Alþýðublaðið - 08.02.1957, Page 5
Föstudagur 8. febrúar 1957
AlþýgublajSlg
!*-*
i
Útgefandi:
Samband ungra jafnaðarmanna.
AN OG LÁN
Ritstjórar: Unnar Stefánsson.
Auðunn Guð'mundsSon.
Lárus Guðmundsson, stiuL theoL, frá ísafirði:
I ÞJÓÐVILJANUM s.l. laug-
ard. 2. þ.m. sá dagsins ljós með
kveinstöfum miklum, hugarfóst
ur ungkommúnista nokkurs. En
meðgöngutíminn var allt of
stuttur, og var afkvæmið allt
vægast sagt afar lasburða
og mjög vanskapað, enda vildi
þessi ungkommúnisti alls ekki
gangast opinberlega við af-
kvæminu, heldur feðraði það
með dulnefni, ,,Stúdent“. Þessi
nafnleysingi sér ekkert athuga-
vert við það að ráðast á mig
persónulega, án þess að gefa til
kynna nafn sitt. Lítilmennskan
og heigulshátturinn eru á svo
háu stigi hjá honum, að hann
þorir ekki að koma fram í dags-
Ijósið, heldur lætur mannorðs-
leysi Þjóðviljans hylma yfir sig.
SKILJANLEGT HUGLEYSI
Hugleysi þessa ungkommún-
ista er ósköp skiljanlegt, hann
heldur að baráttuaðferðir jafn-
aðarmanna séu þær sömu og
kommúnista, þ.e.a.s. að ráðast
fyrst og fremst á þann er verk-
ið vinnur og níða hann niður,
en forðast allan efnislegan mál
flutning. Hann vill sem sagt
sízt af öllu gefa höggstað á sér
með því að gangast við gerðum
sínum, því að óefað á hann ann-
að óhreint í pokahorninu en.
heigulshátt og heimskulega ó-1
nákvæmni í meðferð stað-
ireynda. Ef til vill er þetta ein-
hver, sem blíðast brosir við mér
á götu, en hugsar um leið
manna fláast. Greinin en þó sér
staklega nafnleysið gefa slíka
manngerð til kynna.
En kjarni þessa máls er sá,
að hér er um hreinræktaðan
kommúnista að ræða, sem slær
fyrir brjóst af öllu lýðræðis-
lofti eins og hann sjálfur gefur
fyllilega í skyn ög er þá ekki
við neinu góðu að búast, því að
í þeirra herbúðum helgar til-
gangurinn meðalið.
Grautarháttur og tornæmi
þessa Þjóðviljadrengs kemur
strax greinilega í ljós í unohafi
greinarkornsins. auðvitað eftir
dálítinn formála, bar sem því
er meðal annars haldið óbeint
fram, að kommúnistar séu
miklu fremri andstæðinsum
sínum. einkanlega jafnaðar-
aðarmönnum, hvað andlegt at-
gervi snertir, þó að sreinaró-
myndin gefi manni hið gagn-
stæða til kvnna.
Það hefur alltaf verið svo, að
ungir menn hafa viljað sýna
öðrum hvað í þá er spunnið og
vekja athygli annarra á því með
ýmsu móti. Þegar þes.l! löngun
hefir beinzt inn á brautir stjórn
mála, þá hefur ungum mönnum
oft hætt til að hneigjast til
öfga. Útlistuð fræðikerfi öfga-
flokkanna hafa oft haft undra-
verð kitlandi áhrif á ístöðulitla
og óharðnaða unglinga og þeim
hefur fundizt framsetningin
vera djörf og karlmannskuleg',
og svo hafa þessi fræðikerfi
haft utan um sig eins konar
fræðilega og vísindalega
slikju, sem þessum ung-
lingum hefur fundizt vera
sprottin upp úr gáfnajarðvegi
einhverra geysilærðra manna,
og það hljóti því að vera gáfna-
merki að fvlgja kenningum
þeirra. Oftast fellur þessi
,,sjarmur“ eftir því sem menn
þroskast og menntast, og munu
þeir vera rnargir sem á ung-
lingsárum sínum hafa hneigzt
til einhverra öfgastefna í stjórn
málalegu tilliti. En þeir eru líka
nokkrir, sem aldrei forvitrast
og verða alla sína ævi bundnir
af minnimáttarkennd á bása
öfgastefnanna.
Fyrir heimstyrjöldina síðustu
var það mjög algengt meðal
ungra manna að vera annað
hvort nazisti eða kommúnisti,
og þótti þeim, sem slíka afstöðu
tóku, bera vott um menntun,
gáfur og skynsemi. En þegar
fræðihamurinn féll af nazism-
anum og hann sýndi sitt innsta
eðli í síðustu heimsstyrjöld með
fjölmörgum glæpum, og tilraun
um til þjóðarmorða, þá hvarf
bað fyrirbæri algjörlega, að það
væru nokkur meðmæli með
gáfnafari manna, að þeir væru
nazistar.
RÖÐIN KOMIN Af)
KOMMÚNISMANUM
Nú er röðin komin að kom-
múnismanum. Hann hefur svo
rækilega áréttað skyldleika
sinn við nazismann í starfsað-
ferðum, enda er einræðishug-
sjónin hátt skrifuð hjá báðum.
Er sárt til þess að vita, að það
skuli þurfa að kosta endurtekn-
ingu á margra ára kúgun og
fiölda mörg réttarmorð og nú
síðast blóðuga uppreisn í einu
fórnarlandi kommúnismans til
bess að oona augu almennings
fyrir skyldleika á starfsaðferð-
um þessara tveggja öfgastefna.
Það er staðreynd, sem þess-
um ungkommúnista þýðir ekk-
LÍTIL STULKA.
Lítil telpa
með tár í augum
situr við sjúkrabeð
i’öður síns.
Hún kreppir lófann,
svo neglurnar skerast í
hvítt holdið,
og hún hvíslar,
hásu, lágu hvísli:
Ef pabbi minn deyr, þá
lem ég guð . . .
Björn Bragi
' • i
ÍHefur fylgi komma|'
|í háskólanum hrapj
> að um50 j
i prósenf! i
S UNGKOMMI sá, er ritaði)
N grein í Þjóðviljann til svars*
) við samtali því, er hér birtist •
)við Lárus Guðmundsson ^
• stud. theol., virðist afburða^
^ góður reikningsmaður. A. m. )
• k. varð honum ekki skota- \
( skuld úr því að reikna Al- \
\ þýðuflokknum 40 atkv. í há- S
( skólanum. — Reikningurinn ) .
S var eitthvað á þessa leið:) !
)Sameiginlegur listi Fram-.)
)sóknar og krata fyrir nqjkkr-) j
) um árum hlaut um 120 atkv. •
) Framsókn hlaut 84 atkv. ein^
) ári síðar. Ergo: Kratar eiga 1
^mesta lagi 40 atkv. í háskól-)
^ anum. En er þá ekki bezt að )
^ halda reikningnum áfram og )
^ reikna út fylgi komma á)
( sama hátt: Þjóðvörn hlaut S
S 80 atkv. er hún bauð fram)
S ein síðast í liáskólanum. Sam ^
Sanlagt fylgi Framsóknar,^
SÞjóðvarnar og krata nemur^ 1
Sþá 204 atkv. (124 + 80 atkv.).(
)En listi allra andstöðuféla-ga)
)Vöku í háskólanum hlaut^
)264 atkv. sl. haust. EFTIR)
)eRU ÞÁ 60 ATKV. HANDAS
)kommúnistum háskól)
^ANS (264-7-204). )
Flestir munu hafa búizt)
)við fylgisrýrnun komma inn*
)an háskólans. En að það hafi-
) hrapað um 50% kemur^
S mörgum á óvart, þar eð ^
) kommar áttu yfir 120 atkv.^
) fyrir nokkrum árum. (
ert að neita, að það hafa orðið
straumhvörf meðal alls þorra
fyrrverandi stuðningsmanna
kommúnista innan Háskólans.
Það er reyndar ekki hægt að
benda á tölur þessu til sönnun-
ar, því að nú undanfarna vetur
hafa kommúnistar verið á sam-
eiginlegum lista vinstri stúd-
enta. Hitt er líka staðreynd að
á slíka lista hefur aldrei allt
mögulegt fylgi komið til skila.
Ástæðurnar til þess eru þær,
að kommúnistar hafa stórlega
tapað fylgi frá því, er þeir síð-
ast buðu fram einir og svo hitt,
að margir sannir íhaldsandstæð
ingar og andkommúnistar hafa
ekki séð sér fært að kjósa lista,
sem kommúnistar hafa staðið
að. En.þó hafa mestu straum-
hvörfin frá kommúnistum átt
sér stað nú í vetur EFTIR síð-
ustu stúdentaráðskosningar
vegna atburðanna í Ungverja-
landi. Þetta verður maður svo
greinilega var við í ræðum
manna á milli, og þetta liggur
svo greinlega í loftinu, að eng-
inn getur neitað því án þess að
vera sér þess meðvitandi, að
hann halli sannleikanum sér í
hag, enda eru orð ungkommún
istans í Þjóðviljanum ekki sann
færandi, því að hann er sér þess
meðvitandi, að hann er að berja
hausnum í steininn og hann sár-
verkjar undan sínum eigin
höggum. Að sjálfsögðu er ekki
hægt að benda á tölur um
fylgi andstæðinga íhaldsins í
Háskólanum, hvers íyrir sig,
þar sem um sameiginlegt fram-
boð hefur verið að ræða undan-
farin ár af þeirra hálfu. En hitt
er víst, að ekkert félag hefur
verið óðfúsara til sameiginlegs
framboðs en einmitt kommún-
istafélagið í skólanum. Þetta
bendir til þess, að kommúnistar
kæri sig ekki um að bjóða fram
einir af ótta við að sýna sitt
raunverulega fylgi. Þarf ekki
að koma neinum á óvart, því
að það sama hefur gerzt í lands
pólitíkinni: Kommúnistar hafa
ekki borað að bjóða fram einir
undir sínu rétta nafni. heldur
dregið yfir sig huliðshjálm og
efnt til bandalags við aðra
flokka.
Einnig má benda á í þessu
sambandi, að Stúdentafélag lýð-
ræðissinnaðra sósíalista var al-
veg reiðubúið til þess að koma
með sérlista við síðustu stúd-
entaráðskosningar, ef ekki
hefði náðst samkomulag um
sameiginlegt framboð vinstri-
félaganna.
Þó að kommúistar séu sífellt
að brigzla öðrum um svik við
vinstra samstarf í ríkisstjórn og
annars staðar og undirlægju-
hátt við íhaldið, þá eru stað-
reyndirnar þær, að þá hefur
alls ekki klígjað við að fallast
í faðma við íhaldið, og ætla ég
í því sambandi að benda á sam-
starf þeirra í Útgerðarráði
Hafnarfjarðar, nú nýskeð, er
þeir tóku höndum saman við í-
haldið um að bola framkvæmda
stjóra Bæjarútgerðarinnar frá
störfum, og ekki var annað eft-
ir en að skrifa undir málefna-
samning flokkanna um st.jórn
bæjarfélagsins. Einni« má minn
ast á, er þeir stiórnuðu Isafjarð
arkaupstað, sæÞsr minningar,
í sálufélagi við íhaldið. Enn
fremur eru öllum í minni
starfsaðferðir þeirra á Ak-
ureyri og Húsavík. — 9ömu-
leiðis eru fjölmörg dæmi, að
þeir hafa haft samstarf við í-
haldið í mörgum verkalýðsfé-
lögum, t.d. í síðustu Alþýðu-
sambandskosningum voru þeir
í slagtogi við íhaldið í Sveina-
félagi Matreiðslu- og Fram-
reiðslumanna (S.M.F.) og Lands
sambandi vörubifreiðastjóra.
i Huldumaður Þjóðviljans seg-
ir svo, að ég hafi haldið bví
fram, að íhaldið hafi tapað í
síðustu Stúdentaráðskosning-
um. Þetta eru helber ósannindi
og ekkert. annað, því að í við-
talinu ræði ég' um stúdenta-
ráðskosningarnar á þessa leið:
1 „Það er staðreynd, sem ekki
er hægt að neita, að Vaka vann'
sigur í síðustu Stúdentaráðs-
Itosningum . . .“. og ræði svo
um ástæðurnar til þess og nægir
að vitna til viðtalsins, hvað það
snertir.
Á hvaða þroskastigi er þessi
álfur Þjóðviljans, sem lætur
hafa sig til þess að fara með
svona greinileg og auðsannan-
leg ósannindi og staðlausa stafi?
Eiggja einhverjar taugar frá
■ honum til íhaldsins, eða því
þarf hann að grípa til ósann-
inda til þess að gera minn hlut
minni en íhaldsins stærri? Er
hann kannski kommúnistinn,
sem nú er, en áður var heim-
dellingur og barðist hinn um-
deilda 30. marz við óeirðarseggi
fyrir framan AlþingishúsiS?
'Skammt er öfganna á milli.
Þessi skriffinnur kommúnista
blaðsins ætti að vera minnug-
,ur málsháttarins um manninn
,í glerhúsinu, þegar hann segir
!að skrif mín hafi verið ,,hlægi-
leg og léleg áróðursskrif a f
aumustu tegund“.
Þjóðviljadrengurinn ta'iar
svo um lýðræðisloft innan gæsa
lappa eins og það sé eitthvað
bannsett óloft. En víst er þa.ð,
að þó að ekki nema litlu einu af
því væri veitt austur fyrir jám
tjald, þar sem hugsjón þessa
greinarhöfundar, kommúnism-
inn, er að grafa um sig, þá
mundi það verka sem ramm-
asta eiturgas á einræðishugsjón
ina, sem þar er haldið við lýði
jmeð aðferðum, sem ríktu x
svartasta myrkri miðalda.
Þá fvrst er þessi nafnlausi
ungkommúnisti fer að ræða um
' verkalýðsmál og heilindi kom-
1 múnista til núverandi ríkis-
stjórnar, þá sýnir hann, hversu
illa hann er byggður fyrir lýð-
ræðisloftslag og einnig hversu
sljór hann er að greina rétt irá
röngu.
(Frh. á 7. síðu.)
Alyktun stjórnar Félags ungr
jafnaðarmanna um varnarmá
Á STJÓRNARFUNDI Félags
ungra jafnaðarmanna, sem haltl
inn var lxinn 7. des. 1956, var
eftirfarandi tillaga samþykkt
einróma:
1. Stjórn Félags ungra jafnað
armanna lýsir yfir eindregnum
stuðningi við samþykkt þá um
varnarmál, sem gerð var á sein
asta þingi Sambands ungra
jafnaðarmanna, þar sem krafizt
er endurskoðunar á varnarsamn
ingnum í því skyni, að hinn
bandaríski her yrði fluttur á
brott úr landinu og íslending-
ar tækju að sér gæzlu og við-
hald varnarmannvirkjanna.
2. Stjórnin telur sig geta
treyst því, að samningar þeir,
sem nú hafa verið gerðir við
Bandaríkjamenn, tákni einung-
is stutta frestun á fullnaðaraí-
greiðslu þessara mála og ekld
komi til greina að auka her.o-
aðarframkvæmdir meðan her-
inn enn dvelst hér. Hún værd-
ir þess, að núverandi ríkisstjórn
megi í náinni framtíð takast að
leysa þetta mál á þann veg, að
alþýða manna geti vel við unað.
3. Stjórn F.U.J. skorar á unga
jafnaðarmenn um allt land, að
láta ekki niður falla baráttuoa
fyrir brottflutningi hins erlenda
herliðs. . \