Vísir - 15.12.1943, Qupperneq 4
4
VISIR
r
BÆKUR
Guðbjörg Jónsdóttir: GAML-
AR GLÆÐUR. — Helgi
Hjörvar bjó undir prentun.
í þessari bók Guðbjargar hús-
freyju á Broddanesi eru „Þætt-
ir úr daglegu lífi æ Ströndum á
síðari hluta 19. aldar“, þar sem
höfundurinn er borin og barn-
fædd og hefir alið allan aldur
sinn, og því öllum linútum
kunn. Helgar Guðbjörg „þessi
blöð sín“ minningu Tryggva
heitins Þórhallssonar. Helgi
Hjörvar hefir búið bókina undir
prentun, en ísafoldarprent-
smiðja gefið út.
Á síðari árum, einkum nú á
allra síðustu tímum, hafa vei’ið
gefnar út margar bækur, sem
teljast mega héraðalýsingar eða
öllu frekar drög til héraðalýs-
inga, þ. e. á héraði, fólki og hátt-
um, og er það mjög mikils um
vert að fá sem flestar bælcur um
•þessi eða skyld efni. Eg tel það
mikils um vert af mörgum á-
stæðum, sem hér yrði of langt
mál að rekja, en eina hina
veigamestu tel eg, að slíkar
bækur, og einkum ef eins vel er
frá þeim gengið, og þessum
minningum Guðbjargar, eru á-
gætlega til þess fallnar að auka
ræktarsemi manna við land og
þjóð, — þær koma mönnum í
kynni við barátlulið hins liðna
tíma, fólkið, sem bar hita og
þunga dagsins í barátlu þjóðar-
innar við Iangtum erfiðari skil-
yrði en nú tíðkast, og gerði það
oft af stórhug, án þess að kvarta
og án þess að spyrja um laun.
Hér - verður ekki rakið efni
þessarar bókar ítarlega. Til þess
er ekki rúm. Þess skal að eins
getið að bókin geymir fjölda
lýsinga á mönnum, venjum og
háttum, lýsinga, sem lesandan-
um finnst þegar við lestur fyrsta
kaflans mikils um vert Hann
finnur ávallt, að hjarta er með
sem undir slær. Hver mannlýs-
ing virðist reist á stoðum skiln-
ings og samúðar, og livernig
skyldi annað vera, þegar góð og
vitur kpna grípur pennann? Eg
segi vitur kona, þótt eg þekki
ekki húsfreyjuna í Broddanesi,
nema af þessari bók, en þau
kynni nægja til þess, að auðvelt
er að finna þessum orðum stað.
Ekki er langt komið Iestri bók-
arinnar, er spaklegar setningar
fanga hugann, svo sem: Augu
móðurinnar eru glögg, ekki sízt
er þau ljóma af birtu kærleik-
ans (Bls. 10). Eg nefni þetta að
eins sem dæmi.
Eg vildi óska þess, að öll þjóð-
in læsi þessa bók, einkanlega
vngri kynslóðin, sem ekki þekk-
ir þjóð sína og-lahd sitt eins vel
og við, sem erum farin að reskj-
ast, en ætti að kynnast þvi
miklu, miklu betur.
Höfuðlcostur er það á bók-
inni, að lesandanum dettur
aldrei annað i hug en að það sé
Guðbjörg sjálf, sem segir frá.
Að lestri loknum man lesandinn
eftir Helga Hjörvar og hugsar
eitthvað á þá Ieið, með þakklæti,
að hann hafi leyst sitt starf af
hendi af réttum skilningi og
með prýði.Hann liefir tekið Guð-
björgu við hönd sér og kynnt
hana fyrir þjóðinni allri. Fyrir
það á hann þakkir skildar.
A. Th.
„NGRRÆN JÓL“,
hið vandaða ársrit Norræna fé-
lagsins er nú komið í bókaverzl-
anir. Efnis ritsins hefir áður ver-
ið getið hér í blaðinu svo að það
skal ekki rakið hér. Hinsvegar
skal það tekið fram, að ritið
er í hvívetna sérstaklega vand-
að, bæði að efni og frágangi
öllum. Má fullyrða að yfirleitt
er ekki vandað til annarra bóka
meir, sem hér hafa verið gefnar
út, enda eru „Norræn jól“
hundruðum manna liin kær-
komnasta jólagjöf.
í inngangsorðum að „Nor-
rænum jólum“ segir:
„Hlutverk Norrænna jóla er
að flytja lesendum sinum hlýj-
ar jólaóskir í formi góðra nor-
rænna skáldverka og ritgerða
urn norræn viðfangsefni og
önnur hugðarmál, er miða að
því að treysta vináttu og sam-
starf þeirra frændþjóða, er
hyggja Norðurlönd.
Ritstjóri Norrænna jóla er
Guðlaugur Rósenkranz yfir-
kennari.
Nýtt bókaútgáfufyrirtæki
gefur út ræður eftir sr.
Friðrik Friðriksson.
Bókagerðin Lilja nefnist nýtt
útgáfufélag, sem hefir með
höndum útgáfu kristilegra bók-
mennta. Er hér um að ræða
samtök ungra áhugasamrá
manna, sem sjálfir hafa lagt til
stofnféð, en ætlunin er að gefa
út kristilegar bækur, skáldsög-
ur, ævisögur og fræðibækur,
sem hafa sérstakt bókmennta-
legt gildi. Er hér ekki um að
| ræða gróðafyrirtæki einstakra
manna, enda er ágóðanum, ef
einhver verður, varið til frekari
útgáfu slíkra bóka, í því augna-
miði að glæða trúarlíf, siðferði
og skilning á kristilegri starf-
semi að fornu og nýju.
Fyrsta bók félagsins ér þegar
komin á markaðinn, og nefnist
hún „Yormaður Noregs“ og er
skráð af Jalcob B. Bull, en fjall-
ar um ævi Hans Nielsen Hauge,
sem var einhver fremsti braut-
ryðjandi í kristilegri starfsemi
leikmanna í Noregi um og eftir
aldamótin 1800. Vegna baráttu
sinnar sætti liann fangelsisvist
tíu sinnum og síðast um margra
ára skeið. Hefir bókar þessarar
áður verið getið hér í blaðinu.
Næsta bók félagsins, sem kem-
ur á markaðinn eftir fáa daga
eru ræður eftir síra Friðrik
Friðriksson, sem hann hefir
flutt við ýms tækifæri nú siðustu
árin í Kaupmannahöfn, og
nefnist safnið „Guð er oss hæli
og styrkur“. Er ekki að efa að
bók þessari verður vel tekið,
með því að síra Friðrik hefir
aflað sér slíkra vinsælda og
virðingar hér á landi fyrir
kristilega starfsemi sína, að
slíks munu fá eða engin dæmi.
I dvöl sinni erlendis hefir síra
Friðrik fengið gott næði til að
helga sig liugðarefnum sínum
og ritstörfum, enda fór hann ut-
an í þeim tilgangi að skrifa síð-
ari hluta ævisögu sinnar, sem
hann hefir lokið fyrir nokkru,
og hefir bókin þegar borizt
hingað til landsins.
Þá kemur einnig út um sömu
mundir bók eftir Ronald Fang-
en, hinn kunna norska rithöf-
und, sem einna fyrstur varð fyr-
ir barðinu á innrásarliði Þjóð-
verja og var fluttur til Þýzka-
lands í fangabúðir. Nefnist sú
bók „Með tvær hendur tómar“,
en Theodór Árnason hefir þýtt
hana. Er hann svo kunnur
þýðandi, að ekki er að efa að vel
hafi tekizt.
Sýnir starfsemi félagsins Lilju
mikinn áhuga og fórnfýsi hinna
ungu manna, sem væntanlega
verður vel metin af þjóðinni.
„Sjö mílna skórnir",
heitir nýútkomin bók eftir hinn
víðkunna ameríska rithöfund og
ferðalan g Richard Halliburton.
Bókaútgáfan Hliðskjálf á Akur-
eyri gefur bókina út, en Jóhann
Frímann skólastjóri þýddi. Bókin
er prýdd fjölda mynda.
Ný skuldabréf
Reykjavíkur-
kaupstaðar.
í dag var byrjað að taka á
móti áskriftum að handhafa-
skuldabréfum tveggja lána, sem
Reykjavíkurbær hefir tekið.
Annað þessaar lána, að uppliæð
6 millj. kr„ er tekið vegna
stækkunar á Sogsvirkjuninni,
sem nú er verið að framkvæma
og búizt er við að verði lokið
um mánaðamótin janúar—febr.
Hitt lánið, 5,4 millj. kr., er tekið
vegna aukningar á innanbæjar-
kerfi Rafveitu Reykjavikur.
Skuldabréf beggja lána bera
4% vexti og skilmálar þeirra
eru liinir sömu að öðru leyti en
því, að Sogsvirkjunarlánið end-
urgreiðist á 20 árum en Raf-
magnsveitulánið á 10 árum.
Gera má ráð fyrir mikilli eftir-
spurn eftir þessum bréfum,
bæði vegna þess að kjör þeirra
eru hagstæð og eins vegna hins,
vaxtabréf Rey k j avíkurbæj a r
sem ein hin tryggustu, sem hægt
er að fá. Sérstaklega er búizt
við mikilli eftirspurn eftir 10
ára bréfunum, en þau eru eklci
fáanleg nema í sambandi við
kaup á bréfum lægra lánsins.
Kaup á hinum siðar nefndu
gefa forkaupsrétt að sömu upp-
hæð af bréfum 10 ára lánsins,
meðan þau endast.
Skuldahréfin eru í 2 stærð-
um, 5000 kr. og 1000 kr.
Landsbankinn hefir yfirtekið
skuldabréf þessara lána og býð-
ur þau nú til sölu á nafnverði.
Tekið er á móti áskriftum í
bönkunum í Rejdcjavík og lijá
kaupþingsfélögum. í Hafnar-
firði tekur sparisjóðurinn á
móli áskrftum.
4. ninferi) bridge-
keppinnar.
Fjórða umferð í bridge-
keppni I. flokks var spiluð í
gærkveldi í húsi V. R. í Vonar-
stræti.
Leikar fóru þannig að sveit
Eggerts Gilfers vann sveit Gunn-
ars Möllers, sveit Gunngeirs
Péturssonar vann sveit Guð-
mundar Sigurðssonar sveit
Brands Brynjólfssonar vann
sveit Jóns Guðmundssonar, en
sveit Guðmundar Ó. Guð-
mundssonar sat lijó.
Eftir þessar fjórar umferðir
standa leikir þannig, að sveitir
Eggerts og Gunngeirs eru hæst-
ar með 6 stig hvor.
Þrjár umferðir eru eftir og
verður næst spilað á þriðjudags-
kvöldið kemur.
íslendingur flýr
Danmörku.
1 gær barst Jóhanni Hjörleifs-
syni vegaverkstjóra símskeyti
frá syni sínum, Sigurði, sem bú-
inn er að dvelja fjögur ár í Dan-
mörku, þess efnis, að hann hefði
flúið þaðan og væri kominn til
Svíþjóðar.
Skeytið var svohljóðandi:
„Flúinn Danmörku. Fer til
Stokkhólms. Bréf síðar. Kærar
kveðjur.“ Skeytið er sent frá
Lundi.
Sigurður er 25 ára gamall og
laulc prófi i vatnsvirkjaverk-
fræði Fyrir 2 árum.
Hjólbarðaþjófarnir
fundnir.
Hjólbarðaþjófnaðurinn í vöru-
geymslu Eggerts Kristjánssonar
& Co„ sem frá var skýrt í Vísi
í gær, er nú upplýstur.
Voru það tveir piltar, annar
19 ára og hinn 20 ára, sem stálu
hjólbörðunum og tvo þeirra
gátu þeir selt með felgum fyrir
600 krónur.
Frú Inga Laxness
stundar leiklistar-
nám í London.
Baðhús Reykjavíkur
Ung íslenzk leikkona, frú
Inga Laxness, er nú komin til
Englands og ætlar að stunda
nám á konunglega leikskólan-
um í London (Royal Academy
of Dramatic Art). Frú Inga
vakti mikla athygli fyrir leik
sinn i leiksýningu ameríska
hersins “Angel Street”, en þar
lék hún aðal-kvenhlutverkið á
ensku og þótti talcast prýðilega.
Hún dvelur nú í London og
bíður þess, að námsárið hefjist,
en það verður 1. janúar. Á með-
an notar hún tímann til að sjá
sig um á leikhúsum borgarinn-
ar og koma sér fyrir.
Önnur stúllca islenzlc, ungfrú
Hildur Kalman, hefir þegar
stundað nám á þessum leik-
skóla í heilt ár, en starfaði áður
í íslenzku sendisveitinni í Lond-
on. —<
Fjóxar Menningar-
sjóðsbækur-
nýkomnar,
Fjórar Menningarsjóðsbækur
komu út í gær. Það voru Saga
íslendinga, er nær yfir tímabil- '
ið 1701—1770, rituð af dr. Páli
E. Ólasyni og dr. Þorkatli Jó-
hannessyni, Almenn stjórn-
málasaga síðustu 20 ára, síðari
hluti, eftir Skúla Þórðarson
magister, Almanakið og And-
vari.
Ókomnar eru þá af bókum
þessa árs Anna Karenina eftir
Tolstoy, þriðja bindi, og Njála.
Munu þær koma út eftir ára-
mótin.
.Skátar!
Stúlkur, piltar og Völsungar,
mætið öll við Varðarhúsið kl. 7.30
í kvöld.
var opnað kl. 12 á hádegi í dag.
IŒRLAUGAR
verða nú afgreiddar allan daginn og verður tekið á
móti pöntunum til afgreiðslu samdægurs.
STEYPIBÖÐ
afgreidd eftir röð eins og áður.
Baðhús iCcykjavíknr
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna:
Fnndnr
verður haldinn í fulltrúará'öi Sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík í kvöld kl. 8.30 e. h. í Kaupþingssalnum.
þingssalnum.
DAGSKRÁ:
1. Greinargerð um bréfaskipti stjórnar og
fulltrúa.
2. Önnur mál.
Mætið öll og stundvíslega.
STJÓRNIN.
Bókaskápar
i’úmfataskápar og stofuborð
til sölu. — Hverfisgötu 65,
bakhúsið.
Góður
Reinington
rilfill
al-automat cal. 22 og automa-
tisk Browning haglabyssa nr.
16 til sölu. — Skotfæri eftir
samkomulagi. — Ingólfs-
stræti 4, bakhús, kl. 7—9 i
kvöld.
JÓLA
er komið.
9
Kjöt og Fiskur
Símar 4774 og 3828.
Stórfelld lækkun
á bókaverði.
Nýjar íslenzkar bækur lækka um 20°/0 — Bók-
salar lokuðu til hádegis i dag.
VERÐLAGSSTJÓRI fyrirskipaði í gær, samkv. ákvörðun
Viðskiptaráðs, að verð á íslenzkum bókum, sem gefnar hafa
verið út eftir 1. október í fyrra, skyldi lækkað um 20%. Jafn-
framt skyldu bóksalar lækka sölulaun sín í 20% (úr 25%).
Ef í ljós skyldi koma, að útgefendur lentu í tapi út af þessum
ráðstöfunum, er verðlagsstjóra heimilt að hækka verðið aftur.
Allar bækur, sem verðlagðar eru héðan í frá, skulu hlíta sam-
þykki verðlagsstjóra.
Bókaverzlanir urðu að loka
til hádegis í dag, til að fram-
kvæma vöruupptalningu, og
kom það sér mjög illa í mesta
annatíma ársins.
Breytt ákvörðun.
Verðlagsstjóri ákvað í morg-
un að ofangreind verðákvæði
skyldu gilda um bækur útgefnar
eftir 1. október 1943 í stað 1.
okt. 1942. Að öðru leyti liafa
engar breylingar verið gerðar
frá því, sem í upphafi var á-
kveðið.
Baðhús Reykjavíkur
var opnað að nýju í dag kl. 12
á hádegi, eftir að hafa verið lokað
í vikutíma vegna hitaveituaðgerða.
Er hitaveituvatnið nú komið í bað-
húsið, og er það til mikilla þæg-
inda fyrir baðgesti, því að öll af-
greiðsla gengur nú miklu fljótar
fyrir sig en áður.
Næturlæknir.
Slysavarðstofan, sími 5030.
Næturakstur.
B.S.R., sími 1720.
Happdrætti Háskólans
10 ára,
Happdrætti Háskólans hefir
selt miða fyrir 13.3 millj. kr„
en alls er búið að draga 100 sinn-
um í því.
Viðskiptamenn Happdrættis-
ins hafa fengið 9.3 millj. kr. í
vinningum, en ógóði happdrætt-
isins hefir numið 2150 þús. kr„
að frádregnum þó 10%, sem
renna í ríkissjóð.
Sérleyfi happdrættisins hefir
nú samkvæmt lögum verið I
framlengt til 1960. Fyrir það fé,
sem á því timabili kann að á-
skotnast, er i ráði að girða og
laga lóð liáskólans, byggja leik-
fimiliús, náttúrugripasafn,
þjóðminjasafn, bókasafn og
leysa ýms fleiri verkefni sem
fyrir hendi eru.
Sarajoglu utanríkisráðherra
Tyrkja hefir getið þess, að 70%
af aukningi fjárlaganna á næsta
ári séu framlög til hernaðar-
þarfa.
RanOrófnr
Kjöt og Fiskur
Símar 4774 og 3828.
Tvöföldu kápurnar
eru komnar, og einnig
Barnarykf rakkar nir
á 2—14 ára.
D. TOFT
Skólavörðustg 5. Sími 1035.
nolaOðr lerðatöskur
úr leðri, sem hægt er að
hengja í kjóla, óskast. Uppl.
í síma 2379.
á fögrum stað við hæinn er
til sölu. Laust til íbúðar, —
Uppl. gefur
Pétur Jakobsson,
löggiltur fasteignasali,
Kárastíg 12. — Sími 4492.