Alþýðublaðið - 16.10.1957, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 16.10.1957, Blaðsíða 10
10 AlbvðublaðlS GAMLA BÍO SimJ 1-1475. Viltu giftast? (Marry Me!) J. Arthur Rank-gamanmynd. Derek Bond Susan Shaw Sýnd kl. 9. ÍVAR HLÚ.TÁRN með Robert Taylor. Sýnd kl. 5 og 7. NÝJA BIO 11544 A I D A. Stórt'engleg ítölsk-umerísk óperukvikmynd í litum gerð eftir crmnefndri óperu eftir G. Verdi. Glæsilegasta óperukvikmvnd, sem gerð hefur verið, mynd, sem enginn listunnandi má láta óséða. Sýnd kl. 9. Síðasta sinn. HJÁ VONDU FÓLKI! Með Abbott og Costello. Sýnd kl. 5 og' 7. Bönnuð innan 12 ára. HAFNAR- Miðvikudagur 16. október 1957. ——m————— . ■ . J» Det spanske mesteryasrk Sími 50249- - mn; smitergennem taarer :N VIDUNDERUG FIIM FOR HEIE FAMIUE Þessi ógleymanlega mynd verður sýnd í nokkur kvöld ennþá kl. 7 o'g 9. AUSTUft- Maðurinn í skugganum . (Man in the Shadow) Mjög spennandi og viðburoa- rík ný ensk sakamálamynd. Aðalhlutverk: Zachary Scott Faith Doxnergue Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sítrí 16444 e Tacy Cromwell \ ' (On Ðesire) ( Hrífandi ný amerísk litmynd, { eftir samnefndri skáldsögu ( Conrad Richter’s. ( Aðalhlutverk: j Anne Baxter Rock Híidson Julia Adams Sýnd kl. 7 og 9. SONUR ÓBYGGÐANNA 1 Spennandi og skemmtileg amerísk litmynd. Kirk Douglas. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 5. Við erum öll morgingjar (Nous somme tous Asassants) Frábær, ný, frönsk stórmynd, gerð af snillingnum André Cayatte. — Myndin er ádeila á dauðarefsingu í Frakklandi. Myndin hlaut fyrstu verðlaun á GRAND-PRIX kvikmynda- rátíðinni í Cannes. Aðalhlutverk: Raymond Pellegrin Mouloudji Antoine Balpetré Yvonne Sanson Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. í WÓÐLEIKHOSID ‘Sími 32075. Sjóræningjasaga Hörkuspennandi amerísk sjó ræningjamynd, byggð á sönn um atburðum með: John Payne Arlene Dahl Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum. STJÖRNUem ísian 18936. Stúlkan í regni (Flickan i regnet) Mjög áhrifarik ný sænsk úr- valsmynd, um unga munað- arlausa stúlku og ástarævin- týri hennar og skólakennar- ans. Alf Kjellin Annika Tretow Marianne Bengtsson 3ýnd kl. 5, 7 og 9. Fjallið (The mountain) Heimsfræg amerísk stórmynd í litum, byggð á samnefndri sögu eftir Henri Treyat. Sag- an hefur komið út á íslenzku undir nafninu Snjór í sorg. Aðalhlutverk: Spencer Tracy Robert Wagner Sýnd kl. 7 og 9. Bönnuð innan 12 ára. Síðasta sinn. Ævintýrakonungurinn. Sýnd kl. 5. i Skírteini afhent í G.T- | húsinu í dag frá kl. 4 I — 7e. h. Samkvæmisdanskennsla fyrir börn, unglinga og fullorðna, — byrjun og framhald, :— hefst á laug- ardaginn kemur. Kennt verður m. a. nýj- asti dansinn, Calypsó. G.T.-húsinu á föstudag- inn kernur kl. 5—7. Upplýsingar og innrit- un í síma 13159. ERNEST GANN: —^•-•C«0#0*0»C*0«Q«C«í.«0«OéC-C«0#G*0»0«O«G«0»0«0*C*C«0á0<*0l T O S C A Sýning í kvöld klukkan 20. Fáar sýningar eftir. Horft af brúnni Sýning fimmtudag kl. 20. Horft af brúnni Kirsuberjagarðurinn Gamanleikur eftir Anton Tjechov. Þýðandi: Jónas Kristjánsson. Leikstjóri: Walter Hudcl. Frumsýning laugardaginn 19. október kl. 20. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13.15 til 20. Tekið á rnóti pöntunum. Sími 19-345, tvær línur. Pantanir sækist daginn fyrir sýningardag, annars seldar öðrum. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKniC Sími 13191. inhvöss tengdamatnma 70. sýning. ( í kvöld klukkan 8. Annað ár. Aögöngumiðasala eftir kl. 2 í dag. 0»O«O»O*O#'C«'♦7 »0 •0*0«0*G®GéC*0#C«C* éC*GéG«G»Gv C«CéG# RAGNARÖK :*0*0*0»0*C«0*0*0«0*'.__________ iGfc • :.•:. • _• i • g*o«c«g*c®C' Auglýstffi í AlþýðuhlaMnu 47. DAGUR. er honum varð reikað aftur. Þessar dælur voru manndráps- tæki við að fást. Jafnvel sá stóri og sterki Keim var allt of breyttur til að mæla orð frá vörum þegar skútan hafði loks verið dæld þurr. Sweeney hinn ungi hneig niður á þiliurnar og hafði ekki hreyft sig síðan, þrátt fyrir regndemburnar. Þeir voru eins og stein- dauðir menn eftir að hafa staðið við dælurnar í tvær klukku- stundir. Og vkist lekinn enn, mundi og verða að lengja tím- ann, sem dælt var, og Bell verkjaði svo í alla vöðva að hann spurði sjálfan sig hve lengi sér mundi endast þróttur til slíks þrældóms. Hann þurrkaði svitan og regnið af enni sér og brúnum og laut yfir kortaborðið. Hann var svo slituppgefinn að það tók hann nokkra st.und að greina augum allar þær grönnu línur og smáletruðu tölur á sjókortinu, sem sögðu dýpi hafsins í föðm- um, mismun, le.nsd og breidd: eða alla þá örsmáu punkta, sem gáfu til kynna hin óteljandi kcralrif og eyjar á þessum slóð- um. Allt, sem eitthvað átti skylt við land, var skini og far- manni fjandsamlegt og hættulegt, svo fremi sem staða skipsins var ekki nákvæmlega kunn. Og Bell varð að horfast í augu við þá staðreynd að staða skipsins yrði ekki nákvæmlesa ákvörð- uð eins og á stóð. Bell tók hringfara úr iárni af hillunni fyrir ofan korta- borðið og lét hann renna rnilli þreyttra fingra sér. Hann at- hugaði merki þau, sem hann hafði áður gert á kortið, og þegar voru liðin saga. Eins og iafnan hafði hann mikið yndi af stjarn- fræðilegum merkipgum sínum, enda lagði hann við þær mun meiri rækt en skipstjórar yfirleitt. I döeun síðastliðinn morgun hafði hann náð þríhyrnings- miðun af stjörnum og sannfærst um að skipið væri alllangt vestur af Fönixeyjunum. Línur þær, sem hann hafði dregið samkvæmt sextantmælingum af stjörnunum Sirius, Kapella og Rigel, mynduðu þröngan þríþyrning, sem sannaði að skútan væri átta mílum norðar, en hann hafði búizt við. Fijieyjarnar og Elliseyjarnar voru því alllangt suður af. Það leit út fyrir að einhver ókunnur straumur hefði ýtt undir með þeirri gömlu. Með nákvæmum stjörnumiðunum og miðun af sól við upprás og í hádeeisstað, þurfti hann ekki að óttast rif eða boða. Hann átti að geta tekið stefnuna það langt frá þeim að ekki stafaði af þeim nein hætta. En þetta var þó bundið bví skilyrði, sem ékki varð lengur uppfyllt, þar sem krónometrið var í lamasessi, að hann vissi ná- kvæman tíma. Annárs urðu stjörnumælingarnar óáreiðan- legar. Að vísu mátti samt trevsta Pólstjörnunni og Norðurstjörn unni að mestu levti, ,en á þessum slóðum voru þær svo neðar- lega á himni og skin þeirra svo dauft, að þær urðu vart greind- ar. Þetta gerði Kólumbus ekkert til, hugsaði jBell skipstjóri, en samt sem áður hafði Kólumbus villst svo langt. af leið að slíkt hefði engum liðist seinna meir. Slíkt kæruleysi í siglingu mundi chjákvæmilega hefnt sín á þessum slóðum, þar sem rifin út af Gilbertsevjum voru skammt vestur undan. Héðan í frá var það sólin í hádegisstað sem ein gat orðið honum undir- staða nákvæmrar staðar ákvörðunar bví að sem betur fór krafð ist su mæling ekki nákvæmrar tímaákvörðunar. En sú stað- arákvörðun sagði aðeins til um breiddarstigin, og þar sem eyj- ar voru bæði fyir austan og vestan siglingaleiðina reið mun meira á að vita nákvæmlega lengdarstigin. Bell geispaði. Almáttugur hve hann var þreyttur. Hefði hann mátt kiósa, mundi hann hafa.umsvifalaust. valið skútunni hundrað mílna breiða hafleið ð ákvörðunarstað, - þar sem ekki þyrfti að óttast sker eða rif. Þau voru mörg hin glaésilegu skip sem farist höfðu í slíku næturveðri, þegar rigriingin tók fyrir alla útsýn, svo að ekkert þýddi að láta menn standa vörð fram á, þar sem ekki sást fram fvrir bugspjótið, ÞaS var því allt of mikil áhætta að sigla. Hann varð að láta fvrir berast á nóttum en sigla aðeins á meðan bjart var, næstu vikuna að minnsta kosti. Færi svo að Davíð Bell missti enn skip, og hefði fyrir því að komast af, mundi hann sannarlega mega þakka fyrir að fá skiprúm sem óbreyttus háseti. Honum yrði aldrei framar falin stjón á skipi. Bell skipstjóri hallaði sér fram á borðið eitt andartak en hann gerði sér vonir um að hann mætti hugsa skýrara í myrkririu. Það var á þessari náttu, en ekki viku seinna eða hálf- um mánuði, að hann hlaut að taka ákvörðun um það,, hvernig hann skyldi haga siglingunni. Um allar strendur landa mátti sjá leifar strandaðra siglskipa og oftast mátti kenna skipstjór- unum, fremur en höfuðskepnunum, um að svo fór, vegna þess að þeir hcíðu dregið að taka sína ákvörðun um stefnu og sigl- ingu þangað til það var um seinan. Það kom allt of oft fyrir að skipstjórinn reiknaði ekki nógu langt fram, var kominn hættulega nálægt ströndinni þegar hann lenti í ládevðu og segl komu honum ekki að neinu haldi. Eða þá að sumir freistuðust til að sigla of lengi ef þeir fengu hraðbyri; skriðurinn var orðinn slíkur að beim var ógerningur að breyta um stefnu, iafnvel þótt þeir hölluðu skútunni svo að hún stingi ráarendunum í ölduna. Þeir sigldu því og sigldu og hugsuðu sem svo að annað hvort hlyti að draga úr stormin- um eða brevta um átt, vissu svo ekki fyrr en þeir voru komnir./ rfr -ir Jk KH^KI

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.