Vísir - 08.12.1929, Síða 2
VISIR
Tvö fréttabréf.
FB. 6. des.
Frá Þórshöfn.
Heilsufar var frernur gott í
sumar og raunar þaö sem af er
vetrar. Þó hefir slæm kvefpest
ööru hvoru veriö aö stinga sér
niöur nú upp á si‘Skasti'5.
Dauösföll. Á siöastliönu sumri
andaöist ekkjan Hólmfríöur Ste-
fánsdóttir í Laxárdal, eftir langa
legu á Akureyrarspítala, og- Jó-
hann Gunnlaugsson á Þórshöfn,
einnig eftir erfiöa legu.
Tíðarfar. Tíð var góð í sumar,
þúrkar góðir og nýting heyja vi'Ö-
ast hvar góð, en seinustu dagana
í september versnaöi tíð til muna
og hefir verið umhleypingasöm
siðan. Kringum þann 20. okt. var
viða orðið svo snjóþungt, að við
lá, að sauðfé færi á hús, en þó
munu fáir hafa gefið fé enn. En
þ. 22. f. m. brá til austanáttar
mbð hinumi verstu vatnsviðrunt,
dögum sanmn, svo snjór hvarf all-
ur úr lágsveitum, en ár sprengdu
af sér ísa og eru nú alauðar, sem
er óvanalegt á þessum tíma árs.
Grasspretta. Tún og harðvellis-
lengjar voru nneð allra besta móti
sprottnar í sumar, en votlendis-
engjar máttu heita óslægar.
Fjárheimtur víðast hvar góðar
og fé vænt. Allvíða vógu dilkar
17—18 kg. kjöt og 4 kg. gæra.
Verklegar framkvæmdir voru
með mesta móti síðastliðið vor og
fara sífelt vaxandi. Æðimargir
bændur hafa sléttað heila dag-
sláttu og þar yfir, a'ðeiús n|eð
heimamönnum og hestafli.
Á nýafstöðnum fundi í Búnað-
arfélagi Þistilfjarðar var samþykt
að kaupa dráttarvél á komandi
vori, í sambandi við Langnesinga,
og i félagi við sveitirnar innan
Axárfjarðarheiðar, en þó er enn
ókunnugt um vilja hinna síðar-
nefndu í þessu máli. Alrnent búast
menn þó við, að vélin verði keypt.
Einnig var ákveðið á sama fundi
að byggja sex safnþrær í Þistil-
firði og sennilega verða ekki
bygðar færri á Langanesi.
Fiskafli var góður við Langa-
nes í sumar, stórir vélbátar fengu
alt að 300 skpd. en trillubátar
100—120 skpd. Enn er nógur
fiskur við n'esið og aflast vel, þeg-
ar gefur.
Landhelgisgæslan. Mikill mun-
ur þykir nú á landhelgisgæslunni
og til hins betra. Síðastliðna vet-
ur, einkum í fyrravetur, voru
botnvörpungar sífelt að veiðum
innan landhelgi, en nú sést það
varla. Áræðnin til landhelgis-
veiða hefir minkað vegna árvekni
varðskipanna.
Rjúpur. Svo lítið sést hér af
rjúpum, að jafnvel gangnamenn
sáu að eins 6—8 rjúpur í heilum
göngum. Þykir það nú eins og
önnur nýlunda að sjá rjúpu.
Refir hafa lítið verið skotnir
enn og er hér þó gríðar mikið af
þeim, enda þess orðið vart, að
þeir hafa bitið fé.
FB. 6. des.
Af Langanesi.
Frá Gunnólfsvík er skrifað:
Á hreppamóti, sem haldið var á
Skeggjastöðum í október s. 1. bar
hr. Jósef M. Thorlacius upp og
ræddi eftirfarandi tillögur:
1) Að stofnað yrði fóðurbirgða-
félag fyrir Skeggjastaðahrepp.
(Málið fékk góðar undirtektir.
Kosin var fimm manna nefnd til
þess að kynna sér stofnun og
rekstur fóðurbirgðafélags. Á
nefndin að hafa boðað til fundar
fyrir 11. k. febrúarmánaðarlok og
skýra þar frá upplýsingum sínum
viðvíkjandi málinu).
'XXXXXKXXXXXXXXXiQOQOQQOW
I Bifreiða viðgerðir 1
X eru ágætar á Grettisgötu X
x 16 & 18. Einnig allar X
Igúmmíviðgerðir bæði á X
dekkum og slöngum. — p
— Reynið viðskiftin. — H
EGILL VILHJÁLMSSON. |
tQOQOOQQOCXXXXXKKXXXXXMXKR
2. ) Að farið væri fram á við
póststjórnina, að varpað væri nið-
ur pósti á bréfhirðingastaðnum
HÖfn, hér í hrepp, þann tíma árs,
sem flogið er hér yfir með póst.
(Málinu var vel tekið og var
hreppsnefndinni falið á hendur að
koma því í framkvæmd).
3. ) Að tekið væri til athugunar,
hvort ekki væri tiltækilegt aö
girða fyrir svo kallaðar Viðvíkur-
torfur, hér í hrepp, og þar með
varna því, að sauðfé komist í torf-
urnar. (Það er miklum erfiðleik-
um bundið að ná fé úr torfum þess-
um og hefir jafnvel kostað menn
lííið. — Kosin var fimm manna
nefnd til þess að athuga málið.)
5. ) Sparisjóðsmál, Norður-Múla-
sýslu. (Fundurinn var því sam-
þykkur, að stofnaður yrði sérstak-
ur sparisjóður fyrir Noður-Múla-
sýslu og hefði aðalskrifstofu á
Seyðisfirði, en útbú á Vopnafirði.
6. ) Heiðamat. (Málið var litið
rætt og síðan felt.)
7. ) Að farið væri fram á að fá
veðurskeyti send til Bakkafjarðar
á hverjum degi, alt árið. (Hrepps-
nefndinni var falin á hendur fram-
kværnd málsins.)
Til Gunnólfsvíkur kom í sum-
ar hr. verkfræðingur Sigurður
Thoroddsen, til þess að mæla fyrir
hafnarbótum og gera kostnaðar-
áætlun þar að lútandi. Hefir hann
nú sent uppdrátt af hinum
fyrirhugaða garði og áætlar hann
allan kostnað við hafnarbæturnar
ca. tuttugu þúsund og fimm hundr-
uð krónur.
Talsvert hefir borið hér á bráða-
fari í sauðfé, þrátt fyrir ítrekaðar
bólusetningar.
Tíðarfar h'efir að undanförnu
verið afar erfitt og óhagstætt.
Norðan stórhríðar og miklar frost-
liörkur. Hagleysi er mikið og
sumstaðar Iiggur við jarðbönnum.
Margir hestar komnir á hús og
mienn farnir að taka lömib.
Á Þórshöfn hefir verið fislcirí í
alt haust, þegar á sjó gefur. Afli
2—5 skpd. á bát í róðri. Menn
fcelja, að meiri fiskur sé fyrir
norðan Langanesið nú, en verið
hafi í sumar. Margir botnvörpung-
ar eru út af nesinu.
Heilsufar manna er sæmilegt
yfirleitt. Engar farsóttir.
Á Brúarfossi.
—o—
Hátt ber þitt stefni og fríð er þín
för
um firnindi Ránar slóðar.
Við öldurnar mælir þú máttugi
knör
um magn hinnar íslensku þjóðar.
1
J
Og hvar sem um úthöfin liggur
þín leið,
fer leiftur um ísiendings-nafnið.
Þar vaknar vort glæsta gullaldar
skeið,
sem var grafið i alda safnið.
Nú ómar um höfin hið íslenska
mál,
og íslenski fáninn við húna
vekur íslenska hrifning í íslenskri
sál
og íslensku sjálfsmáttar trúna.
Gísli Guðmundsson
stud. mag.
liljómstepk: >
hljóðglðgg
liljómtðgui*.
Gerð E. W. 373.
Körfugrindar viðtakari með
þreföldum pípum. Þolir allar
vixlstraumspennur. Óvenju
liljómsterkt og hljóðglögt
langvega viðtæki, með upplýst-
---- um stillivaltara. -------
DR. GEORG SEIBT, Berlí u - Schónebepg.
Gerð E. W. 496.
Körfugrindar viðtæki með ferföldum pípuin.
Þolir allar víxlstraumspennur og fullnægir
ströngustu kröfum, sem gerðar eru til við-
tækja. Heyrir um alla Norðurálfu án útiloftnets.
Gerð E. W. 497.
Körfugrindar útbúnaður með ferföldum píp-
um fyrir jafnan straum með 160—220 volta
spennu, en er að öðru leyti sömu kostum búið
---- og gerðin E. W. 496. ----
Nflíika |aet-?idtækÍB
KXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX
Jólagjafip:
Zeiss rakspeglar,
Zeiss Ikon myndavélar,
Album, allskonar,
Vindla- og vindiingakassar og
veski, fjölbr. og skrautl.
Bridge spilakassar,
Spil, 9 tegundir,
Spilapeningar, o. m. fl.
SportvöruMs Rvífcur,
Bankastræti 11.
TELEFUNKEN
QQOCXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX
Sælgæti.
Soðinn og sðr hvalur
fæst í
útvarpstæki hafa reynst hér betur en nokkur önnur.
Allar nýungar á sviði útvarpsins koma fyrst fram í
TELEFUNKEN-tækjum. TELEFUNKEN-tæki eru af-
kastamikil, nákvæm (selektiv) og skila tónunum
hreinum. Telefunken-lampar fást í allar gerðir útvarps-
tækja.
Aðalumboðsmenn á Islandi:
Von OG fiBEKKUSTÍG 1.
Sími 448. Síml 2148.
Soya,
Hin ágæta rnargeftirspurða
Soya frá Efnagerð Reykja-
víkur fæst nú í allttestum
verslunum bæiarins.
Húsmæðup ef þið
viljið fá matinn bragðgóðan
og litfagran þá kaupið Soyu
frá
H/f Efnagerð Reykjavíkor.
Kemisk verksmiðja.
Sími 1755.
Teg(gfódnr.
Fjölbreytt úrval mjög ódýrt nýkomið.
Goðmnndorj jjísbjOrnsson
SlMI 1700. LAUGAVEG 1.
Mjalti Mjdrasson & Co,
Blá vinnnföt
allar stærðir.
Verslnn
Yald. Poulsen.
Klapparstíg 29. Sími: 24.
(jtaD cni) &=li) (?tí) crlD (^l) (^J) cnj) cnD ^v) (yvj
Kristalsvörup
frá hinni heimskunnu verksmiðju
Grlstalleries dn VaUSalnULamhert í Belgiu
höfum við fyrirliggjandi í heildsölu.
Jólt. OUfscon & Co.
Sími 584. Reykjavík. Sími 584.