Vísir - 01.05.1925, Side 4
VÍSIR
Föstudaginn, 1. maí |I925.'
Verd aðeins kr. 130.
Fyrirliggjandi:
Mikið úrval af eldavélllin, emailleruðum og svörtum,
ofnum og steyptum ofnrörum.
•* 1
Verðið hvergi Iægra.
Helgi Magnússon & Co.
er viðurket af Efuarann-
sóknarstofu ríkisins, sem
algjörlega óskaðlegt fyrir
þvottinn. Það slilur ekk
tauin og gerir þvottinn
ekki gulan eða blakkan. Notið eingöngu PERSIL til þvotta og haf*
ið ekkert saman við það, þá verður þvotturinn altaf mjallahvít-
ur og tauið slitnar ekki við þvottinn. PERSIL fæst alstaðar.
Varist cftirJíkingar. — Vorðið lækkað.
Mest úrval á landinn af:
Klukkum, Úrum, vel aftrektum. Reiðhjólum og alt þeim til-
heyrandi. B. H. saumavélum. Alskonar silfurborðbúnaði. Að
ógleymdum trúlofunar hringunum. Sent út um alt land gegn
---------------------— póstkröfu. ----------------—------
Sigurþór Jónsson, Aðalstræti 9. Sími 341.
Hf. MJALLHVÍT
Gufuþvottahús. — Vesturgötu 20
Afgr. opin alla virka daga frá kl. 8 f. h. til kl. 6 e. h.
Síml 1401.
Minningarorð
um porleif Guðmundsson.
Vegna ýmsra anna hefi eg ekki,
fyrr en þetta, getað minst porleifs
lieitins Guðmundssonar, ráðsmanns
á Vífilsstöðum. En með þessum fáu
línum vil eg aðeins minnast dvalar
lians hér, sem starfandi manns, í
þessu litla sveitarfélagi okkar,
Garðahrepp.
pess er sjaldan nægilega minst
eða þakkað, hvað framtakssamir og
brautryðjandi menn gera, á hvaða
sviði, sem er; þeir styðja þjóðar-
búskapinn, veita atvinnu og bera
.niklar skyldur og skatta, til stuðn-
ings heildinni, en þeir gera líka eitt,
sem er máske það heilladrýgsta, fyr-
ir það sveitarfélag, sem nýtur þeirra,
og lengra frá sér. J7að er fyrirmynd-
in. pó að hugsunarhátturinn sé á
lágu stigi hér hjá okkur íslending-
um víða, og sumir segi, þeir gera
þetta fyrir sig, þeir hafa efni á því,
við getum það ekki, þá er svo guði
fyrir að þakka, að ennþá eru til
margir menn, sem trúa á sjálfa sig,
vilja berjast við örðugleikana og
taka sér fyrirmyndir framtakssömu
mannanna til stuðnings og eftir-
breytni, því að dugnaður og áhugi
ryrir hverju einu, hefir miklu meira
að segja til framkvæmda en pen-
ingar.
porleifur heitinn var einn af þess-
um mönnum. Hann tók við bústjórn
á Vífilsstöðum 1916. Fyrstu árin
fór hann fremur hægt og gætilega
af stað með jarðræktina, jarðveg-
rrinn kringum Vífilsstaði var held-
ur ekki árennilegur til túngræðslu,
en alt heppnaðist vel, enda var starf-
að með áhuga og hyggindum á
hverju sviði. En síðari 4 árin voru
stór spor stígin í ræktun og fram-
kvæmdum, stærri en áður höfðu
þekkst hér á landi, og eg er viss
um með minni tilkostnaði en nokk-
ur getur gert sér í hugarlund, með
annað eins stórvirki. En porleifur
var í því sem öðru, sérstakur mað-
ur að stjórna vinnu með nákvæmri
fyrirhyggju.
porleifur Guðmundsson var mjög
bjartsýnn á alt, er að jarðrækt laut,
og mátti vera það af eigin reynslu,
enda var hann mjög gramur og
stundum harðorðum við okkur sveit-
unga sína. Eg man, að hann sagði
eitt sinn við mig eitthvað á þessa
leið: pið sem aðallega lifið á því
að framleiða mjólk, gerið ekkert eða
lítið að því, að stækka eða rækta
túnin, en kaupið útlendan fóðurbæti
fyrir Vs af því, sem kýrin gefur af
sér, í staðinn fyrir að léggja helm-
inginn af þeirri upphæð í að auka
og bæta túnin ykkar. pið eigin eng-
an tilverurétt, þið eruð andlega og
líkamlega volaðir aumingjar, sem
ekki getið lifað á 20. öldinni. J?ið
hefðuð átt að lifa á fyrri tímum,
þá gátuð þið máske talist með
mönnum. — Með þannig löguðum
orðum og öðrum, reyndi hann oft
að vekja menn til framtakssemi og
áhuga fyrir ræktun, og um leið til
meiri vellíðanar í sveitarfélaginu.
Eg kom oft til p. G.{ og hafði
jafnan af bendingum og fram-
kvæmdum hans góðan stuðning,
enda hafði hann sérstaklega góðan
vilja og huga á að leiðbeina, segja
frá hvernig sér hefði reynst þetta
og þetta, og hvað komið hefði sér
að góðu haldi.
Eg fyrir mitt leyti, og eg veit,
að allir Garðhreppingar og ná-
grannar porleifs heitins, geyma
minningu hans í hlýjum huga, og
reyna að láta heitustu ósk hans ræt-
ast í þessari sveit, að þessir litlu
móa- og mýrablettir, sem liggja
kringum bæina hér, verði ræktaðir
og líti út eins og hann var búinn
að hugsa sér þá, jafnhliða Vífils-
staða stóryrkjunni, sem mun kom-
ast í það horf, sem hann hefir lagt
grundvöllinn undir, og geymir minn-
ingu hans langt fram til komandi
kynslóða.
Setbergi, 19. apríl 1925,
Jóh. J. Reykdal.
Frá Alþingi
í fyrradag.
Ed. samþykti til 2. umr. og í
nefnd frv. um breyting á lögum
um lífeyrissjóð embættismanna og
ekkna þeirra.
Síöan hófst 2. umr. um frv. til
fjárlaga fyrir áriíS 1926, og stóö
til miönættis, en var þá frestað;
heldur umræöum áfram í dag.
Nd. 1. mál þar var frv. um af-
nám laga 20. júní 1923, um breyt-
ing á lögum 10 nóv. 1913 (herpi-
nótaveiði), og urðu allkappsfullar
umræður um þetta frv., sem aðal-
lega er borið fram vegna þess, að
síldveiða-útgerðarmenn telja lög
þessi vera til hnekkis atvinnu
þeirra. En þm. Skagfirðinga börð-
ust móti frv., og töldu þessi lög
næstum vera lífsnauðsyn Skagfirð-
ingum. Kom fram till. frá Þórarni
á Hjaltabakka, um aS vísa málinu
frá, meS þaS fyrir augurn, aS
stjórnin tæki öll slík heimildarlög
til athugunar, en till. var feld, en
frv. um afnám laganna samþykt
og afgr. til Ed. •
Um næsta mál, frv. um vatns-
orku-sérleyfi, urSu ítarlegar umr.,
sem lauk meS því aS frv, var samþ.
meS nokkruríi breytingum og af-
greitt til Ed.
Fjögur önnur’mál voru tekin út
af dagskrá í fundarlok (kl, 7 síSd.)
Sigrid Undset
-—x—■
Enginn höfundur á NorSurlönd-
um hefir á jafnskömmum tíma náS
annari eins útbreiSslu og vinsæld-
um og Sigrid Undset. Bækur henn-
ar eru prentaSar í tugum þúsunda
á öllum NorSurlöndum, og auk
þess þýddar á tungur flestra menn-
ingarþjóSa. ÞaS, sem mest ein-
kennir bækur hennar> er hin djúp-
sæja þekking á sögu og menning-
arástandi þeirra tíma, er frásögur
hennar greina frá, og skarpar og
ljósar mannlýsingar. Hún er al-
ment álitin miklu fremri þeim höf*
undum, er hin síSari árin hafa
hlotiS Nóbels bókmentaverSlaun.
— Sigrid Undset hefir numiS ís-
lensku og tekið sér yrkisefni úr
íslenskum sögum og æfintýrum.
Hún hefir nú í smíSum skáldrit úí
sögu GuSmundar biskups góSa. —•
Aschehougs bókaverslun í Osló er
nú byrjuS á heildar-útgáfu af rit-
um hennar og er tekiS á móti á-
skriftum í bókaverslun GuSm.
Gamalielssonar, símar 263 og 265.