Alþýðublaðið - 30.05.1957, Blaðsíða 5
IFimratudagur 3®. maí 1957.
A I þýgubtaSig
Ræða Friðjóns Skarphéðinssonar í eldhúsdagsumræðunum
a inais hafa verið mikil
erk.
í HERRA FORSETI. GÓDIR
HLUSTEN DUR. Andstæðingar
ríkisstjórnarinnar hafa í allan
vetur, bæði hér á Alþingi og í
blaðakosti sínum hamrað á því
æ ofan í æ, að Alþingi það sem
nú situr hafi verið með fádæm-
úm aðgerðarlítið og eftir það
liggi fátt eitt. Meðal ýmissa
knriárra hluta Hefur þetta verið'
árásarefni stjórnarandstæðinga
á núverandi ríkisstjórn og
flokka þá, er hana styðja. Eins
og flést annað, sem stjórnar-
. andstaðan hefur uppi í málflutn
ingi sínum gegn TÍkisstjórninni
og stjórnarflokkunum, er þetta
úr lausu lofti gripið bg gersam-
lega órökstuddar fullyrðingar.
Svo sem kunnugt er var ríkis-
stjórn sú sem riú situr mynduð
í juiílok 1956, aðeins tveim
máriuðum áður en Alþingi kom
saman.
Öll hin stærri mál ríkisstjórn
arinnar, sem Alþingi hefur haft
til meðférðar nú á þessu þingi
hafa þurft ærinn undirbúning
og hljóta allir að viðurkenna
það, að ríkisstjórnin gat ekki
þegar í þingbyrjun lagt fram öll
lagafrumvörp sín, enda mun
slíkt aldrei -hafa tíðkazt. Hins
vegar hefur verið unnið að því
sleitulaust af hálfu ríkisstjórn-
arinnar, og Alþingi hefur feng-
íð málin til meðferðar jafnótt
og þau hafa verið tilbúin, og
hefur það haft ærin verkefni
að vinna við meðferð og af-
greiðslu þeirra og ýmissa ann-
arra. Það er vissulega rétt, að
Alþingi hefur setið lengi að
þessu sinni, en það er ofureðli-
legt. Þetta er fyrsta þing eftir
kosningar og ríkisstjórn og Al-
þingi hafa stefnt að því að I
koma þegar á fyrsta þingi í
framkvæmd þeim stórmálum,
sem markar stefnu ríkisstjórn-
arinnar og stuðningsflokkar
hennar höfðu samið um áður en
ríkisstjórnin var mynduð.
Ég mun nú geta nokkurra
hinna veigameiri rnála, sem Al-
þingi hefur haft til meðferðar
á þessu þingi, sem sýna það
Ijóslega og sanna, að Alþingi
hefur ekki setið aðgerðalaust
í vetur, eins og Sjálfstæðis-
menn halda fram, bæði í ræðu
og riti.
ÚTFLUTNINGS-
SJÓÐUR.
Er þá fyrst að geta laganna
um útflutningssjóð o. f 1., sem
afgreidd voru fyrir jól og eru
hin þýðingarmestu eins og al-
þjóð er kunnugt. Óþarft er fyr-
ir mig að fara um þau mörgum
orðum. Fyrir efni þeirra og til-
gangi hefur verið gerð rækileg
grein, bæði nú við þessar um-
ræður og áður, en lagasetning
þessi er undirstaða þess að at-
vinnutæki og framleiðslutæki
landsmanna hafa vérið starf-
rækt viðstöðulaust í stað þess
að annars hefðu þau stöðvazt
með öllu um áramótin. Þessa
lagasetningu hafa Sjálfstæðis-
menn lagt sig fram um að ó-
frægja og tortryggja í augum
landsmanna, vegna þess að hún
hlaut óhjákvæmilega að hafa í
för með sér nýja skatta og milli
færslu á fé til atvinnuveganna
til þess að rekstur þeirra gæti
haldið áfram óhindrað. Þeir
hafa þó ekki bent á neina aðra
lausn á málinu, enga, alls enga.
Þeir virðast engar skoðanir
hafa um þetta aðrar en þær,
að tekjuöflun væri nauðsynleg
til atvinnuveganna, en þrátt'
fyrir það börðust þeir hatram-
lega móti þessari sömu tekjuöfl-
un af fullkomnu ábyrgðarleysi.
SKIPAKAUP.
Þá nefni ég.lög um heimild
fyrir rikisstjórnipa til •skipa-
kaupa, lántöku og sérstakra
ráðstafana í útgerðarmálum til
þess að stuðla að jafnvægi í
byggingu landsins. í lögum þess
um felst það, að rikisstjórn er
heimilað að kaupa og láta smíða
15 togara og 12 200—250 smá-
lesta fiskiskip. Hér er einnig
um að ræða mál, sem alþjóð
varðar. Orðið er þegar tíma-
bært að endurnýja togaraflot-
ann, en flestir togararnir sem
landsmenn eiga voru smíðaðir
á næstu árum eftir stríðslok og
sumir eru jafnvel eldri.
RÍKISÚTGERÐ TIL
ATVINNUJÖFNUNNAR.
Samhliða þessu er að sjálf-
sögðu nauðsynlegt að auka út-
flutningsframleiðsluna ár frá
ári. Á því byggist afkoma þjóð-
arinnar fyrst og fremst. Togur-
um þessum og fiskibátum verð-
ur ráðstafað til þeirra staða, er
mesta þörf hafa fyrir slíkan at-
vinnurekstur og hafa jafnframt
möguleika til slíks rekstrar. Er
þetta einn liður og hann ekki
óverulegur í viðleitni ríkis-
stjórnarinnar og stuðnings-
flokka hennar til þess að hamla
á móti hinum óeðlilegu og að
mörgu leyti óæskilegu þjóð-
flutningum, sem átt hafa sér
stað undanfarin ár til Suðvest-
urlands, þannig að við auðn
hefur legið á ýmsum stöðum.
Meðal annarra hluta felst í lög-
um þessum heimild fyrir ríkis-
stjórnina ti.1 þess að setja á
stofn ríkisútgerð togara, sem
leggðu afla sinn á land til
vinnslu þar sem ekki eru fyrir
hendi fjárhagslegir möguleikar
til að kaupa og reka togara.
ÚTFLUTNINGUR
SJÁVARAFURÐA.
Þá hefur Alþingi haft til með-
ferðar og afgreitt sem lög frum-
varp um sölu og útflutning sjáv
arafurða, sem felur í sér breyt-
ingu á því skipulagi sem hingað
til hefur gilt, og er í aðalatrið-
um þannig, að allur útflutning-
ur sjávarafurða verður undir
eftirliti sérstakrar útflutnings-
nefndar, sem fylgist með starf-
semi útflytjenda og hefur for-
göngu um öfluri markaða. í sam
bandi við sjávarútvegsmál má
enn nefna breytingu á lögum
um fiskveiðasjóð, um rýmkun
á hámarksupphæðum lána úr
sjóðnum og hámarksstærð
skipa, sem sjóðurinn lánar út á,
og ennfremur lög um Tunnu-
verksmiðju ríkisins, sem fela í
sér heimild fyrir ríkisstjórnina
til að endurbæta og fullkomna
þær tvær verksmiðjur, sem til
eru, og byggja þá þriðju á Aust-
ur- eða Norðurlandi, ef nauð-
syn þykir, og taka lán til þess-
ara framkvæmda. Er hér stefnt
að því, að allar tunnur, sem
síldarframleiðslan þarfnast,
verði smíðaðar hér á landi.
LANDBÚN ADARMÁL.
Þá hefur Alþingi haft til með
ferðar þýðingarmikla lagabálka
um landbúnaðarmál, og er þar
helzt að nefna lög um landnám,
ræktun og byggingar í sveitum,
en frumvarpið var samið af
nefnd sem endurskoðaði gild-
andi lagaákvæði um þessi efni.
Miða lög þessi að því meðal ann
ars að fjölga nýbýlum og
stækka tún á jörðum, þar sem
ræktun er skemmst á veg kom-
in.
Þá nefni ég frumvarp til laga
um búfjárrækt, sem er mikill
bálkur, og hafa hin eldri lög,
sem um þetta hafa gilt, verið.
endurskoðuð í ljósi nýrrar
reynslu. Lögin um lax- og sil-
ungsveiði hafa verið endurskoð
uð og Alþingi haft til meðferð-
ar frumvarp þar um og unnið
mikið og vandasamt verk í því
sambandi. Um landbúnaðarmál
sltal að lokum nefnt frumvarp
til laga um eyðingu refa og
minka, sem vonazt er eftir að
Friðjón Skarphéðinsson.
geti orðið nýr grundvöllur að
herferð gegn^þessum meindýr-
um. Snertir þetta ekki aðeins
vernd gegn kvikfénaði lands-
manna, heldur og vernd fugla-
lífs og fiska í ám og vötnum.
FÉLAGSMÁL.
í félagsmálum hefur Alþingi
haft ýmis mál til meðferðar.
Ber þar hæst frumvarp um hús
næðismálastofnun, byggingar-
sjóð ríkisins og sparnað til í-
búðabygginga. Húsnæðismála-
kerfi fyrverandi ríkisstjórnar
reyndist ekki þess megnugt,
svo sem kunnugt er, að leysa
húsnæðimálin til nokkurrar hlít
ar eða frambúðar. Samkvæmt
hinum nýju lögum um þetta
efni er stofnaður byggingarsjóð
ur ríkisins og honum fengið ríf-
legt stofnfé. Meðal annars
renna til hans % hlutar af
væntanlegum stóreignaskatti,
en Alþingi hefur nú fyrir
skemmstu samþykkt lög um
skatt þennan. Þúsundir manna
bíða nú eftir lánsfé í íbúðabygg
ingar, og var því óhjákvæmi-
legt að gera myndarlegt átak í
þessum efnum til þess að unnt
verði að bæta úr sárri lánaþörf
fjölda fólks. í húsnæðismála-
löggjöfinni er meðal annars á-
kvæði um skyldusparnað ein-
hleyps fólks á aldrinum 16—26
ára, sem ekki stundar skólanám.
Fé þetta er varðveitt í innláns-
deild byggingarsjóðs ríkisins og
er undanþegið tekjuskatti og
útsvari. Féð greiðist síðan út
með vöxtum og vísitöluuppbót
og veitir forgangsrétt til lána
til íbúðabygginga. Hér er um
algert nýmæli að ræða, og þess
ber að vænta að það gefist vel
og komi að tilætluðum notum
í framkvæmd. Samsvarandi á-
kvæði gildir um þá menn utan
kaupstaða og kauptúna, sem
leggja á þennan hátt fé í veð-
deild Búnaðarbankans.
Hér má geta þess, að á yfir-
standandi ári greiðir ríkissjóð-
ur 12 milljón króna framlag til
bygginga verkamannbústaða,
en á fjárlögum síðasta árs voru
tæpar tvær milljón króna í
þessu skyni.
Ýmis fleiri félags- og heil-
brigðismál hefur Alþingi fjallað
um á þesu þngi, svo sem frum-
varp til laga um vísitölu bygg-
ingarkostnaðar, sem afgreitt
hefur verið sem lög, breytingar
á olofslögum, bæði hinum al-
mennu orlofslögum, orlofi op-
inberra starfsrpanna og orlofi
iðrinema. Er þessu breytt til
samræmis við þá kjarasamn-
inga, sem gerðir hafa verið um
þessi efni fyrir tveim árum.
MENNINGARMÁL.
Þá hefur Alþingi haft til með
ferðar frumvarp um heilsu-
vernd í skólum og frumvarp
um breytingu á sjúkrahúsalög-
um, hvort tveggja mikilsverð
mál. Kirkju- og menningarmál-
um hefur Alþingi og ríkisstjórn
heldur ekki sýnt tómlæti. Frum
varp um kirkjuþing og kirkju-
ráð íslenzku þjóðkirkjunnar hef
ur verið afgreitt sem lög. Sam-
kvæmt því verður kirkjuþing,
háð annað hvert ár, og eiga þar j
sæti fulltrúar presta og leik-1
manna. Þá hafa verið samþykkt!
á Alþingi ný lög um dýravernd I
og hafa öll eldri ákvæði hér að
lútandi verið endurskoðuð, en
hin nýju lög eru öll betur úr
garði gerð ög yfirgripsmeiri. Þá
nefni ég frumvarp til laga um
Háskóla íslands, sem Alþingi
hefur haft til meðferðar, þar
sem gert er ráð fyrir að sam-
einuð verði í einn lagabálk 17
eldri lög, sem öll snerta háskól-
ann, auk þess sem þar eru mörg
nýmæli, sem áður höfðu aðeins
verið ákveðin í reglugerð eða
óbundin með öllu. Þetta er þýð-
ingarmikill lagabálkur um
æðstu menntastofnun þjóðar-
innar, og þess er vænzt að mál-
ið verði fullafgreitt áður en
þingið lýkur störfum.
Þá hefur Alþingi fjallað um
breytingar á lögum um
skemmtanaskatt og þjóðleik-
hús, þar sem gert er ráð fyrir
að tryggja félagsheimilasjóði
stórum auknar tekjur frá því,
sem verið hefur. Er til þess ætl-
azt að helmingur skemmtana-
skattsins renni hér eftir í fé-
lagsheimilasjóð, en hingað til
hafa það aðeins verið 35 af
hundraði. Ýmsar fleiri mikil-
vægar breytingar eru í frum-
varpi þessu.
Enn nefni ég tvö mál í þessu
sambandi. Eru það frumvarp
um menningarsjóð og mennta-
málaráð og frumvarp um vís-
indasjóð. Lögin um menningar-
sjóð og menntamálaráð voru
fyrst sett 1930 og voru stór-
merkt mál á sínum tíma. Tím-
arnir hafa breytzt og bar því
nauðsyn til að endurskoða þessi
lagaákvæði og þá einkum að
afla menningarsjóði aukinna
tekna til þess að honum yrði
gert kleift að rækja hlutverk
sitt. Undanfarið hafa tekjur
sjóðsins numið um 500—600
þús. króna á ári, en með hinu
nýja frumvarpi á að tryggja
að tekjur hans verði 2M> milij.
kr. á ári. Áf þeirfi upphæð eru
800 þús. kr. lagðar árlega til vís
indasjóðs, en hlutverk þess
sjóðs er að efla íslenzkar vís-
indarannsóknir, bæði á sviði
ruanvísinda og hugvísinda.
BANKAMÁL
Aö lokum skulu nefnd frum-
vörp þrjú um breytingar á
bankalöggjöfinni, sem1 ætlað er
að fái fullnaðarafgreiðslu næstu
daga. Breyting sú, sem mestu
varðar í þeim efnum, er ■ um
seðladeild Landsbankans. Hing-
að til hefur það verið svo, að
sama bankaráð og sama fram-
kvæmdastjórn hefur haft með
höndum stjórn seðlabankastárf
seminnar óg stærsta viðskipta-
banka landsins, Landsbankans,
Sú skoðun hefur verið uppi, að
ég ætla í öllum stjórnmála-
flokkum landsins, ■ að þetta sé
óheppilegt og óeðlilegt. Með
hinu nýja frumvarpi er stefnt
að því, að sérstök stjórn og
framkvæmdástjórn fari með
seðlabankamálin, en önnur
stjórn og framkvæmdastjórn
annist hina almennu viðskipta-
bankastarfsemi Landsbankans.
Það er að vísu skoðun mín og
margra annarra, að réttara
hefði verið að stófna sérstakan
seðlabanka, er orðið hefði banki
bankanna og ríkisins og ekki í
tengslum við viðskiptabanka.
En með hinni fyrirhuguðu
breytingu er stefnt í rétta átt í
þessum efnum, með því að gera
seðladeild Landsbankans að
sem sjálfstæðástri stofnun.
Þá er fyrirhugað að Útvegs-
bankinn verði herinn ríkis-
banki, og virðist sú ráðstöfun
ekki sæta andmælum stjórnar-
andstöðunnar. Samhliða þessu
er gert ráð fyrir því, að Sjájf-
stæðisflokkurinn missi meiri-
hlutavald sitt yfir stærstu bönk
um landsins. Hann á enga rétt-
mæta kröfu til slíks valds, þar
sem hann þvorki hefur meiri-
hluta meðal þings né þjóðar.
Slíkt vald eins flokks er óeðli-
legt og óheppilegt og til þess
fallið að vekja tortryggni, rétt-
mæta eða óréttmæta eftir atvik
um. Undan þessu kvartar stjóm
arandstaðan sárlega, en til þess
hefur hún enga réttmæta á-
stæðu. Hún fær sína hlutdeild í
stjórn bankanna eins og vera
ber, en hún fær ekki meirihluta
vald.
ÞINGMÁLIN MÖRG
OG MERK
Ég hef nú í örstuttu máli
drepið á æði mörg og mikilvæg
frumvörp, sem alþingi ?að, sent
nú situr, hefur fja.llað umy og
flest eru þegar orðin að lögurn,
en nokkur verða það væntan-
lega innan skamms. Auk þess
hefur alþingi fjallað um mik-
inn fjölda annarra mála, sean
ógerningur er að gera grein fyr
ir á skammri stund, Með þessu
vildi ég sýna frarn á, að það er
fullkomið öfugmæli, þegar þ';í
er haldið fram að alþingi háfi
verið aðgerðalaust eða aðgerða-
lítið, svo sem talsmenn Sjáld-
stæðisflokksins og flokksblöð
hans hafa viljað halda á loft.
Þvert á móti mun það máia
sannast, að á fám þingum hafl
verið fjallað um jafnmörg cg
þýðingarmikil mál, og eftir al-
þingi það, er nú situr, ætla ég
að liggi jafnmikil störf og mest
hefur áður þekkzt.