Vísir - 01.05.1925, Qupperneq 2
VÍSIR
ÍHD) HinlTlHlinMNl 1 ÖLSEflÍÍ J gggj* Qg 1 dag
Nýkomið:
Rúgmjöl,
Hálfsigtimjöl,
Stransyknr,
Kandis.
Símskeyti
Khöfn 30. apríl. FB.
Gullmynt í Englandi.
SímaiS er frá London, aS um leiö
og Churchill hafi lagt fram fjár-
lögin, hafi hann haldiö ræftu og
skýrt frá því, aS stjórnin hafi á-
kve'öiö aö lögleiöa gull-myntfót á
ný, meö því að veita Englands-
banka samstundis leyfi til þess aö
flytja út gull. Ríkissjóöur ætti
samansafnað xóo miljónir -dollara
og loforð væri fyrir 300 miljóna
láni til Ameríku til stuðnings doll-
arsgengi. Ef nauösynlegt væri.yrði
munaðarskattar hækkaðir og
erfðafjárgjöld, en tekjuskattur
lækkaður um 6 pence á pundið.
Haldið yrði sömu stefnu um borg-
un ríkisskulda, sem hafa stórlega
minkað seinustu árin.
Frá Hæstarétti
27. apríl.
Málið
Sigurður Þorvarðsson
gegn
Hreppsnefnd
Súðavíkurhrepps.
Áfrýjandi þessa rnáls, Sigurður
Þorvarðsson, er kaupmaður og út-
gerðarmaður í Hnífsdal í Eyrar-
hreppi. Hann er og eigandi Lang-
eyrar í Álftafirði í Súðavíkur-
hreppi, og hefir rekið útgerð það-
an að rneira og minna leyti síðan
1916, og greitt árlega útsvar til
Súðavíkurhrepps, þar til haustið
1923, að hann neitaði gagngert að
hann væri þar útsvarsskyldur, en
þá hafði honum verið gert að
greiða þar 5000 kr. útsvar.
Hreppsnefndin krafðist lögtaks
á útsvarinu, og 31. mars 1924 úr-
skurðaði bæjarfógeti á ísafirði, að
lögtakið ætti fram að fara. — í
úrskurðinum segir meðal annars
svo:
„Neitun sína byggir gerðarþoli
á þvi, að hann, sem er búsettur í
Eyrarhreppi, og greiði Jxar auka-
útsvar, sé undanþeginn aukaút-
svari í Súðavikurhreppi,samkvæmt
lögurn nr. 29 1922, 1. gr. 5. málsgr.,
er banni að leggja aukaútsvar á
Ávextir i dósnm
Ananas,
Perur,
Aprikosur,
Ferskjur,
Blandaðir ávextir,
fást í verslun
Hannesar Úlafssonar.
Sími 871. Grettisgötu 1.
útvegsmenn ,úr öðrum hreppi í
sanxa sýslufélagi, eða við sama
fjörð eða flóa, sem útræðið er, ef
á þá er lagt útsvar í sveitarfél.
þeirra. En um það er enginn á-
greiningur í málinu, að gerðarþoli
greiði aukaútsvar í Eyrarhreppi."
„Það er enginn ágreiningur um
það í málinu, að síðastliðið ár
stundaði gerðarþoli útgerð síldar-
og þorskveiða á Langeyri á 4 eða
5 vélbátum, er eiga heima þar, að
skipin lögðu upp afla sinn á Lang-
eyri, að hann var verkaður þar, og
að gerðarþoli hafði og hefir þar
lýsisbræðslu og sildarbræðslu.
Ennfremur hafa 38 rnenn x Súða-
víkurhreppi vottað undir éiðstil-
boð í skjali dags. 12. mars þ. á.,
að gerðarþoli hafi haft sérstakt
herbergi á Langeyri, þar sem hann
hafði ýrnsar vörur til sölu, að harm
hafi rekið fiskkaup x stórum stíl,
brætt 2000—3000 tunnur síldar og
selt beitusíld. Gerðarþoli hefir að
visu mótmælt skjali þessu og vott-
orðsgefendum eigi gefist kostur á
að staðfesta vottorðið. En hins
vegar er það kunnugt hér í ná-
grenninu, að siðastliðið ár hefir
gerðarjxoli keypt fisk til verkunar
á Langeyri, að hann á þar 2 skipa-
bryggjur, fisktöku og fiskgeymslu-
hús, og fiskreita, er hann notar við
atvinnurekstur sinn, auk íbúðar-
hússins, og að hann rekur þar síld-
arbræðslu og lýsisbræðslu, eins og
áður segir.
Að réttarins áliti er hér um arð-
sarna atvinnu að ræða, er gerðar-
beiðanda var heimilt að jafna á
aukaútsvari, sbr. lög hr. 29, 19.
jxiní 1922, 1. gr. 2. málsgr.
Undanþága téðra laga í 1. gr.
5. rnálsgr. kemur hér eigi til greina
sbr. Landsyfirréttardóm 13. nóv.
1916. Því úrskurðíxst: Umbeðið
lögtak á franx að fara.“
Hrnx. Björn P. Kalnxan sótti
málið í Iíæstarétti, en verjandi var
hrm. Jón Ásbjörnsson.
fengum við fjölda margar nýjar tegundir a£
Kvenskóm úr lakki, striga og venjulegu leðri.
Karlmannaskóm, brúnum og svörtum af ýmsum gerðxun.
(Einnig með lirágúmmísólum), og ýmislegt fleira, L d. lakk-
skór fyrir fermingarstúlkur.
Komið og kaupið meðan nógu er úr að velja.
HVANNBER6SBRÆÐUR.
Prófessor Einar Arnórsson skip-
aði enn dómarasæti L. H. Bjarna-
son.
Dómur Hæstaréttar var upp
kveðinn 29. f.m. Úrskurður fógeta-
íéttar var staðfestur, og áfrýjanda
gert að greiða 200 kr. í málskostn-
að.
Frá Alþingi
í gær.
i í Ed. var lokið við 2. umr. fjár-
laganna, og þau samþ. til 3. umr.;
verður síðar skýrt nánar frá breyt-
ingum þeim, sem fjárl. hafa tekið
í deildinni. Fjögur önnur mál voru
á dagskrá, en þeim var frestað, því
fundi var slitiö kl. 7 síðdegis.
í Nd. var að eins 3 klst. fundur.
Þar var frv. Bjarna frá Vogi, um
mannanöfn, samþ. til 3. umr. með
16:10 atkv. Unxr. urðu talsverð-
ar og allfjörugar með köflum.
Frv. um breytingar á lögum um
kosningar til Alþingis (frá 1915)
var samþ. til 3. umr.
Um frv. unx sérleyfi handa Otto
B. Arnar o. fl„ til ^ð reka útvarp
(broadcasting) á íslandi, var byrj-
að á 2. umr, en varð eigi lokið, og
umr. frestað. Sex mál önnur voru
tekin út af dagskrá og frestað, þar
á meðal frv. um varalögreglu.
□ KDDA5925527 — (iaugard.
fyrirl.*. Br.‘. L.\ P.\
Veðrið í morgun.
Hiti um land alt. í Reykjavík 4
st„ Vestmannaeyjum 5, ísafirði 4,
Akureysi 8, Seyðisfirði 4, Grinda-
vík 5, Stykkishólmi 5, Grímsstöð-
um 2, Raufarhöfn 2, Hólum í
Hornafirði 5, Þórshöfn í Færeyjum
6, Kaupmannahöfn 9, Utsire 6,
Tynemouth 6, Leirvík 5, Jan
Mayen 1 St. — Loftvog lægst við
Vesturland. — Veðurspá: Suð-
j austlæg átt. Skúrir á suðvestur-
landi.
|
, Adam Poulsen
j lék i síðasta sinni i gærkveldi við
í nxikla aðsókn, og var alúðlega
fagixað að vanda. Að leikslokum
bauð hann leiköndum hressingu,
j flutti þeim lofsamlega ræðn, en frú
Nýtískn dömutöskur
Manicure-, ferða- og toilet-etui,
buddur og seðlaveski, skjalamöpp-
ur, barnatöskur 0. fl., 0. fl. ný-
komið. Lægst verð, sem hér þekk-
ist. — LEÐURV ÖRUDEILD
HLJÓÐFÆRAHÚSSINS.
Stefanía Guðmundsdóttir svaraði
og afhenti hr. Poulsen vandaðan,
útskorinn ask, til minningar um
samvinnuna við Leikfélagið. Eftir
það skemti leikfólkið sér við söng
og annan gleðskap fram yfir mið-
nætti.
Vísir
er sex síður í dag.
Botnvörpungamir tveir,
sem Fylla tók, voru dæmdir til
þess að greiða 2000 ’ kr. hvor
(hlerasekt). — FB.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 2 kr. frá Tótu, 5 kr.
frá Soffíu, 5 kr. frá B. H., 5 kr.
frá H. N„ 4 kr. frá N. N„ 5 kr.
frá F„ 15 kr. frá B. S„ 6 kr. frá
G. G„ 3 kr. frá K. E„ 5 kr. frá
B. H. H.
Gengi erl. myntar í morgun.
Sterlingspund ..... — kr. 26.85
100 kr. danskar.......— 103.11
100 — sænskar ..........— 148.48
100 — norskar ...—• 90.94
Dollar ................. — 5-50
Prófum er lokið
í Vélstjóraskólanum, Kennara-
skólanum og Verslunarskólanum.
Botnia
fer héðan kl. 12 í kveld. Meðal
farþega verða : Præfectus Meulen-
berg, Geir Thorsteinsson, Pétur
Ólafsson, sira Friðrik A. Friðriks-
son, Buch skrifstofustj., frú Lys
Thoroddsen, Friðrik Bjarnason og
frú hans, Gunnar Einarsson kaup-
nxaður, frú Irsa Stefánsson, ung-
frúrnar: Sigríður Helgadóttir,
Anna Jónsdóttir og Sesselja Sig-
urðardóttir.
Þegnskaparvinnan
á íþróttavellinum var svo vel
sótt í gærkveldi, að sjálft æfinga-
rvæðið varð hreinsað og lagfært,
eins og þarf, og hefjast æfingar í
kveld, eins og ráðgert var.
Háustrigningar
verða leiknar á sunnudaginn
kl. 8.