Vísir - 25.08.1939, Side 4

Vísir - 25.08.1939, Side 4
4 VlSIR DA6BLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIK H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofa: Hverfisgötu 12 Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) S í m a r: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 — (kl. 9—12) 5377 Verð kr. 2.50 á mánuði. Lausasala 10, 15 og 20 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. R úrslita- stund. J^JEÐAL farþega á Lyru í gær- kvöldi var ungur, erlendur íiðsforingi. Hann hafði dvalið hér í sumarleyfi, en var skyndi- lega kvaddur heim til að gegna þjónustu, við hin óvæntu stór- tíðindi, sem gerst hafa síðustu dagana. Þetta var hraustlegur, karlmannlegur maður, ólíkleg- ur til þess að láta sitt eftir liggja. Hann var æðrulaus, hljóður og alvarlegur. Hann hafði komið með Laxfossi til bæjarins utan af landi. Þegar hann kom ofan á hafnarbakk- ann var Laxfoss að fara út úr höfninni. Honum varð lilið á skipið og sagði: „Það væri ann- að að vera að fara aftur með þessu skipi.“ Hann hafði ekki um þetta fleiri orð, en þeir, sem á hlýddu, fundu, að þessi maður gerði sér fulla grein fyrir því, að hann var því að eins kvadd- ur heim, að nú var hætta á ferð- um. Þetta var aðeins einn af öll- um þeim miljónum ungra manna, sem þessa dagana verða að vera þess búnir, að leggja líf- ið að veði fyrir velferð ættjarð- ar sinnar. Það er ekki úrkastið úr þjóðunum, sem kvatt er til vopna. Það er úrvalið, liið liraustasta og þrekmesta, blóm- inn af hinum upprennandi æskumönnum. Svona hefir það verið og svona er það. Styrjald- irnar leggjast mCst á vaxtar- broddinn. Siðustu fregnirnar i gær- kvöldi voru nálega samhljóða: „Ekkert nema la-aftaverk getur komið í veg fyrir styrjöld.“ „Vonirnar um að friður haldist eru að verða að engu.“ „Ástand- ið er vonlaust“ o. s. frv. Útlit- ið er ískyggilegra en nokkru sinni fyr. Við Isíendingar förurn ekki varhluta af afleiðingum þess, að umheimurinn hlaupi i bál. Viðskiftaerfiðleikarnir verða ennþá tilfinnanlegri og við verð_ um að vera við því búnir að neita okkur um margt af því, sem talið er til daglegra þarfa. En lívað er þetta hjá því, sem flestar aðrar þjóðir verða að horfast í augu við! Þær verða að fórna daglegum þörfum og þægindum ekki síður en við. En auk þess hætta þær öllu því verðmætasta sem þær eiga, fjármunum sínum, hamingju, lífi. Þessvegna lá svo mikið í orð- um Iiins unga liðsforingja, þeg- ar liann sá litla strandferðabát- inn okkar leggja úr höfninni. I hans augum var hér þann frið að finna, sem almenningur um allan heim þráir og þá mest, þegar hættan vofir yfir að hann verði rofinn. Við erum einangraðri en aðr- ar þjóðir þessarar álfu. Þessi einangrun liefir sína galla. En á úrslitastundum getum við ekki nógsamlega þakkað, að vera svo fjarri alfaraleið, sem raun er á. Um smáþjóðimar í Norðurálfunni má með nokkr- um sanni segja, að „enginn ræður sínum næturstað“. Hið vopnlausa hlutleysi okkar er síst ótryggara en hervarnir þeirra. Hvað sem í kann að skerast er lífi okkar ekki liætta búin. Hér er um svo mikilsvert at- riði að ræða, að vafasamt er, lwort við gerum okkur fulla grein fyrir þvi. Við verðum aldrei annað en áhorfendur, þegar aðrir berjast til úrslita. En við eigum að læra af því, sem fyrir augun ber. Við eig- um hér í sífeldri baráttu inn- anlands, þótt vopnlaus sé. Við vitum að ranglæti og yfirgang- ur i einhverri mynd, gamalt eða nýtt, er að haki hverri styrj- öld. ÞeSsvegna eigum við að forðast ranglætið og yfirgang- inn. Aðrar þjóðir telja olckur til fyrirmyndar af því að við liöfum hvorki her né flota. En vopnleysið segir ekkert til um friðarhug okkar. Meðan við setjum hagsmuni ofar réttlæti, höldum viðásamskonar kveikju og þeirri, sem sett getur heim- inn í bál á hvaða augnabliki sem er. Það er ekki nóg að við séum taldir öðrum til fyrirmyndar. Við erum það ekki meðan við sitjum Iiver yfir annars hlut, látum stundarhagsmuni skipa öndvegið, og gleymum réttlæt- inu. a t Ragnar E. K varan Ragnar E. Kvaran landkynnir andaðist skömmu eftir liádegi í gær, i Landspitalanum. Ævi- atriða hans verður nánara getið síðar. í morgun snjóaði í vfjöll á Siglu%ði.®§ y Ekki veiðiveður fyrir Norðurlandi. í gærkveldi hvesti á norð- vestan og í morgun var rigning og sjógangur úti fyrir, en til fjalla snjóaði. Veiðiveður er ekki fyrir Norðurlandi siðan seinni partinn í gær. Skipin hafa verið að koma inn, flest með slatta aðeins, og fóru 1000 mál í bræðslu, en hitt í salt. Nokkur skip munu hafa feng- ið dágóðan afla undir Rauða- núp, en þau munu ekki komin inn, og frést hefir um eitt skip sem fékk 200—300 tn. undan Sléttu, en það er lieldur ekki komið til hafnar. Menn vona, að framhald verði á sildveiði, þegar veður batnar. Djúpavík í morgun. í gær og nótt lönduðu Tryggvi gamli 616 málum, Hafsteinn 629, Rán 587, Jón Ólafsson 788, Surprise 758, Kári 368, Garðar og Baldur eru að landa og hafa um 700 mál hvor. Sindri bíður löndunar með 700 mál. Síldin veiddist fyrir austan land. — Alls er komið í bræðslu 68200 mál en 117000 á sama tima í fyrra. Búið að salta 10200 tn. en á sama tíma í fyrra 9200 tn. Norðan rok og rigning og ekkert veiðiveður. Björnsson. VÍSIK FÖstudaginri 25. ágúst 1939. Roo§evelt forseti og: páfinn gera iirslitatilraiiii til þesis að Yarðveita lieiiiisfri#isiii. Roosevelt símadi kon- ungi Ítalíu Vietop Em- anuel i gær, Póllands- forseta og Hitler. EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Roosevelt forseti hefir snúið sér til Viktors Ema- núels, konungs Ítalíu, Hitlers rílíisleiðtoga Þýskalands og Moscicki Póllandsforseta, og hvatt þá eindregið til þess að beita áhrifum sínum til þess að koma í veg fyrir styrjöld. Ameríski sendiherrann í Rómaborg afhenti Viktor Emanuel boðskap í gær frá Roosevelt forseta. Mælist forsetinn til þess, að konungurinn beiti sínum góðu áhrifum til þess að stuðla að því, að friður haldist. Roosevelt forseti sagði um það bil, sem hann símaði Hitler og bauð milligöngu Bandaríkjanna til þess að tryggja friðinn, að ameríska þjóðin ætlaðist til þess, að forseti hennar tæki til máls æ ofan í æ, ef þörf krefði, ef von væri um, að það gæti orðið til þess að friðurinn héldist. Trúr þessari skoðun og friðarhugsjónum sín- um léti forsetinn ekki við það sitja, að beita áhrifum sínum til þess að Viktor Emanuel reyndi að koma því til leiðar, að farinn yrði vegur friðarins, heldur hefir hann nú einnig símað til Hitlers og Moscicki Póllands- forseta og lagt fyrir þá eftirfarandi tillögur. ROOSEVELT. VIKTOR EMMANIÆL. í fyrsta lagi verði reynt að leiða deilumáhn til lykla msð bein- um samkomulagsumleitunum, en í öðru lagi — hepnist það | ekki, að þá komi deiluaðilar sér saman um að útnefna fulltrúa frá hlutlausum löndum, er leggi fram tillögur um lausn máls- ins. í þriðja lagi leggur forsetinn til, að aðilar komi sér saman um það grundvallaratriði, að allar tilraunir til þess að leysa deiluna fari fram friðsamlega, skipulega og í anda sáttfýsinnar, enda sé ella ekki árangurs að vænta. Enn sem komið er hafa stjórnarembættismenn í Varsjá ekki látið álit sitt í Ijós á tillög- um Roosevelt. United Press hef- ir spurt þr já mikilsmetna pólska stjórnmálamenn um álit þeirra á tillögum Roosevelts, og taldi annar líklegt, að Pólland mundi geta fallist á þær, en hinir sögðu að það væri of mikil „Miinchen- bragur" á þeim. Hans heilagleiki páfinn útvarpaði friðarávarpi í gær og talaði af miklum innileik og alvöruþunga. Bað hann menn biðja fyrir friðinum og bless- aði allar þjóðir í ræðu- iok. rmm ÖHum ber saman um, að tím- inn sé afar naumur, til þess að afstýra styrjöld. Einu vonirnar eru, að friðarávörp Leopolds konungs og Piusar XII. hafi á- hrif og viðleitni Roosevelts. HITLER Á RÁÐSTEFNU MEÐ HERFORINGJUM SÍNUM. Keitel yfirforingi og Raeder aðmíráll, Göring og von Ribb- entrop sátu ráðstefnu hjá Hitler • í gærkveldi og lauk henni kl. i 12.40. HERMÁLALEIÐTOGAR BRETA Á FUNDUM. . . Hermálaleiðtogar og her- málasérfræðingar Breta sátu á fundum í alla nótt sem leið. — Ekkert hefir komið fram, sem bendir til annars en að alt Bretaveldi muni standa samein- að, ef til styrjaldar kemur. Allir flokkar, öll blöð og allur almenningur styðja stjórnina í að halda öll Ioforð við Pólland. KAUPHALLARVIÐSKIFTI ÍVIÐ SKÁRRI í GÆR HELD- UR EN í FYRRADAG. Oslo, 24. ágúst. FB. Þrátt fyrir nokkuð verðfall í London á þýskum verðbréfum var yfirleitt ekki meiri svartsýni ríkjandi á kauphöllum álfunn- ar í gær en í fyrradag — jafn- vel varð þess vart, að heldur væri að lifna yfir viðsldftum, miðað við það, sem verið hefir undanfarna daga. NRP. PIUS XII. PÁFI. Hitler flytur ræðu sína í Tannen- berg á sunnudag. Osló, 24. ágúst. — FB. Það hefir nú verið tilkynt í Þýskalandi, að Adolf Hitler ríkis- leiðtogi haldi ræðu á Tannenberghátíðinni, sem nú stendur yfir í Austur-Prússlandi, til minningar um, að nú eru 25 ár liðin frá því, er Hindenburg vann sinn fræga sigur á Rússum á þess- um slóðum fyrir 25 árum, en orustan stóð yfir 23.—30. ágúst. Ilitler flytur ræðu sína á sunnudag og er beðið oftir henni um allan heim af mikilli óþreyju, enda þótt stórviðburðir geti orðið fyiár þann tíma. Þj'rska beitiskipið Königsberg er væntanlegt til Danzig á morgun (laugardag) og verður þar til mánudags. Yfirhershöfðinginn þýski, von Brausnisch, ávarpar þýska herinn á laugardag kl. 19.30. — NRP. Englandsbanki hækkar forvexti. Osló, 24. ágúst. — FB. Englandsbanki hefir hækkað forvexti úr 2% í 4% og er til- kynt, að þetta sé nauðsynleg ráðstöfun, vegna núverandi ástands og horfa. Ennfremur hefir ríkisstjórnin ráðlagt fölki að flytja ekki fé úr landi. Forvextir Englandsbanka hafa verið óbreyttir þar til nú frá því 1932. — NRP. Hervæðing í Póllandi. Verkamenn- irnir teknir af ökrunum og fluttir í hermannaskála. Osló, 24. ágúst. — FB. Fregnir frá Póllandi, símaðar til Norðurlandablaða frá Dan- zig, herma, að hervæðing hafi verið fyrirskipuð í Póllandi. Fari hervæðingin fram með svo miklum hraða, að verkamennimir séu sóttir út á akrana, og farið með þá beint í hermannaskálana. Uppskeruvinnan stendur nú sem hæst. Aðrar fregnir herma, að bæði Þjóðverjar og Pólverjar sendi mikið lið til landamæranna. NRP. Hervæðing í Frakklandi. Osló, 24. ágúst. — FB. Fregnir frá Frakklandi herma, að hinar víðtækustu varúðar- ráðstafanir hafi verið gerðar og fyrirskipuð hervæðing nokk- urra árganga. Hervæðingarflokkarnir, sem hafa tölueinkennin 2, 3 og 4 hafa verið kvaddir til vopna með opinberum auglýs- ingum í blöðum, á torgum og gatnamótum, en áður voru menn kvaddir einstaklingslega til herþjónustunnar og bréflega eða með skeytum. Landamæralið er aukið í Hollandi, Belgíu og Sviss. — NRP, Frh. crlendra frétta á 8. síðu.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.