Vísir - 22.03.1931, Page 3
VISIR
Hessian. Bindigarn. Sanmgarn.
Veröiö mikið lækkað.
Þðrðnr Sveinsson & Co.
geti'ð, að eldhætta geti stafað
frá rafniagnslögnum, ef raki
komist í þær og eyðileggi ein-
angrun þeirra; sérstaklega
hættulegt i timburhúsum — jú,
því eru steinhús bvgð, að eld-
hætta er þar minni!
Hann lætur þess ekki getið,
að lagningakerfi það sem oftast
er notað hér i ibúðarhúsum, þ.
•e. rörlagnir, ber mikið af liætt-
unni i sjálfu sér,-sökum þéttun-
ar-eiginleika röranna, má l. d.
nefna: rör sem liggja í útveggj-
um, einkum í timhurþiljuðum
steinlnisum; rör sem liggja í
loftum úr hituðum lierhergj-
nm í sárköld herbergi; rör sem
liggja úr tróðfyltu rúmi í tróð-
lausl rúm, sem einkum keinur
fvrir í kvistum og útskotsbygg-
ingum efstu húshæða. Annars
tillieyrir það ckki mér, að svara
fyrirspurnum bvggingameistar-
ans. Heldur ætla eg að beina
nokkurum fvrirspurnum til
ráðamanna Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
Eg man nú í svipinn eftir
fjórum húsum, er kviknað hef-
ir í (þar af tvö brunnið til
kaldra kola); eldsins hefir orð-
íð, að fyrstu sjónarvotta sögn,
vart á ]jann liátt, að logar koma
niður úr loftum eða upp úr
gólfi í (miðjum?) herbergjum.
í þremur af þessum tilfellum
hefir, að mig minnir, því verið
lýst yfir, af rafmagnsstjóra, að
samkvæmt rannsóknum liafi
eldurinn ekki stafað frá raf-
magni. Þó hefir, mér vitanlega,
engin önnur tilgáta um eldsupp-
tökin komið fram. Hvaða
grundvöll hefir rafmagnsstjóri
fvrir þessum yfirlýsingum sín-
um? Hvað getur hann grafið
upp úr brunarústum húsa, sem
afsannar eðlilega lilgátu
manna, studda. við frásögn
fyrstu sjónarvotta um eldsupp-
tökin?
Um eitt tilfélli (Lækjargötu
0) er engin yfirlýsing lcomin,
en heyrst Iiefir að hroðvirknis-
Iegri vinnu hafi verið þar um
að kenna. Lögnin i þvi húsi
mun vera 8—10 ára gömul og
ætli hún því samkvæmt frá-
sögn eftirlitsmannsins að hafa
3—1 sinnum verið „nákvæm-
iega skoðuð og prófuð einangr-
un. hennar og samin skýrsla vf-
ír á stand lagnarinnar yfirleit l“.
— Þó tókst nú svona til. En ef
uú eldurinn hefði brotist út á
þeim tíma nætur, sem enginn
umgangur var um lnisið, og það
verið orðið alelda þegar slökkvi-
liðið kom á vettvang — eru þá
ekki líkur til, að rannsóknarað-
ferð rafmagnsstjóra eða hans
„sérfróða“ manns, Iiefði sannað 1
það, að ekki hefði kviknað úí
frá raflögn?
Mér er það fyllilega Ijóst, að
ekki þarf altaf að vera sviksam-
legri vinnu um að kenna, þ<) ao
í kvikni út frá rafmagnslógn.
Gamlar lagnir, sem liggja á ó-
heppilegum stöðum, eða i illa
bygðum, rökuin og gisnuin
timburhúsum, geta valdið
íkveikju, ])ótt vandað hafi verið
til þeirra í byrjun, bæði að efni
og vinnu.
Eftirlitsmaðurinn gerir mik-
ið úr löggildingunni; á hún visí
að vera til þess, að tryggja bæj-
arbúum góðan varning vel upp
séttan, fyrir sainigjarm verð.
Eiga þetta að vera „þar tii hæfir
menn“ o. s. frv. Til skamms
tima mátti þó með réttu um
flesta þeirra segja, að undir-
menn þeirra tækju þeim mjög
fram að þekkingu og „fag“-
fræði“. En á síðustu árum hef-
ir viðhorfið allmikið breyst,
])annig, að nú má telja að nem-
andi leiðheini nemanda. Af um
55 mönnuin, sem nú vinna að
raflögnum i liúsum, eru nálægt
35 nemendur. Mel eg lítils
áhyrgðartilfinningu þeirra lög-
giltra rafvirkja, sem selja vinnu
eftirlitslauss nemendahóps, sem
fullkomin og vönduð verk. Það
hefir líka sýnt sig, að óvendni
við þessa iðn gelur leynst leng-
ur en eitt ár. Ehda er löggilding,
eins og henni nú er háttað, í
mínum augum frekar prang-
araheimild en atvinnúréttindi.
Þá virðisl reglugerðin um
rafmagnslagnir í Reykjavík
(útg. 1921) vera í huga eflirlils-
mannsins einskonar „Koran“,
sem að öllu leyti sé framfylgt
og heri að fylgja, þótt hann liafi
manna mest unnið að því, að
breyta flestum ákvæðum lienn-
ár, með skriflegum og munn-
legum fyrirmælum og tíðum
undanþágum. Það er ekki ýkja
langt siðan eiun velþektasti, víð-
förlasti og best menlaði löggilt-
ur rafvirki þessa bæjar komst
svo að orði, að liann þekti engar
gildandi reglur um rafmagns-
lagnir hér aðrar en þær, sem
væru í höfði Nikulásar Frið-
rikssonar.
Annar rafm.-fáfræðingur.
Booker T Washington.
—o—
•
Fyrir 50 árum har svo við, að
blökkumaður nokkur stofnaði
skóla handa þjóðbræðrum sín-
um í hæ, sem heitir Tuskegce
í Alabamafylki í Bandaríkjum.
Skóli ]>essi er nú einn kunnasti
skóli í heimi, og stofnun hans
markaði tímamót i sögu blökku-
manna.
Fáum árum áður, eða þegar
horgarastvrjöldinni lauk i
Bandaríkjum Norður-Ameríku,
hafði Ahraham Lincoln forseti
undirritað hina frægu frelsis-
skrá, ])ar sem svo er að orði
kvcðið: Allir þrælar eru, og
skulu héðan af vera frjálsir. En
með því að blökkumcnn voru
bæði óvanir frelsinu og harðla
])ekkingarlausir, ])á var varla
annars að vænta, en að frels-
inu vrði misheitt. Fyrstu tíu eða
fimtán árin gætti þess lítt í öðru
en þvi, að þeir voru leystir und-
an vinnu.
Með hverju ári fór vaxandi
iðjuleysi hinna óróagjarnari
blökkumanna, svo að til vand-
ræða horfði. Báru margir kvíð-
boga fyrir að heill þeirra og
hag yrði stefnt i voða. En þá
vildi svo vel til, að aldarandinn
uppvakti mikinn ágætismann,
Booker T. Washington, Iiinn
mikilhæfasta blökkumann, sem
sögur.fara af í Bandarikjunum,
PET-mj ólkina
þekkja allir.
Fæst i öllum verslunum. — Heildsölubirgðir.
M. Benediktsson & Co.
Sími 8 (fjórar línur).
og varð slarf lians liið hcilla-
drýgsta, bæði þjóðbræðrum
hans og Bandaríkjunum í heild
sinni, og það var hann, sem
stofnaði skóla þenna, sem áð-
ur er nefndur.
Booker Wasliington fæddist
í ])rældómi á baðmullarbúgarði
einum í Virginíufylki. . Móðir
lians var ]>ar matreiðslukona.
Þau bjuggu í litlum bjálkakofa,
sem hæði var heimili þeirra og
eldhús húgarðsins. Engar rúður
voru þar i gluggum, en birta
féll inn um vindaugu á kofan-
um, og kuldinn smaug þar inn
á vetrum. Hurð átti að heita
fyrir kofanum, en hjarir voru
lélegar, rifur á hurðinni og hún
féll illa að stöfum, svo að ibúð-
in varð óvistlcg, og gólfið var
moldargólf.
A þeim árum svaf drengur-
inn aldrei í rúmi. Tuskur voru
hreiddar á moldargólfið og
komu í stað rúmfata. Ekki hafði
hann heldur tómstundir til þess
að leika sér. Þrælabörnum var
haldið til vinnu, og þó að Boo-
ker væri lítill, þá hafði liann
nóg að starfa. Hann var látinn
hreinsa húsagarðinn, sækja vatn
og flytja korn til myllnu til möl-
unar. Stóð honum mikill ótti af
þeim kornflutningum. Stóruni
langsekk var fleygt yfir hest-
hakið og korninti skift jafnt á
háðar siður. En stundum fór
svo, að baggamunur varð og
sekkurinn snaraðist og féll til
jarðár.
Drengurinn var of lítill og
hurðalaus til ])ess að lyfta hon-
um upp aftur, og varð að bíða,
ef til vill klukuslundum saman,
þangað til einhver færi um veg-
inn og hjálpaði honum. Þess
háttar óhöpp seinluiðu oft ferð
hans, og stundum náði hann
ekki heim, fvr en langt var lið-
ið á kveld. Yegurinn var óvnd-
islegur og lá sumstaðar um
þykkan skóg, þar sem margir
strokuhermenn voru sagðir á
sveimi. Var þvi ekki að undra,
])ó að vesalings drengurinn væri
smeykur. En þó tók það út vf-
ir, að hann var oftast atyrtur
eða flengdur, þegar liann kom
seint heim.
Hann mundi aldrei til þess,
að hann liefði séð fjölskyldu
sína setjast að máltíð saman og
matast að siðaðra manna hætti.
Þrælábörn fengu mat sinn hvar
og livenær sem vera skyldi, eins
og skepnurnar.
Þrælum var aldrei kent, og
þá komst hann næst skóla, þeg-
ar liann fylgdi dóttur húsbænda
sinna og bar bækur hennar að
dyrum skóíans. Hugur hans
varð fjöðrum fenginn, þegar
liann sá drengi og stúlkur sitja
að nánii, og honum fanst, að
það mundi likast himnaríkis-
sælu að mega komast i skóla.
Þegar þrælum hafði verið veitt
frelsi, var liann ekki í rónni
fyrr en hann komst í skóla.
Þegar borgarastyrjöldinni
lauk með sigri norður-ríkja-
manna, hlutu þrælar frelsi sitt.
Booker Washington segir, að
blökkumcnn hafi þá orðið ásátt-
ir um tvent: Að taka upp ný
nöfn og yfirgefa baðmullar-bú-
garðana, að minsta kosti nokk-
ura daga, lil ])ess að sannfær-
ast um frelsi sitt.
Á þrældómsárunum voru þeir
að eins kallaðir einu nafni, Jolvn
eða Súsau, eða citthvað þvi um
likt. Booker mundi ekki til þess
að liann liefði nokkuru sinni
verið kallaður annað en Booker.
Og liann fann aldrei til þess,
að hann þyrfti á öðru nafni að
halda, fyrr en honurn fór að
vaxa 'metnaður og liann kom i
skóla. Þegar skólabörnin voru
spurð að heiti, komst hann að
þvi, að þau hétu að minsta kosti
tveim nöfnum. En af því að
hann átti sér ekkert ættarnafn,
þá tók liann sér það í einni
svipan, og þegar að þvi köm,
að á hann væri kallað við inn-
ritun i skólann, þá sag'ðisl liann
lieita Booker Washington, og
eftir það var hann jafnan kall-
aður því nafni.
Þegar frelsið var fengið, flutt-
ist fjölskvlda hans til vestur-
hluta Virginiufylkis. Hin fátæk-
legu föt þeirra og innanstokks-
munir voru látnir á vagn, og
börnin gengu mestan hluta leið-
arinnar á eftir vagninum, en
það voru nokkur lnmdruð
enskra mílna, og settust þau að
í miðju saltbrensluhverfi. Þar
áttu þau að sumu leyti lélegri
aðbúð en í hjálkakofanum. Þar
var lítils þrifnaðar gætt, og
sóðaskapurinn í hinum nýja
kofa þeirra var nálega óbæri-
legur. Stjúpfaðir Bookers sendi
liann til vinnu í saltbrensluhúsi,
og þar varð hann að strita, þó
að ungur væri. Yarð hann oft
að fara til vinnu sinnar klukkan
fjögur að morgni.
Framh.
I.O.O.F. 3 = 1123238 = Fl.
□ Edda 59313247 — 1. Fyrirl.
Dánarfregn.
Á morgun ver'Súr til moldar bor-
in ekkjan Guðfinna SigurSardóttir.
sem andaðist nýlega að heimili sínu,
Ránargötu 29 hér i bæ. — Öllum
þeim hinum mörgu, sem ])ektu Guð-
finnu sál., var hin mesta unun að
koma á heintili hennar. Húu var
hin mesta gæðakona, greind vel, víð-
lesin og holl i ráðum, vinur vina
sinna, Guðfinna var hinn mesti
barnavinur, og hændust börn mjög
að henni og voru ætíð kærkomnir
gestir. Að Guðfinnu sál. er hin
mesta eftirsjá og mun minning
hennnar lengi geymast á meðal
þeirra, sem ])ektu hana sem trygg-
an vin. Guð blessi minning hennar.
A.
Veðurhorfur í dag.
í dag eru horfur á fremur hægri
vestan átt og allgóðu veðri, að
minsta kosti fram eftir deginum,
en sennilega bregður til sunnan átt-
ar með kveldinu, vegna nýrrar lægð-
ar, sem var suður af Grænlandi i
gærkveldi og mun vera að nálgast
ísland.
Vísir
er sex síður í dag.
Samsöngur.
Karlakór K. F. U. M. endurtek-
ur samsöng sinn í Gamla Bíó í dag
kl. 3 e. h. í gærkveldi voru miðar
nær uppseldir. og er ])ess að vænta,
að kórinn syngi enn einu sinni, því
að verðleikum fær' hann jafnan
góða aðsqkn. Söngskráin er fjöl-
breytt. Einsöngva syngja þeir Garð-
ar Þorsteinsson. Jón Guðmundsson
(í „Dettifoss“ eftir próf. Sv. Svein-
björnsson) og Sigurður Waage, og
átti hann sérstökum vinsældum að
fagna siðastl. fimtudag. Er það i
fyrsta sinni, sem hann syngur ein-
söng hér. Þeir Páll ísólfsson og Dr.
Mixa leika á flygil undirspil við
„tvo hetjusöngva" eftir Pál, en þeir
eru úr „hátíðar-kantötu" hans frá
því i fyrra. Njóta þeir sín vel i
meðferð kórsins og munu „Iifa“ í
meðvitund manna.
Leikhúsið.
Öktóberdagur leikinn i síð-
asta sinn í kveld.
Kvennadeild
Slysavarnafélags íslands held-
ur fund máúudag 23. þ. m. kl.
8V2 siðd. í K.R.-húsinu (uppi).
Þess er vænst, að fjölmenf
verði á fundinn, bæði af þeim,
sem þegar eru gengnar í félag-
ið og öðrurn, sem verða vilja
stuðningsmenn ]tessa góða mál-
efnis.
Sundlaugarnar.
Eins og kunnugt er. hefir sund-
laugaleiðslan úr ])vottalaugunum
verið biluð í vetur, en nú er búið
a'ð gera vi'ð bilunina og-verða laug-
arnir oj)naðar aftur til almennra
nota í dag (sunnudag). Munu
allir sundvinir fagna því. Hinir á-
gætu sundkennarar, Jón og Ólafur
Pálssynir, gæta lauganna og kenna
hina fögru og nytsömu sundlist, öll-
um. sem þess óska. (Frá Í.S.Í. FB).
íþróttanefndaskipun.
Sundnefnd hefir í. S. í. nýlega
skipað, til þess. að velja dómara og
starfsmenn á sundmót og prófa þá.
Eiga sæti i nefndinni: Erlingur
Pálsson, form.. Eiríkur Magnússon
og Þórarinn Magnússon. — Einnig
hefir verið skipuð nefnd til þess
að prófa dómara og starfsmenn á
almennum leikmótum, og eiga sæti
i þeirri nefnd: Ólafur Sveinsson,
form., Guðmundur Ólafsson, Helgi
Jónasson frá Brennu, Jón J. Kaldal
og Stefán Björnsson. (Í.S.Í. FB.).
Hilmir
kom frá Englandi i gærkveldi.
Gullfoss
fór héðan í gærkveldi, áleið-
is til útlanda. Farþegar voruí
Helgi lngvarsson og frú, Karó-
lína Lárusdóttir, Margrét Lárus-
dóttir, Guðmundur Guðmunds-
son og Sigríður Jóliannesdóttir.
Málverkasýning
Kristjáns Magnússonar í Góð-
templarahúsinu er opin i dag i
síðasta sinn, því að listamaður-
inn er nú á förum til Bretlands
um stundarsakir. — Sýningín
er opin frá kl. 10 árd. til 10 síðd.
Utvarpið í dag.
Kl. 16,10: Barnasöguv (Guðjón
Guðjónsson, skólastj.). — 17,00:
Messa í dómkirkjunni (síra Friðrik
Hallgrímsson). — 19,25: Hljóm-