Vísir - 23.12.1938, Síða 2
2
vrsiR
Föstudaginn 23. desember 1938.
VÍSIR
OAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S I m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á niánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Hagnaður af
sölu áfengis.
K LLIR borgarar þessa bæjar
“ munu vera á einu máli um
það, að sjaldan hafi réttmætari
krafa verið sett fram en sú, að
Reykjavík fái hagnaðinn af á-
fengissölunni í bænum, eins og
rætt var um hér í blaðinu fyrir
nokkrum dögum. Auk hinna
miklu tolltekna, sem rikið hefir
af innflutningi áfengis, fær'það
einnig liundruð þúsunda króna í
hagnað af áfengisútsölunni hér
í bænum. Þenna hagnað ber
bæjarsjóði tvímælalaust að fá
til þess að standa * straum, að
nokkru leyti, af hinu sivaxandi
fátækraframfæri. I raun og
veru er áfengisútsalan ekki
annað en stórkostlegur skattur
á bæjarbúa, sem hingað til hef-
ir runnið óskiftur til ríkisins.
Nú verður bærinn að fá nokk-
uð af þessum skatli.
Hér er um engan ríkisrekstur
að ræða, þótt Alþýðublaðið hafi
verið að lieimska sig á. að halda
sliku fram. Yesældarskapur
þess blaðs er nú orðinn svo tíð-
ur og ógæfusvipurinn svo áber-
andi, að menn eru hættir að
gefa þvi gaum hvað það segir.
Það er bergmál af flokki sem
er í afturför, flokki sem er orð-
inn áhrifalaus en lifir meðan
ekki er gengið til kosninga.
Rlaðið hikar ekki við að berj-
ast á móti hagsmunum Reykja-
víkur og um leið hagsmunum
almennings, til þess að þóknast
fjármálaráðherra Framsóknar-
flokksins. Slíkt verður skamm-
góður vermir.
Það er enginn ríkisrekstur
þótt bærinn fái nokkuð af á-
fengistekjum ríkisins. Það eru
og tekjur, sem bænum bera
með réttu og hann verður að
gera kröfu lil að fá þær. Slíka
kröfu má ekki láta niður falla.
Þessi skifting á hagnaði af
sölu áfengis, eins og liér er ræ'tt
um, tíðkast í öðrum löndum,
þar sem svipað skipulag er urn
innflutning og sölu áfengis og
hér er. Ilér er því ekki um neitt
nýmæli að ræða, heldur um
sjálfsagða sanngirniskröfu, sem
hvarvetna annarsstaðar mundi
verða tekin til greina.
Flestir munu sammála um
það, að löggjöfin um fátækra-
framfærslu er stórgölluð. Þessi
löggjöf hefir sett á herðar bæj-
anna, einkum Reykjavikur,
þyngri bjrrðai- en þeir geta með
góðu móti staðið undir. Útgjöld
fátækramálanna eru orðin lang-
stærsti liðurinn í reikningi bæj-
arins og framfærslukostnaður-
inn fer sívaxandi frá ári til árs.
Þetta getur ekki svo gengið til
lengðar. Annaðhvort verður
bærinn að fá tekjur til að
standa straum af afleiðingum
hinna stórgölluðu framfærslu-
Iaga, eða þessari löggjöf verð-
ur að breyta svo að ekki verði
mergsogið hvert einasta bæjar-
félag á landinu.
Hotel des
stórskemt
Xnvalides i
ai völdum
eldls.
Nú verður að byrja á því að
láta ReykjavOc hafa þær 500—
000 hundruð þús. króna, sem
áfengisútsalan í bænum gefur í
hagnað árlega.
Eldurinn náði ekki inn i grafhvelfingu
Napoleons. Slökkvilið frá 50 slökkvistöðv-
um fór á vettvang til þess að kæfa eldinn.
Jólablað Vísis
Jólablað Vísis kemur út í
fyrramálið og er 44 bls. að stærð
og óvenju vandað. Meðal annars
efnis blaðsins verður það sem
hér segir: Jólahugleiðing eftir
sira Bjarna Jónsson vígslubisk
up, Kvæði eftir Jón Magnússon
skáld, Jól í Florens eftir Rikarð
Jónsson myndskera, grein um
Tiberius keisara, Töfrar vetrar-
ins eftir Þorstein Jósefsson rit-
höfund, Kvæði eftir Pál V. G.
Kolka, Hið fegursta á jörðu,
saga eftir Anton Coolen, „Marg-
ur ágirnist meira en þarf“, eftir
Guðmund Friðjónsson skáld,
saga eftir Sabatini, Grundarstól-
ar, lýsing Mattliíasar Þórðar-
sonar fornminjavarðar, æfintýri
fyrir börn, getraunir og kross-
gátur, Kaþólskir og lútherskir
lielgisiðir, Kvæði eftir Grétar
Fells og „Hugrúnu", saga eftir
Anatole France, saga eftir Guð-
laugu Benediktsdóttur, smælki,
skrítlur o. fl.
I blaðinu eru fjölmargar fall-
egar myndir, og munu fegurri
myndir ekki hafa sést hér í
dagblöðum.
Blaðið verður borið út til
kaupenda snemma í fyrramálið
og selt á götunum.
Athygli
. skal vakin á hinni nýstárlegu
auglýsingar sem þessar vekja áhuga
Vestu, þar sem sýndur er prjóna-
fatnaður, sem þær ganga í ensku
prinsessurnar, Elisabeth og Marga-
ret Rose. Er enginn vafi á því, að
auglýsingar se mþessar vekja áhuga
barnanna fyrir því, hve rétt sé að
ganga í ullarfatnaði, þegar prins-
essurnar gera það.
Togararnir.
Geir kom frá Englandi í gær-
kvöldi. Kári fór aftur á veiðar í
nótt.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Eldur kom upp í einni frægustu byggingu París-
arborgar í gærkvöldi — Hotel des Invalides
— og var hraðað þangað slökkviliði frá öllum
slökkvistöðvum borgarinnar, en Daladier og aðrir ráð-
herrar fóru þegar á vettvang, þrátt fyrir, að mikilvægar
umræður stæði yfir í fulltrúadeildinni, og fóru þaðan
ekki aftur fyrr en búið var að ráða niðurlögum eldsins,
en hann hafði þá valdið stórtjóni.
Það var þriggja klukkustunda verk að kæfa eldinn.
Hótel des Invalides var reist 1670 og stendur við
Champs de Mars og var upphaflega ætlað sem sjúkra-
hús fyrir örkumla uppgjafahermenn. Nú eru þar
geymdar jarðneskar leifar Napoleons mikla, Fochs og
annara mikilmenna Frakklands, og er þar safn menja
frá valdatíma Napoleons, verðmæt skjalasöfn frá þeim
tíma o. s. frv.
Eldurinn kom ujip klukkan níu og var ekki búið að
kæía hann fyrr en um miðnætti. Eldurinn gereyðilagði
alla framhlið byggingarinnar. Mikið af verðmætum
skjölum, varðandi sögu franska hersins, fórust í eld-
inum.
Eldtungurnar léku um stund um og yfir hinu gullna
hvolfþaki, hvar undir hvíla hinar jarðnesku leifar Nap-
oleons og annara mestu sona Frakldands, en tjón af
eldinum varð ekki í grafkapellunni.
Slökkvistarfið var ákaflega erfitt slökkviliðsmönn-
unum, vegna frosthörkunnar, mátti næstum segja, að
vatnið frysi í höndunum á þeim, meðan verið var að
koma slökkvistarfinu í fullan gang.
ÖIIu því Iiði, sem hægt var að senda á vettvang, var
hraðað íra öllum slökkvistöðvum borgarinnar.
Kveldfundur stóð yfir í full-
trúadeildinni, þegar eldurinn
kom upp og brugðu þeir þegar
við, Daladier forsætisráðherra,
Sarraut innanríkisráðherra og
fleiri ráðherrar og fóru á vett-
vang, og fóru ekki á þingfund
aftur, fyrr en búið var að kæfa
eldinn. Gáfu ráðherrarnir ýms-
ar bendingar um varúðarráð-
stafanir varðandi hin miklu
verðmæti í byggingunni meðan
á slökkvistarfinu stóð.
Slökkvilið frá 50 slökkvi-
stöðvum Parísarborgar vann að
því að slökkva eldinn, en svo
horfði um skeið að byggingin
mundi brenna til ösku. Teygð-
ust eldtungurnar upp eftir þak-
nu á þessari gömlu, frægu bygg-
ingu, og reykjarmökkinn lagði
hátt í loft upp, en að lokum
tókst slökkviliðsmönnunum að
vinna bug á eldinum.
United Press.
DÓMEDES INVALIDES.
Bæjar
Ífréfíír
Næsta venjulegt blað. Vísis
kemur út á 3. í jólum.
Jólamessur.
I dómkirkjunni: Aðfangadags-
kveld kl. 6, síra Bjarni Jónsson;
kl. 9, síra Sigurjón Árnason.
Jóladag: Kl. ix, dr. theol. Jón
Helgason, biskup. Kl. 2, síra Frið-
rik Hallgrímsson (dönsk messa).
Kl. 5, sira Sigurjón Árnason.
2. jóladag: Kl. 11, síra Bjarni
Jónsson; kl. 2, barnaguðsþjónusta
(sr. Fr. H.); kl. 5, síra Garðar
Svavarsson.
Barnaguðsþjónustur: Jóladag:
Kl. 10 i Sunnudagaskóla K.F.U.M.;
kl. 10 í Skerjafjarðarskóla.
2. jóladag: Kl. 2 á Elliheimil-
inu; kl. 3 í Betaníu.
I frikirkjunni: Aðfangadags-
kvöld kl. 6, sira Árni Sigurðsson.
Jóladag kl. 2, síra Árni Sigurðs-
son.
2. jóladag kl. 5, Ragnar Bene-
diktsson stud. theol. prédikar.
I Laugarnesskóla: Aðfangadags-
kvöld kl. 6, síra Garðar Svavars-
son. Jóladag kl. 11 árd., sira Garð-
ar Svavarsson. 2. jóladag kl. 10
árd. barnaguðsþjónusta.
□ Edda 593812285 — Jólatré að
Hótel Borg. Aðgöngumiða sé vitj-
að sem fyrst til S.:. M.:.
Frönskn fjárlögin samþylí
með 366 atkvæðom gegn 229
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Fuíltrúadeild franska þjóðþing'sins samþykti í gær fjárlaga-
frumvarpið með 366 atkvæðum gegn 229, eftir langar umræð-
ur undangengna sólarhringa, en fundir hafa hvað eftir annað
staðið íram á nótt og stundum fram undir morgun.
Er fullnaðaratkvæðagreiðslunnar um fjárlögin nú talið
skamt að bíða.
Umræðurnar um tekjuöflunaráform stjórnarinnar voru
mjög harðar og um einn lið fjárlaganna bar stjórnin sigur úr
býtum með að eins 7 atkvæða meirihluta.
Upp úr nýárinu fer Daladier í ferð sína til Tunis og Korsíku
með miklu förunejúi.
Laxfoss
fór seinustu ferð fyrir jól til
Borgarness um hádegið í dag. —
Væntanlegur kl. 8—9 í kvöld.
JÓLAKVEÐJUR SJÓMANNA.
Þorláksmessu. FB.
Innileg óslt til ættingja og
vina um gleðileg jól.
Skipverjar á Eddu.
Óskum vinum og vanda-
mönnum góðra og gleðilegra
jóla. Kærar kveðjur.
Skipshöfnin á Snorra goða.
Oskum öllum vinum og
vandamönnum gleðilegra jóla.
Vellíðan. Kærar kveðjur.
Skipverjar á Venusi.
Gleðileg jól og nýtt ár. Þökk-
um hið liðna.
Skipshöfnin á Gylli.
/
Óskum vinum og ættingjum
gleðilegra jóla. Vellíðan. Kærar
kveðjur.
Skipverjar á Reykjaborg.
Gleðileg jól og farsælt nýár
með þökk fyrir það liðna. Kær-
ar kveðjur.
Skipverjar á Skallagrími.
Beslu jólakveðjur.
Skipverjar á Karlsefni.
Erjur Frakka og ítala.
Franska sendiherranum í
Rómaborg var í gærkveldi til-
lcynt, að ítalir hefði sagt upp
fransk-ítalska samningnum, er
Mussolini og Laval gerðu 1935.
Frönsk blöð segja, að engan
þurfi að undra, að ítalir hafi
tekið þetta skref þegar athuguð
sé furðuleg framkoma ítalskra
blaða í garð Frakka í seinni tíð
en þau séu öll háð vilja stjórn-
arinnar. Times í London telur
hér um óvanaiegar aðfarir að
ræða, því að þegar annað af
tveimur rikjum, sem gert hafi
| milliríkjasamning sín í milli sé
orðið óánægt með samninginn,
sé leitað samkomulags um upp-
sögn eða breytingar.
Aðalfulltrúa franska r'itliöfi
undafélagsins á Italiu hefir ver-
ið vísað úr landi. Franska
stjórnin hefir svarað þessu til-
tæki Itala með því að mælast til
þess að aðalfulltrúi ítalska rit-
höfundafélagsins í Frakklandi
fari úr Iandi.
United Press.
Jarðarför
Björgólfs Stefánssonar, kaup-
manns, fór fram í gær að viöstöddu
miklu fjölmenni. Nokkrir vinir hins
látna báru kistuna frá húsi að lík-
vagni, skókaupmenn báru hana í
kirkju og frímurarar úr kirkju, en
nokkrir menn úr Austfirðingafélag-
inu báru kistuna frá kirkjugarðs-
hliði að gröf.
Veðrið í morgun.
1 Reykjavík — 2 st., heitast í
gær o, kaldast í nótt — 3 st. Úr-
koma í gær og nótt 3,2 mm. Heit-
ast á landinu i morgun 2., í Vest-
mannaeyjum og á Reykjanesi; kald-
ast — 3 st., á Siglunesi. Viðast hvar
— 1 eða —■ 2 st. — Yfirlit: Ný
lægð að nálgast Suður-Grænlancl.
— Horfur: Alt landið: Breytileg
átt og hægviðri. Víðast þurt og
bjart veður.
Skipafregnir.
Gullfoss og Selfoss eru í Reykja-
vík. Goðafoss kom til Hull kl. 3
í dag. Brúarfoss er á leið til Kaup-
mannahafnar frá Grimsby. Detti-
foss var á Isafirði í morgun, vænt-
anlegur hingað síðdegis á morgun.
Lagarfoss er í Kaupmannahöfn.
Reykvíkingar!
Munið Vetrarhjálpina og leggið
henni liðsinni yðar fyrir jólin. Það
gefur langvinna gleði, að styrkja
gott málefni. Munið Vetrarhjálp-
ina!
Strætisvagnarnir.
í kvöld hætta vagnarnir ferðum
kl. 1 eftir miðnætti. Á morgun (að-
fangadag) eru seinustu ferðir frá
Lækjartorgi kl. 514 síðdegis. Jóla-
dag byrja ferðir frá Lækjartorgi
kl. 1 e. h. Annan jóladág byrja
ferðir Id. 9 árdegis*
I
Franco neitar
nm vopnahlé
um jólin.
EINKASIŒYTI TIL VÍSIS.
London i morgun.
Franco hefir liafnað tillögu
franskra uppgjafaliermanna um
vopnahlé um jólin.
Njósnirnar hjá Franco.
Times birtir grein um njósn-
irnar hjá Franco frá fréttaritara
sinum. Er þar sagt frá orðrómi
um, að einn af herforingjum
Franco hafi svikið hann, geng-
ið lýðveldissinnum á hönd og
gefið þeim upplýsingar um liina
fjTÍrhuguðu sókn á Kataloniu,
sem Franco varð því að fresta.
Ensk blöð ræða einnig deilur
carlista og falangista og ó-
ánægju þeirra út af íhlutun It-
ala og Þjóðverja.
United Press.
Mæðrastyrksnefndin.
Styrkið nefndina. Skrifstofan er
í Þingholtstræti 18, opin 4—7. Sími
4349-
Næturlæknar um hátíðina.
Aðfaranótt aðfangadags: Gisli
Pálsson, sími 2474.
Aðfaranótt jóladags: Eyþór
Gunnarsson, Laugaveg 98, sími
2111. Þessar tvær nætur er vörður
í Laugavegs apóteki og Ingólfs apó-
teki.
Aðfaranætur 2. og 3. jóladags:
Halldór Stefánsson, Ránargötu 12,
sími 2234. Næturvörður þessar
tvær nætur í Reykjavíkur apóteki
og Lyfjabúðinni Iðunni.
Styrkið og styðjið Vetrarhjálpina!
Helgidagalæknar.
Jóladag: Haildór Stefánsson,
Ránargötu 12, simi 2234.
2. jóladag: Karl S. Jónasson, Sól-
eyjargötu 13, sími 3925.
Jólasveinninn Gluggagægir,
_ sem alkunnur er, býður aðstoð
sína að vanda um jólin, á ölluni
jolatrésskemtunum, hvort heldur er
í samkomusölum eða heimahúsum.
Hann hefir og tekið upp þá ný-
breytni, að bera út jólagjafir á að-
fangadag. Munu margir verða til
þess að fela honum að færa kunn-
ingjum jólagjafir og jólakveðjur.
Hringið í síma 5224.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.20 Iiljómplötur: Jólalög.
Jólasveinninn kemur og heilsar
börnunum. 19.50 Fréttir. 20.15 Út-
varpssagan. 20.40 Útvarpshljóm-
sveitin leikur. 21.10 Hljómplötur:
Jólalög frá ýmsum löndum. 21.35
Danslög.
Útvarpið annað kvöld.
Kl. 15.10 Fréttir. 18.00 Aftan-
söngur í Fríkirkjunni (síra Árni
Sigurðsson). 19.15 Jólakveðjur.
21.00 Orgelleikur og jólasálmar
(Páll Isólfsson og Gunnar Páls-
son). Úr fríkirkjunni.
Útvarpið á jóladaginn.
Kl. n.00 Messa í dómkirkjunni
(Prédikun: Dr. theol. Jón biskup.
Helgason. Fyrir altari: Síra Frið-
rik Hallgrímsson). 14.00 Dönsk
messa í dómkirkjunni (síra Friðrik
Hallgrímsson). 15.30 Tónleikar
(plötur) : a) Prgar-symfónían, eft-
ir Mozart; b) Píanókonsert nr. 4,
G-dúr, eftir Beethoven. 17.40 Út-
varp til útlanda (24.52 m). i8.0O'
Barnatími. 19.20 Jólakveðjur. 20.30
Jólavaka: Hugleiðingar og upplest-
ur (Magnús Jónsson prófessor);.
tónleikar.
Útvarpið 2. jóladag.
KI. 9.45 Morguntónleikar (plöt-
ur) : Píanókonsert nr. 1, d-moll, eft-
ir Brahms. 11.00 Messa í dómkirkj-
unni (sira Bjarni Jónsson). 12.15
Hádegisútvarp. 14.00 Barnamessa í
dómkirkjunni (síra Friðrik Hall-
grímsson). 15.30 Miðdegistónleik-
ar frá Hótel Island. 18.00 Barna-
tími. 19.20 Hljómplötur: Gömul
kirkjulög. 19.50 Fréttir. 20.15 Upp-
lestur og tónleikar: Karlakórinn-
„Fóstbræður“ syngur. Tónleikar
Tónlistarskólans.. Kvæði og þættir..