Alþýðublaðið - 07.07.1957, Qupperneq 4
Sunnutlagur 7. júlí 1957
£iþýgubiaglS
Útgefandi: AlþýCuflokkurinn.
Ritstjóri: Helgi Sæmundsson.
Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarssoo.
t Biaðamenn: Björgvin Guðmundsson ©g
Loftur Guömundsson.
Auglýsingastjóri: Emilía Samúelsdóttir.
!' Ritstjórnarsímar: 14901 og 14902.
Auglýsingasími: 14906.
Afgreiðslusími: 14900.
Frentsmiöja Alþýðublaðsins, Hverfisgðtu 8—10.
Jafnaðarmannaflokkar
ÞAÐ er í rauninni kunn-
ara e« frá þurfi að segja, að
áhrii jafnaðarmannaflokka
hafa verið geysimikil á
etjórnarfar og lifnaðarhætti
fólks í heiaúnum á undan-
förwum áratugum. Sérstak-
lega hefur þessa gætt veru-
lega í Evrópu, og ekki hvað
síet eftir síSustu heimsstyrj-
öld. Þessara áhrifa jafnaðar-
manna á stjórnarfar land-
anna hefur gætt verulega,
hvort setn jafnaðarmenn
voru vi$ völd eða ekki.
Það er einnig eftirtakan-
legt, að því sterkari sem
flokkar jafnaðarmanna
ern, því meiri kjölfesta er
í stjórnarháttum og ró í
hinanlandsmálum. Er þá
sama, hvort þeir halda að
mestu um stjórnartaum-
ana, eins og t. d. á Norður-
löndum, eða mynda ábyrg-
an, sívakandi stjórnarand-
stöðuflokk, eins og t. d. í
Englandi. Hitt er einnig
auðsætt, að séu jafnaðar-
mannafiokkarnir veikir og
sjálfum sér sundurþykkir,
er hætt við Iosi í stjórn-
málum landanna, stefnu-
leysi í innanlandsmálum
og oft og tíðum hreinni
upplausn. Þá er öfgaflokk-
um til hægri og vinstri op-
in leið til glundroðaverka
og vandræða, og sýpur þá
þjóðin öll seyðið af rótleys
inu fyrr eða síðar. Eru
dæmin um það deginum
Ijósari.
Það er einnig vitað mál,
að mest af þeim menningar-
verðmætum í landsháttum
og félagslegum umbótum,
sem þjóðfélögum er helzt
talið til gildis nú á tímum, er
runnið undan rifjum jafnað-
armannaflokka og verkalýðs
hreyfingar, sem skipulögð er
og starfrækt í föstum tengsl
um eða samvinnu við þá.
Svo mikils eru framkvæmdir
flokkanna metnar, að þótt
þeir missi völd eftir runnið
stjórnarskeið, dettur and-
stöðuflokkunum ekki í hug
að afnema né breyta í grund
vallaratriðum þeim félags-
legu umhótum, sem gerðar
voru á stjórnartímabilinu.
Sýnir þetta ljóslega, hvern
þegnrétt jafnaðarstefnan hef
ur unnið sér í hugum fólks,
og það langt út fyrir raðir
jafnaðarmannaflokkanna.
Sama er uppi á tening-
unum í íslenz.ku þjóðlífi.
Að vísu hefur íslenzki
jafnaðarmannaflokkurinn,
Alþýðuflokkurinn, aldrei
verið sérstaklega stór
flokkur, en áhrifa hans
hefur gætt á svo að segja
öllum sviðum þjóðlífsins
um áratugaskeið. Meira að
segja hafa allir stjórnmála
ílokkar á Islandi talið sér
mestan hag í því að taka
öðru hverju upp í sína
stefnuskrá niörg atriði úr
stefnuskrárliðum jafnaðar-
manna. Sérhagsmunaflokk-
urinn íslenzki, Sjálfstæðis-
flokkurinn, hefur iðulega
talið sér það helzt til gild-
is, að hann starfaði á grund
velli jafnaðarmanna á
Norðurlöndum. Þetta þýðir
í rauninni ekkert annað en
það, að Sjálfstæðisflokkur-
inn telur sér vænlegast tii
fylgis að þykjast fylgja
stefnu jafnaðarmanna. Hitt
er svo annað mál, að hér er
um blekkingu að ræða, en
sýnir þó glögglega, að
stefnumál jafnaðarmanna
finna mestan hljómgrunn
hjá fólkinu. Eins er um
kommúnista: Hafi þeir lagt
hönd á plóginn í landsmál-
um eða bæjarmálum, hafa
þeir einungis starfað á leið
um lýðræðissinnaðra jafn-
aðarmanna. Annars liafa
störf þeirra orðið til ó-
þurftar í íslenzku þjóðlífi.
Sú upplausn, sem ríkt hef-
ur í íslenzkum stjórnmálum
að undanförnu, á vafalaust
að meira eða minna leyti rót
sína að rekja til þess, að
flokkur jafnaðarmanna, Al-
þýðuflokkurinn, hefur ekki
verið svo stór sem skyldi í
samanburði við þau áhrif,
sem hann hefur haft á hugs-
■jaarhátt þjóðarinnar, stjórn-
málamanna og annarra.
Framkvæmd mála hefur lent
í höndum þeirra, sem ekki
kunnu skil á jafnaðarstefnu
né markmiði félagslega hugs
andi flokks. Það er því eng-
inn vafi á því, að það er ís-
lenzku þjóðfélagi fyrir beztu
=ins og nú horfir, að flokk-
ur jafnaðarmanna eflist sem
mest. Þannig mun komast á
jafnvægi og friðsamleg
vinnubrögð í stjórnmálum
landsins.
Allt bendir líka til þess,
að Alþýðui'lokkurinn niuni
á næstu árum eflast og
styrkjast. Mun þjóðin þá
komast að raun um, að það
verður henni til gæfu, eins
og reyndin hefur orðið á
annars staðar.
Auglýsið í A lþýðublaðinú
s
s
s
s
s
y
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
REYTINGUR AF REYF
~S Til margra hluta er plastið
notað. Nú er farið að nota það
í gleraugu, eða ætti maður kannske að segja
plastaugu. Meira að segja er talið, að 4 prós-
ent skýrari sjón verði með plasti í stað
glers, auk þess sem gleraugun verða helm-
ingi léttari, og með nælonspöngum verða
þau í raun og veru óbrjótanleg.
O Farið er að framleiða rakvélar,
“ sem dregnar eru upp eins og
úr. Þetta er svissnesk uppfinning og kall-
ast rakvélin Riviera. Aðeins þarf að draga
vélina einu sinni upp til þess að raka allt
venjulegt skegg, en séu menn ákaflega
skeggjaðir eða skeggrótin óvenju hörð,
þarf að draga fjöðrina upp tvisvar eða
jafnvel oftar. Fjöðrin er ekki lengri en
svo, að sex hálfhringir draga hana upp
að fullu og gengur verkið þá í rúíhar
tvær mínútur.
Lítið heyrist í þessari úrverksrakvél, og
geta menn því dundað við að raka sig með
henni, hvenær sem þeim gefst tóm til, án
þess að trufla náungann. Þessar rakvélar
eru alldýrar ennþá.
£> Enginn veit nákvæmlega tölu
*-* bókanna í enska safninu Brit-
ish Museum í London. Þó er talið, að um
5 millj. bindi séu í hinum tæplega hundr-
að kílómetra löngu hillum safnsins. Bvrjað
var að skrá safnið vísindalega árið 1931,
en eftir 21 ár komust fræðimenn að þeirri
niðurstöðu, að önnur 82 ár þyrfti til að
ljúka við bókaskrána.
Með sama hraða og nú er runnið að
skránni, verður hún ekki tilbúin fyrr en
árið 2036, og þá verður bókaskráin sjálf 200
bindi. Þá verður hillulengdin í safninu orð-
in 130 km.
4
Hún er búin að leika á ensku leiksviði meira
en 50 ár, en nú er hún allt í einu á gam-
ais aldri orðin kvikmyndastjarna. A nokkr-
um mán. hefur hún fengið meira borgað
fyrir leik sinn í kvikmyndum en á 50 ár-
um á leiksviði. Sjálf segir hún um þetta:
„Eg er alltaf af segia þeim, að þeir borgi
mér alltof mikið. Það er heint brjálæði í
samanburði við það, sem ég fékk áður!“
Skyldi nokkur leikaranna í Hollywood
láta sér slíkt um munn fara?
C? Nú er farið að framleiða hand-
*-* klæði, sem ofin eru eins og tafl-
borð, og geta baðstrandargestir því slegið
tvær flugur í einu höggi: Þurrkað sér á
þeim og teflt á þeim á milli.
/C 4.1gengasta kvenmannsnafn í
Bandarlíkjunum er Linda,
næstalgengasta María. Langalgengasta karl-
mannsnafnið er Jón, þá kemur Mikael. Nýj-
asta nafn, sem barn hefur verið skírt þar
vestra, er Nælon. Ekki er getið um, hvort
það er drengur eða telpa.
7Fyrir fimmtíu árum eða árið
1907, var ákveðið, að þjóð-
kirkjuprestar í Reykjavík skyldu vera 2,
dómkirkjuprestur og „annar prestur“. —
Þetta sama ár var ákveðið að leggja þrjár
nýjar götur í Vesturbænum: Öldugötu,
Bárugötu og Ránargötu.
Árið 1907 var byrjað að gefa út kristin-
dómsblaðið Bjarma. Þá var líka farið að
gefa út Lögbirtingablaðið.
8
Fyrir nokkru var sýnd hér á
landi kvikmynd, sem kölluð
var Konumorðlngjarnir. Frægiir leikarar
komu fram í henni, þar á meðal Alec Guin-
nes. Gömul kona lék aðalhlutverkið. Hún
heitir Katie Johnson og er 78 ára gömul.
3vo er það sagan um sendisvein
inn, sem hafði gerzt helzt til
fingralangur. Hann vann í stóru verzlun-
arfyrirtæki, og þegar upp komst um þjófn-
að hans, var málið tekið fyrir á stjórnar-
fundi. Þótt ekki væri um neinn stórþjófn-
að að ræða, þótti stjórnarmönnum málið
næsta alvarlegt. Framkvæmdastjórinn vildi
bera ögn í bætifláka fyrir drenginn og
sagði: „Þið ættuð nú að minnast þess, herr-
ar mínir, að við byrjuðum allir í smáum stíl“.
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
SVOKALLAÐ aukamót í
frjálsíþróttum með þátttöku
flestallra dönsku og íslenzku
landsliðsmannanna ásamt Finn
unum Oswald Mildh og Jukka
Piironen fór fram á íþróttavell
inurn s.l. fimmtudagskvöld.
Einnig keppti finnski methaf-
inn í kringlukasti kvenna á
mótinu, en hún heitir Inkeri
Talvitae.
HILMAR 10,4 SEK!
Þrátt fyrir hina erfiðu keppni
Hilmars í landskeppninni tókst
honum að hlaupa 100 metrana
á hinum frábæra tíma 10,4 sek,
sem er nýtt glæsilegt íslenzkt
met. Hlaup IJilmars var mjög
gott, a?I: frá viðbragði, hann er
í stöðugri framför, sérstaklega
er úL -ld hans prýðilegt. Gam-
an va i að sjá Hilmar í keppni
við BjJrn Nielsen hinn norska,
sem hlaupið hefur á 10,3 sek
í sumar.
VALBJÖRN A.r' m!
Annar stórvi'j' urður var
þetta árangursrí’- - kvöld, okk-
ar ágæti stangar stökkvari Val-
björn Þorláksson var mjög vel
upplagður, þó að byrjunin væri
ekki sem bezt, því að hann byrj
aði á því að fella 4,00 m. Að-
eins Valbjörn og Finninn Pii-
ronen komust yfir 4,15, en Val-
birni einum tókst að fara yfir
4,28 m. Nú var ráin hækkuð í
4,37 m, ný methæð. Valbjörn
undirbýr sig mjög vel og er vel
yfir, en stöngin felldi. í annari
tilraun gengur allt vel og Val-
björn fer vel yfir og þar með er
okkar ágæti Torfi ekki lengur
á metaskránni, því að Vilhjálm-
ur tók langstökksmet hans á
fvrri degi landskeppninnar. En
stangarstökkskeppninni var
ekki lokið enn. Hækkað var í
4,45 m,,en það er ekki oft, sem
evrópskir stangarstökkvarar
reyna við þá hæð. Valbjörn var
vel yfir þessari hæð í fyrstu
tilraun, en stöngin felldi, hinar
tvær tilraunirnar voru ekki eins
góðar. Gamla met Torfa var
4,35 m.
AÐRAR GREINAR.
Margar aðrar greinar voru
skemmtilegar og árangur mjög
góður, en sérstaka athygli vakti
sigur Péturs í 110 m grinda-
hlaupi og hinn góði tími hans
14,9 sek. 400 m grindahlaup O.
Mildh var mjög glæsilegt og
tíminn nýtt vallarmet.
Thyge Thögersen keppti í
3000 m hlaupi og sigraði létti-
lega á nýju vallarmeti 8:23,6
mín, sem er mjög góður tími,
þegar tillit er tekið til þess, að
hann hefur tvisvar tekið þátt í
10 km og 5 km hlaupi síðustu
5 daga.
Benny Stender sigraði Svav-
ar í 1000 m hlaupi, Stender er
mjög skemmtilegur hlaupari.
Varamaðurinn í kringlukast-
inu, Hallgrímur Jónsson, sigr-
aði iandsliðsmennina Friðrik
og Löve í kringlukastinu og
varð annar, en Munk-Plum
sigraði á nýju dönsku meti,
49,94 m. Skúli er orðinn nokk-
uð öruggur með 15,70 til 16 m.
Finnska stúlkan Talvitae
vakti mikla athygli, en hún
setti tvö vallarmet, hljóp 80 m
grindahlaup á 13,2 sek og kast-
aði kringlunni 45,32 m, sem er
aðeins 13 sm lakara en finnska
metið, sem Talvitae á sjálf.
ÚRSLIT: *
100 m hlaup.
Hilmar Þorbjörnsson, Á, I@,4
(ísl. met)
Vagn Koch Jensen, Danm. 10,8
Jörgen Fengel, Danm. 11,00
Höskuldur Karlsson, IBK, 11,0
1000 m hlaup.
Benny Stender, Danm., 2:29,2
Framhald á 2. síðu.