Alþýðublaðið - 29.11.1956, Síða 4

Alþýðublaðið - 29.11.1956, Síða 4
AlbÝSublaglg Finuntudagur 29. nóv. 1956. Útgefandi: AlþýCuflokkurina. Ritstjóri: Helgi Sæmundason. Fréttastjöri: Sigvaldi Hjálmarwon. BlaSamenn: Björgvin GuSmundaaton og Loftur Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Emilia SaTE.úelsdÓttil. Ritstjómarsímar: 4901 og 4802. Afgreiðslusfmi: 4900. AJþýðuprentsmiðj an, Hrarfisgðtu 8—10. •y V y J \ \ 5 s s \ 1 I Skoðun íslendinga ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefur undanfarið birt ummæli nokkurra manna um Ung- verjalandsmálin í tilefni af atburðum síðustu daga þar austur frá. Var tilmælun- um um álit á þeim beint til skálda og rithöfunda, sem vitað er, að aðhyllast rót- tækar stjómmálaskoðanir, en hafa ekki tekið virkan þátt í baráttunni um dæg- urmálin. Sjónarmiðin eru auðvitað fleiri en eitt og fleiri en tvö, en aðalatriðin í niðurstöðunum eru þessi: Áras Rússa á Ungverja er undantekningarlaust for- dæmd og hinum kúguðu vottuð samúð og aðdáun. Jafnframt gætir þess í rík- um mæli, að kommúnisminn hafi brugðizt og sé í dag al- ger andstaða þess, sem von- ir stóðu til af hálfu róttækra og frjálslyndra manna. Þetta er sama afstaðan og einkennir umræðurnar um Ungverjalandsmálin hvarvetna á Vesturlönd- um. Moskvukommúnist- amir einir reyna að afsaka og verja framferði Rússa. Fólkið rís hins vegar upp gegn ósómanum og lætur ekki skammta sér hugsun og afstöðu. Það dregur sjólf stæðar ályktanir af atburð unum og segir skoðun sína afdráttarlaust. Síikt er mik ill sigur fyrir málstað and Iegs frelsis í heiminum. A1 menningsálitið kveður upp sinn dóm. Og Islendingar eru sannarlega engin und- antekning í þessu efni. Þeir átta sig á fenginni reynslu og láta sér hana áreiðanlega að kenningu verða. Alþýðublaðið vill þakka þeim, er urðu við tilmælum þess um álit á atburðunum í Ungverjalandi. Tilgangur þess var sá að fá fram skoð- anir fulltrúa róttækra og frjálslyndra menntamanna. Það hefur tekizt. Og hér eft ir þarf enginn að vera í vafa um, hvernig íslendingar líta á þessi mál. Þeir eru blessunarlega fáir, sem treysta sér til að verja athæfi rússnesku hersveitanna í Ungverjalandi. Hugsandi fólki á íslandi dettur heldur ekki í hug að láta örlög Ung verja lönd og leið. Skriðdrek arnir í Búdapest hafa kaxm- ski sigrað um sinn þá vopn lausu en djörfu borgara, sem hvesstu augun á ofbeldis- seggina í stað þess að lúta þeim. En blóðbaðið þar er ó- .sigur Rússlands um allan hinn frjálsa heim. Afrek Vilhjálms ÞAU TÍÐINDI þykja mik- il og góð, að Vilhjálmur Ein arssöh skyldi reynast næst- shjallastur í þrístökki á Olym píuleikjunum í Melbourne. Þetta mun mesti íþróttasig- ur, sem íslendingar hafa ennþá unnið. Og vissulega er1 skemmtilegt til þess að hugsa, að æskumaðurinn, sem afrekið vinnur, er ekki aðeins mikill garpur í keppn inni á leikvanginum. Vil- hjálmur Einarsson nýtur ó- skiptrar hylli félaga sinna sem frábær drengur, gáfað- ur; reglusamur og sjálfstæð- ur: Það liggur í augum uppi, að afrek Vílhjálms sé eng- in tilviljun. Slíkur árangur naest því aðeins, að vinna og ástundun komi til. Vilhjálm ur Einarsson hefur sett markið hátt og lagt hart að sér. Þess vegna er hann til- valin fyrirmynd þeirrar ís- lenzku æsku, sem nú er að alast upp og erfir landið í náinni framtíð. Hann er sannur fulltrúi íslendinga- eðlisins. Stundum er sagt, að unga fólkið á íslandi ætti að vera öðru vísi en það er. Slíkt má sjálfsagt til sanns veg- ar færa, þegar einstök dæmi eru metin. En í heild er æsk an glæsileg, hraust, mennt- uð og vel undir lífsbarátt- una búin. Og þess vegna get um við fagnað atburðum eins og sigri Vilhjálms Ein- arssonar í Melboume. Bakarí. SúSarstúlka, helzt eitthvað vön, óskast strax. Uppl. í Hamrahlíð 25 eftir kl. 5 á daginn. STRELLA skyrtan skapar yður þá vellíðan, sem fylgir því, að vera v e 1 k læ d d u r Söngskemmtun í Gamla bíói NEMENDUR ítalska söngv- arans Vincenzo Demetz héldu söngskemmtun í Gamla bíói sl. föstudagskvæld við ágætar und irtektir áheyrenda. Á tónleik- unum komu fram 6 nemendur hins ítalska kennara, en hinn sjöundi, Jón Sigurbjörnsson, var veikur og varð að hætta við söng sinn. Fýrstur söng Hjálmar Kjart- ansson, bassi. Hann hefur mik- inn bassa ög góðan, en er dá- Iítið litlaus og ekki mikil til- þrif £ söngnum. Hins végar er röddin sem slík ágæt og má vænta góðs árangurameð meiri skólun. Sólveig Sveinsdóttir, sópran, söng næst. Hún hefur liðlega rödd á lægra registrinu, en virð ist ekki hafa fullt vald yfir rödd inni á hærri nótunum. Kemur þar líklega til fulllitil þjálfun, enn sem komið er. Þá söng Ólafur Jónsson, ten- ór. Hann hefur mjög háa rödd Árbók Sameinuðu þjóðanna 1955. ÁRBÓK Sameihuðu’ þjóð- anna — „The Yearbook of the United Nations“ — fyrir 1955 er nýlega komin út. í árbók- inni er skýr't frá öllum helztu málum, sem rædd voru innan Sameinuðu þjóðanna á árinu. Árbókin er 550 blaðsíður og fylgir henni góð efnis og nafna skrá. Þá er einnig nýlega komin út hjá Sameinuðu þjóðunum ný og endurbætt útgáfa af „Every- man's United Nations“, sem skýrir frá uppbyggingu stofn- unarinnar, sérstofnunum og skipulagi öllu innan samtak- anna. (Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar hefur söluumboð fyrir bækur Sameinuðu þjóð- irnar á íslandi). frá náttúrunnar hendi og syng- ur fyrirhafnarlaust með öllu. Röddin er svolítið mjó á efstu nótunum, en með meiri þroska og þjálfun eykst fylling raddar- innar vafalaust og verðum við þá búin að fá verulega góðan óperutenór, því að hann hefur „temperament* ‘. Næst söng frú Sigurveig Hjaltested, mezzósópran.. Hún hefur mjög þægilega rödd og sýnilega meiri söngreynslu en mörg hinna, enda skilaði hún verkum sínum ágætlega. RÖdd- in er sérlega mjúk á lægri nót- unum og lofar það góðu um framtíðina. — Tvísöngur henn- ar og Ólafs Jónssonar úr II Tro- vatore tókst ágætlega. Eygló Victorsdóttir söng því næst tvær aríur eftir Mozart og Rossini. Rödd hennar virðist ekki sérlega mikil, en hún hef- ur mikið vald yfir henni nú þegar og virðist „upplögð kól- oratúra“. Hún söng af mikilli gleði og kunnáttu og mjög músíkalskt. Eftir meira nám verður hún vafalaust hin ágæt- asta söngkona. Síðastur söng Hjálmtýr Hjálmtýsson, tenór. Röddin er ekki mjög mikil, en viðfelldin. Skilaði hann verkum sínum sómasamlega, en ekki af nein- um sérstökum. tilþrifum. Á vafa laust betur, við hann að syngja lýrik en óperu. Sem nemendatónleikar tók- ust þessir tónleikar alveg prýði lega. Með meiri skólun verða margir þeirra, sem þarna komu fram, vafalaust mjög góð við- bót við vaxandi söngvarahóp okkar. Láður.varla á löngu, áð- ur en hægt verður að færa upp flestar óperur hé með innlend- um köftum. G. G. Fjölmennur ungmennafund- ur um bindindismál í Keflavík Haídiö að tilhlutan góðtemplara o. fl. AÐ TILJHLUTAN góðtémplara og skólastjóra gagnfræða- skólans í Keflavík, héldu- Umdæmisstúka Suðurlands og Stúkan Vík í Keflavík, kvöldvöku og umræðufund um bindindismál fyrir nenxendur gagnfræðaskólans, í ungmennafélagshúsinu mið- vikudaginn 21. nóvember. Hermann Eiríksson æðsti- itemplar stúkunnar Vik setti 'samkomuna, lýsti tilgangi henn ar og bauð velkomna aðkomu- menn og heimamenn. Páll Kolbeins stjórnaði fund dnum og kynnti það sem fram fór. Þorsteinn J. Sigurðsson flutti ræðu, Emil Th. Guðjóns- son, 11 ára Reykvíkingur, lék nokkur lög á harmoniku, Marí- ús Ólafsson skáld las nokkur frumsamin kvæði, Sigríður iHannesdóttir söng gamanvísur, Sigurður Guðmundsson flutti á- (varp, Gísli Sigurgeirsson sagði áhrifaríka sögu um sorglegar af leiðingar áfengisneyzlu. Skólastjóri gagnfræðaskól- ans, Röngvaldur Sæmundsson, þakkaði umdæmisstúkunni og stúkunni Vík fyrir ágæt fræðslu- og skemmtiatriði. Að lokum flutti Páll Kolbeins stutt ávarp og kvaðst vona að þessi fundur mætti bera nokk- urn árangur. Á samkomunni voru um 200 ungmenni, stúlkur og piltar, á aldrinum 12—16 ára, og var mjög ánægjulegt að sjá hina prúðu framkomu þeirra og vak 'andi athygli á því sem fram fór.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.