Vísir - 30.03.1942, Síða 2
VÍSIR
Útgefandi:
BLAÐAÚTtíÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson §
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni 1
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
f Símar 1 6 6 0 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan k.f.
Sumardvöl barna.
jyjEIHA kvað að brottflutn-
ingi barna úr bænum i
fyrra suniar, en nokkru sinni
áður. Nú er ætluniii að þessari
starfsemi verði hagað á svipað-
an liátt, og liefir sumardvalar-
nefnd tekið til starfa og bafið
ailan undirbúning. Er það vel,
með því að ekki er ráð nema i
tíma sé tekið. -
Það er vitað, að brottflutn-
ingur barna héðan úr bænum
miðast fyrst og fremst við það
ástand, sem nú er rikjandi í al-
þjóðamálum. Óvissan um fram-
tiðina og öryggisleysið veldur
því, að rýma jiarf bæinn svo
sem frekast er unnt, þannig að
ekki verði bagi að eða tjón, ef
út af ber. Hinar erlendu setu-
liðsstjórnir hafa að þessu sinni
vakið athygli á nauðsyninni, og
skilst mönnum, að svo geti farið
að brottflutningur úr bænum
hefjist að þessu sinni fyrr én
áður. Vitað er, að hernaðarað-
gerðir munu mjög aukast með
vorinu, og þótt menn lifi i þeirri
fánýtu von, að hér í Iandi komi
aldrei til verulegra átaka, er
vonin engin vissa, en við það
verða allar ráðstafanir að mið-
ast.
* Aðstaða okkar hér i liöfuð-
staðnum er milclum mun lakari
en viðast erlendis, og ber þar
fyrst til að bér eru engir kaup-
staðir til sjávar eða sveita, sem
gætu tekið við þeim mannfjölda
sem héðan þyrfti að flytja, ef
út af ber. Fólkinu, og þá einkum
konum og börnum, þarf að
dreifa uin allar byggðir, en
slíkt verður ekki gert nema með
nægum fyrirvara og löngu starfi
En þetta starf má létta, ef allir
leggjast á eitt, og sýna fullan
skilning á nauðsyninni og næg-
an þegnskap.
Þess hefir orðið vart, að ein-
staka raddir hafa látið á sér
bara, seni telja að allt þetta um-
stang sé ástæðulaust, og sumir
þeir, sem i fyrra dvöldu í sveit,
telja sig ekki munu gera það nú.
Þetta er með öllu rangt viðhorf,
og það hvort hér kemur til hern-
aðaraðgerða eða ekki, er ekkert
aðalatriðið út af fyrir sig, þótt
það hinsvegar geti orðið það, ef,
út af ber. Börnin, sem hér alast
upp í göturykinu, hafa sannar-
lega gott af því, að komast út í
landsbyggðina, — njóta sumars
og sólar í sveit. Þau þroskast þar
andlega og líkamlega, ná betri
heilsu og verða betur undir vet-
urinn búin, sem og að mæta
veikindafaraldri, sem hér er á-
valt, er dregur fram á miðjan
vetur. iÓhætt er að fullyrða, að
vel hefir til tekjzt um sumar-
dvöl barna, það sem af er, og
vonandi verður sú raunin á enn-
þá. Væri þó ef til vill ástæða til
að herða enn betur á heilbrigðis-
eftirlitinu, og hafa vakandi auga
með þrifnaði barna, þannig að
frá þeim berist engin óþrif á
önnur börn, eða á heimili í sveit-
um. Lítil brögð munu hafa ver-
ið að slíku, en þó noklcur, en
nauðsyn er að öllum óþrifnaði
sé útrýmt í tima. Álitamál er og
hvort slíkt eftirlit ætti ekki að j
hafa með hverju heimili, með
því að nóg er enn af hreinlætis-
vörum í landinu, þótt vel geti
i
þær gengið til þurðar síðar,
þannig að ekki verði þá að gert,
þótt óþrif stóraukist með þjóð-
inni og breiðist út. Bezta ráðið
er að stemma á að ósi meðan
tæki eru til þess, og gæti það
varnað mörgum vanda, sem all-
ir óttast og enginn æskir eftir.
Þess eru dæmi, að stórhættuleg-
ir sjúkdómar breiðast út vegna
óþrifa, og þótt engin brögð muni
hafi orðið að þessu hér á landi
til þessa, getur það vel komið
til greina, ef fullnægjandi ráð-
stafanir eru ekki gerðar. Ekkert
mun auðveldara, ef nægjanlega
róttækum ráðstöfunum er beitt,
en að gera þrifnað liér í Jaiidi
miklum mun meiri en lijá öðr-
um þjóðum, og það ætti einnig
að vera óskift áhugamál þjóðar-
innar allrar.
Sumardvöl barna er í góðum
höndum, og vafalaust sýna allir
Reykvikingar því máli fullan
skilning. Þótt allur ótti sé illur,
er öll varúð sjálfsögð, og eins
og högum er nú háttað hér i
höfuðstaðnum, er enginn vinn-
ingur að því, að börnin dvelji
hér á göíu.num í sumar, eða yf-
irleitt þeír fullorðnír, sem geta
komið því við að fara í sveit. Er
þess því að vænta, að menn geri
nauðsynlegar ráðstafanir, svo
fljótt sem því verður við komið,
iil þess að flytja börn sin úr
bænum og aðra aðstandendur,
sem ekki þurfa hér nauðsynlega
að dvelja. Það getur afstýrt
miklum vandræðum, ef út af
her, en aldrei orðið til tjóns, þótt
allt fari skaplega fram .
------ wmrtrtm --------
Bridgekeppni.
í gær hófst bridgekeppni í
húsi Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur, eins og frá var
skýrt í Vísi í fyrradag.
Vinningar flokkanna eru sem
hér segir:
Flokkur Árna M. Jónss. 2 vinn.
— Gunnar Möller 2 —
—- Jóhanns Þorsteinss. 1 —
—- ÞorsteinsÞorsteinss. 1 —
— Axels Böðvarssonar 1 —
— Jóh. H. Jóliannss. 0 —
— Stefán Guðmundss. 0 —
í kvöld kl. 8y2 keppa þessir
flokkar i Félagsheimili V.R.:
Flokkur Stefáns A. Pálssonar
við flokk Lúðvíks Bjarnasonar.
Flokkur Gunnars Viðars við
flokk Axels V. Tulinius. Flokk-
ur Bjarna Bjarnasonar við flokk
Arngríms Sigurjónssonar.
Flokkur Gunngeirs Péturssonar
við flokk Péturs Halldórssonar.
Keppninni er þannig liáttað,
að sá flokkur, sem tapar í annað
sinn, er úr leik.
Hrakningar
hafnsögumanns.
Á föstudaginn fór hafnsögu-
maður frá Hornafirði til að leið-
beina skipi, en kom ekki aftur
á tilsettum tíma úr þeim leið-
angri.
Hafnsögumaðurinn fór ann-
aðhvort á trillubáti eða árabáti,
og þegar hann kom ekki aftur,
voru vélbátar sendir til að leita.
Fundu þeir hann ekki, enda þótt
þeir þekktu straum um þessar
slóðir, og hefði átt að gefa gizk-
að á með nokkurri vissu, hvert
bátinn hefði rekið, ef eitthvað
hefði orðið að.
Síðan var sent skeyti til Slysa-
varnafélags Islands og auglýsti
það eftir hafnsögumanninum í
útvarpinu. I gær kom svo skeyti
að austan um að maðurinn hefði
bjargazt upp í færeyska skútu,
eftir 14 klst. lirakninga.
Vísir
er 6 síður í dag. Sagan o.fl. er
í aukablaðinu.
Sly sa varnaþingið:
Fyrirhn^að að
§tækka árbókina.
Fgndir í Landsþingi Slysavarnafélags íslands héldu áfram á
laugardag og í gær. Á 2. fundi þingsins — á laugardag — lögðu
10 nýir fulltrúar fram kjörbréf sín, svo að nú sitja það alls um
50 manns.
Á 2. fundi Landsþings Slysa
varnafélagsins, laugardaginn 28.
marz, lögðu 10 nýir fulltrúar
fram kjörbréf sín, svo að nú
sitja þingið um 50 manns.
Til umræðu var skýrsla
stjórnarinnar. Var henni útbýtt
prentaðri til fulltrúanna, og
gerði forseti félagsins, Guðbjart-
ur Ólafsson, nokkra grein fyrir
lienni. Var henni síðan vísað til
allsherjarnefndar, en nokkrar
raddir heyrðust um það, að
skýrslan mætti vera ítarlegri og
að í lienni væru birt nöfn allra
þeirra, er farizt hefðu af slys-
um á árinu. Þá voru reikningar
félagsins lesnir upp og sam-
þykktir, eins og þeir voru skýrð-
ir og endurskoðaðir.
Jón E. Bergsveinsson gerði
grein fyrir fjárhagsáætlun fé-
lagsins fyrir 1942, og var lienni
síðan vísað til fjárliagsnefndar.
Sigurjón A. Ólafsson ræddi
um starfssvið félagsins í fram-
tíðinni. Til máls tóku einnig J.
E. Bergsveinsson erindreki,
Benedikt Einarsson, Jón Odd-
geir Jónsson, Leifur Guðmunds-
son og Helga Rafnsdóttir. Mál-
inu var vísað til Slysavarnafé-
lagsins.
Friðrik Ólafsson skólastjóri
hafði framsögu um björgunar-
skipamálið, en auk hans talaði
María Maack. Málinu var vísað
til slysavarnanefndar.
Á þingfundi i gær,
29. marz, var rætt um fjármál
deildanna með tilliti til félags-
heildarinnar, og urðu um það
allmiklar umræður. Var mál-
inu vísað til skipulags- og laga-
nefndar. Samþyklct var svo-
liljóðandi tillaga frá Leifi Auð-
unssyni: „Landsþing Slysa-
varnafélags Islands skorar á
stjórn félagsins að beita sér fyrir
þvi, að fyrirmælum laga um ör-
yggisdyr samkomuhúsa sé
framfylgt."
Ennfremur samþykkti þingið
svolátandi tillögu:
„Þingið leggur til að félags-
stjórninni sé falið að athuga,
hvort ldeift muni eða æskilegt
að stækka árbók félagsins og
gera hana fjölbreyttari en verið
hefir, og leita til þess aðstoðar
frá fleirum en stai'fsmönnum, fé-
lagsins, án mikils kostnaðar-
auka, Telur þingið ákjósanlegt,
að Árbókin greini m. a. ávalt
nöfn þeirra, sem af slysum lát-
ast á árinu, hvort sem er á sjó
eða landi.“
Þá skilaði slysavarnanefnd á-
liti og lillögum í björgunar-
skips-málinu; urðu miklar um-
ræður um það, en frestað að
bera það undir atkvæði.
Fundur verður í dag kl. 2. En
þinginu verður sennilega elcki
lokið fyrr en á morgun.
HANDKNATTLEIKSMÓTINU LOKIÐ.
Valur, I. R. og Armann
Islandsmeistarar.
ÍSLANDSMEISTARARNIR í MEISTARAFLOKKI.
Úrslit hafa farið fram í öll-
um flokkum Handknattleiks-
mótsins. í meistaraflokki sigr-
aði Vatur Víking með 19:13
mörkum. í fgrsta flokki sigr-
aði f.R. Val með 30:16 mörk-
um og í öðrum flokki sigraði
Ármann Hauka með 10:5. —
Áður höfðu úrslit farið fram
í kvenflokki, og báru þar Ár-
manns-stúlkurnar sigur úr být-
um.
Úrslitaleikurinn í meistara-
flokki var harður og framan af
mjög spennandi, þar eð þá
virtust liðin vera mjög jöfn.
Virtist Víkingur vera í öllu
barðari sókn til að byrja með,
og Iauk fyrri hálfleik m'eð 9:8
fyrir Víking. í seinni hálfleik
hafði Valur hins vegar sýnilega
yfirburði þegar frá upphafi,
samleikur þeirra var öllu ör-
uggari en Víkings, og þar að
auki höfðu Valsmenn meira |
þol. Annars van leikurinn all-
harður stundum og mjög
spennandi frá upphafi.
Áður en leikurinn hófst, hafði
j tíðindamaður Vísis tal af fyrir-
liða Valsmanna, Sigurði Ólafs-
syni, og spurði hann um horf-
ur í léiknum. Hann sagði, að
Valsmenn gengju með sigur-
vissu til leiks, og þegar tíð-
indamaðurinn spurði hvort
þeir ætluðu að láta sér nægja
herzlumuninn, eins og undan-
farin ár, vildi Sigurður ekki
sætta sig við það; „þriggja til
fímm marka munur er það
minnsta, sem við gerum okkur
ánægða með,“ sagði hann.
Að leiknum loknum, sneri
tíðindamaðurinn sér til fyrir-
liða Víkingsmanna, Brands
Brynjólfsonar, og spurði hvað
hann segði um leikinn og úr-
slit hans.
„Eg er vitanlega ekki ánægð-
ur með þessi úrslit. Mér finnst
mark-amunurinn of mikill. Eg
bjóst að vísu ekki við að við
myndum geta sigrað þetta á-
gæta lið Vals, sem er kjarn- |
inn úr knattspyrnuliði þeirra,
en eftir að við höfðum haft
yfirhöndina fyrri hálfleik og
liaft forustuna eftir hann með
9: 8, þá fannst mér vera farið
að hylla undir meistara-nafn-
bótina.“
„Hvernig stóð á þvi, að liði
þínu mistókst svona í seinni
hálfleiknum?“
„Til þess liggur ekki nein
ein ástæða, lieldur margar.
Þótt lið okkar standi liði Vals
jafnfætis í knattleikni, þá
stöndum við langt að baki
þeim livað þol og líkamlegan
styrkleika snertir. Helmingur-
inn af liði okkar eru 2. flokks
menn frá í fyrra. Miðhlutann
af seinni hálfleik átti Valur
algjörlega. Þá virtust öll sund
lokuð fyrir okkur. Framlínu
okkar mistókst allt, og þau fáu
köst frá okkur, sem komust
fram hjá bakvörðunum, varði
markmaðurinn. Aftur á móti
virtist framherjum Vals allt
heppnast, sem þeim datt í hug
að reyna og á þessum mínút-
um rigndi líka yfir okkur mörk-
unum. Þetta er í 3. sinn í röð,
sem við töpum fyrir Val í úr-
slitaleik um handknattleik í
meistaraflokki. Máltækið seg-
ir, aðj allt sé þegar þrennt er,
og vonum við að það reynist
rétt.“
Á íaugardagskvöldið kepptu
einnig K. R. og Víkingur og
Ármann og I. R. í 2. flokki.
Sigraði K. R. með 16:10, en
Ármann með 20: 16. í fyrsta
flokki kepptu Ármann og F.
H. og lauk þeim leik með jafn-
tefli 24: 24.
I gær'fóru leikar í fyrsta og
öðrum flokki sem að ofan
greinir. En auk þess var í meist-
araflokki keppt um það, hvort
félaganna K. R. eða Haukar
ættu að færast niður í fyrsta
flokk, í stað I. R.-inga, sem fær-
ast upp í meistaraflokk. ,Lauk
þeirri baráttu þannig, að K. R.
hélt velli og sigraði Hauka með
25:16 mörkum.
S1.VN
Það slys varð á laugardag und-
an Vestfjörðum, að ungur sjó-
maður féll úthyrðis af velbáti
og drukknaði.
Allir bátar frá Isafirði voru á
sjó þá um, morguninn, símar
fréttaritari Vísis, og gerði þá
norðaustan storm með allmikl-
um sjógangi.
Meðal bátanna var v.b. Hjör-
dis. Einn liásetanna, Guðleifur
Árnason, féll útbyrðis og
drukknaði. Guðleifur var um
tvítugsaldur og ókvæntur.
Það skeði í febrúar á síðasta
ári, að þrjá menn tók út af Hjör-
dísi og drukknuðu þrír þeirra.
Margir bátar misstu lóðir,
sumir allar.
Aðalfundar Sparí-
sjóðs Reykjavíkur.
Aðalfundur Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis var
haldinn 26. þ. m. Fyrir fundin-
um lágli endurskoðaðir reikn-
ingar sjóðsins fyrir árið 1941,
og voru þeir samþykktir í einu
hljóði. Ennfremur gerði for-
maður sjóðsins hr. bæjarstjórn-
arforseti Guðmundur Ásbjöms-
son grein fyrir starfsemi sjóðs-
ins á síðasta ári.
Stjórnarkosning fór þannig,
að kosningu hlutu:
Guðm. Ásbjörnsson, bæjar-
stjórnarforseti, Jón Ásbjörns-
son, hæstaréttarmálafl.m., og
Ásgeir Bjarnason, bókari.
Ábyrgðarmenn létu í ljósi á-
nægju sína yfir velgengni sjóðs-
ins og þökkuðu stjórninni vel
unnið starf.
Vasabæknr
með blýanti og stafrófi.
F jölbreytt úrval nýkomið
Bókaverzlun
Sig. Kristjánssonar
Bankastræti
„Spitfire"
flugvéla model bækurnar
fást ennþá.
Bókaverzlun
Sig. Kristjánssonar O*
Bankasti'æti
Albúm
ódýr — vönduð.
Bókaverzlun
Sig. Kristjánssonar *P
Bankastræti **
Helgrafell
Undirritaður óskar að ger-
ast áskrifandi að HelgafeHi.
Nafn: .............
Heimili ..........
Sendum gegn póstkröfu
um allt land.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ AUGLtSA
í VÍSI!
1 . .