Vísir - 18.05.1919, Síða 2
v í SIR
iafa á lager:
í tuiinum
^185 st. hvítt
Gardlnutau
keypt beint frá
enskum verksmiöj-
um, uýkomið í
fallegu úrvali.
r
Egill Jacobsen
\\V
Atlandshafsflugið.
Amerísku flugskipin nr. 1 og
3 lögðu af stað frá Trespassy-
firði á Nýfundnalandi í Atlants-
hafsflug síðdegis í gær, en sneru
aftur og eru nú að ferðbúa sig
á ný.
Loftskip úr Bandaríkjaflotan-
um kom til St. Johns i gær og
hafði flogið frá Long-Island,
900 enskar mílur. Um kveldið
gerði vestanveður og barst þá
loftskipið út á sjó.
Lotískeyti
London í gær.
\WiIson og bandamenn ætla að
láta kné fylgja kviði.
Blöðin í París eru þess full-
trúa, að þjóðverjar muni undir-
skrifa friðarsamningana, þó að
J»eir hafi í hótunúm og mótmæli
skilmálunmn til málamynda. —
lil þess að vera við öllu búnir,
hafa þó fulltrúar stórveldanna
þriggja gefið Foch hershöfS-
iugja algerlega frjálsar hendur
og hann hefir þegar gert allar
nauðsynlegar ráðstafanir.
Á fundi, sem Foch átti með
Clemenceau, Lloyd George og
Wilson, gaf Wilson honinn þessa
skipun: „Gerið ráðstafanir, sem
nauðsynlegar kynnu að vera, ef
þjóðverjar vilja ekki skrifa
imdir.“
Frá Arkangelsk
vígstöðvunum berast þær frétt-
ir, að flotadeild Breta herji nú
sem óðast á bolshvíkinga.
Nýtt morð í Afghanistan.
Fregn hefir borist um það, að
Nasrullah Khan, föðurbróðir
amirsins í Afghanistan, hafi ver-
ið myrtur í fangelsi.
Kaupskip Austurríkis.
Aíráðið er, að skifta kaup-
skipastól Austurríkismapna upp
á milli bandamanna.
$
Townshend,
„hetjan frá Kut-el-Amara“, á
að sögn að taka við yfirherstjórn
mdverska hersins.
Friðarskilmálar Austurríkis.
Times segir, að Austurríki
verði gert að skyldu að afnema
herskyldu, og hafa að eins örlít-
inn landher. Vopnabúr sín á
það að rífa niður og þar á meðal
hergagnasmiðjuna miklu í
Skoda. ,
Jóh. Jóseísson
kominn heim.
Ef nokkura tslending mætti
með réttu kalla æfintýramann,
þá er það Jóhannes Jósefsson,
glimukappi. í samfleytt 10% ár
hefir hann ferðast erlendis og
komið til allra landa i Evrópu,
nema Balkanlandanna, og síð-
ustu sex árin hefir hann ferðast
um Bandaríkin og Canada.
það er engu likara, en í hon-
um sé endurborin hreysti og
hetjuandi Halldórs Snorrasonar
eða annara því likra kappa, sem
I sögur vorar herma frá, en fáiun
eða engum þóttu likindi til að
rísa mundu upp öðru sinni á'
íslandi.
í æsku vakti hann jafnaldra
sína eins og af dvala; um-
hverfis liann risu upp glímu-
menn hver um annan þveran og
íþróttaáhuginn í'ór eins og eldur
í sinu um land alt, þó að þess
sæi ekki alsstaðar jafnmikil
merki. • /
En Jóhannes sætti sig ekki við
að vinna sér frægð að eins
heima. Að fornum sið fór hann
úr landi til að leita sér fjár og
frama, og sigri hrósandi kemur
hann nú heim,' og hefir hver-
vetna haldið uppi sæmd og
hróðri lands vors, og værí það
alí mikilla frásagna vert.
Eg hafði ekki séð hann nema
j einu sinni áður; það var í Leith
Verslun B. H. Bjarnason
Heildsala. Smásala.
Fékk nú með „Lagarfossi“ og Gullfossi“ mestu kynstur af
allskonar járnvöruin, þ. á m. Naglbíta um 30°/0 ódýrari en lélegir
nagfbitar annarsstaðar, Tangir alskonar, Hamra frá kr. 0,70—5,50
Hjólsveifar, Þjalir, Sagir, Sporjárn o. m. ö. verkfæri, Smekklásar
Eldhúsvogir, Kaffikvarnir, Rykskúffur, Kolaausur, Vegglampa m.
m. fl. .
Ennfremur ýmisk. nýlenduvörur, þ. á m. alskonar kryddvör-
ur, hvergi ódýrari, Sveskjur, Gr. Baunir, Reykt svínslæri, þurk.
Apricoser óg Epli og alskonar Dósaávexti. Hellulitur m. m. fl.
Hvergi betri vörnr. Hvergi lægra verð. — Vörur afgreiddar
út um alt land.
Minnist þessa!
Ljáblöðin þjóðfrægu, Ljábrýnin þjóðk., Klöppur og Steðja,
alsk. Stiftasaum og Skilvinduoliu kaupa allir i verslunjundirritaðs
þvi er ábyggileg vissa fyrir því, að menn fá góðar vörur fyrir
lægst verð.
Versl. B. H. Bjarnason.
smnarið 1907. Nú hitti eg hann
á Hótel ísland, og Varð mér fyrst
að undra mig á, hve lítið hann
hefði breyst i sjón. — Hann
var enn jafn unglegur sem
þá, glaður og skemtinn, og
er eg beiddist tiðinda, lofaði
nann mér að sjá myndir og úr
klippur úr blöðum, sem hann
báfði haldið saman.
Ekki þurfti eg lengi að blaða í
þeim skjölum til þess að sjá,
að víða hefir hann komist í
krappan dans. þar var fjöldi
mynda af mönnum, sem hann
liafði fengist við, alt austan frá-
Moskva og vestur að Kyrrahafi.
Voru þeir sumir líkari tröllum
en mönnum. En ekki þarf að
scgja frá leikslokum — allir
lutu þeir lágt að lokum, og um
suma þeirra mun Jóhannes hafa
getað sagt með sanni, það sem
Egill Skallagrímsson sagði um
Ljót bleika:
„Jafn var mér gnýr geira
gamanleik við hal bleikan.“
Al'armikil aðsókn hefir hver-
vetna verið að sýningum Jóh.
Jósefssonar og hreysti hans og
afburða karlmenska er heims-
fræg orðin. En dýrkeypt hefir
sú frægð verið honuni að því
leyti, að oft átti hann við af-
skaplega örðugleika að etja
meðan hann var að brjótast á-
fram, félítill eða félaus, og öll-
um ókunnur. En hann var ráð-
inn í þeirri köllun sinni, að bera
hreystiorð íslendinga um lieim-
inn og þeim vilja hans urðu all-
ir erfiðleikar að lúta — og hafa
lika gert það!
Nú er hann kominn til að sjá
ísland og vini sína og kunningja,
en fyrst og fremst þó til þess
að vitja aldurhniginna foreldra
sinna á Akureyri, sem mjög hafa
þráð heimkomu hans, og eg
skildi það á honmn, að aðaler-
indið heim, væri að eiga með
þeim nokkra glaða sumardaga.
Kona hans, frú Karólína Jós-
efsson, hefir verið með honum
á öllum þessum ferðalögum. —
pau eiga dætur tvær, er heita
Hekla og Saga. Önnur þeirra er
fædd í London en skírð í Kaup-
manahöfn, hin fædd í Rússlandi
og skírð í New York.
Jóh. Jósefsson hefir nú tekið
sér sumarleyfi, en þarf að vera
kominn vestur 1. ágúst n. k.
Hann ætlar norður til Akureyr-
ar með fyrstu ferð, en mun
dveljast hér eitthvað síðar í
sumar, áður en hann fer vestur.
Félagar hans, liinir íslensku,
eru vestra, en stunda ekki í-
þróttasýningar meðan hann er
hér heima.
Jl.
,»h »1« tít U« íh »1«
Bæjarfrétti?.
Botnia
kom hingað í gærkveldi. Far-
þegar voru um 70 með skipinu
og þar á rneðal: Kaupmennirnir
J. L. Jensen-Bjerg, L. Gunnlögs-
son, Olgeir Friðgeirsson, Emil
Strand, Bernhard Petersen, N. B.
Nielsen, Þorsteinn Sigurðsson,
Gunnar Gunnarsson, Björn Gísla-
son, Elías Pálsson, Jón Björnssoo
frá Borgarnesi,Kristján Gíslason frá
Sauðárkróki, Stefán Guðjohnsen
frá Húsavík, Ólafur Thors frkstj.
og kona hans, Sören Kampmann
lyfsali og kona hans, Andersen
lyfsali og kona Jtans, Oddur Gísla-
son yfirrjettarmálállutningsmaður,
Rolf Zimsen liðsforingi, Schlesch
•fnafræðingur, Smith símaverkfr-
»