dönsku herdeildirnar eig'a að verða í landræmunni milli brezk-frönsku herlínuna og herlínu Egypta fýrir sunnan Port Said. Mun herinn sjálf- sagt bvrja að taka við þessum stöðvum í dag: Kuidaúlpur með sjáifiýsandi slysa- varnamerkjum, FATAVERKSMIÐJAN Hekla á Akureyri hefur ný- lega fest kaup á slysavarna- merkjum, sem fylgja eiga öll- um kuldaúlpum barna frá verksmiðjunni. Þessi merki eru sjálflýsandi í myrkri og hafa erleifdis þótt mikiivægt framlag til slysa- vai'na. Foi’,ráðamenn verksmiðj- unnar skilja mikilvægi þessara merkja og vilja á þennan hátt leggja sinn skerf til úrbóta í þessu efni.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.