Alþýðublaðið - 04.01.1957, Blaðsíða 7
Föstwrlagur 4, janúar 195 J
AlbvSublaVið
7
ÐRÖTIffáRI HÖl&RDS
(CHANDRA LEKHA)
Fræg indversk stórmynd. sem Indverjar hafa sjálfir
stjórnað og tekið og kostuðu til of fiár. Myndin hefur
alls staðar vakið mikla eftirtekt og hefur nú verið sýnd
óslitið á annað ár í sarna kvikmyndahúsi í New York.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
HGRFINN HESMUR
(CONTINENTE PERDUTO)
ítölsk verðlaunamynd í Cinemascope og með segultón í
fvrsta sinni að slík mynd er sýnd hér á landi. Myndin
er í eðlilegum litum og öil atriði myndarinnar ekta.
Sýnd kl. 7 og 9.
(Frh. áf 5. síðu.)
háídið, hefur hún fokið út í
veðúr og vind, er Ilaúrj'di'k;
snerist á þiugiriu gégii sínum
göhilu sámherjum frá Isa-
firði og gegn öllum þeim Al-
þýðhi'lokksmönnuhi, er enn
höfðu trú á honum — til
þess eins að þjóna kommún-
istum og fá þeim fleiri sæti
í stjórn AÍþýðtisambands-
ins.
RÁÐSTAFANIR I EFNA-
HAGSMÁLUM.
Við áramótin eru ráðstafan
ir ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum — til aðstoðar út-
veginum mest umtalaðar —
enda síðasta ráðstöfun stjórn-
arinnar. Að sjálfsögðu eru
skiptar skoðanir um ráðstafan
ir þessár og mörgum finnst
hárt að vinstri ríkisstjórn
skuli þurfa að leggja á svo
miklar álögur vegna útgerðar
innar. En hjá því verður víst
ekki komizt meðan togararnir
og bátarnir eru í einkaeign að
miklu leyti og þjóðnýting og
samvinnurekstur hefur ekki
leyst einstaklingsreksturinn
af hólmi. Híns vegar sjá allir
glögglega muninn á vinnu-
brögðum núverandi stjórnar
og íhaldsstjórnarinnar við
skattaálagninguna. Þess er nú
gætt, að nauðsynjavörur al
mennings séu ekki skattlagðar
svo að byrðarnar lendi ekki á
hinum lægst lanuðu. Og allar
ráðstafanirnar eru gerðar í
fullu samráði við stéttasam-
tökin. Áður meðan íhaldið
réði, var nauðsynjum al-
mennings ekki hlíft og ekki
var talið taka því, að ræða
við stéttasamtökin. Stefna í-
haldsins var einnig sú að
leyfa frjálsa álagningu, svo að.
vöruverð hækkaði ekki sí og æ
og bitnuðu skattar íhaldsins
því ætíð þyngst á alþýðu
manna. En stefna núverandi
stjórnar er að halda verðlagi
niðri og stöðva dýrtíðarskrúf-
una. Er það von allra, að rík-
isstjórninni verði vel ágengt
í viðureigninni við það við-
fangsefni sitt.
STÓKMÁLIN MARKA
SPOR.
Ríkisstjórnin hefur aðeins
setið skamma hríð við völd.
Það er því of snemmt að
dæma um það, hvort hún
reynist trú alþýðustéttunum,
og hvort henni tekst að fram
kvæma sósialistísk mál á ein-
hvern hátt. Dægurmál eins og
ráðstafanir þær, ér nýlega
voru gerðar til aðstoðar útveg
inúm, verða ekki skráðar í sög
unni sem áfangar á leiðinni
til sósíalismans. Fram-
kvæmd þeirra ein greinir þær
frá ráðstöfunum íhaldSins. En
stórmál eins og verðlagseftir-
lit, ríkisútgerð togara, endur-
skoðun bankamálanna og húsa
leigulög gata markað spor í
rétta átt. Þetta eru mál, sem
geta ef vel tekst til um fram-
kvæmd þeirra fært okkur
nær lokatakmarkinu — fram
kvæmd sósíalisma á íslandi.
Að því munúm við öll vinna.
Á því ári, sem hú ér a'ð
hefjast híða okkar jafnaðar-
manna — ungra sem gamalla
mikil og stór verkefni. Það
þarf að efla Alþýðuflokkinn
og hagnýta það uppgangs-
tímabil sein hafið er. Flokk-
urinn er á uppieið, það leyn-
ir sér ekki og þeSs vegna
ríður á að fylgja vel og ötul-
lega á eftir.
Ungir jafnaðarmenn munu
einbeita sér að eflingu ung-
hreyfingarinnar á hinu ný-
byrjaða ári. Á þann hátt
vinna þeir Alþýðuflokknum
mest gagn. Við skuíuni vona,
að starf okkar verði farsælt
og árangursríkt á áriuu, sem
er að liefjast. Við skul-
um vona, að starfið beri ár-
gangur fyrir unghreyfing-
una, fyrir Alþý'ðuflokkinn og'
alla íslenzka alþý'ðu.
V.-lsl. iræðimaður.
(Frh. af 3. síðu.)
lenzku byggðinni, og' fögnuðu
áheyrendur ræðumanni ágæt-
lega, enda var ræða hans prýð-
isvel samin og flutt; en um
myndirnar fóru margir þeim
orðurn, að þeir hefðu eigi séð
betri myndir frá íslandi. Að
lokinni hinni ánægjulegu sam-
komu var setzt að rausnarleg-
um veitingum í neðri sal kirkj-
unnar, og stóð Kvenfélag safn-
aðarins að þeim með venjuleg-
um myndarskap sínum.
Snemma á sunnudaginn var
efnt til samkomu á Elliheimil-
inu „Borg“, við ágæta aðsókn.
Flutti Steindór þar prýðilegt
ávarjD. en auk þess voru sungnir
þar íslenzkir sálmar og ættjarð
arsöngvar. ’í fjarveru sóknar-
prestsins, séra Ólafs Skúlason-
ar, hafði Richard Bech sam-
kömustjórn með höndum, og
þakkaði hann, í samkomulok,
Steindóri yfirkennara komu
hans á slóðir íslendinga í N.
Ðakota, erindi hans og mynda-
sýningar; kvað landa hans
myndu lengi og hlýlega minn-
ast koma hans, og bað hann
fyi’ir kærar kveðjur heim um
haf.
Laust fyrir hádegið á sunnu-
dagimr lagði Síeindór síðaii a£
stað til Winnipeg í fylgd með
þeim feðgum Haraldi Ólafssyni,
gömlum Akureýringi, og Einari
syni hans, en í gestivináttu
Haraldar hafði Steindór dvalið
að Mountain; greinarhöfundur
hafði hins vegar, eins og «ft
áður, notið gestrisni Eillheim-
ilisins „Borgar“ méðan haim
dvaldi í íslenzku byggðinni að
þessu sinni. í nafni okkar ferða
félaganna þakka ég löndum
okkar þar höfðinglegar og ást-
úðarlegar viðtökur og alla fyr-
irgréiðslu. En Steindór Stein-
dórsson hafði eigi aðeins verið
kærkominn gestur frændum
sínum og öðrum Islendingum
norður þar og í Grand Forks,
heldur einnig þeim öllum, er
honum kynntust. Með alþýð-
legri og frjálslegri framkomu
sinni hafði hann unnið hugi
manna, cg með erindum sínum
og myndasýningum kynnt ís-
land fræðimannlega og á
skemmtilegan hátt. Slík land-
kynning er um allt hin þakkar-
verðasta. Richard Beck.
(Frh. at 8. síðu.)
kúin, sem fóðraðar eru méffi
niiklu votheyi, getur spillzt a£
þessum sökum.
AUKIÐ GÆÐAMAT.
Þess má geta hér, að nýlega
var samþykkt á stjórnárfuiidi
Mjólkursamsölunnar, að
greiða bændum 15 aurumm
minna fyrir 3. flokks mjólk,
og 30 aurum minna fyrir 4.
flokk, en verið hefur. Mua
þessi ráðstöfun við það mio-
uð, að mjólkurframleiðendur
leggi enn meiri áherzlu á vörts
-vöndun, þar sem mikill vér'ð-
munur er á miólkurflokkun-
um.
Þess skal þó geta, að vot-
heysbragðið mun ekki valda
þessari ráðstöfun, enda muti
það ekki fella mjólkina í
lægri flokka.
Siprður Guðnason
(Frh. af 4. síðu.)
maður á ferð, sem skilað he£-
ur góðu dagsverki, ágætur
borgari og traustur íslending-
ur, sem í engu vill vamm sitt
vita.
Heill fylgi honum og ætt-
mennum hans. Vinur.
4'
Jólatrésskemmtun fyrir börn Alþýðuflokksfólks
verður haldin í Iðnó a morgun. laugard. kl. 3 e.b,
Sitt af hverju verður til ánœgju fyrir hörmn•
Aðgöngumiðar fást í flokksskrifstofimni, sími 6724
og 5020 — og kosta kr. 25,00.
ar-tf!
n
Ha*«e®aiaai!af9Ba«¥6 a §¥** s > «S¥'íí>i