Vísir - 07.06.1919, Page 2
V I S l B
Kaupirðu góðan hlut,
þú mundu hvar þú fekst hann.
Á lager:
ýmsar stœrðir.
Smurningsolíur
Hrátjara
i heilum tunnum.
i_
Fyrir kanpmenn og kaopfélög:
Carr’s
enska kex og köknr
fyrirliggjandi hér á staðnum.
G. Eiríkss,
einkasali fyrir.Island.
Columbia
Grafofónar (Grafonola), plötur og nálar nýkom-
íð í stóru úrvali í
versl. .Arnarstapi'.
Inngangur í vesturhlið
húss G. Eirikss, heildsala.
Fyrir kanpmenn og kanpfélög:
nýkomið
fyrirliggjandi hér á staðnum.
•r
C3r. Eíriliss,
einkasali fyrir ísland.
Fyrir kanpmenn og kanpíélög:
Westminster
cigarettur og reyktóbak fyrirliggjandi hér á staðnum.
einkasali fyrir Island.
Plötur
Caruso
Pétur Jónsson
Einar !I jaltesteil
fyrir grafófóna, nýkomnar í stóru úrvali.
Verslunin Arnarstapi.
Inngangur í vesturhlið húss G. Eiríkss, heildsala.
peir, sem þurfa að mála hús sín innan eða utan, eiga að nota
A R C O málningu. — Hún gljáir svo dæmalaust vcl, og er
ódýrust. — Reynið!
Sigorjón Pétorsson.
Knattspyrnnmót
Islands.
Fyrsti kappleikurinn jafntefli
— o: o.
'Ekkert „mark“! Og jió var ekki
illa af stað fariö hjá „Víking" og
„Reykjavíkur". En markveröirnir
voru áreiöanlega bestu mennirmr
á vellinum. Það var líí og fjör i
leiknum, og engum þurfti að leið-
ást, sem á horfði, því að oft lá
við, að það yrði, sem aldrei varö,
að knötturinn kæmist í annað hvort
markið og markverðirnirhöfðunóg
að gera, því að alt af rak hvert
áhlaupið annað. En þó vantaði eitt-
hvað — samtök og snerpu, þegar
á átti að herða, en of stór spörk
og of mikill glímuskjálfti, í þess
stað. — En það „stendur til bóta“,
áhorfendnrnir, sem voru fjölmarg-
ir, koma vafalaust allir aftur, jieg-
ar „Víkingur" og „K. R.“ eigast
við í annað sinn. — Það er líka
orðið miklu vistlegra á íþrótta-
vellinum en áður; bekkir til að
sitja á og pallar til að standa á,.
svo að allir geta séð yfir allan
völlinn, jafnt þei.r öftustu sem þeir
fremstu, án þess að ryðjast um og
troða hver annan undir. Það veitti
heldur ekki af; nú vilja menn fá
að sjá, því að nú er von á dönsku
knattspyrnumönnunum, og ein-
hverja hugmynd verða menn að
geta gert sér um, hvernig leilcar
muni fara þá. — — 15:0 sagði
einhver suðurfrá í gærlcveldi, en
við sjáum nú hvað setur.
Bilarnir.
Bæjarstjórnin vill takmarka bif-
reiðaakstur í bænum og skerpa
eftirlitið.
Bæjarstjórnin hafði nýlega falið
veganefndinni að athuga ýms at-
riði, sem snerta bifreiðar og bif-
reiða-akstur í bænum, en stjórnar-
ráðið hafði vakið athygli á því, í
bréfi 22. f. m., hvort eklci væri á-
stæða til að takmarlca bifreiða-
akstur um bæinn, frekar en gert
er í lögreglusamþyktinni, og lög-
reglustjóri lagt til, að leigubifreið-
um yrðu fyrirskipuð ákveðin
„stæði“ og reglur settar þar að
.
rfsi^
Hárgreiðar
| Seljast með 20°/0 afslætti
lútandi. Að málinu athuguðu lagði
veganefnd tillögur sínar fyrir síð-
asta bæjarstjórnarfund.
Aðalefni tillaganna var þetta:
Að skora á lögreglustjöra, að
framfylgja stranglega öllum á-
lcvæðum lögreglusamþyktarinnar
um bifreiðar, sérstaklega um
hraðamæla, og ennfremur að tak-
marka bifreiðaakstur að næturlagi,
þannig, að allar skemtiferðir ,séu
bannaðar innanbæjar. — Að tak-
marka eða banna umferö bifreiða
um mjóar og gangstéttalausar göt-
ur. Ennfremur að leggja fyrir
stjórnarráðið tillögur um ítarlegar
reglur um takmörkun á, og bann
við umferð bifreiða á vissum veg-
um eða vegaköflum og á vissum
tímum sólarhringsins.
Að fyrst um sinn skuli leigubif-
reiðar að eins mega standa á þess-
um stöðum:
Á Lækjartorgi, 10 bifreiðar.
í Veltusundi, milli Hafnarstrætis
og Austurstrætis, 2 bifreiðar.
í Templarasundi, meðfram Al-
þingishússgarðinum, 2 bifreiðar.
í Miðstræti, 2 bifreiðar.
Á Laugavegi, syðri gangstétt, 8
metra fyrir neðan vestari liúsalínu
við Klapparstíg, 1 bifreið.
Á Vitatorgi við Hverfisgötu, 3
bifreiðar. — En hvergi annarstað-
ar á götum eða torgum bæjarins.
Gjald skal greiða bæjarsjóði fyr-
ir bifreiðarstæði þessi, 20 kr. á.
mánuöi fyrir hvert stæði á Lækjar-
torgi, Veltusundi og Laugavegi, 15
kr. í Templarasundi og Miðstræti,
en 10 kr. á Vitatorgi.
Vatnsskatt skal greiða af hverri
bifreið, sem skrásett er í bænum,
50 kr. á ári.
Tillögur þessar voru samþyktar
með öllum greiddum atkvæðum á
bæjarstjórnarfundinum, en borgar-
stjóra falið, að gera tillögur um
ítarlegri reglur viðvíkjandi leigu-
bifreiðum, skv. 16. gr. lögreglu-
samþyktarinnar, og í 'samráði við
lögreglustjóra.