Vísir


Vísir - 14.04.1939, Qupperneq 7

Vísir - 14.04.1939, Qupperneq 7
Föstudaginn 14. apríl 1939. VlSIR 7. Vörður mótmælir stjórnar samvinnu nema með vissum skilyrðum. Landsmálafélagið Vörður hélt fund í gær í Varðarhúsinu og' var húsið svo þéttskipað fundarmönnum, sem húsrúm frekast leyfði. Til umræðu var gengismálið og voru umræður fjörugar en þó mjög prúðmannlegar, en nokkur hiti í fundarmönnum. Frummælendur voru þeir Jakob Möller og Ólafur Thors, en alls voru 19 ræður haldnar á fund- inum. Aðrir ræðumenn voru Bjarni Benediktsson og af þeirra hálfu Evrópa í varanlegu umsátursástandi. Daladier gerði fyrst nokkura grein fyrir hver áhrif seinasta útvarpsræða hans hefði liaft. Hefði hann sannfærst algerlega um það, að hann hefði alla þjóð- ina að baki sér til verndar sjálf- stæði og frelsi Frakklands. Ev- rópu allri mætti nú líkja við land í varanlegu umsáturs- ástandi. Daladier kvaðst áður hafa gert grein fyrir nauðsyn- inni á því, að Frakkar gerði all- ar nauðsynlegai' ráðstafanir til þess að verjast — og jafnframt treysta vináttu- og samvinnu- böndin við þær þjóðir, sem vildu varðveita frelsi og réttindi sín. Á þessurn tveimur stoðuin liöfum við aðallega hygt, sagði Daladier, í kyrþey og án hótana — athugandi ríkjandi ástand — og vér höfum, sagði hann forð- ast allan hávaða og blekkingar. Hernaðarlegar ráðstafanir liafa verið gerðar til þess að tryggja landamærin fyrir lárásum, hvað- an sem þær kynni að koma. í nafni stjórnarinnar þakkaði hann öllum, sem með rósemi og skyldurækni liefði int af hendi öll nauðsynleg störf í þessu skyni. Hann þaklcaði hermönn- unum í virkjunum á landamær- unum, hersveitunum i hinum ýmsu herhúðum, skipshöfnun- um í herskipunum, verkalýðnum j í landinu — og þakkaði sérstak- lega þeim, sem vinna að her- gagna- og skotfæraframleiðsl- unni. Samvinna við aðrar þjóðir. Þá gei-ði Daladier grein fyrir samkomulagsumleitunum Breta og Frakka, sem í náinni sam- vinnu hefði rætt við fulltrúa annara þjóða til þess að sporna við ágengni þjóða, sem liafa þá aðferð að heita valdi. Samvinn- an við Breta er traustari en nokkuru sinni. í fullu samráði við Bretastjórn lýsti Daladier yfir: 1. ) Að nauðsyn krefji að spyrnt sé móti öllum tilraun- um til ]x>.ss að beila valdi, við Miðjarðarhaf sem annarstaðar í álfunni. 2. ) Franska stjórnin er ánægð yfir pólsk-breska samkomulag- inu. Eins og Bretar hafa Frakk- ar og Pólverjar lofað að veita sem aðhyltust önnur ráð, en þau sem Alþingi samþykti, auk J. M., þeir Sigurður Kristjánsson, Gísli Jónsson, Árni Jónsson frá Múla, Andrés Þormar og Egill Guttormsson. Á fundinum lcom fram tillaga þess efnis, að Sjálfstæðisfloklc- urinn skyldi gera það að ófrá- víkjanlegu skilyrði fyrir þátt- töku í þjóðstjórn, að honum yrði falin meðferð fjármála og viðskiftamála, og var tillaga þessi samþykt með öllum þorra atkvæða. gagnkvæma hjálp, ef til árásar kemur á landamæri Frakklands og Póllands. 3.) Frakkland lætur ekkert ó- gert sem í þess valdi stendur, til þess að vernda frelsi og sjálf- stæði Frakklands. Álit þýskra stjórnmálamanna. Samkvæmt simfregnum frá Berhn líta þýskir stjórnmála- menn svo á, að yfirlýsingar Cliamberlains og Daladiers varðandi Rúmeníu og Griklc- land séu liarla litils virði, þar sem þessum ríkjum hafi ekki verið ógnað. Þýskaland og Spánn. Þýsk blöð ræða mikið nauð- syn þess að Spánverjar fái að- stöðu til þess að aulca áhrif sín við Miðjarðarhaf. í þessu sam- bandi vekur mikla athygli fregn um það, að Þjóðverjar hafi tekð á- kvörðun um að senda flota- deild til Spánarhafna. — Verða í henni fjögur stór herskip af sömu stærð og Deutschland og margir kaf- bátar. Spánverjar með ítölum og Þjóðverjum. Frönsk blöð telja viðhorf Spánverja hafa breyst undan- farið, Bretum og Frökkum í ö- hag. Göbbels í Belgrad. Göbbels, útbreiðslu- málaráðherra Þýska- lands, er sagður vænt- anlegur til Belgrad í dag. Roosevelt flytur ræðu í dag. Fregnir frá Bandaríkjunum lierma, að Roosevelt muni lialda ræðu í dag, og búast menn við mikilvægri yfirlýsingu frá hon- um. United Press. Viktor Emanuel konungur í Albaniu. Oslo, 13. apríl. FB. Albanska þjóðarsamkundan hefir samþykt að ganga í banda- lag við Ítalíu og boðið Viktor Emmanuel Ítalíukonungi kon- ungstign í Albaniu. NRP. Áskorun til verslunar- fólks. Verslunarmannafélag Reylcj a- vikur hefir fyrir nokkru ákveð- ið að láta fara fram fullkonma skráningu alls verslunarfólks í Reykjavík, og hefir i þeim til- gangi sent öllum verslunar- starfsfóllci hér bæ fyrirspurnar- form lil útfyllingar, sem ber að endursenda til skrifstofu félags- ins, Hafnarsjræti 5, lierbergi 16 —17, samkvæmt auglýsingu hér í blaðinu í gær. í tilefni af því, að mjög dræmt hefir gengið að fá þessi fyrirspurnarform útfylt og end- ursend viljum vér hérmeð taka fram eftirfarandi: Verslunar- fólk má ekki trúa því og óttast, að rétt svör við fyrirspurnum þessum verði notuð á nokkurn hátt til tjóns fyrir starfsfólkið, lieldur þvert á móti er tilgang- ur vor sá, að þessar upplýsing- ar verði starfsfólkinu til hags- bóta á ýmsan hátt. Þótt segja megi, að verslunarfólki í Reykjavík sé alment vel laun- að, mun þó gæta nokkurs ósam- íæmis í þessu hjá þeim, sem lægst eru launaðir, og að ein- stöku atvinnurekandi eða stofn- un ráði starfsmann eða konu fyrir óhæfilega lágt lcaup, sök- um atvinnuleysis fólksins. Væri þvi æskilegt, að lágmarkskaup yrði álcveðið og kaupið sam- ræmt eftir mentun og starfs- aldri. Er hér stefnt að því, að Versl- unarmannafélag Reykjavikur verði umbjóðandi starfsfólksins í ráðningasamningum við at- vinnurekendur og undirriti slíka samninga til þess að fyrir- iiyggja, eftir þvi sem hægt er, alt misrétti i þeim efnum, sem getið er hér að framan. Atvinnurekendur í verslunar- stéttinni hafa tekið þessari liug- mynd liið besta, svo fyrirstaða mun ekki verða frá þeirra liálfu enda hafa þeir hér í félaginu og við stjórn þess látið í Ijós mik- inn velvilja til starfsfólks síns og margir sýnt hann greinilega í verkinu. Að öllu þessu athuguðu von- um vér, að verslunarstarfsfólk vilji styðja gott og réttlátt stefnumið, með því að útfylla strax fyrirspurnarformin og endursenda oss þau. Oss hefir borist til eyrna, að spurningin um launakjörin fældi marga frá því að endursenda oss útfylt fyrirspurnarform. Þótt slíkt að vísu sé ástæðulaust, þar sem farið er með þessar upplýsingar sem algert trúnaðarmál, viljum vér biðja þá eða þær, sem ekki vilja gefa upplýsingar um launakjör sín, að útfylla skjalið að öðru leyti og endursenda oss það. Ef fyrirspurnarformið hefir glatast í vörslum viðtakanda, má fá annað nýtt á skrifstofu vorri. Stjórn Verslunarmannafél. Rvíkur. Gengið í dag. Sterlingspund .......... kr. 27.00 Dollar.................. — 5.78^4 100 ríkismörk ...........— 231.38 — franskir frankar . . — 1543 — belgur.............. ■—■ 97.27 — svissn. frankar . .. •—• 129.70 — finsk mörk.......... ■—■ 9.93 — gyllini ............. — 306.94 tékkn. kr.............— 20.13 sænskar kr............— 139.34 norskar kr............— 135-84 danskar kr............— 120.54 ÚTVARPIÐ VIKUNA SEM LEIÐ. Frh. af 3. siðu. Þá heldur Sigurkarl Stefáns- son áfram erindum sinum um hreyfingu, og talaði á þriðju- dagskvöldið um afstæðiskenn- ingu Einsteins. Nafnið Einstein er á vörum alls almennings, einslconar óþekt stærð, sem menn nefna með virðingu að dæmi sér lærðari manna, án þss að vita í raun og veru livað það þýðir. En spyrji maður svo einhvern af handahófi: Hvað iiefir þessi Einstein unnið sér til ágætis? Þá vill viða verða svarafátt. Það er gott, ef Sigur- karli tekst að leysa úr þessari spurningu við alþýðuliæfi. Kvöldvaka Verlunarskólans er það útvarpsefni, sem mest „fútt“ hefir verið í nú um lang- an tíma. IJún var verulega skemtileg frá upphafi til enda. Þarna komu fram góðir og vel æfðir söngkraftar, sem völdu sér vinsæl og ánægjuleg við- fangsefni, alkunn og alþýðleg lög og ljóð. Og hljóðfæraleikur- inn var ekki síðri. Erindi Guð- mundar Árnasonar um hval- veiðar var skemtilegt og vel flutt og sama var að segja um viðtölin og upplesturinn. Sér- staklega var kvæðaflutningur Guðbjargar Vigfúsdóttur á- heyrilegur. Þá rödd væri gam- an að hejma aftur í útvarpi, svo óvenju hljómfögur var hún og blæbrigðarik. En þá er ótalinn sá dagskrár- liðurinn, sem var tilkomumest- ui’ af öllu, scm útvarpið flutti þessa viku, en það var leikurinn Egmont eftir Goetlie. tmsum mun eflaust liafa fundist út- varpið færast mikið í fang, að flytja þennan dásamlega leik. En hér tókst stórum betur en ef til vill liefði mátt vænta mið- að við alla aðstöðu. Á leiksviði gera hinir hollensku og spönsku 16. aldar búningar sitt til að dýpka álirif þessa leiks og gera áhorfandann innlifaðan í þá at- burði, er leikurinn lýsir, en í út- varpinu verður að láta raddirn- ar bera alt uppi, og það tókst leikendum vel. Sennilega hefir leiklist Þorsteins Ö. Stephensen komist liæst í lilutverki Eg- monts. Að minsta kosti má full- yrða, að í þessu hlutverki hefir hann skilið eftir djúp áhrif hjá áheyrendum, sem standast sam- anburð við áhrif ýmsra frægra Egmont-leikara erlendis. Réttindi íslenskra og danskra sjúkra- samlagsmeðlima. Þann 1. apríl síðastliðinn geklc í gildi samningur rnilli sjúkrasamlaganna hér og í Dan- mörku um gagnkvæm réttindi sjúkrasamlagsmeðlima í Iand- inu. Er það aðalatriði samnings- ins, að sjúkrasamlagsmeðlimir hvors lands, sem flytja búferl- um til hins, fá full réttindi án biðtíma. Þeir njóta einnig réttinda, sem stunda nám í öðru hvoru landinu, eða atvinnu. Þegar menn flytjast héðan verða þeir að fá flutningsvott- orð frá sjúkrasamlagi sínu og verður að afhenda það sjúkra- samlagi í Danmörku, eigi síðar en 6 vikum eftir að það er gef- ið út. Þá er og í undirbúningi samningur um réttindi þeirra, sem dvelja aðeins skamma stund í hvoru landi og þurfa Iæknishjálpar. Sveinn Björnsson sendiherra undirritaði samninginn fyrir ís- lands hönd og Stauning fyrir hönd Dana. VlSIR FYRIR 25 ÁRUM 5. apríl 1914 (sunnudagur): Bær eyðist af manndauða: Þetta er símað í gærkveldi frá Akur- eyri til Vísis: Á Einliamri í Hörgárdal bjó bóndinn Jón Sveinsson með konu, vinnu- konu og þrem börnum og var það elsta 12 ára að aldri. Fyrir skömmu dó konan þar, en dag- inn sem liún var jörðuð, dó vinnukonan. Nolckurum dög- um síðar komu börnin 3 ein síns liðs til næsta bæjar, höfðu brotist þelta áfram í illu veðri og kafsnjó. Sögðu þau, að fað- irinn væri dáinn. Um skepnurnar hefir ekki frést, livort þeim hefir verið bjargað frá hungurdauða. 6. apríl: Frá Stykkishólmi: Sökum stöðugra norðanstorma og frosts er ekki liægt að ná fiskiskipunum hérna (12 að tölu) úr vetrarlægi. Er altaf lagnaðarís um þau. , 9. apríl: Hafnarfirði í gær: Felix, botnvörpuskip frá Geste- múnde (P. A. 88) strandaði á innsiglingu til Hafnarfjarðar í morgun. Það náðist strax út, en hafði bilað nokkuð aftanvert og stýrið brotnað. Geir var kallað- ur til og er hann enn að gera við það. Skíðaferð: Hera fór inn í Hvalfjarðarbotn í nótt með þá skíðamennina, er ætla á skíð- um undir stjórn Múllers versl- unarstjóra frá Botnsdal um Þingvelli og Kolviðarhól hingað i páskafríinu. Skyrbjúgur og pasteoriseruð mjólk. Eins og kunnugt er hefir því verið haldið fram, og sjálfsagt með réttu, að pasteuriseruð mjólk sé miklu óhollari og snauðari að bætiefnum en ó- soðin mjólk, einkum nýmjólk. Nú er það vitað, að vetrarmjólk er miklu fátækari, t. d. að C- fjörvi, heldur en sumarmjólkin. Hitt segja fróðir menn, að stundum geti verið eins mikið C f jörvi í undanrennu, eins og nýmjólk. Getur undanrennan því að þessu Ieyti verið eins góð og nýmjólkin. „Af þvi að C- fjörvið er vatnsuppleysanlegt, en ekki uppleysanlegt í fitu, er hér um hil jafnmikið í nýmjólk og undanrennu af C-fjörvi, svo að undanrennan getur verið mikilsvirði að þessu leyti,“ seg- ir í hinu mikla riti N. Dungals: „Um næringu og næringarsjúk- dóma“. — Áður héldu sumir sérfræðingar því fram, að „munurinn á árangrinum af pasteuriseraðri mjólk og ekki pasteuriseraðri, væri ekki finn- anlegur, svo að unt væri að sýna fram á liann með tölum. I seinni tíð virðast menn þó Iiall- ast meira og meira að þvi, að pasteuriseruðu mjólkinni sé ekki eins treystandi að þessu Ieyti. T. d. bar svo mikið á skyr- bjúg 1901 meðal ungbarna í Berlin, eftir að eitt stærsta mjólkurbúið fór að pasteurisera mjólkina, að ]>að lagði pasteuri- seringuna niður aftur sam- kvæmt ráði læknanna. Þar sem það tíðkast að láta sítrónusafa út i mjólkina, gerir pasteuriser- ingin lítið til, en enginn efi er á, að varasamt er áð treysta C- fjörvisinnihaldi mjólkur, sem vei'ið hefir pasteuriseruð.“ — Margt fleira er um mjólkina sagt, bæði nýja og gerilsneydda, í hinu merka riti prófessorsins, en rúmið leyfir ekki, að út í ]iað mál sé nánara farið að sinni. Daladier gerir grein fyrir afstððn Fratta. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London í morgun. Daladier hefir gert blöðunum i Frakklandi grein fyrir af- stöðu Frakklands til alþjóðamálanna og hvaða öryggisráðstaf- anir hafa verið teknar af frönsku stjórninni i samráði við bresku stjórnina. O.O.F.l = 120 414 8 ^ / 2 Veðrið í morgun. í Reykjavík 5 stig, heitast í gær 9 stig, kaldast i nótt o stig. Sólskim í gær í 5.2 stundir. Heitast á land- inu í morgun 6 stig, í Vestmanna- eyjum, kaldast 1 stig, á Siglunesi, Raufarhöfn, Fagradal og Dala- tanga. Yfirli:: LægÖ milli íslands og Skotlands á hægri hreyfingu 5 norðaustur. Horfur: SuÖvestur- land: Austan gola. SumstaÖar dá- litil rigning. Faxaflói, BreiÖafjörð- ur: Austan og norðaustan gola. Þurt og víða bjart veður. Skipafregnir. Gullfoss er í Kaupmannahöfm. Goðafoss fór írá Hull i nótt, áleið- is til Hamborgar. Brúarfoss er á Akureyri. Dettifoss fer vestur og norður i kvöld kl. 8. Lagarfoss er á leið til Austfjar.ða frá Leith. Sel- foss er i Reykjavík. Súðin fór i strandíerÖ vestur og norð- tir í gærkvöldi. Ný bók. Nýlega er út kornin á kostnað Isafoldarprentsmiðju bók ein, sem mjög mun verða lesin. Titill henn- ar er þessi: Daginn eftir dauðann. Lýsing á lífinii fyrir handan. Ein- ar Loftsson sneri úr ensku. Með formála eftir Snœbjörn Jónsson. — Bókar þessarar mun síðar get- ið hér í blaðinu. Af veiðum komu þessir togarar í nótt: Reykjaborg, með 160 föt lifrar, Jón Ólafsson með 100, Geir með 80 og Egill Skallagrímsson með 90 föt. Hjúkrunarkvennablaðið 1. tbl. þessa árs, er nýkomið út. í því er þetta efni m. a.: Fram- haldsnámskeið fvrir hjúkrunarkon- ur við háskólann í Árósum (Sigr. Eiríksd.), um berklavarnir (Óf. Óf. læknir), Hjúkrun á Islandi (Jóh. Knudsen), Dagskrá 6. norræna hjúkrunarkvennainótsins, Fréttir o. fl. — K.S.V.í. í innanfélagshappdrætti kvenna- deildar Slysavarnafélagsins komu upp þessi númer: 187, 412, 15,59; 2488 og 2916. Munina má sækja á skrifstofu félagsins i Hafnarhúsinu við Geirsgötu. Franski sendikennarinn, Jean Haupt, les upp úx meistara- verkuni eftir frönsk skáld á 19. öld i kvökl kl. 8 i háskólanum. Skíðafólk K. R. Þeir, sem dvöklu í skíðaskála K.R. um páskana, eru beðnir um að koma saman í Oddfellowhúsinu í kvöld kl. 9. Verður þar kaffi- drykkja og sýndar skuggamyndir frá páskahelginni o. fl. Eru það ákveðin tilmæli til allra, sem dvöldu í skálanum, að þeir komi þarna. Guðspekifélagið. Reykjavíkurstúkan heklur fund í kvökl kl. 9. Grétar Fells flytur er- indi um Éinar Benediktsson. Ein- söngur: Hermann Guðmundsson. Upplestur. Organleikur. Útvarpið í kvöld. Kl. 19.50 Fréttir. 20.15 Útvarps- sagan. 20.45 Hljómplötur: Þjóðlög frá ýmsum löndum. 21.00 Bindind- isfréttir (Magnús Már Lárussoti, stud. theol.). 21.20' Fíanóleikur: Sónata eftir Ánia Björnsson (ung- frú Guðríður Guðmundsdóttir).- 21.40 Hljómplötur: Harmóníkulög.. Knatíspyrnuíélagið Víkingun. Skemtifordur verður Iialdinn í Oddfellowliús- inu sunnudaginn 16. þ. m. kl. 4 e. b. — Knattspyrnukvikmynd í. S. f. og fleira til skemtunar. Allir 3. og 4. flokks meðlimir eru boðnir ókeypis. Æfingatöflunni verður útbýtt. STJÓRNIN.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.