Vísir - 19.04.1944, Blaðsíða 2
2
VISIR
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandí:
BLAÐACTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Féiagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstrœti).
Símar: 1660 (fimm linur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Féalgsprentsmiðj an h.f.
Skattar og fyrning.
FYRIR NOKKRU var til-
kynnt, að fjármálaráðu-
neytið hafi mjög mikið hækk-
að fyrningarheimild fram-
leiðslutækja, sérstaklega skipa
og frystihúsa. Sumum blöðum
hefir ekki fundizt ómaksins
vert að minnast á þetta, en þó
en enginn vafi á að þessi ráð-
stöfun er einhver hagnýtustu
hlunnindi sem sjávarútvegur-
inn hefir lengi fengið i sam-
bandi við skattamálin.
Á þinginu í vetur var rikis-
stjórninni með þingsályktun
gefin heimild til að ákveða sér-
staka fyrningu fyrir skip og
önnur framleiðslutæki, sem
keypt eru eða byggð með
styrjaldarverði. Að athuguðu
máli var ekki talið gerlegt að
nota þessa heimild af ýmsmn
ástæðum, en í þess stað var á-
kveðið samkvæmt heimild, er
fjármálaráðherra hefir í
skattalögum, að hækka mikið
fyrningarheimild á ýmsum
framleiðslutækjum er komið
gæti ntflutningsframleiðslunni
mjög að gagni nú þegar og jafn-
framt verið til frambúðar.
Til dæmis um það, hvað hér
er á ferðinni, má geta þess, að
mótorbáta má nú fyrna á 7—8
árum, í stað áður á 16—17 ár-
um. Mótorvélar og frystihúsvél-
ar má nú fyrna á 5 áruin, en
áður á 10 árum. Frystihúsbygg-
ingar má nú fyrna á 10 árum,
í stað 25 ára áður. Er af þessu
Ijóst, að hér er um stórfelld
hlunnindi að ræða fyrir sjávar-
útveginn sérstaklega. Þetta
hjálpar þessum atvinnurekstri
til þess að eignast tæki sín
miklu fyrr en áður og gerir
reksturinn allan trryggari, með
því að fyrstu árin er minna tek-
ið af hagnaðinum í skatta en
gert hefir verið. Er ekki vafi á,
að þessar hyggilegu ráðstafanir
muni verða til þess að menn
leggi nú öruggari fé sitt í út-
gerðartæki en áður.
Ríkislán.
Landsbanki íslands hefir nú
fyrir liönd ríkissjóðs boðið
út lán að fjárhæð 4 milljónir
króna og bera skuldabréfin
3i/2% vexti. Lánið er aðeins til
7 ára. Þetta mun vera vaxta-
lægsta lán, sem boðið hefir ver-
ið út-hér á landi. Lægstu vextir,
sem ríkissjóður hefir greitt til
þessa, eru 4%.
Gera má ráð fyrir, að mikil
eftirspurn verði uin skulda-
bréfin og er líklegt, að lánið
verði upp pantað þegar í stað
fyrsta daginn, sem menn geta
skrifað sig fyrir bréfunum.
Framboðið er nú Iílið á verð-
bréfamarkaðinum, en talsvert
fé er laust víða, sem liggur
vaxtalaust.
Lán þetta á að ganga til að
greiða enskt lán, er fellur í
gjalddaga á þessu ári, en var
'upphaflega tekið 1921, með
mjög óhagkvæmum vöxtum, en
var siðar breytt í 5% lán. Urðu
miklar pólitískar deilur á sinni
tíð út af láni þessu. Er ánægju-
legt, að það verður nú greitt
að fullu með láni, sem tekið er
innanlands með lægstu vöxt-
um, er hér hafa þekkzt.
Barnadagurixtn á morgun.
Fjölbreyttar skemmtanir
og fjársofnun.
Sumargjöf treystir örlæti Reykvíkinga.
O umardagurinn fyrsti er á inorgun, og hefir þá
** Barnavinafélagið Sumargjöf eins og að undan-
förnu almenna f jársöfnun til styrktar starfrækslu sinni.
Dagurinn verður með miklum hátíðablæ, svipaðast því,
sem orðinn var siður fyrir stríðið, og veitist almenn-
ingi dr júgur kostur þess að skemmta sér prýðilega og
styrk ja eitt veglegasta hugs jónamál þessa bæjar.
Vísir hitti í morgun formann
Sumargjafar, Isak Jónsson, að
máli og innti liann eftir hátíða
höldum á sumardaginn fyrsta.
Skýrði formaðurinn svo frá:
„Sumargjöf hefir undanfar-
in tuttugu ár beitt sér fyrir há-
tíðahöldum á sumardaginn
fyrsta, en skemmtanir þessar
hafa orðið með nokkuð öðrum
blæ síðustu fjögur árin, en áð-
ur tíðkaðist, af ýmsum skilj-
anlegum orsökuiA. Nú taka há-
tíðahöldin aftur á sig sama hlæ
og áður var, þannig t. d.
að skrúðganga barna fer fram
frá Austurbæjarskóla og Mið-
hæjarskóla að Lækjargötu.
Lúðrasveit Reykjavikur og
Lgðrasveitin Svanur leika fyr-
ir skrúðgöngunni. Að skrúð-
göngunni lokinni leikur Lúðra-
sveit Reykjavíkur við Miðbæj-
arbarnaskólann, en þvínæst
flytur Lúðvík skólastjóri Guð-
mundsson ávarpsorð.
Sextán
skemmtanir.
Inniskemmtanir verða sext-
án talsins í 9 húsum og hefir
aldrei verið efnt til jafnmik-
illa hátíðahalda á slíkan hátt,
enda liggur nú mikið við að
sem mest fé safnist, þar sem
störf félagsins aukast ár frá
ári, en opinber styrkur eykst
í réttu lilutfalli við aukin störf.
Af þessu leiðir aftur að félagið
verður stöðugt að leita á náðir
bæjarbúa, enda er starfsem-
inni eingöngu lialdið uppi af
þremur aðilum: því opinbera
að einum þriðja hluta, frjáls-
um framlögum Reykvíkinga
og loks fjársöfnun frá almenn-
ingi um sumarmálin. Hefir
starfsemi félagsins mætt slík-
um skilningi, að óhætt er að
fullyrða að í þessari sameigin-
legu starfsemi stöndum við
ekki öðrum Norðurlandaþjóð-
um að baki nú orðið, enda lief-
ir starfsemin frá upphafi ver-
ið sinðin eftir slíkri starfsemi
þar.
Samhjálp
borgara.
Starfseminni þarf ekki að
öðru leyti að lýsa. Hér er um
þegnskylduvinnu manna að
ræða, sem mætt hefir vinsam-
legum skilningi bæjarhúa, og
hafa þeir þannig uppskorið
sín Iaun í ánægju yfir árangr-
inum. Reykvikingar geta bezt
sjálfir um það dæmt hverja
þýðingu starfsemin hefir i
bæjarfélaginu. í rauninni er
hér um þeirra starf að ræða í
þágu barnanna, fátækra sem
ríkra, — uppeldislega samhjálp,
sem er nauðsynleg, einkanlega
fyrir börn innan skólaskyldu-
aldurs. Borgararnir hafa tekið
til sinna ráða i hinni hraðvax-
andi höfuðborg.
Vinarbragð
Ameríkumanna.
Þess má að lokum sérstak-
lega geta að herstjórnin amer-
iska hefir sýnt okkur þá vin-
semd að lána okkur til afnota
Tripoli-Ieikhúsið, rétt hjá há-
skólanum, og verður þar um
góða skémmtun áð ræða með
íslenzkum skemmtikröftum.
Menn ættu að kaupa Barna-
dagsblaðið' bæði til þess að
styrkja málefnið, en einnig
liggja þar fyrir allar upplýs-
ingar varðandi hátíðahöldin,
' sem inenn æ'ttu ekki að fara
á mis við.
Sólskin og
merkjasala.
Sólskin kemur út í 15. sinn
með mörgum sögum og ljóð-
um og verður seld eins og áð-
ur á sumardaginn fyrsta. Enn-
fremur fer fram merkjasala.
„Sólskin“ hefst á kvæði
Huldu, „Island, Island, eg vil
syngja“. Þá er saga eftir Odd-
nýju Guðmundsdóttur, er
nefnist „Álfkonumar“, ævin-
týri eftir 12 ára telpu og fjöl-
mörg æfintýri og kvæði, frum-
samin og þýdd, auk fjölda
mynda. Ritið er að vanda hið
eigulegasta.
Eftir fyrri kynnum félagsins
af örlæti Reykvíkinga, verður
óhætt að fullyrða að fjársöfn-
unin nær nýju hámarki á morg-
un.
GLEÐILEGT SUMAR!
Gunnlaugur Jónsson,
Freyjugötulð.
LESIÐ
Bridge-bokina,
og spilið betur.
Dagur
barnanna.
TakmarkiS er:
Hraust og .
mannvænleg
börn.
2000 mánns hafa sótt
amerísku sýninguna
Um 2000 manns hafa sótt
amerísku sýninguna í Sýning-
arskála myndlistarmanna, sem
opnuð var s. 1. miðvikudag.
Upplýsingadeild Bandarikja-
stjórnar, sem stendur fyrir sýn-
ingunni, liefir gert ráðstafanir
til þess að Sgtr. Reino Luoma,
liinn finnsk-ameriski pianóleik-
ari, leiki i annað sinn, vegna
fjölda áskorana. Verður það kl.
9.30 á fimtmudagsvöldið. Leik-
ur hann þá tónverk eftir
Brahms, Bach-Rummel, De-
bussy og Paganini-Liszt.
Annað kvöld kl. 9.30 leikur
35 manna lúðrasveit Banda-
ríkjahersins, undir stjórn John
Corley. Einnig syngur Gomer
Wolf, liðþjálfi (barytón). Hann
var söngvari við San Carlo Op-
eruna í New York áður en hann
gekk í herinn.
Sýningunni verður lokið á
miðnætti á föstudag.
GLEÐILEGT SUMAR!
Ullaruerksmiðjan Framtíðin.
GLEÐILEGT SUMAR!
Sigurður Halldórsson,
Öldugötu 29.
GLEÐILEGT SUMAR!
Þökk fyrir veturinn.
Veitingasalan Oddfellowhúsinu.
GLEÐILEGS SUMARS
óskar öllum
Dósaverlcsmiðjan h.f.
GLEÐILEGT SUMAR!
Efnalaugin Glæsir.,
GLEÐILEGT SUMAR!
Þvotlahús Reykjavíkur.
GLEÐILEGT SUMAR!
Verzlunin Varmá.
GLEÐILEGT £UMAR!
Verðandi.
GLEÐILEGT SUMAR!
Sjóklæðagerð fslands
GLEÐILEGT SUMAR!
Verzlunin Fálkinn.
GLEÐILEGT SUMAR!
Hótel Vík.
GLEÐILEGT SUMAR!
Hannes Erlendsson,
klæðskeri.
I
GLEÐILEGT SUMARl
Sig. Þ. Skjaldherg.
GLEÐILEGT SUMAR!
^Sé/hosgogn
GLEÐILEGT SUMAR!
G. Bjarnason & Fejldsted
e. m.
GLEÐILEGT SUMAR!
Kjöt & Fiskur.
GLEÐILEGT SUMAR!
Belgjagerðin.
GLEÐILEGT SUMAR!
Verzlun
Benóný Benónýsson.
GLEÐILEGT SUMAR!
Raftælcjaverzlunin
Ljósafoss.
XXXXXXXXXXiOCXXXXXXXXXXXXX
0