Vísir - 28.09.1932, Side 5
V
Heildsölubi rgdir I
GIRÐIN GANET,
68 cm. á hæð — 100 m. á lengd.
GADDAVÍR,
/ No. 12% og 14. —
Frá Olympínleikunnin
í Los Angeles.
Kringlukast kvenna (úrslit):
Iíringlukast stúlknanna endaði
alt öðruvísi en búist var við,
því átrúnaðargyðja flestra, ung-
frú Wajosowna frá Póllandi,
tókst ekki að vinna nema brons-
medabuna. Hin roskna og ram-
eflda ungfrú Copeland, frá
Bandar., vann sigur í siðasta
kastinu yfir samlöndu sinni
Ruth Osbum, sem var fyrst frá
byrjun og fram að þessu. Ung-
frú Copeland kastar ákaflega
sterklega. 1 kasti því, er hún
vann á, , náði hún 40.56 m.
(drengja kringla), sem er nýtt
heimsmet fyrir stúlkur. Ungfrú
Osburn er mjög ókvenleg, og
það er jafnvel dregið í efa, að
hún sé kona. Hún er algerlega
flatbrjósta og í málfari og fram-
komu líkari karli en konu. Ung-
frú Wajosowna er lítil vexti, en
fríð og falleg á velli, og kastar
af aðdáanlegri fimi og' snerpu.
Hún var svo óheppin, að öll
köst hennar voru of lág, svo að
hún var um fjórum metrum
miður sín en venjulega. Ungfrú
Heublein, frá Þýskal., brást
mjög vonum manna og kastaði
styttra en búist var við. — Röð-
in var þessi: — 1. Copeland,
Bandar., 40.56 m.; 2. Osburn,
Bandar., 40.11 m.; 3. Wajos-
owna, Póll., 36.94 m.; 4. Flei-
scher, Þýskal., 36.08 m.; 5. Heu-
blein, Þýskal., 35.64 m.; 6. Stella
Walsli, Póll., 33.48 m.
Langstökk (úrslit): Lang-
stökkið varð ekki eins frækileg-
ur kappleikur og margir höfðu
búist við. Þetta var þó ekki
keppendum að kenna, heldur
því, að stokkið var móti all-
snörpum vindi og langstökks-
brautin var síst allra brauta á
leikvanginum.
Bandaríkjamaðurin Barber
var átrúnaðargoð flestra í þess-
jari íþrótt. Hann hafði stokkið
yfir 8 metra á æfingum fyrir
leikana, svo að búist var viðt,
að hann myndi jafnvel setja
heimsmet á leikunum, en hon-
um mistólcst hrapallega og
stökk miklu styttra en liann var
vanur. Hann varð að eins fimti
með 7.36 m. stökki.
Sigurvegari varð svertinginn
Gordon, liár og grannur maður.
Hann tók stutta atrennu með
löngum og fjaðurmögnuðum
skrefum. Uppstökkið 'var gott,
en sérstaklega var það merki-
legt, hve langt hann gat kastað
fram fótunum í niðurstökkinu.
Hann vann á fyrsla stökk sitt,
sem var 7.64 m. I næsta stökki
komst liann 7 m. slétta, en stökk
aftan við plankann. Þriðja
stökkið mældist 7.43. Atrenna
Gordon’s var mjög ójöfn, og
úrslitastökkin urðu öll ógild,
vegna þess að hann steig fram
yfir plankann. — Gordon er
Bandarik j amaður.
Önnur verðlaun vann Banda-
ríkjamaðurinn Redd, sem af
mörgum var álitinn hestur allra
keppenda. í fvrsta stökki sinu
stökk hann 7.85 nxetra, en var i
svo óheppinn, að hann rétt
snerti brautina framan við
plankann, svo að stökkiði varð
ógilt. 1 næstu tilraun stökk hann
7.60 m., og það var nægilegt til
að vinna á önnur verðlaun. —
Hin stökkin voru styttri.
Besta lagið af öllum keppend-
um i langstökkinu haf ði Japan-
inn Nambu, — sem er heims-
metshafi i langstökki með 7.98
m. stökk. Einkanlega var upp-
stökkið ágætt. Hann hafði feng-
ið beinhimnubólgu við æfing-
una undir Olympiuleikana, og
var ekki búinn að ná sér full-
komlega, er hann kepti þarna;
var þvi ekki við að búast, að
hann næði besta árangri sin-
um. Einnig hann stökk lengst
i fyrsta stökki sínu, 7.45 m. —
Þrjú af stökkum hans voru ö-
gild vegna yfirstigs. Önnur gild
stökk lians voru 7.32 og 7.39 m.
Einn Norðurlandabúi kepti í
langstökkinu, Sviinn Svensson,
og varð fjórði maður. Hann
stökk 7.41 í þriðja stökki. Kepti
hann, að sögn, að eins til að
reyna stökkbrautina, því hann
ætlaði að keppa í þrístökki —
sem var aðalgrein hans — á
þessari sömu braut einhvern
næstu daga. Stökk hann að eins
fjögur stökk, og voru öll gild.
Hin stökkin voru 7.27, 7.24 og
7.06 m.
Sjötti varð Japaninn Tajima;
stökk 7.15 m.
Það var sameiginlegt ein-
kenni keppenda, að þeim tókst
best í fyrsta stökkinu. Brautin
var svo laus, að hún varð strax
upp-urin og versnaði með hverri
atrennu. Úrslitastökkin voru
lika stokkin á annari braut, en
liún var litlu betri en hin fyrri,
og engum tókst að bæta hin
fyrri afrek sín í undanstökk-
unum.
Það er eftirtektarvert við
langstökkið — og kúluvarpið
— að afrekin þóttu heldur lít-
ilfjörleg og' varla sambóðin
Olympíu-kappleik, en fyrir 10
árum voru heimsmetin lægri en
þessi afrek, og liöfðu þá stað-
ið óhögguð um tugi ára!
Lýkur hér að segja frá 3.
degi á aðalleikvanginum.
(slenskt kveld.
Mér þóttu tíðindi, er eg heyrði,
aÖ Eggert Stefánsson væri hingað
kominn og hefði i fórum sínum
heila syrpu nýrra laga eftir íslensk
tónskáld, — það er að segja hin
yngri. Eggert sjálfan þarf eg ekki
að kynna bæjarbúum, — Eggert er
Eggert, — list hans svo ótviræð,
að hann hefir sérstöðu meðal ís-
lenzkra söngmanna. í þetta sinn
ætlar hann sér að syngja ný, gull-
falleg smálög inn í huga almennings,
lög, sem verða rauluð og sungin í
vetur. — Eg hefi séð söngskrána
og heyrt lögin. 1 meðferð Eggerts
verða þau ógleymanleg. Tvö ný lög
eftir Sigvalda Kaldalóns, Vöggu-
Ijóð (kvæði eftir Halldór Kiljan
Laxness) og einkum þó Hvide
Pige (við dásamlega fagurt kvæði
eftir Friðrik Á. Brekkan) eru
VlSIR
Mlnnlngarstef
um
Gunnar Hinriksson
vefara.
—o—
Hann var „einn að austan“
með yfirhtið bjarta.
Orðstír átti traustan
um iðni og göfugt hjarta.
Glæddur guðdóms-neista
gæddur manndóms-lundu,
drottins dásemd treysta
dirfðist hverja stimdu.
Gunnar þótt sé genginn
gleymd er ei hans snilli.
Ef til vill finst enginn
enn, er sæti’ hans fylli.
Verk til virkta mat hann;
— væri slangan rakin —
sinn við vefinn sat hann,
sofinn æ og vakinn.
Þökk, er þjóðar skylda,
þegni’ að gjalda mætum,
„snjallsteininum“ snilda,
snillingi fágætum.
Vina að muna manninn,
meta lund hans hlýja,
sýna kynslóð sanninn:
Svo skal landsheill drýgja! —
Páll Jónsson
frá Hjh.
sennilega hið fegursta sem Sigvaldi
hefir látið frá sér fara. — Tvö
lítt þekt tónskáld á Akureyri,
Askell Snorrason söngkennari og
Karl Ó. Runólfsson, eiga þar
nokkur undurfögur lög‘. Þau eru
eftirminnileg og bera vott um
miklar gáfur. — Þrjú lög ætlar
Eggert að syngja eftir Jón Leifs.
Tvö þeirra við sálma eftir Hall-
grim Pétursson (Upp, upp mín sál
og Vertu guð faðir, faðir minn),
en einna sérkennilegast er þó lag
Jóns, Máninn líður, dauðinn ríður
(kvæði eftir Jóhann heitinn Jóns-
son, sem fyrir skömmu andaðist í
Þýskalandi). Þetta lag eitt er þess
virði, að húsið verði fylt, þegar
Eggert syngur það, svo vel nær
hann þar „draugastemningu" lags-
ins. — Eg veit það fyrir víst, að
þetta íslenska kveld verður merkur
atburður í hljómlistalífi Reykjavík-
ur. Eggert á förum til Rómar til
að dvelja þar langvistum með konu
sinni, sem þar býr. Eru nú fá tæki-
færin til að heyra hann áður en
hann fer af landi burt.
/. N.
Símskeyti
Aberdeen, 27. sept.
United Press. FB.
Ágreiningur um björgunar-
laun.
Skipshöfnin á Lord Talbot,
breska botnvörungnum, sem
bjargaði Hutchinson og sam-
ferðafólki lians, gerði verkfall,
þar eð kröfur hennar um björg-
unarlaun voru ekki teknar til
greina. Einnig krafðist skips-
höfnin lengra landleyfis. — Ný
skipshöfn var ráðin á Lord
Talbot, sem er lagður af stað til
Grænlands á ný.
Manchester, 27. sept.
United Press. - FB.
Vefaradeilan.
Atvinnurekendur og vefar-
arnir hafa ' sameiginlega sam-
þykt til fullnustu samninga þá,
sem gerðir voru til lausnar á
deilumálunum. Verkfallinu er
því lokið og hefst vinna á ný á
morgun (miðvikudag).
Miðvikud. 28. sept. 1932.
Kaupið ítalska
Netjagarnid
með íslenska fánanum á merkinu. Hefir verið notað
hér við land í mörg ár. Besta tegund, sem fáanleg er.
Fæst í veiðarfæraverslunum.
/itf. i
PhotomatoD
6 myndir 2 kr.
Tilbúnar eftir 7 mínútur.
Templarasundi 3. Opið 1 til 7
alla daga.
Ný tegund af ljósmyndapappír
komin. Myndirnar skýrari og
betri en nokkru sinni áður.
Ódýrt I
Rafmagnsstraujárn, Kjötkvam-
ir, prímusar, járnpottar, alu-
miniumpottar, flautukatlar á 1
krónu, hitabrúsar, blikkfötur,
emaileraðar fötur og katlar á
hálfvirði. — Það er ómaksins
vert, að athuga verð í Fílnum.
Verslunin Fíllinn,
Laugaveg 79. Sími 1551.
Fyrlr
heilsnna.
Frá alda öðli
hefir salt ver-
ið mjög þýð-
ingarmikið
fyrir heils-
una — nátt-
úran krefst
þess. — Það
er ekki hægt að vera án
þess. Veljið þvi hið besta,
hreinasta og þurasta salt,
— Cerebos salt
þar sem ekki eitt kom fer
til spillis.
Fæst í öllum helstu versl-
unum.
Norskar loftskeytafregnir.
Osló, 25. sept. NRP-FB.
Hroðalegur atburður.
Hroðalegur atburður varð á
bændabýlinu Hopdal i Stats-
bygd í Þrændalögum í gær.
Kona að nafni Elisabet Belling,
37 ára gömul, varð skyndilega
brjáluð og gerði tilraun til þess
að bana 5 börnum sínum, á
aldrinum 9 mánaða til 7 ára.
Því næst gerði hún sjálfsmorðs-
tilraun. Búist er við, að takast
muni að bjarga lífi þriggja
yngstu barnanna, en hin eru í
mikilli hættu. Konan liafði ver-
ið taugaveikluð um skeið og ái
við mikla erfiðleika fjárhags-
legs eðhs að stríða.
Málaferli.
Úrskurður undirréttar í máli
frú Mörthu Steinsvik var upp
kveðinn í gærkveldi seint. Frú
Steinsvik var ákærð fyrir æru-
meiðandi ummæli um bæjarfó-
getann í Kristianssand, Norem
að nafni, er hafði dæmt í undir-
rétti í máh hennar og kaþólsks
prests, sem Riesterer heitir.
Ásakanir frú Steinsvik voru í
höfuðatriðum þær, að Norem
hefði verið hlutdrægur í dóm-
arasæti, hann liefði verið mjög
alúðlegur viði Riesterer en
ókurteis við sig. Ákæran á hend-
ur frú Steinsvik var frá yfir-
völdunum komin. Undirréttur
sýknaði frú Steinsvik af öhum
atriðum ákærunnar, en þegar
skeyti þetta er sent er enn óvíst
hvort ummæli hennar um No-
rem verða dæmd ógild.
Knattspyrna.
Hinn mikli knattspyrnukapp-
leikur Dana og Norðmanna fer
fram á UUevaal Stadion á
morgun. 18,000 sæti liafa verið
seld fyrirfram. Sæti eru á vell-
inum fyrir 33,000 manns og er
búist við, að öll sæti verði upp-
seld. Frá Kaupmannahöfn kem-
ur . aukaskip með áhorfendur
og er beðið með óþreyju eftir
úrslitunum bæði í Danmörku
og Noregi. — Síðari fregn: Dan-
ir báru sigur úr býtum.
við íslenskan búning fáið þið
best og ódýrast unnið úr
rothári.
Versl. Goðafoss,
Laugaveg 5. Sími 436.
Biiageymsla
Tek til geymslu bíla yfir
lengri eða skemri tíma, í
upphituðu húsi. — Verðið
mjög sanngjarnt.
Látið bílana ekki standa
í slæmu húsi, það styttir
aldur þeirra að mun.
Eglll Viihjálmsson,
Laugaveg 118. Sími 1717.
Taflmenn,
Taflborð,
Halma-spil,
Spilapeningar,
Spil.
Sportuörutiús ReykjauíRur.
Bankastræti 11.
Verðskrá:
Niðursuðuglös 1.20.
Hitaflöskur 1.35.
Vatnsglös 0.50.
Matardiskar 0.50.
Desertdiskar 0.35.
Ávaxtadiskar 0.35.
Kaffistell, japönsk, 19.75.
Dömutöskur 5.00.
Barnatöskur 1.25.
BoVðhnífar, ryðfriir, 0.90.
Vasahnifar 0.50.
Höfuðkambar, fílabein, 1.00.
Postulín.
Silfurplett borðbúnaður.
Búsáhöld.
Tækifærisgjafir o. m. fl.
» [imrsiöf \ Irpsrp
Bankastræti 11.