Vísir - 06.03.1944, Qupperneq 3
VlSIR
' ' - » ’ '* ■■ • uM . ts* .• .. ■ ■
300 myndir
eítir frægustu listamenn Noregs.
HEIMSKRINGLA SNORRA STURLUSONAR, hið sígilda forníslenzka listaverk, er að koma út. — Skreytt 300 teikningum eftir 6 frægustu listamenn Noregs..
Myndirnar gefa verkinu margfalt menningarlegt gildi — ekki sízt fyrir börn og unglinga. —
Allt verkið kemur út í 2 bindum, 700—800 síður að stærð, og m.jög vandað að öllum frágangiT
Gerist áskrifendur að Heimskringiu.
Má sendast ófrímerkt.
Útfyllið þennan miða — og skrifið nafn yðar og
heimilisfang greinilega — og merkið Box 2000 —
Reykjavík.
Látið ekki þetta einstaka tækifæri renna yður úr
greipum.
\
Gerist áskrifendur að Heimskringlu strax í dag.
Verð ekki fram úr kr. 140.00
Eg imdirrit.
Heimskringlu
gerist hér með áskrifandi að
Box 2000 — Reykjavík.
GJAFAKORT útfyllt ef óskað er, og skal þá sérstaklega tilgreint nafn þess er móttaka skal gjöfina og einnig þess er greiðir andvirði bókarinnar.
KrísnvikorvegnríDD.
Kjartan Sveinsson skjalav.
hefir ritað grein í Yísir 2. þ. m.,
með þessari fyrirsögn, og mælt
mjög einhliða með þeirri leið til
samgöngubóta við Árnessýslu
og aðra staði.
Eigi verður að þvi fundið, þó
að hver einn láti í ljós skoðun
sína. Og ættu fleiri menn, sem
vel eru kunnugir, sízt að þegja,
í jafn áhrifaríku og fjárfreku
nauðsynjamáli.
Af þvi að eg h^fi alveg gagn-
stæða* skoðun á höfuðatriði
þessarar samgöngubótar (sbr.
grein í Morgunbl. 1. þ. m.), þá
vona eg að Kjartan, vinur minn,
misvirði það ekki (og að við
förmn ekki í hár saman), þó að
eg geri dálitlar athugas. við
grein hans. Málefnið er Iiafið
yfir menn og vinfengi, yfir
flokkadeilur og dægux-þras.
Ófærðín.
Taka vil eg það frarn, að eg
er lítið kunnugur snjóalögum
og öðru á Krísuvíkurleiðinni
mestallri. Verð eg í þvi efni að
taka trúanleg ummæli greindra
og gagnkunnugra manna, og
reyna líka að nota skynsemina.
Mér liefir alltaf skilist, að vegur
sá væri illa settur í norðanáttar-
byljum. Slíkir byljir hafa kom-
ið öðru hvoru, með miklum
snjóbui’ði og aðdraganda innan
frá jöklum og Henglafjöllum.
Geta þeir staðið dögum saman,
og er hyggilegra að búast við
þeim einmitt nú á næstu árum,
eftir 23 ára milda vetur, snjó-
létta og bjdjalausa hér um slóð-
ir að heita má.
í þesskonar byljum lield eg
að safnast gætu fannir nolckuð
mildar í skjól við brúnir og liæð-
ir og á láglendi, allt niður að
fkeðarmáli. Hefi séð það og líka
hitt, að þá blæs af brúnum,
hryggjum og hæðadrögum, sem
@ft standa ber eftir byljiaa. Og
það engu síður í nokkura hundr-
aða metra hæð yfir ejúvannál,
en niður við sjóinn. Þar er hætt-
ara við stuttum blotum og snjó-
klessingi hverjum ofan á annan.
Og þó talað sé um „afar snjó-
létta“ leið og jafnvel „snjó-
Iausa“, þá hefir gagnkunnugur
maðui’ sagt mér, að i kringum
Krisuvik hafi þó komið það mik-
ið föl, að fjárhirðar hafi orðið
að sækja hésta til að kafa snjó
og tx-oða braut fyrir féð, svo að
þvi yrði komið þar á haga, sem
blásið hafði af. Merkisbóndinn í
Nýjabæ, Guðm. Jónsson, sagði
líka unx vegai-stæðið: „Eg liefi
nú orðið að draga kindur úr
fönn, á þessum „snjólausa“
vegi“. Hætt er líka við því, að
skaflar kynnu að setjast á veg-
inn í nánd við Vogsósa, og væri
þá noklcuð langt að konxa héðan
snjóýtunx eða mönnunx til
moksturs.
Vegarlengdin.
I fyi’rixefndx’i grein í Morgun-
hlaðinu liefi eg áætlað Krísu-
víkurleiðina frá Reykjavík nxóts
við Hveragerði, mikio of stutta.
Kjartan miðar vegai’lengdina
við Hafnarfjörð. Þaðan telur
hann að Vogsósum, „ekki meir
en 41 km.“, og frá Hveragei’ði í
Selvog „ekki meir en aðra 40
km.“ Þetta íxxunu þá vera 81
km. Þar við má bæta 10 km. frá
Hafnarf. til Reykjavíkur.
Eftir þessu yrði allur vegui’-
inn frá Reykjavík að Hveragerði
varla minna en 91 km. Væri þá
búið að teygja úr veginuxíi „yfir
fjallið‘% jafn langa leið og héð-
an austur.undir Rangá.
Nú hefi eg sýnt í fyrrn.
grein, að Hellisíieiðarvegui’inn
(Reykjav.—Hverag.) þarf ekki
að vera lengri en 43 km. eða þar
um bil. Yrði því Ki’ísuvíkurleið-
in 48 knx. lengri. Þ. e. með öðr-
um orðum 5 km. meira en
lielixxiixgi lengri. Og þetta nxuix-
aði því, að meðan farin væri 1
ferð fram og aftur um Krísuvík
að Hveragerði, mætti — að
öðru jöfnu — fara tvær ferðir
um Hellsheiði til og frá Skyldi
ekki hílaeigendum finnast
nokkur. munur á benzin-
eyðslu og bílasliti í hverri ferð
á þessunx leiðunx ? Og ætli kaup-
eixdxxm fhitnings og fai’gjalds
findist ekki líka nokkvr nxunur
á verðinu og timatöfinni?
Kostnaðurinn.
Ennþá vantar, því miður, nix-
tíma kostnaðaráætlanir um
báða þessa vegi. En mikill má
vera munur á kostnaði, að leggja
nálægt 25 km. nýjan veg á
Hellisheiðarleiðinni eða allt að
60 (?) km. ólagða á hinni leið-
•inni. Þar á íxx. hrú nxikla, háa og
vandaða hjá Vogsósuixi, ef
valnsflóð og sjávax’rót eiga ekki
að gi’anda henni.
Kjartan getur uixx þá hyggi-
legu ráðstöfun Alþingis, að það
lxafi veitt á s. 1. fjárlögum nxeira
fé til Krísuvíkurvegar, en noklc-
urar annarar braular á landinu
„eða kr. 240 þúsund og er það
fé fyrir lxendi ásaixxt þeirri rif-
legu fjárveitingu, senx áætluð er
í fjái’löguixx yfirstandand árs.“
En er nú alveg víst, að hún
verð öll í haxxdraðanunx þegar
til á að taka, þessi fyrraárs fjár-
veiting Eg hélt — satt að segja
— að í’íkissjóði yx’ði nóg hoðið
íxúna á xxæstumxi að leysa út
þær 250.000 kr. seixx veittar eru
á þessu ári, í ekki álitlegra fyr-
‘ irtæki. Hélt líka, að fúlgu þeirrj
og því fremur senx meiri gæti
orðið, væri betur varið til þess
að gera þegar á þessu ári færa
leið (þó snjói) unx Hellisheiði,
að hálfu eða lielzt að öllu leyti.
Geri eg ráð fyrir að langt mætti
komast að gagni á þeirri leið,
fyrir % millj. kr., eða þessar
tveggja ára fúlgur. En þær sæu
skammt í liinu hítina og kæmu
þar seint að notum. Með því að
sumir telja að til þess þurfi 5
millj. kr„ en aði’ir allt að 10
millj.
Veldur þar íxxestu unx brúin
og vegurinn hjá Vogsósúm og
„Stapinn“, eða íxióbergslnxúk-
arnir við Kleifarvatn, sem
sprengja þarf burtu fyrir veg-
inn.
Kjartan telur að þania sé ó-
lagður vegur á 3—400 metrunx.
En hver getur sagt með vissu,
livað kostar að „sprerigja“ liátt
og langt berg, sem illa eða ekki
springur, að sögn kumxugra?
Þai’f og vissulega góða aðgæzlu
og frágang vegar við vatn þetta,
því nauðkunnugir menn full-
yrða að á nxargra árabilun
lækki og hækki yfirborð vatns-
ins svo mjög á víxl, að ekki
nemi nxinna en 5 metrum. Við
lækkun hafa gróið upp tvö 600
hesta engi, sem fara í kaf þegar
liæst er í vatninu.
Végamotin.
Notin að þessum vegi yrðu
htil eða engin fyrir Reykjavík,
þó hann kænxist einhvern tíma
alla leið. En Selvogsmömxunx
væi’i liann auðvitað góður greiði.
Og Hafnfh’ðingunx er mikils-
vert að fá greiða leið til Krísu-
vikur, til þess *að yrlcja þar jörð
sína, ef þeir gerðu það þá. —
Þaðan er líka fluga þessi flogin,
jafnframt til að útvega atvinnu-
leysingjum vinnu. —■ En var þá
ekki hyggilegra og hægara fyrir
í’ikissjóðinn, að láta Hafnfirð-
inga nota Grindavíkurveginn,
svo langt sem hentugt var og
gera þaðan veg lieinx að Krísu-
vík? Og svo þaðan, eða frá ná-
lægum stað, allt austur i Selvog,
á sínum tíixxa.
Ef ixú verður haldið áfram
með Krísuvikurveginn, og ekk-
ert gert að gagni við Hellisheið-
arveginn, fæst að vonum sá eini
árangur fyrir Reykjavik, að
eftir mörg ár kynni að verða
konxixx þriðja leiðin austur, til
að moka, en allar jafnt ófærar
þegar nokkuð snjóaði að ráði.
Að lokum skal þess getið, að
margir sem við nxig hafa talað
um Krísuvíkurveginn telja hann
ýmist „ráðleysu", „hreina og
beina vitleysu“ eða „bi’jálæði“
nú um sinn.
Og þar við vil eg nú bæta
þessu: Tillaga 6-menninga um
2 nxillj. kr. viðbót nú þegar til
Krísuvíkurvegax’, er ráðlausasta
og óforsjálasta tillaga rauðu
flokkanna á Alþingi (og verður
þó ekki við meira jafnað).
Þar að auki er greinargerð
þessara manna fyrir tillögunni
eitt hið allra óþinglegasta skjal,
sem sézt hefir, með hóflausunx
áróðri, blekkingum og ósann-
indum. Nánar unx það í Morg-
unblaðinu.
V. G.
Bennilá§ar
(Plastic)
30, 35, 40, 45 cm., nýkomnir
Sveinn Bjömsson & Asgeiirsson
Umboðs- og HeiWverzlun.
Jarðarför nxannsins mms og föður okkar,
Óla Ó. Kærnested,
fer franx frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 8. marz. Hús-
kveðjan hefst frá lieimili hans, Framnesveg 28, kl. 1.30.
Athöfninni í khkjunni verður útvarpað.
*****
hreinar og góðar
kaupir hæsta
verði
Félagsprentsjniöjan h.f.
Gréa Kærnested.
Sigrún Kærnested. Gísli Kærnested.
Jarðai-för föður okbar og leagdaföður,
Valdimtms Guðbrandsisonar,
frá Lambanesi, fer fraxn £rá Frikirkjunni miðvikndaginnt
8. þ. m. og hefst með kæw að kesBiHi dóttur íkbbb, Ljnigtt-
veg 27, kl. iy2 e. lx.
Jarðað verður í ganxla garðinum.
Böi*n og tengdabom.
i