Vísir - 16.09.1938, Blaðsíða 2
2
VlSIR
Föstudaginn 16. sept. 1938.
VÍSSB
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Dregur til
styrjaldar?
P FTIR að Hitler flutti ræðu
^ sina í Niirnberg á dögun-
um, virtist í fljótu bragði sem
ófriðarliættan mundi „liðin hjá
í bili“, eins og það var orðað í
erlendum fréttum blaðanna. Nú
virðist sem það gengi krafta-
verki næst, ef það tækist, að af-
stýra ófriði.
Það liafði verið búist við þvi,
að Hitler mundi í ræðu sinni
gera grein fyrir þvi, hvaða
kröfur Þjóðverjar gerðu fyrir
hönd þýska minnihlutans í
Tékkóslóvakíu, Sudeten-Þjóð-
verja, og það var búist við því,
að aðalkrafan yrði um þjóðar-
atkvæði í Súdetahéruðunum um
örlög þeirra. En í ræðu sinni
gerði Hitler engar kröfur fyrir
hönd Súdeta, hvorki um þjóð-
aratkvæði né annað. Hinsvegar
lýsti hann því yfir, að Þjóðverj-
ar mundu koma Súdetum til
hjálpar, ef þess gerðist þörf. Og
í svipinn mun sú yfirlýsing all-
alment liafa verið skilin sem
„hreystiyrði44 eingöngu gefin af
hálfu Þjóðverja, en í rauninni
mundu þeir ekki sjá sér annað
fært, en að láta nokkuð undan
síga í liðveislunni við Súdeta,
eftir að Bretar höfðu tilkynt,
að þeir mundu ekki sitja lilut-
lausir hjá, ef til styrjaldar
drægi út af deilunni í Tékkó-
slóvakíu.
Nú virðast hinsvegar allar
líkur til þess, að yfirlýsing
Hitlers hafi verið gefin af ráðn-
um hug um það, að skiljast ekki
að svo búnu við mál Súdeta, en
láta skeika að sköpuðu um,
hvort styrjöld hlytist af afskift-
um Þjóðverja af þeim. Sudetar
virðast vera í þann veginn að
stofna til borgarastyrjaldar í
Tékkóslóvakiu, og getur því
rekið að því, þá og þegar, verði
þeir þurfandi fyrir þá „hjálp“
Þjóðverja, sem Hitler gaf fyrir-
lieit um, og að Þjóðverjar fari
með her inn í landið. En það er
auðsætt, að bresku stjórninni
hefir ekki þótt til setunnar boð-
ið, er hún sá livað verða vildi,
og því er það, að ráðin hefir
verið för breska forsætisráð-
herrans til fundar við Hitler,
hver sem árangurinn kann að
verða af henni. En líklega á sú
för sér ekkert fordæmi í ver-
aldarsögunni, enda hefir hún
þótt miklum tíðindum sæta og
er talin sönnun þess, live yfir-
vofandi hætta sé á því að styrj-
öld hrjótist út.
Líkurnar fyrir því, að styrj-
öld verði afstýrt, úr því sem
komið er, virðist i rauninni
hverfandi litlar. Þjóðverjum
yrði það óbætanlegur álits-
hnekkur, ef þeir létu nú brjóta
Sudeta á bak aftur, án þess að
hafast nokkuð að, eftir að hafa
gefið jieim fyrirheit um hjálp,
og þannig i rauninni óbeinlínis
livatt þá til þess að leila réttar
sins sjálfir. Ilinsvegar virðast
litlar líkur til þess, að óeirðirn-
ar í Tékkóslóvakíu verði stöðv-
aðar með samningum liéðan af.
En þó að Bretar vildu fara að
ráðum „Times“, og beita sér
fyrir því, að Sudetahéruðin
verði sameinuð Þýskalandi, þá
er þess varla að vænta, að
Frakkar geti fallist á þá lausn
málsins. Frakkar geta vart skil-
ist þannig við málstað Tékka.
Hinsvegar geta Bretar ekki skil-
ist við Frakka, þó að þeir fengi
þessu framgengt. — En vel má
vera, þó að aldrei fáist vitneskja
um það, að Þjóðverjar hafi ráð-
ið sínum ráðum í því trausti, að
þessi tillaga „Times“ mundi
runnin undan rifjum bresku
stjórnarinnar, og talið sé víst,
að að henni yrði farið að lokum.
En ef svo væri, þá er það mikil
ábyrgð sem á blaðinu livílir,
enda liefir það fengið þunga
dóma fyrir framkomu sína, og
þykir nú nokkuð brugðið þess-
um fornfræga „stjórnmála-
áttavita“ breska heimsveldisins.
I.O.O.F. 1=1209168V2=9 III
Veðrið í morgun.
I Reykjavík 5 st., heitast í gær
10, kaldast í nótt 9 st. Úrkoma 1,8
mm. Sólskin 2,3 st. Heitast á land-
inu í morgun 7 st., á Reykjanesi,
kaldast 2 st., á Siglunesi, Raufar-
höfn, Grímsey og Fagradal. — Yf-
irlit: Lægð skamt vestur af Bret-
landseyjum á hreyfingu í austnorS-
austur. — Horfur: Alt landið:
Hægviðri. Þurt og víða bjart veður.
Skipafregnir.
Gullfoss kom til Leith í morgun.
Goðafoss er í Hamborg. Brúarfoss
kom kl. 11 í morgun frá útlönd-
um. Dettifoss er á Akureyri, Lag-
arfoss í Kaupmannahöfn. Selfoss
er fyrir norðan.
Ármann.
Innanfélags drengjamót félagsins
fyrir drengi innan 16 ára, hefst á
Iþróttavellinum á morgun kl. 5 og
heldur áfram kl. 10 á sunnudag.
Kept verður í 80, 400 og 1500 m.
hlaupum, hástökki, langstökki, þrí-
stökki og stangarstökki, kúluvarpi,
kringlu- og spjótkasti. — Ollum
drengjum innan félagsins, sem eru
innan 16 ára aldurs, er heimil þátt-
taka. Mætið stundvíslega!
Friðrik Hjartar,
skólastjóri í Siglufirði, er fimt-
ugur í dag.
Dansleik
halda knattspyrnufélögin Fram
og K. R. annað kvöld að Hótel
Borg. Verður þar áreiðanlega margt
um manninn, þar sem þessi vel-
þektu félög slá sér saman um haust-
dansleik fyrir knattspyrnumenn og
knattspyrnuvini. — Ætti fólk að
tryggja sér aðgöngumiða tímanlega.
Hlutavelta K. R.
Þeir, sem eru að safna á hluta-
veltuna, eiga að skila dráttunum
í dag og fyrir kl. 6 á morgun, á
skrifstofu K. R. í K. R.-húsinu.
Golfkepnin.
„Semifinalinn“ í meistaraflokki
fór svo, að Hallgr. Hallgrímsson
vann Gunnar Kvaran og Helgi Ei-
ríksson vann Frímann Ólafsson. —
I I. fl.: Sig. Jónsson vann Gunn-
laug Einarsson og Ól. Gislason vann
Magnús Kjaran.
Ávarp.
Reykvíkingar! Nú, þessa dag-
ana, er verið að safna munum til
hlutaveltu, er Málfundafél. Óðinn
hefir ákveðið að halda sunnudaginn
25. þ. m. Tilgangur félagsins með
þessari hlutaveltu er sá, að koma
á fræðslustarfsemi fyrir félagsmenn
nú í vetur. — Þess skal jafnframt
getið, að í félaginu eru einungis
fátækir verkamenn, sem sökum
fjárhagsörðugleika ekki hafa getað
aflað sér nauðsynlegustu fræðslu.
Væntum við þess, að Reykvíkingar
sjái nauðsyn þessa máls, og bregð-
ist vel við og styrki málstaðinn með
því að láta eitthvað af hendi til
hinnar fyrirhuguðu hlutaveltu. —
Hitler og Chamberlain
hittast aftur i Godesberg
við Rín i næstn vikn
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London í morgun.
Frá Berchtesgaden er símað, að Chamberlain
muni fljúga aftur til London í dag, en hitta
Hitler aftur innan fárra daga.
Chamberlain var tekið ágætlega í Þýskalandi og
mæltist það vel fyrir þar, sem nærri allstaðar annar-
staðar, að hann fór þangað þeirra erinda, að ræða per-
sónulega við Hitler, í von um að afleiðingin yrði, að
leið fyndist til lausnar deilum Súdeta og Tékka. Var
ekki búist við í gærkveldi, að viðræðum Hitlers og
Chamberlains yrði lokið fyrr en á laugardag, en orsök
þess að hann kemur aftur fyrr en búist var við er tal-
in sú, að Hitler hafi rætt við hann tillögur, sem Cham-
berlain vill ræða á fundi með stjórn sinni.
Það vekur því engu minni eftirtekt að Chamberlain
kemur fljótt aftur, en hversu skyndilega hann tók á-
kvörðun um að fara til Þýskalands. Og ekki dregur
það úr athygli þeirri, sem fregnir um þetta vekja, að
fregnir frá Prag herma, að Runciman lávarður komi
til London, sennilega í dag, til þess að taka þátt í um-
ræðum Chamberlains og bresku ráðherranna.
Sá fréttaritari, sem nánastar fregnir hefir símað um
þetta mál alt, er Ward Price, fréttaritari Daily Mail,
sem í seinni tíð hefir vakið á sér mikla athygli fyrir
hve fljótt hann hefir aflað sér frétta um það, sem er
að gerast í Ítalíu og Þýskalandi. Er talið, að hann hafi
samband við menn, sem eru Hitler mjög handgengnir.
*
Ward Price segir, að þýska ríkisstjórnin
muni senda stjórn Tékkóslóvakíu harðorð
mótmæli út af meðferð þeirri, sem Súdetar
sæti. Muni þýska stjórnin hóta því í orðsend-
ingu þessari, að handtaka ýmsa tékkneska
menn, sem búsettir eru í Þýskalandi, og halda
þeim sem gislum, uns Súdetar sé í öllu Iátnir
njóta sömu verndar og öryggis sem aðrir
borgarar ríkisins.
Ward Price segir ennfremur, að Chamber-
lain og Hitler muni hittast aftur í Hotel Dres-
den í Godesberg við Rín í næstu viku.
Undir viðræðunum lagði Hitler áherslu á
það, að knýjandi nauðsyn væri að finna leið
til róttækrar lausnar á deilumálinu eins fljótt
og auðið væri og gerði því næst Chamberlain
grein fyrir skoðun sinni á því, hvernig leysa
mætti deiluna.
BRESKA HERSKIPIÐ „CORNWALL“ Á LEIÐ TIL
ÍSLANDS í HEIMSÓKN FÆR SKIPUN UM AÐ
snOa heim.
Fyrir nokkru var tilkynt breska konsulatinu hér að her-
skipið Cornwall, sem er 10 þús. smálestir að stærð, mundi
koma hingað í heimsókn. Yar búist við að skipið kæmi
hingað í gær. í stað þess kom skeyti sem tilkynti að skipið
hafi fengið skipun um að snúa við og fara til Bretlands.
Sýnir þetta meðal annars að Bretar búast við hinu versta
og eru við öllu búnir.
Krhtján Loftsson
lauflavörínr
er sjötíu og fimm ára í dag.
Hann hefir fyi'ir nokkru látið
af varðarstöðu við þvottalaug-
arnar, en henni hefir hann gegnt
um 17 ár, og dvelur nú á heim-
ili sonar síns, Einars B. Krist-
jánssonar trésmíðameistara á
Freyjugötu 37 hér í bænum.
Kristján er fæddur 16. sept.
1863, að Hallsstöðum á Fells-
strönd og ólst hann upp í þvi
héraði, en fluttist síðan til Snæ-
fellsness. .>:
Kristján kvongaðist Ingi-
björgu Einarsdóttur, hinni á-
gætustu konu, en hún lést i
fyrra.
t Reykjavík hefir Kristján
dvalið rösk 20 ár og er hér
mörgum kunnur og öllum að
góðu, enda getur ekki vingjarn-
legri né þægilegri mann i allri
umgengni. Þrátt fyrir aldurinn
er Kristján ern og ungur i anda,
glaður og reifur og liinn hress-
asti.
Við vinir hans óskum honum
innilega til hamingju i tilefni
dagsins og þökkum honum alla
góða viðkynningu og vel unnin
störf. K. G.
Eigum við að dansa?
heitir amerísk mynd, sem Gamla
Bió sýnir i kveld. Er þetta dansa-
mynd, eins og nafniS ber meS sér,
og leikur dansparið góðkunna
Ginger Rogers og Fred Astaire ac5-
alhlutverkin. Hafa þau jafnan þótt
næg meSmæli meS myndum, sem
þau leika í.
Næturlæknir.
Bergsv. Ólafsson, Hávallag. 47,
sími 4985. •— NæturvörSur í Lauga-
vegs apóteki og Ingólfs apóteki.
Skemtun í
Jósepsdal.
Á sunnudaginn keniur verður
haldin útiskemtun i JósepsdaL,
til ágóða fyrir skiðaskála Ár-
manns, ef veður verður gott.
Skemtunin hefst kl. 3 með
stuttri ræðu, en þar á eftir fer
fram fimleikasýning (1. flokk-
ur kvenna úr Ármanni), glíma,
knattleikskeppni, pokahlaup,
skriðukapplilaup o. fl. Á eftir
verður dansað á upplýstum
palli. Nægar veitingar verða í
skálanum og merki verða seld
til ágóða fyrir staðinn. Þamá
verður ágætt tækifæri fyrir þá,
sem vilja kynnast Jósepsdal og
umhverfi hans, því bílferðir
verða alveg upp að skála. Fjall-
göngumenn ættu heldur ekki að
sitja sig úr færi með að ganga
nú á fjöll, ef bjart veður verður.
Ferðir verða frá B. S. í. frá kl.
2 e. h. og greinilegt merki er við
veginn, þar sem vegurinn í Jó-
sepsdal liggur að akveginum.
Togarar á isMveiðum.
Belgaum og Þórólfur fóru á
ísfiskveiðar i gær. Eru nú all-
margir togarar, sem voru á
síldveiðum, komnir á ísfiskveið-
ar, þ. e. Baldur, Kári, Hannes
ráðherra, Karlsefni, Bragi og
Gulltoppur. Togararnir veiða
fyrir Þýskalandsmarkað og
hafa sölur verið góðar það sem
af er.
Aðrir togarar og l.v. Ólafur
Bjarnason búast á ísfiskveiðar.
Nýja Bíó
j heldur áfram að sýna Heiðu með
Shirley Temple, og er ekkert lát
| á aðsókninni.
!
Chamberlain mun nú ræða
við stjórn sína það, sem Hitler
lagði til.
Loks ætlar Ward Price, að
Hitler hafi gefið Chamberlain
nýjar upplýsingar varðandi
deilumál Súdeta og Tékka, upp-
lýsingar, sem Chamberlain var
áður með öllu ókunnugt um.
Deilumál Súdeta og Tékka
var eina málið, sem Chamber-
lain og Hitler ræddu ítarlega.
United Press.
Munum verður veitt móttaka í
Varðarhúsinu, uppi, næstk. laugar-
dag kl. 4—7 e. h. Sömuleiðis verða
þeir sóttir heim til fólks, ef þess
er óskaS, og er þá fólk vinsamleg-
ast beðið að hringja í síma 3315
og 2339. /. H.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.20 Hljómplötur: Norræn-
ir söngvar. 19.50 Fréttir. 20.15 Er-
indi: Vinnuskólar, I (LúSvig Guð-
mundsson skólastj.). 20.40 Strok-
kvartett útvarpsins leikur. 21.15
Hljómplötur: a) Sónötur eftir
Brahms. b) Harmóníkulög.
BRESKAR HERNAÐARFLUGVÉLAR
af nýjustu gerð sjást á myndinni hér að ofan. Flugvél ein af slíkri gerð flaug nýlega frá Ed-
inborg í Skotlandi til Lundúna með 408,75 mílna hraða á klst. Flugvélar þessar eiga að hafa
bækistöð í Englandi, en geta flogið inn yfir Evrópu, eftir því, sem þörf gerist.